Morgunblaðið - 11.04.1965, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 11. apríl 1965
Myndin er einkennileg og virðist vera teiknuð, en hún sýnir hiuta aí Surtseyjargig, Snjó
hafði fest lítillega á eynni, en vindur og hiti voru að vinna á fónninni, þegar myndin var tekin.
Allar myndirnar tók Sigurgeir Jónasson.
Nei, myndin er hvorki frá Mývatni né Þingvallavatni, heldur frá Surtsey. Skipsmenn á vita-
skipinu Árvakri, brugðu sér í Iand á bátnum. Þeir fóru síðan að kanna dýpið í lóninu, sem
þarna hefur orðið til, en aðdýpi er svo mikið, að einn skipverja var nærri sokkinn á bólakaf,
þegar hann ætlaði um borð, en greip á seinustu stundu í bátinn og var hjálpað um borð. eins
og myndin sýnir.
Svona er landslagið sums síaðar 1 Surtsey, og það er litskrúðugt, þó að myndin sýni það ein-
ungis í hvítu, gráu og svörtu-
Þarna horfir stúlka á nýjasta sköpunarverkið, — landslagið í
Surtsey. Efst svífur þota frá varnarliðinu okkar á Keflavik-
urfiugvelli.
Náttúruöflin mætast, Ægir og Surtur. Hraunið rennur út í kald
an sjó. Ef myndin prentast vel, má sjá fólk hérna megin við
gufumökkinn, og ofarlega til vinstri stendur maður ofan á
hraunkambinum. Fólkið er að taka myndir og skoða staðinn,
áður en Náttúruverndarráð bannar almenningi ferðir út í eyna.
Fundur í Sjálfstæðis-
kvennafélaginu Hvöt
MÁNUDAGINN 29. marz sl. var
haldinn fundur í Sjálfstæðis-
kvennafélaginu Hvöt í Keykja-
vík. Formaður félagsins, María
Maack, setti fundinn og stýrði
honum.
Á fundinum hélt Jóhann Haf-
stein, dómsmálaráðherra, ræðu
um stóriðjumálin. f upphafi
ræðu sinnar minntist ráðherr-
ann á, að virkjanir þær, sem við
íslendingar hefðum hingað til
ráðizt í væru tiltölulega smáar,
en eigi verið ráðist í að virkja
hin stóru fallvötn.
Slíkar stórvirkjanir væru
mjög dýrar. En nu væru líkur á,
að íslendingum byðust tækifæri
til að selja hluta af orku frá
slíkri stórvirkjun til svissnesks
fyrirtækis, sem þá myndi koma
hér upp alúmínvinnslu. Á þann
hátt yrði rafmagnsverðið mun
ódýrara fyrir innanlandsmarkað,
þar sem unnt yrði að virkja
stærra.
Rakti ráðherrann síðan hvað
hingað til hefði verið unnið að
máli þessu, en nú væri einmitt
væntanleg viðræðunefnd frá
hinu svissneska fyrirtæki til við-
ræðna um fyrirhugaða alúmín-
vinnslu.
Þá rakti ráðherrann ýmis fjár-
hagsatriði varðandi þessar stór-
framkvæmdir svo og hvaða á-
hrif þær myndu hafa á vinnu-
markaðinn. Taldi hann, að bygg-
ing alúmínverksmiðju hér á
landi gæti haft margvísleg heilla
vænleg áhrif á atvinnulíf lands-
manna og skapa ýmsa möguleika
á fjölþættari iðnaðarframleiðslu
landsmanna.
Þá skýrði ráðherrann frá fyrir-
hugaðri kísilgúrverksmiðju við
Mývatn.
Að lokum gerði Jóhann Haf-
stein að umræðuefni afstöðu
stjórnarandstöðuflokkanna til
stóriðjumálsins.
Að aflokinni kaffidrykkju
skemmtu hinir vinsælu Los Com-
uneros del Paraquay.