Morgunblaðið - 07.04.1965, Síða 14

Morgunblaðið - 07.04.1965, Síða 14
14 MQRGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 7. apríl 1965 Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Áskriftargjald kr. 90.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 5.00 eintakið. FRAMFARIRNAR í LANDB ÚNAÐINUM /''’uðmundur Jónsson, skóla- " stjóri á Hvanneyri, ritar grein í Morgunblaðið um land búnaðinn 1964. Segir hann þar í lokaorðum: „Árið 1964 mun hafa verið fremur hagstætt í heild sinni fyrir bændur landsins, þegar miðað er við fyrri ár. Með því búvöruverði, sem samið var - um síðastliðið haust og bú- stærð um 10 nautgripi, 137 kindur og hross, er gert ráð fyrir að bóndinn hafi í heild- ararð af búskapnum rúmlega 300 þúsund krónur. Af þeirri upphæð þarf hann að greiða allan kostnað við búskapinn og framfleyta sér og fjöl- skyldu sinni. Búin eru stöðugt að stækka, þótt hægt fari. Á síðustu 20— 25 árum hafa þau stækkað um nálega 50%, en á sama tíma hefur fólki fækkað í sveitunum um ca 10 þúsund manns. Þetta eru framfarir, sem engan veginn má van- meta“. Guðmundur Jónsson getur þess, að árið 1963 hafi nýrækt aukizt talsvert og uppþurrk- un lands hefur vaxið til mik- illa muna. Hann víkur að því, að fyrir aldamót hafi útheys- fengur landsmanna að magni til verið næstum tvöfaldur við magn af töðu. Eftir 1930 var töðumagn og úthey svo til jafnt, eða um 7 milljónir hestburða á ári af hvoru fyr- ir sig, og síðan hefur töðu- magnið vaxið svo, að miðað við fóðurgildi má æt’a að út- heyið samsvari aðeins um 6% af heyfengnum. En auk þess hefur túnbeit mjög farið vaxandi eins og kunnugt er. „ Árið 1880—1890 var stærð túna ekki fjarri 10 þúsund hekturum, 1930 eru þau talin um 26 þúsund hektarar, 1960, 75 þúsund hektarar, og um áramótin 1964—65 má telja líklegt að stærð túna sé ekki fjarri 95 þúsUnd hektarar. Af þessu sést að framfarir í landbúnaði hafi orðið mikl- ar síðustu áratugina og ekki sízt núna allra síðustu árin. Búin stækka jafnt og þétt og stöðugt er komið við meiri tækni og margháttaðri vinnu hagræðingu. Landbúnaðar- * framleiðslan eykst, þótt fólki fækki, sem við hana vinnur. Sýnir þetta, að það er al- rangt, sem stundum er hald- ið fram, að framfarir séu litl- ar í landbúnaði. Þvert á móti eru þær mjög miklar, en samt þurfa þær að verða enn meiri, búin þurfa að stækka til muna frá því sem nú er, svb að unnt verði að framleiða ódýrari landbúnaðarvörur með aukinni hagkvæmni í rekstri og vélanotkun. ÁTAK BORGAR- STJÓRNAR I GATNAGERÐ Dorgarstjórn Reykjavíkur samþykkti nýlega fram- kvæmdir þessa árs í gatna- og holræsagerð, en þar er um að ræða áframhaldandi fram- kvæmd á 10 ára áætluninni um gatna- og holræsagerð, sem samþykkt var 1962. Sam- kvæmt þeirri stórhuga áætl- un er gert ráð fyrir því að fullgera allar götur í borg- inni, ásamt holræsakerfi og gangbrautum fyrir 1972, en þá eru aðeins fráskilin þau hverfi, sem kunna að vera undirbúin til byggingarfram kvæmda eftir 1970. Heildar- lengd gatna, sem fullgerðar eru þegar og munu verða fullgerðar á þessum 10 árum, er samtals 94 kílómetrar eða rúmlega 2,2 milljón fermetr- ar. Geir Hallgrímsson, borgar- stjóri, skýrði frá gangi þess- ara mála á borgarstjórnar- fundinum í síðustu viku. Það kom fram, að um næstu ára- mót verður búið að malbika akbrautir og leggja gang- brautir á um rúmlega hálfa milljón fermetra og er það 13% umfram áætlun. Þá hefur verið staðið við alla þætti áætlunarinnar, nema í Holtunum, þar sem töf er vegna hitaveitulagnar og í Háskólahverfinu, þar sem stendur á endanlegu skipu- lagi. Þá hefur lagning gang- brauta nokkuð verið á eftir áætlun. Stafar það af skorti á vinnuafli, en ekki er hægt að beita vélaafli við gangbrauta- gerð í sama mæli og við mal- bikun akbrauta. Þetta er glæsilegur árang- ur, ef framkvæmdaáætlun yf- irstandandi árs stenzt, eins og horfur eru á, og ber því glöggt vitni, að haldið er á borgar- málefnum af stórhug, festu og raunsæi. Sama er að segja um stórátök í hitaveitulögn og skipulagsmálum borgarinnar, en ýmis önnur mál og mála- ílokka mætti tilgreina. Þegar 10 ára gatnagerða- áætlunin var afgreidd 1962, þá sýndu Framsóknarmenn áætluninni staka óvitd og Vssia^ UTAN ÖR HEIMI ,Það getur enginn lengur byggt á sjálfum sér' — segir bandaríska leikrita- skáldið Tennessee Wiliiams BANDARISKI leikritahöfund- urinn Tennessee Williams kom fyrir skömmu til London til að vera við frunioýningu á leikriti sinu, „The NigLt ^f the Iguana“, sem sýnt v„r í fyrsta skipti í höfuðborginni 24. marz, eftir velheppnaða leikferð út um land. Fréttamenn hittu Tennec_.é Williams að máli af þessu til- efni og spurðu m.a., hversu honum hefoi pótt takasi kvik- myndin. sem gerð var vestra eftir þessu leikriti hans. Willi- ams kvaðst engan vegin sátt- ur við *kvi'kmyndina, sagði að atriði þau sem hann hefði brJ.t inn i handritið að henni hefðu ekki verið notuð, en að vísu flest samtölin sem hann hefði skrifað. Auk þess vaeri það fyrir neðan allar hellur, sagði rithöfundurinn, að láta það heita sorglegan endi á kvik- myndinni að presturinn stolti og útskúfaði yrði að „sætta sig við“ Övu Gardner. „Ava er indæl“, sagði Williams, „en hún er ómöguleg í þetta hlut- verk, alltof falleg, það geta ekki talizt neinu manni afarv kostir að sitja uppi með hana.‘ Síðan vék Williams að sjálf- um sér og sínum einkamálum og saigði m.a.: „í september í fyrra dó bezti vinur minn úr krabbameini. Það fékk svo á mig að ég gat ekki talað við nokkurn mann, ekki svarað í síma, ekki farið til dyra ef bar ið var og ekki skrifað staf. — Ég tók svo það ráð að ferðast, en það stoðaði ekkert, mér leið alls staðar jafn illa. Loks á’kvað ég að reyna að fara til sálfræðings. Ég hafði reyndar reynt það áður — fyr- ir sjö árum eða þar um bil — en gafst þá upp á því, fannst það ekkert gagn gera. En nú hef ég fundið sálfræð ing, sem hefur hjálpað mér svo um munar. Ég hef meira að segja horfið að heiman, frá Key West, og sezt að í New York, sem ég hef þó megnasta ímugust á, til þess eirts að geta farið til hans reglulega fimm daga vikunnar. Aðspurður hverju það myndi sæta, að svo margir bandarískir rithöfundar núlif- andi kynslóðar leituðu sér at- hvarfs í sálgreiningu, þar sem rithöfundar fyrri kynslóða, sem átt hefðu við . svipuð vandamál að stríða og oftast nær verið mun verr settir fjár hagslega, hefðu ekki þurft á slíku að halda, svaraði Willi- ams: „Það er af því hvernig heimurinn er í dag. Það er eins og alltaf sé á næsta leiti einhver óhugnan og skelfing — og syo þessi einangrun. Sjálfstraust manna hrynur til grunna gagnvart þessum ósköpum og menn neyðast til að leita sér einhverrar leið- sagnar, hlíta forsjá einhvers um ailar sínar gerðir.“ Kannske í þriðja sinn Tennesse Williams vinnur nú að endurbótum á leikriti sínu, „The milk train doesn't stop here anymore“, sem tvisv ar hefur verið tekið til sýn- ingar á Broadway við slæmar undirtektir en gert er ráð fyr- ir að sýna í London í vor eða snemma að hausti. „Ég ætta að reyna að bjarga því bezta úr sýningunum báðum“, sagði leikritaskáldið, „og ef vel tekzt til með það hér í London reyni ég við Broadway í þriðja sinn“. Þetta minnir á hversu varð um leikrit Thornton Wilders, sem fyrst var sýnt á Broad- way og hét þá „The Merehant of Yonkers.“ Litlum sögum fór af því þá, en er það vac sýnt í London, óbreytt en með öðru heiti og kallað „The Matchmakers“ náði það strax metaðsókn. Seinna var það svo aftur tekið til meðferðar vestra og var þá sýnt á Broad- way í þrjú ár samfleytt og var loks notað sem uppistaðan í söngleiknum „Hello DoIly.“ „Það er að vísu ekkert söng leikaefni í „The Milk Train“, sagði Tennessee Williams hugsi. „En það gæti orðið efni í dágóða kvikmynd.“ tortryggni. Slíkar nndirtektir Framsóknarmanna á fram- faramálum borgarinnar eru ekki nýjung. Nægir hér að minna á andstöðu þeirra gegn Hitaveitu Reykjavíkur og Sogsvirkjuninni. Úrtölur og neikvæðan málflutning af þessum rótum mátti glöggt greina í ræðu annars borgar- fulltrúa Framsóknarflokksins á borgarstjórnarfundinum í sl. viku. Hann gagnrýndi það, að framkvæmdum væri haldið áfram við malbikun akbrauta, þegar lagning gangbrauta tefð ist af augljósum orsökum. Þá vildi hann fresta afgreiðslu málsins og bar fyrir sig skamman umhugsunartíma. Framkvæmdaáætlunin hefur þó legið frammi frá 1962 og framkvæmdir þessa árs hafa verið til ítarlegrar athugun- ar í borgarráði, þar sem hinn borgarfulltrúi Fram- sóknarflokksins á sæti. 1962 voru það kommúnistar, sem vildu draga málið á langinn, og fóru fram á þrjár umræð- ur, en þeir höfðu að þessu sinni fremur hægt um sig. Framsóknarmenn virðast nú hafa tekið einir upp baráttu kommúnista, þar sem frá var horfið. TOLLAR LÆKKA ENN XJiðreisnarstjórnin cfofnf a Á hefur stefnt að því að lækka tolla á margháttuðum varn- ingi. Hafa tollalækkanir ver- ið framkvæmdar margsinnis síðan viðreisnin hófst, enda voru tollar hér á mörgum sviðum langtum hærri en nokkurs staðar annars í nágrannalöndunum, en þau keppa auk þess flest að því að lækka enn tolla og örva við- skipti milli landa. Að þessu sinni er lagt til að lækka tolla á vélum, sem nú er yfirleitt 33%, þannig að tollar á almennum iðnaðar- vélum verði 25%, en 10% af vélum og tækjum til virinslu útflutningsafurða. Þó verði 15% tollur af slíkum vélum, sem jafnframt eru framleidd- ar í landinu. Þessi lækkun vélatolla auð- veldar íslenzkum iðnaði að standast samkeppnina við innfluttan iðnaðarvarning og ætti að greiða talsvert fvrir eðlilegri þróun íslenzks iðn- aðar, en aukin notkun full- komnasta vélabúnaðar er að sjálfsögðu meginskilyrði þess, að íslenzkur iðnaður nái þeim vexti, sem að er kep“>t. Talsverð framleiðslh er / 'r innanlands á ýmiskonar vél- um. Þá framleiðslu þarf eitt- hvað að vernda og þessvegna er ekki talið unnt að lækka tolla jafn mikið á slíkum varningi, því að það gæti hindrað þróun hins unga véla iðnaðar hérlendis, Tollamálin eru þannig vandmeðfarin, og nauðsynlegt að framkvæma tollalækkanir í áföngum eins og gert hefur verið. íslenzkur iðnaður verður nú að keppa við innfluttan varning, sem að vísu er í lang flestum tilfellum hátt tollað- ur, þannig að okkar iðnaður hefur verulega vernd. Engu að síður verður í mörgum til- fellum að bæta reksturinn í íslenzkum iðnfyrirtækjum, og lækkun tolla á iðnaðarvélum er auðvitað mikilvæg, þegar slíkt þarf að gera, auk þess sem mörg ný iðnfyrirtæki munu hefja starfrækslu á næstu árum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.