Morgunblaðið - 07.04.1965, Síða 27

Morgunblaðið - 07.04.1965, Síða 27
Miðvikudagur 7. april 1965 MORGUNBLADIÐ 27 Fyrirlestrar Stúdentaráðs BISKUP ÍSLANDS, herra Sigur- björn Einarsson, flytur erindi á vegum Stúdentaráðs Háskóla ís- lands í kvöld (miðvikudaginn 7. apríl) kl. 21 í I. kennslustofu háskólans. Nefnist erindið: Sigurbjörn Einarsson. Öllum er heimill aðgangur tneöan húsrúm leyfir. Þetta verð ur síðasti fyrirlesturinn á veg- um Stúdentaráðs á þessum vetri, en þeir hafa samtals verið 8, og yfirleitt verið mjög fjölsóttir, bæði af almenningi og stúdent- um. ~ Krefjasf Framhald af blS. 28 mark og flugstundatryggingu hófust að nýju í nóvembermán- uði síðastliðnum og varð loka- fundur um það efni haldinn án þess að endanlegt samkomulag næðist. Hins vegar kusu Loftleið ir nefnd til framhaldsviðræðna, en þá vísuðu fulltrúar flug- manna málinu til Félags ís- lenzkra atvinnuflugmanna. Hinn 26. febrúar sl. bar samninganefnd F. I. A. fram nýjar kaup- og kjarakröfur vegna flugmanna á Rolls Royce 400, sem námu sam kvæmt þeirra eigin útreikningi kr. 810 þúsundum á ári fyrir flug stjóra í hæsta launaflokki, en það eru kr. 67.500 á mánuði. Er þá miðað við verulega lækkun flug stunda og gert ráð fyrir 60 klukkustunda hámarksflugi á mánuði hverjum í stað 105, sem gildir á DC 6B. Þess skal getið, að samkvæmt útreikningi Loftleiða eru kaup kröfurnar í rauninni hærri en flugmennirnir hafa áætlað, og ber þar m.a. á milli tryggingar, einkennisbúningar og önnur hlunnindi. Hinn 21. marz sl. fór stjórn Loftleiða til Norðurlanda til viku dvalar þar og var samninganefnd F. í. A. um það kunnugt, enda ferðin ákveðin með löngum fyrir vara, en sama dag boðaði stjórn F. í. A. verkfall frá og með 3. apríl á Rolls Royce 400 flugvélum Loftleiða, og gafst því mjög naumur timi til samningavið- ræðna. Máli þessu var vísað til sátta- semjara, sem hélt fyrsta fund með deiluaðilum 1. apríl sl. Fund irnir hafa enn ekki borið árang- ur. Að gefnu tilefni er rétt að upp- lýsa að kaup hinna bandarísku flugstjóra sem ráðnir eru til starfa hjá Loftleiðum í nokkra mánuði, meðal annars vegna þjáifunar íslenzkra flugmanna í Kanada, nemur um 1250 dölum á mánuði, miðað við 70 stunda flug. Kostnaður Loftleiða vegna þjálf unar þessara flugmanna er sára- lítill og þeir munu fara héðan strax og unnt er að fá íslenzka flugmenn í þeirra stað. Hins veg ar er þjálfunarkostnaður Loft- leiða vegna íslenzku flugmann- anna í Montreal mjög mikill, og allur greiddur af Loftleiðum". — Islaust Framhald af bls. 28 net' sin um helgina og misstu sumir nokkuð af þeim undir ís. Einn bátur var búinn að leggja 3 netatrossur og varð að bjarga þeim undan ís á síðustu stundu — Þórður. ★ SAUÐÁRKRÓKI — í dag er glaða sólskin og stillilogn. Tals- vert er um jakaburð á firðinum og allmikið við land. Góða veðr- ið og ísinn punta upp á sælu- vikuna. — Jón. ★ RAUFARHÖFN — Suðaustan átt er og hún pressar ísinn hér inn í bugtina. Strengdur hefur verið stálvir yfir höfnina og ísinn hef- ur ekki enn komizt inn. í norð- vestan áttinni lónar ísinn ávallt aðeins frá og leggst að I.anganes- inu. Nú, þegar hann kemur til okkar, myndast aftur á móti auð rönd með Langanesinu. Hér verð ur ekki fært skipum fyrr en sunnanátt kemur og rekur allt til hafs. Vegir eru færir og vöruflutn- ingar á landi frá Reykjavik. — Einar. ★ ÓLAFSFIRÐI — Úti fyrir sést í ísinn og jakar eru á firðinum- í gær nálgaðist hann svo mikið að bátarnir urðu að draga upp net sín. Lítill friður er fyrir bát- ana og hefur afli verið lítill. Þó heldur skárri að undanförnu. 1 dag er bliðskaparveður og bát- arnir aftur búnir að leggja net sín. Snjólétt er og fært hingað. Lágheiði hefur verið mokuð. — Jakob. ★ REYÐARFIRÐI — ísinn er nú í fyrsta skipti kominn inn á Reyðarfjörð. Síðan seint í gær- kvöldi hefur hann stöðugt rekið inn, enda er nú A-Sa-átt, 5—6 SAUÐÁRKRÓKI, 6. april Sæluvika Skagfirðinga hófst að þessu sinni sunnudaginn 4. apríl og lýkur henni næstkomandi sunnudag eða þann 11.. Vikan hófst með barnamessu í Sauðár- krókskirkju kl. 11 á sunnudag og síðan var almenn messa sama dag. Prestur var sr. Bjartmar Kristjánsson á Mælifelli. Leikfélag Sauðárkróks frum- sýndi leikritið „Segðu steininum“ eftir John Patrick. Leikstjóri er Kári Jónsson, leiktjöld gerði Jónas Þór Pálsson. Verður leik- urinn sýndur á hverju kvöldi vikunnar kl. 20. Á mánudaginn er þó barnasýning kl. 18., en sú venja hefur skapazt að helga börnunm alla dagskrá mánudags- ins og koma kennarar víðs veg- ar að úr héraðinu með skóla- börnin. Aðrar skemmtanir vi'kunnar verða að þrír karlakórar syngja, Karlakórinn Feykir í kvöld, Karlakórinn Heimir á fimmtu- vindstig. Ég fór um hádegi upp á svokallaðan Hólmaháls, sem er á milii Reyðarfjarðar og Eski- fjarðar. Þaðan sást stór spöng frá Grímu, sem er sunnan megin. fjarðarins og þvert yfir, Qg virð- ist á hraðri innleið. Virtist vera hægt að komast á skipum um rennu norðan megin fjarðarins. Vegna slæms skyggnis sást ekki hversu mikiLl is var fyrir utam. Ef hann er mikill þar, berst hana hratt inn með þessari vindátt. í gærkvöldi fór héðan síldar- tökuskip. Varðskip fylgdi því út og slapp það vel. Nú er snjó- koma og dimmt yfir öllu. dag og Karlakór Sauðárkró'ks á föstudag. Verkamannafélaigið ,,Fram“ heldur skemmtanir á föstudag, laugardag og sunnudag. Þar kemur hinn velþekkti Ómar Ragnarsson fram og einnig verð- ur sýndur leikþáttur. Sauðár- króksbíó sýnir úrvals kvikmyndir alla daga vikunnar. í félagsheimilinu Bifröst verða almennir dansleikir á þriðjudag, en þá leika Gautar frá Siglu- firði. Á hverju kvöldi frá fimrntu degi til sunnudagskvölds leikur hljómsveit Hauks Þorsteinssonar og Halla syngur. Á Hótel Mæli- felli verða dansleikir á fimmtu- dag, föstudag, laugardag og sunnudagskvöld, Rómó leika, Allir vegir um Skagafjörð eru greiðfærir, og heimamenn geta þvi fjölmennt. Fleira aðkomu- fólk hefur sótt skemmtamir sæluvikunnar en oftast áður. T.d. voru um 300 manns á sýniwgu Leikfélagsins í gærkvöldi og ennþá fleiri á dansleik — Ján, Arnþor. Míkið f;ö!menni á sæia- viku Skagfirðinga Auðunn Auðunsson. TOGARINN Sigurður kom til Reykjavíkur í gærmorgun með tæplega 300 tonn af fiski, sem hann hafði fengið á 9 dögum á heimamiðum, mestmegnis karfa. Er þetta mesta aflamagn íslenzks togara úr einni veiði- ferð í vetur. Morgunblaðið átti i gær samtal við Auðun Auð- unsson, skipstjóra á Sigurði. — Við héldum fyrst til Aust- ur-Grænlands til að fiska fyrir Englandsmarkað, sagði Auð- unn. Við köstuðum á tveim stöðum í leiðindaveðri og þar var ekkert að fá, svo að við héldum heim á leið, enda hafði einn skipverja fengið mjög slæmt ofnæmistilfelli. Honum var hins vegar tekið að skána, þegar við vorum komnir heim undir ísland, svo að við hófum veiðar og fengum næstum 300 tonn á 9 dögum um 100 mílur VNV af Garðskaga. Þar eru stærstu hrygningarstöðvar karfa, sem ég þekki við ísland. -— Ætlar þú aftur á sömu slóðir, þegar þið farið aftur út á fimmtudag? — Nei, það geri ég ekki. Karfi Rætt vi5 skipstjórann á bv. Sigurði um ýmis vandam ál togaraútgerðar Togarinn kom inn í gær með mesta afla vetrarins þolir ekki margar atlögur, held ur hrekkur upp undan vörp- unni. Fleiri togarar voru komn- ir á vettvang, er við vorum að veiðum, og tel ég að við hefð- um kannski fengið svona 350 tonn annars. Ég er búinn að vera skipstjóri í 15 ár og mað- ur lærir alltaf eitthvað nýtt í hverri ferð um fiskinn og hvernig hann bregst við veið- arfærum. Setlagið á botninum þyrlast upp, einkum undan hlerunum, og sezt í tálknin á karfanum, svo að hann flýr of- ar i sjó. — Hvað telur þú að standi togaraútgerð á íslandi fyrst og fremst fyrir þrifum nú? — Versta vandamálið á minni togurunum er mannekla og þá einkum skortur á verulega góð- um mönnum. Útgerðin hlýtur að byggjast á því að hafa hæfa menn í hverju rúmi á skipun- um. Á stærri togurunum er mjög góður mannskapvír, þar sem þeir hafa að tvennu leyti yfirburði yfir hina. f fyrsta lagi geta þeir stundað fiskveiðar með fullum árangri í verra veðri, eða svo lengi sem hægt er að toga, og mannaíbúðir eru mun betri í þeim. — Þá er aflahlutur miklu ó- hagstæðari fyrir sjómenn á tog- urum en bátum. Hagur togar- anna versnaði, þegar bæjarút- gerðirnar komu til skjalanna. Þá tóku stjórnmálaviðhorf að hafa áhrif á reksturinn og það, hvað togurunum var skammt- að. — Hvað þá um aflaleysið? — Það orsakast að miklu leyti af því, að vegna þess hve botn- inn er slæmur á þeim svæðum, þar sem togararnir verða að veiða. Við gætum notað stærri troll, ef við fengjum að veiða, þar sem botninn er betri og nýtt þannig þau tæki, sem við höfum í skipunum. Ég tel það t.d. fjarstæðu að leyfa ekki ís- lenzku togurunum veiðar innan fiskveiðilögsögu á Austfjörðum, þar sem nær eingöngu eru nú stundaðar síldveiðar, í stað þess að greiða of fjár í opinberum styrkjum. Sama gildir um önn- ur svæði við ísland, sem nú eru ónýtt, en botnvarpa væri heppi legra og skaðlausai'a veiðar- færi en mörg önnur. — Nótin hefur undanfarnar tvær vertíðir verið notuð eins og troll að því leyti, að hún er dregin eftir botninum og hefur sömu áhrif á botn og botnfisk eins og troll. — Auk þess, sem við þyrftum að leyfa togurunum veiðar á nokkrum stöðum innan land- helginnar, hélt Auðunn áfram, verður að efla tækni til veiða á meira dýpi. Fiskur hrygnir á mismunandi dýpi, stundum á 80 föðmum og stundum á 30. Þess- vegna getur um aflaleysisár í annálum, en þau stafa af því, að fiskurinn hefur hrygnt dýpra. Ef fiskurinn hrygnir á dýpri sjó, stöndum við ráð- þrota, þar sem skip og tæki eru miðuð við grunnan sjó og mun tækni okkar á því sviði vart ná hærra stigi en hún er þegar konxin á. Hins vegar verða ís- lendingar að tileinka sér breytt ar aðferðir til að ná í fisk eftir því hvar honum þóknast cð vera á hverjum tíma. — Þá held ég að auka mætti vinnuhagræðingu bæði um borð í togurum og við landanir þeirra. Þegar ég tók við Sigurði fyrrr 3 árum hafði hann legið aðgerðalaus í eitt og hálft ár. Ég gerði nokkrar breytingar á dekkinu, þannig, að Sigurður er nú í rekstri hagkvæmasta fiski- skip okkar. Breytingarnar voru einkum í því fólgnar að flýta því að taka inn fisk og troll. Hvert hal tekur nú 5 mínútum styttri tíma og það veldur t.d. því að í 15 daga veiðiferð nem- ur trollið við botn einum sólar- hring styttra en ella. — Við komum nú inn með farm, sem að mestu var karifi. Hann var allur flokkaður eftir stærðum um borð, þótt við ætl- uðum að landa í Reykjavík. Þegar við tókum að landa, var aðeins einn krani í notkun, svo að öllu er hellt saman á bílana og verk okkar unnið fyrir gýg. I Þýzkalandi er greitt mun lægra verð fyrir óflokkaðan karfa, enda þarf fjölda manna til að flokka hann, er hann ketn ur til vinnslu. ' : Unnið að lundun úr Sigurði í gær.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.