Morgunblaðið - 07.04.1965, Side 10

Morgunblaðið - 07.04.1965, Side 10
1U MORGUNBLADID Miðvikudagur 7. apríl 1965 Arftaki Gheorghiu-Dej: Rúmenía fyrir Rúmena og hlut- leysi í deilu Kínverja og Rússa Gheorg'he Gheorghiu-Dej, for- seti Rúmeníu og formaður kommúnistaflokksins þar, and aðist í sjúkrahúsi í Búkarest hinn 19. marz sl. 63 ára að aldri. Hafði hann frá 1961 ver- ið valdamesti maður Rúmeníu og stefnt að því með góðum árangri að losna undan erlend um áhrifum, hvort sem þau komu frá Kína eða Sovétríkj- unum. Hann barðist gegn því að Rúmenia yrði gerð að forða búri hinna kommúnistaríkj- anna og skapaði þegnum sín- um betri lífskjör en nágrann- ar þeirra áttu við að búa. Stefna hans var „Rúmenía fyrir Rúmena“ og vann hún honum fylgi utan raða komm- únista, sem innan. Útför Gheorghiu-Dej var gerð miðvikudaginn 24. marz, að viðstöddu fjölmenni. Bæði Rússar og Kínverjar sendu fulltrúa til útfararinnar. Frá Sovétríkjunum komu Anastas Mikoyan, forseti og Alexander Shelepin, fulltrúi Æðstaráðs- ins. En frá Kína komu Chou En-lai, forsætisráðherra, og Hsieh Fu-chih, hershöfðingi. Áður en útförin var gerð hafði Æðstaráðið skipað nýj- an flokksleiðtoga. Fyrir val- inu varð Nicolas Ceausescu, 47 ára, sem átt hefur sæti í framkvæmdaráði flokksins og stjórnmálanefnd og verið ná- inn samstarfsmaður Gheorg- hiu-Dej. Fylgdi það fréttinni um skipan hans að farið hafi verið eftir óskum hins látna leiðtoga. Ef fulltrúar Sovétríkjanna og Kína hafa gert sér vonir um að fráfall Gheorghiu-Dej leiddi til breytinga á stefnu Rúmena, brugðust þær er arf- takinn, Ceausecu, flutti ræðu við útförina. Tók hann þar skýrt fram að utanríkisstefnan væri óbreytt frá þeirri línu, sem Gheorghiu-Dej lagði. Og eins og til að fyrirbyggja að Kínverjar gerðu sér mat úr því að Rúmenar væru óháðir Rússum hélt stjórnin hádegis- veizlu fyrir Mikoyan án þess að bjóða Chou En-lai þanigað. • Nicolas Ceausescu (frambor ið tsjó-séss-kú, með áherzlu á miðatkvæði) á margt sameig- inlegt með Gheorghiu-Dej, og þá fyrst og fremst það að vilja Rúmeníu fyrir Rúmena og hlutleysi í deilum Kínverja og Rússa. ☆ Hann hefur sjaldan ferðast vestur fyrir járntjaldið, eða aðeins þrisvar svo vitað sé. Fyrsta ferðin var til Rómar þar sem hann var fulltrúi rú- menskra kommúnista á flokks þingi ítalska kommúnista- flokksins 1962. Næst fór hann ásamt konu sinni í sumarleyfi til Parísar, Sýnir það nokkuð hve vel honum er treyst, því strangt eftirlit er .með utan- landsferðum rúmenskra em- bættismanna. Þriðja ferðin var einnig farin til Ítalíu, og var Ceausescu þar viðstaddur útför kommúnistaleiðtogans Palmiro Togliattis síðastliðið sumar. Ceausescu er af bændaætt- um, oig fyrir heimsstyrjöldina síðari bjó hann í Pitesti héraði fyrir norðvestan Búkarest. Þar gerðist hann félagi í æskulýðs- samtökum kommúnista. Hlaut hann skjótan frama og varð framkvæmdastjóri æskulýðs- samtakanna. Á stríðsárunum var hann fangelsaður fyrir andstöðu við fasistastjórn Antonescus marskálks, sem síðar var líflátinn. Og i fang- elsinu kynntist hann Gheorg- hiu-Dej. Eftir að hersveitir Rússa höfðu hrakið nazista frá völd- um í Rúmeníu og tryggt kommúnistum stjórn landsins hóf Ceausescu störf fyrir flokk sinn að nýju. Var hon- um brátt falið starf við póli- tíska stjórn hersins og sæmd- ur hershöfðingjanafnbót. Hann var kjörinn fulltrúi í miðstjórn flokksins 1948, skip- aður aðstoðarlandbúnaðarráð- herra sama ár, aðstoðar her- málaráðherra 1950, og fulltrúi Nicolas Ceausescu í stjórnmálanefnd -iokksins (politburo) 1955. Einnig tók hann sætj í framkvæmdaráði míðstjórnarinnar 1954. Ceausescu vann aðallega að innanríkis- og skipulagsmál- um, en engu að síður var hann sendur sem fulltrúi á ráð- stefnu kommúnistaríkjanna í Moskvu 1957 og á 21. flok’ks- þing r-ússneskra kommúnista í Moskvu 1959. En þrátt fyrir trúnaðarstöður er Ceasescu lítt þekktur í heimalandi sínu og enn minna utan þess. Hann er lágvaxinn, aðeins um 168 sentimetrar, en gildvaxinn, hálsdigur með þykkar varir og stórt nef. Og hann er yngsti leiðtogi kommúnistaríkjanna. (Aðalheimild New York Times>. ☆ I I stuttu París, . apríl, NTB. Friðrik Danakonungur og Ingrid drottning komu í morg un til Parísar í fjögurra daga opinbera heimsókn. Como, 5. apríl, NTB. Lokið er í Como á Ítalíu ráðstefnu . fulltrúa fimimtán ríkja Vestur-Evrópu og Bandaríkjanna um samvinmu á sviði fjármála. Var hér uim að ræða svonefnda Bilden- berg ráðstefnu, sem nú var haldin í 14. sinn. Frumkvöð- ull- hennar var í upphafi Bern ard prins í Hollandi og stjórn aði hann fundum nú. Nafn di'egur ráðstefnan af hóteli því í Hollandi, þar sem hún var haldin í fyrsta sinn ár- ið 1954. Áttatíu fulltrúar tóku þátt í viðræðunum nú, bæði stjórn málamenn, efnahgssérfræðing ar og háttsettir embættis- menn, þeirra á meðal Hertog- inn af Edinborg, George Ball, aðstoðarutanrikisráðherra Bandaríkjanna og Robert Mar jolin varaforseti stjórnar- nefndar Efnahagsbanda- lags Evrópu. 1 SÍMl: 3V333 ■Av^LLT TlLLflGU Kuana"b í lap VÉLSKÓrLUTZ I?-RATTAEBÍLAR FLUTNIN6AVA6NAR. pUNGAVMUVflAMÍ ' '3V335 Ferðaáætlun Sexfugur 1 dag: Carr's TABLE WATER Ósætt tekex, einstætt í sinni röð — enda er það vinsælt. Hjörtur Sturlaugs- son, Fagrahvammi Ferðafélagsins FERÐAFÉLAG íslands hefur ný- lega gefið út ferðaáætlun sína fyrir árið 1965. Eru í henni greindar allar þær ferðir, sem fara á á árinu. Lengsta ferðin verður um Norður- og Austur- land og verður hún farin 13. júlí. í aðaldráttum verða ferðir Ferðafélagsins, sem hér segir: Páskaferðir verða þrjár, 5 og 3 daga, Hvítasunnuferðir verða þrjár, 2% dags. Sumarleyfisferðir verða 21, 4-13 daga. Fastar heigarferðir verða 46 talsins, IV2—2Vi> dags. Um verzlunar- mannahelgina verða farnar sex ferðir, allar 2Vz dags. Aðrar helgarferðir verða 48 og standa í 1—2 daga. Auk þess vera fjórar miðvikudagsferðir í Þórsmörk í júlímánuði. Eins og kunnugt er, flutti Ferðafélag íslands nýlega skrif- stofur sínar að Öldugötu 3, 1 hæð. í DAG á sextugsafmæli Hjörtur Sturlaugsson, bóndi í Fagra- hvammi í Skutulsfirði við fsa- fjarðardjúp. Hann er fæddur í Snartartunigu í Strandasýslu 7. apríl árið 1905. Foreldrar hans voru sæmdarhjónin Guðbjörg Jónsdóttir og Sturlaugur Einars- son, bóndi í Snartartunigu. Ólst Hjörtur þar upp og hóf síðan ungur búskap í Snartartungu. Bjó hann þar árin 1930-1933. Þá fluttist hann vestur að ísafjarð- ardjúpi og hefur átt þar heima síðan. Hóf hann þar búskap í Fagrahvammi í Skutulsfirði, þar sem hann hefur gert miklar um- bætur, unnið mikil ræktunarstörf og húsabætur. Mörgum trúnaðar- störfum hefur Hjörtur gegnt í sveit sinni. dísi Jónsdóttur frá Borg í Reyk- hólasveit missti hann árið 1943. Síðari kona hans er Guðrún Guðmundsdóttir frá Brek’ku á Ingjaldssandi. Eiga þau fallegt og hlýlegt heimili í Fagra- hvammi. Hjörtur Sturlaugsson er mynd- mesta prúðmenni í allri fram- komu. Er hann vel látinn meðal allra sem honum kynnast. Vinir hans og samsýslungar óska hon- um innilega til hamingju með sextugsafmælið, um leið og þeir árna honum allrar blessunar og gengis í framtíðinni. Norður-ísfirSingur. Hjörtur Sturlauigsson er tví- Þar er einniig afgreiðsla félagsins. kvæntur. Fyrri konu sína Arn- Skrifstofustúlka Heildverzlun óskar að ráða stúlku til vélritunar, símagæzlu og almennra skrifstofustarfa. Þarf að geta vélritað á ensku eftir diktafón. Góð laun. Upp- lýsingar um menntun, aldur og fyrri störf sendist blaðinu, merkt: „Heildverzlun — 7122“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.