Morgunblaðið - 07.04.1965, Síða 6

Morgunblaðið - 07.04.1965, Síða 6
6 MORGUNBLADIÐ Miðvikudagur 7. apríl 1965 Jón H. Þorbergsson: Burt með svartbakinn EIN dýrmætustu náttúrugæði þessa lands er æðarfugl og lax. Það er gott að sofa undir æðar- dúnsængunum og laxinn er einn dýrasti veizlumatur, bæði hér og erlendis, og laxveiðin hér með stöng, mesta sport landsins. Æðar dún og lax er hæigt að flytja út úr landinu fyrir stórar fjárfúlg- ur. Ein af nauðsynjum fyrir betri fjárhagsafkomu landsmanna er að fjölga æðarfugli og laxi af fremsta megni. Vágestur þessara hlunninda er Svartbakurinn. Honum fjölgar svo hér í landi, að miklum undr- un sætir, og má segja að hann sé orðinn eins og mý á mykju- skán. Það mætti ætla að hann flytti inn frá útlandinu. En svo verpir hann þar, sem vart verður komizt að hreiðrunum. Eitt varp land hans er við Vatnajökul yfir Breiðamerkursandi. Þegar ég ferðaðist þar um fyrst 1910, var það háttur bænda í sveitum þar áustur að fara lestarferðir á „Sandinn“, þegar unginn var Moskvu, 5. apríl (AP) AYUB KHAN, forseti Pakistan, dvelst um þessar mundir í Sovét- ríkjunum í opinberri heimsókn. Um helgina ræddi hann við æðstu leiðtcga Sovétríkjanna um heimsmálin á breiðum grundvelli og mál, sem viðkoma sambúð landanna tveggja. Af orðalagi frcttar Tass-fréttastofunar af við- ræðunum ráða erlendir frétta- menn í Moskvu, að ágreiningur hafi ríkt, að minnsta kosti um eitt atriði. Telja þeir líklegt, að sovézku leiðtogarnir hafi neitað tilmælum Ayubs um, að Sovét- ríkin hættu að selja Indverjum vopn. í tilkynningunni um viðræð- urnar segix, að þær hafi verið „vinsamlegar og hreinskilnisleig- ar“, en erlendir fréttamenn segja Jón H. Þorbergsson að þegar sagt sé í Sovétríkjunum, að viðræður við erlenda stjórn- málamenn séu „hreinskilnislegar“ sé venjulega um einhvern ágrein- ing að ræða. Meðal þeirra, sem Ayub ræddi við um helgina voru Alexei Kosygin, forsætisráðherra Sovét- ríkjanna, og Leonid Brezhnev, formaður kommúnistaflokksins sovézka. Þeir ræddu fyrst og fremst ástandið í S.- otg SA.-Asíu og sambúð landa sinna. Og haft var eftir Khan, að hann væri sannfærður um að viðræðurnar yrðu til þess, að sambúð Sovét- ríkjanna og Pakistan mundi batna enn meir í framtíðinni. Anastas Mikoyan, forseti Sovét- ríkjanna, kom heim úr Ungverja- landsför sinni í dag og talið er að hann muni hitta Ayub Khan að máli einhvern næstu daga. skriðinn þangað niður, drepa hann í stórum stíl og salta ofan í tunnur. Þessu held ég að nú sé hætt. Ég flutti að Laxamýri fyrir 37 árum. Þá var við Laxá eða Lax- árós strjálingur af Svartbak á móti því, sem nú er orðið. Mætti segja margar sögur um aðfarir hans við ána á Laxamýri. Eitt sinn var ég að ríða yfir Laxá neðan við Æðarfossa. Þar voru kollur á ánni með ögn stálpaðra uniga. Þá horfði ég á að einn Svartbakur gleypti í sig 8 æðar- unga, hvern á eftir öðrum. Þeir reyndu að verja sig með því að dýfa sér, en Svartbakurinn sveim aði yfir og tók þá um leið og þeir komu upp úr vatninu til að anda. Það var ekki hægt að sjá að Svart bakinum gengi neitt illa að renna ungunum niður, þótt þeir sýnd- ust stór kjaftbiti handa honum. Sæmundur Stefánsson frá Yöll um vinnur að því af mikilli alúð, að koma upp æðarvarpi í Hrísey. Hann segir mér að þrátt fyrir mikla vörzlu hafi Svartbakurinn étið 90% af æðarungunum á síð- astliðnu vori. Við reynum nátt- úrulega að skjóta Svartbakinn á Laxamýri, en þrátt fyrir það sér ekki högig á vatni. — En hér er ekki nema hálf sögð sagan af Svartbakinum á Laxa- mýri. Hann heldur til í hundruð- um og þúsundum við Laxárósinn og tínir í sig laxaseiði og silungs seiði á grynningum við ósinn á leið þeirra til sjávar, og þannig tímr hann í sig seiði upp um ár Oig læki. Við Laxárós í Leirár- sveit var skotinn einn Svartbak- ur og krufinn. Hann reyndist vera með 100 seiði úr ánni í mag- anum. Hvað mundu þá mörg þús- und Svartbakar vera með mörg laxa- og silungsseiði í maganum? Við bændur við Laxá í Suður- Þing., teljum okkur fara vel með ána með hóflega stundaðri stang veiði og teljum, að laxagengd ætti að aukast í ánni, miklu meira en raun ber vitni. Þagar laxaeldistöðin í Kollafirði — sem er stórmerkilegt og nauðsynlegt fyrirtæki — hefir fengið svarað Ayub Khan ræðir við Sovétleiðtoga Svartbakur sporðrennir æti þeim spurningum, sem hún leitar eftir, verður hafizt handa um laxaeldi um allt land. En þá verð ur jafnhliða að drepa Svartbak- inn alveg miskunnarlaust. Árið 1912 sagði mér gamall bóndi í Grímsnesi, Ásmundur á Apavatni, að á fyrstu búskapar- árum sínum hefði hann rekið 100 hagalömb til fjalls eitt sumar. Hann heimti aðeins 20 af þeim um haustið. Hin öll, sagði Ás- mundur, að tófan ’hefði drepið. Þetta hefir gerzt um 1870-1880, en um það bil var þá hafizt handa um skipulagða grenja- vinnslu fyrir sveitina. Eitthvað svipað þessu standa nú sakirnar með Svartbakinn, æðarungana og laxveiðina. Hjá mér á Laxamýri höfum við barizt við Svartbakinn með eitr- un ag skotum. Samt hefir af hans völdum, æðarvarpið minnkað á Laxamýri síðan ég kom þangað, um 60%. Sumir varpbændur hafa þó enn verri sögur að segja. — Það er svo mikið hagsmuna- mál fyrir þjóðina að fjölga sem mest æðarfugli og laxi með þeirri prýði og nytjum, sem hvort tveggja veitir landinu, að ég leyfi mér að telja það neðan við allar hellur ef löggjöfin tek- ur hér ekki duglega í taumana. Hér þýða ekki neitt einhver til- finningamál. Væru öll meindýr í landinu látin leika lausum hala, þá legðist landið í eyði. Hér verð ur því að snúa sér að veruleik- anum sjálfum. Alþingi þarf að gefa út ný og endurbætt lög um eyðingu Svart- baks, þar sem gerðar eru ráð- stafanir til að eyða honum í stór- um stíl og miskunnarlaust. Fela veiðistjóra yfirumsjón ag fram- kvæmd þeirra laga og heimila fé til framkvæmda. Um þetta mætti rita langt mál, sem ekki verður gert að þessu sinni. En ég tel að til þessara fram- kvæmda þurfi ekki neitt stórfé, því að sjálfsagt tel ég að bænd- ur, sem eiga æðarvarps- og lax- veiðihlunnindi, hjálpi til að út- rýma Svartbaknum, þessum varg, sem ötullega vinnur að eyðingu einnar dýrmætustu hlunninda þessa lands ag sem auka fegurð landsins og verðmæti í stórum stíl. 3/4 1965. Jón H. Þorbergsson. Styrkur til ereskunáms FÉLAGIÐ Anglia hefur ákveðið að veita íslenzkum stúdent styrk til að taka þátt í sumarnám- skeiði í ensku á sumri komanda. Allmargir háskólar í Bretlandi efna til slíkra námskeiða, venju- lega í júlí, og standa þau um þriggja vikna skeið. Styrkur Anglíu nemur um 6.000 krónum Og nægir fyrir útgjöldum í sam- bandi við námskeiðin í Bretlandi. Nánari upplýsingar um styrk- inin og námskeið eru fyrirliggj- andi hjá brezka sendiráðinu í Reykjavík. Geta væntanlegir um- sækjendur snúið sér þangað. Um- sóknir verða að hafa borizt fyrir 10. apríl nk. • BURT MEÐ AURHLÍFARNAR Hér kemur bréf frá öku- manni: „Ég tel, að bifreiðaeftirlitið eigi að láta af þeirri fyrirætl- an sinni að skylda alla til að hafa svonefndar aurhlífar á bíl- um sínum. Þeir eru hættir við aurhlífarnar í Danmörku, því að reynslan sýndi, að þær voru gagnslausar, eða beinlínis til ógagns. í Danmörku eru svo til allir vegir malbikaðir eða steyptir, og þar hafa því aurhlífarnar verið ætlaðar til að koma í veg fyrir, að óhreinn vatnsúði undan afturhjólum bærist á framrúðu næsta bíls fyrir aftan. Þetta vandamál réðu aurhlífarnar ekki við, og þær ráða ekki heldur við stein- kast undan afturhjólum. Nýlega ók ég lengi á malar- vegi á eftir bíl, sem var með aurhlíf við annað afturhjólið, en hitt ekki. Ég og farþegar mínir sáum öll glöggt, að stein- kastið var engu minna frá hjól- inu með aurhlífinni en hinu. Einu sinni hefur framrúðan í bíl mínum brotnað vegna stein- flugs. Steinninn kom frá bíl, sem ég var að mæta og var með aurhlífar. Aurhlífarnar verja lítt eða ekki gegn steinkasti aft- ur undan bílum, en skapa nýja hættu með því að kasta grjót- inu til hliðanna, og þannig virð ist manni flest óhöppin verða. Þess vegna segi ég: Burt með aurhlífarnar, þær eru til óprýði, en einskis gagns, og oft til tjóns. • OF LANGT GENGIÐ Þá vildi ég mælast til þess, að bifreiðaeftirlitið léti skyn- semina ráða, en ekki ofurkapp- ið, í sambandi við skrautið framan á bílunum. Það má ef til vill segja, að þetta skipti ekki svo miklu máli. En það gerir það nú samt, því að ein- staklingsfrelsið ber að virða meðan það ekki er til voða fyr- ir almenningsheill, en valdbeit- ingu ber að forðast að óþörfu. Ég tel sjálfsaigt að fjarlægja af bílum spjót og aðra hluti, sem eru oddhvassir fram á við og gætu við árekstur stungið menn og skepnur á hol. En nú eru bifreiðaeftirlitsmennimir farn- ir að ganga svo langt, að þeir hafa skipað mönnum að fjar- lægja allskonar smáskraut, sem enginn oddur er á, eða e.t.v. smáhnúður, er vísar aftur á bílnum, svo og hliðarspegla á skermum o.fl. Þetta kalla ég valdbeitingu að nauðsynjalausu. Spjótin auka hættu, því að þau geta gengið á hol. En oddlausir hlutir framan á bílum eru ekk- ert hættulegri en t.d. stuðarinn, vélhlífin, framrúðan o.s.frv., ef til áreksturs kemur. Og hliðar- speglarnir auka öryggi í um- ferðinni. Látið skynsemina ráða. góðir eftirlitsmenn! Ökumaður.*1 háspennukefli í alla bíla BO SC H BRÆÐURNIR ORMSSON hf Vesturgötu 3. — Sími 11467.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.