Morgunblaðið - 07.04.1965, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 07.04.1965, Qupperneq 24
24 MORCU N BLAÐIÐ Miðvikudagur 7. apríl 1965 ANN PETRY: STRÆTIÐ fæturna á henni, rétt eins og þér væru ekki fastir við hana. Þeir sáu bara fæturna, upp- bólgna og með líkþornum — negrafætur. Þetta orð skein út úr svipnum á þeim. Jafnvel við negralækna var hún auðmjúk og afsakandi. Ekki einu sinni Jones hlustaði á hana, jafnvel þó hann væri í góðu skapi. Það var rétt eins og hún væri alls ekki inni hjá hon- um. Meðan hún lét dæluna ganga, var hann með hugann allt annarsstaðar, við eitthvað, sem kom honum til að hleypa brún- um og bíta í varirnar á sér. Og svo húsmæðurnar hennar! Stutt, ar, feitar, æstar, rólegar eða drukknar, en engin þeirra hafði nokkurntíma hlustað á hana þegar hún talaði. Þær gáfu skip- anir, rétt eins og upp yfir höfuð- ið á henni, þangað til hún neydd- ist til að líta upp og gá að, hvort þarna væri eitthvert annað höf- uð ofaná hinu, sem hefði vaxið, án þess að hún vissi af. Og svo í sama bili og hún ætlaði að fara að svara þeim, voru þær roknar. í þau fáu skipti, sem hún hafði fengið tækifæri til að tala við prestinn sinn, tók hann fram í fyrir henni og sagði: — Já, við eigum öll við einhver vandræði að stríða, systir. Öll eigum við einhver vandræði við að fást. Og svo var hann líka rokinn. En þessi maður hafði hlustað, og það með áhuga, og meðan hún lét dæluna ganga, hafði hann aldrei litið af henni, og því var hún kafrjóð af ánægju, þegar hún kom fram fyrir tjaldið, því að nú hafði hún fengið tæki til að varðveita hug Jones og hafa hemil á honum. Konurnar á stól- unum gláptu á hana en hún gekk bara fram hjá þeim og lét sér á sama standa, því að hún hafði fengið það, sem hún hafði verið að sækjast eftir. Og þetta hafði verið einfalt og auðvelt og hreint ekki eins dýrt og hún hafði búizt við. Á leiðinni í strætisvagninum til 116. götu, datt henni í hug, að hvenær sem hún kynni að frétta um einhverja konu í vand ræðum, skyldi hún vísa henni til Davíðs Spámanns. Hann var svo viðræðugóður og svo góður í sér, og hann kunni sitt handverk. Og þar sem frú Hedges hafði vísað henni á hann, yrði hún að gera eitthvað fyrir hana í staðinn. Meðan hún hékk í hankanum í vagninum, braut hún heilann um, hvað það ætti að vera. Og hún var svo niðursokkin í þau heila- brot, að hún fór framhjá 116. götu og var komin að 112., áður en hún vissi af. Hún gekk eftir Áttundutröð og var enn að hugsa um frú Hedges. Hún leit inn um gluggann á blómabúð og gekk síðan inn. — Hvað kosta þessir kaktusar í gráu skálunum í glugganum? — Pakkið þér einn inn, sagði hún, og þegar búðarmaðurinn seildist út í gluggann, tók hún það sem eftir var af litla seðla- bunkanum úr barminum. Þegar hún hafði tekið tvo dali, sá hún, að ekki var orðið mikið eftir, en það sem hún hafði fengið fyrir aurana, var óendanlega miklu meira virði en það, sem hún hafði látið fyrir það. Það var dauf birta í stofunni hjá frú Hedges, og um leið og Min kom fyrir hornið, gall við rödd hennar: — Jseja, fékkstu eitthvað við þessu góða mín? — Já, heldur betur, sagði Min. Röddin var svo full-af fjöri og trúnaðartrausti, að frú Hedges glápti á hana steinhissa. — Ég vissi, að þér þykir gaman að blómum, hélt hún áfram, — svo að ég kom með þetta litilræði handa þér. Hún rétti böggulinn að frú Hedges. — Það var fallega hugsað af þér elskan. Frú Herges laut fram og tók böggulinn og beið svo til að heyra um Davíð Spá- mann. En Min stikaði einbeittum skrefum að dyrunum hjá sér, og frú Hedges gat ekki annað en teygt álkuna til þess að sjá sem lengst á eftir henni. Jones, sem mókti í stólnum hjá útvarpinu, heyrði þegar Min stakk lyklinum í skráargatið. Hann hafði verið að bíða eftir þessu hljóði, og nú stóð hann upp úr stólnum og gekk út á mitt gólf, þar sem hann teygði úr sér og var nú glaðvaknaður. Hund- urinn stóð líka upp og sperrti eyrun við hljóðið í lyklinum. Já, þessu hljóði hafði hann verið að bíða eftir, en nú fanns't honum það svo hátt, að það skar í eyru hans og olli honum óþæg- indum. Venjulega stakk Min lykl inum feimnislega í skráargatið, og eins og fálmandi, og þegar loksins læsingin small upp stóð hún kyrr ofurlitla stund, eins og hún færi hjá sér við hljóðið. En nú var lyklinum stungið í hik- laust og einbeittlega og hurð- inni ýtt upp tafarlaust. Hann hleypti brúnum er hann hlustaði á þetta, þvi að hún skellti hurð- inni í þokkabót. Sleppti af henni hendinni svo að hún skall aftur og bergmálið kvað við um allan ganginn og gæti jafnvel heyrzt upp á efri hæðirnar. Þessar óvenjulegu aðfarir hennar gerðu hann svo hissa, að þegar hún kom inn í stofuna, hófst hann ekki þegar handa um að fleygja henni út, ásamt borð- inu hennar, heldur sagði bara: — Hvar hefurðu verið? — Úti, sagði hún og gekk inn í svefnherbergið. Og hann settist niður, skelfd- ur við þá hugsun, að hún væri farin að binda trúss við einhvern annan karlmann. Hann kreppti snögglega fingurna, en rétti svo úr þeim aftur, þangað til þeir lágu máttlausir á stólbríkinni. Þarna var hann farinn að hugsa um hana aftur, þegar hann sótt- ist ekki eftir neinni nema Lutie. Og Lutie gerði ekki svo mikið sem líta á hann, en hinsvegar hafði hann Min í hendi sér. Hann sá aftur Lutie fyrir sér í anda — löngu, brúnu fótleggina og brjótin, sem stóðu út í þunnan kjólinn. Við þessa tilhugsun, stik- aði hann inn í svefnherbergið og hann kitlaði í fingurna eftir að 16 gera Min eitthvað illt. Jafnvel kitlaði hann í fótinn, sem hann ætlaði að sparka í klunnanlega afturhlutann á henni. Min var að draga prjónana úr kollháa hattinum sínum og horfði á sjálfa sig í speglinum meðan á því stóð. Það var einhver svo íbygginn ánægjusvipur á henni og flata andlitinu, sem sást í speglinum, sem var svo ljótt, að snögglega greip hann einhver ofsi. Hann tók skref í áttina til hennar og um leið sá hann hana líta út undan sér í speglinum. Hann leit líka við til að sjá hvað hún væri að horfa á; það var eitthvað, sem hlaut að vera rétt við rúmið og hann leitaði í þá átt með augunum. Þegar hann sá stóra, gyllta krossinn hanga uppi yfir rúmgafflinum, staðnæmdist hann. Þetta var rétt eins og ein- hver fingur benti á hann, ásak- andi. Næstum tafarlaust tók hann að hopa á hæli undan þessu, og alla leið inn í stofuna, þaðan sem hann gat ekki séð krossinn. Enda þótt hann væri trúlítill og færi aldrei í kirkju, þó að hann gerði Blaðburðarfólk óskast til blaðburðar í eftirtalin hverfi Skipholt II Laugaveg frá 105 - 777 Sími 22-4-80 — Það er farið að rigna mamma. Má ég ekki koma inn með nokkra vini mina og leika mér í stofunni. gys að fólki, sem var að mjálma / um syndir sínar og eyddi heilum sunnudögunum í fyrirgefningar- bænir, hafði hann aldrei getað losað sig við einhvern ótta við makleg málagjöld eftir dauðann, sem hann hafði heyrt talað um þegar hann var lítill. Til dæmis að taka málagjöldin, er þeirra manna biðu, sem girntust konur — manna eins og hans'sjálfs. Þessvegna var krossinn í hans augum óróvekjandi og hræðileg- ur hlutur, af því að hann var tákn valdsins. Hann var í huga hans í sambandi við myrkravöld- in, og gat kallað þau yfir þá, sem brutu lög kirkjunnar. Það var hræðsla við hið illa er kross- inn gat vakið upp, sem hrakti hann út úr svefnherberginu og kom honum niður í stólinn í stofunni. Hann greip höndum fyrir augu, af því að honum fannst, áð þessi gyllti kross héngi beint andspæn- is honum í staðinn fyrir uppi yfir rúmgaflinum, þar sem hann sá hann áðan. Hann tautaði eitt- hvað lágt við sjálfan sig og stóð síðan upp til að sparka heiftar- lega í hundinn, en settist síðan aftur. En inni í svefnherberginu brosti Min er hún leit niður til að kveikja á digru, hvítu kert- unum, sem hún hafði sett sitt hvorum megin á borðið. 6. kafli. Það var alltaf margt um mann- inn inn á Juntobarnum í 116. stræti. Enda var veturinn harður, Úti á strætinu. Vindurinn blés snjónum í langa skafla á gang- stéttinn, sem gátu setið þar vik- unum saman og urðu með tím- anum svo sótugir, að þeir voru ekki þekkjanlegir sem snjór, en litu öllu fremur út eins og eitt- hvert svart gosefni frá strætinu sjálfu. Og þegar svo hver kuldadagur- inn kom tafarlaust á hæla þeim næsta á undan, varð yfirborðið á þessum haugum þakið sorpi, gömlum skóm, dagblöðum og líf- stykkjareimum. Þetta frosna rusl og svo íköld golan gerði strætið býsna óvistlegan stað að vetrarlagi og fólkið fann dálitla KALLI KÚREKI —>f- you'ce PiLiW’ up mouBtE for YOUeSELVES, AN’AKJY APACHES THAT THEOW IN WITH YOU' I’M -v 6QN)K)A HAVE T’TAkE YOU BflCKfJ Teiknari: J. MORA — Við snúum ekki við og við mun- umi ekki borga fyrir nautið. Það væri þér fyrir beztu að fara héðan meðan þú heldur ennþá höfuðleðrinu. — Þið eruð að leiða vandræði yfir ykkur sjálfa og enginn apache indíáni mun ganga í lið með ykkur. Ég er til- neyddur að taka ykkur með mér til baka. — Þú ættir að reyna það. Þú nærð kannski öðrum okkar en hinn nær þér og litla indíánanum. — Hvíti maðurinn er hræddur við dauðamn en Apache-indíáninn er ekki hræddur. til breytingu í því að standa fyrir framan Junto, þar sem ljósið skein út um gluggana og hljóm- urinn frá spilakassanum gerði þetta að einskonar hlýjubletti í eyðimörkinni. Á sumrin var strætið heitt og rykugt, því að þarna voru engin tré til að skýla, svo að sólar- geislarnir helltust beint ofan á steinlagða götuna og stein- steypta húsveggina. . Og inni 1 húsunum var allt eins og í .gufu- baði og dimmu gangarnir eins og bakaraofnar. Jafnvel grindurnar á útiþrepdnum voru heitar við- komu. Eftir því sem hitamælirinn skreið jafnt og þétt upp eftir leitaði fólkið æ meir út á göt- una, af því að hitinn í húsunum var orðinn svo óþolandi. Full- orðna fólkið teygði úr sér í stól- um úti fyrir húsunum, en hálf- nakin börnin léku sér á gang- stéttinni, svo að strætið varð eins og úti-setustofa. Og þar sem fólk ið tók líka upp á því að sofa úti á þökunum og í eldvarnastigum og á garðbekkjum, varð strætið jafnframt að úti-svefnherbergi. Sama fólkið sem stóð sér til hita fyrir utan Junto á vetrum fór líka að standa þar á sumrum. Og meira að segja fjölgaði fólk- inu þar þegar sumarið kom, því að suðan í rafmagn-vindsnæld- unum og smellirnir í ísnum í glös unum, barst út á strætið og fólk- inu fannst þetta eitthvað svala sér. Þessvegna var alltaf stöðullinn fyrir framan Junto, frá því að húsið var opnað á morgnana og þangað til síðasti drykkjuhrútur- inn var lokaður þar úti að kvöldi. Höfn i Hornafirði BRÆÐURNIR Ólafur og Bragi Ársælssynir á Höfn í Hornafirði eru umboðsmenn Morgunblaðsins þar. Þeir hafa einnig með höndum blaðadreifinguna til nær- liggjandi sveita og ættu bændur, t.d. í Nesjahreppi að athuga þetta. Sandur UMBOÐSMAÐUR Morgun- blaðsins á Sandi er Herluf Clausen. Gestum og gang- andi skal á það bent, að í Verzi. Bjarg er Morgun- blaðið selt í lausasölu. Grundarfjörður VERZLUN Emils Magnús- sonar í Grundarfirði hefur umboð Morgunblaðsins með höndum, og þar er blaðið einnig selt í lausasölu, um söluop eftir lokunartíma.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.