Morgunblaðið - 16.05.1965, Síða 1
Noregs-
förin
hafin
— segír Kosygsn — Shastri deilir
á Kína og Pakistan
Moskvu, 15. maí (NTB)
ALEXEI Kosygin, forsætis-
ráðherra Sovétríkjanna, sagði
í ræðu í Moskvu í morgun í
tilefni af heimsókn Lal Baha-
dur Shastris, forsætisráðherra
Frú Jacqueline Kennedy, ekkja Kennedys Bandaríkjaforseta, er stöfTd í Bietlandi um þessar mundir, en þar var á föstudag afhjúpaður
ninnisvarði um mann hennar. Stendur minnisvarðinn í Runinymede, skammt frá þeim stað sem Magna Charta sáttmálinn var undir-
ritaður á. Meðfylgjandi mynd var tekin við Buckingham höllina á fimmtudag þegar frú Jacqueline kom þangað í heimsókn til Elisa-
betar Bretadrottningar. Lengst til hægri er frú Jacqueline á bak við systur sína. Radziwill prinsessu. En börnin eru, talið frá vinstri:
John Kennedy, Caroline Kennedy, Anthoniy Radziwili og Anna Christina Radziwill.
Myndm er tekin á Keflavíkurflugvelli í gærmorgun, þegar forsætisráðherrahjónin og dóttir þeirra
lögðu af stað til Noregs með Loftleiðaflugvél. Frá vinstri: Grétar Br. Kristjánsson, yfirmaður Loft-
i ,eiöa a Keflavíkurflugvelli, Anna Bjarnadóttir, frú Sigríður Björnsdóttir og Bjarni Benediktsson.
(Ljósm. Mbl.: Heimir Stígsson)
eignarnámi, við að þrælka aðrar
þjóðir, þá hafa bandarískir leið-
togar umsnúið öllum venjulegum
hugmyndum um þjóðarmetnað.
Lal Bahadur Shastri, forsætis-
ráðehrra, flutti einnig ræðu við
þetta tækifæri, og minntist á
kjarnorkusprengjuna, sem Kín-
verjar sprengdu í gær. Sagði
hann að meðan Sovétríkin héldu
gerða samninga um tiirauna-
bann, gerðu Kínverjar nýja til-
raun.
Nauðsynlegt væri að gera ein-
hverjar ráðstafanir til að mæta
þessari nýju kjarnorkuógnun.
Án þess að nefna Kína eða Pak
istan sagði Shastri að sum lönd
litu landhmærahéruð Indlands
græðgiaugum og hefðu jafnvel í
huga árásarstyrjöld gegn Ind-
landi. „Indland vill leysa ailar
deilur á friðsamlegan hátt með
samningum. En verði á okkur
ráðizt, munum við verja landa-
mæri okkar. í því tilfelli er engin
fórn of stór“, sagði Shastri.
Varðandi Vietnam sagði ind-
verski ráðherrann að ástandið í
landinu væri hættulegt friðinum
í heiminum, en ekki réðst hann
á Bandaríkin fyrir afskipti þeirra
þar.
Flóð í
Júgóslavíu
Belgrad, 14. maí. NTB.
• Fly tja varð tugþúsuimdir
manna frá heimilutr. sínum í
miffhluta Júgóslavíu í gær, vegna
flóffa, sem þar gerffu mikinn
usla. Flæddi um fjölda bæja og
þorpa, margar brýr eyffilögffust
og símasamband slitnaði. Vitaff
var í morgun, aff tveir höfffu far-
izt af völdum flóðanna, — en
fregnir eru fáar og óljósar frá
flóffasvæðinu.
Að því er NTB fréttastofan
hermir, er ástandið verst í iðnað-
arhéraðinu Doboj, en flóða-
hætta var einnig talin mikil
norðaustur í landinu. Er það
fijótið Bosna, sem flæddi svona
yfir bakka sína, en vatnsmagn
fljótsins er nú meira en um
sl. 3S ár. í Doboj eru um 20,000
manns illa haldnir af vatnsskoti,
auk þess sem rafmagnsleysi gerir
orðið að kalla.
Bjarni Benediktsson forsætis-
ráffherra fór í gær ásamt konu
6inni, frú Sigríöi Björnsdóttur í
opinbera heimsókn til Noregs í
boði ríkisstjórnarinnar þar.
hliinu forsætisráðherrahjónin
koma aftur 23. maí n.k.
FRÉTTARITAEl Associated
Press í Ósló, Erik A. Wold, skýr-
ir svo frá undirbúningi heim-
6Óknar Bjarna Benediktssonar,
íorsætisráðherra:
Bjarni Benediktsson, forsætis-
ráðherra íslands, þarf ekki á lög-
regluvernd að halda í níu daga
opinberri heimsókn hans til Nor-
egs, sem hefst í dag, laugardag.
Norska ríkisstjórnin hefur undir-
búið' hátíðlega móttökuathöfn á
Fornebu-flugvelli síðdegis á laug
ardag, og hafa allir Islandsvinir
frjélsan aðgang að flugvellinum
til að taka á móti forsætisráð-
herranum. Er það mikill léttir
fyrir lögregluna í Ósló, sem í dag
lauk fimm daga erfiðum eftir-
litsstörfum í sambandi við opin-
bera heimsókn Títós, forseta
Júgóslavíu.
Bjarni Benediktsson og kona
hans munu búa í gistihúsi hins
opinbera þá þrjá daga, sem þau
dvelja í Ósló, áður en ferð þeirra
um landið hefst. Og í þeirri ferð
þeirra verða ekki lögreglumenn,
heldur aðeins tveir sendiherrar,
konur þeirra og einn sendiráðs-
fulltrúi.
Hinn nýi sendiherra Noregs á
íslandi. Tor Myklebost, kom til
Ósló á föstudagskvöld til að
kynna sér undirbúning heimsókn
arinnar til Norður-Noregs. Sagði
hann í gærkvöldi, að dagskrá
heimsóknarinnar væri fullskipuð
og nokkuð erfið.
Á sunnudag mun Bjarni Bene-
diktsson skoða sig um í Ósló og
nágrenni. Síðdegis verður mót-
taka fyrir íslendinga búsetta í
borginni, og um kvöldið veizla
Framhald á bls. 2.
Sovétríkin tryggja
varnir N - Vietnam
Indlands, að Sovétríkin muni
veita Norður-Vietnam alla þá
aðstoð, sem með þurfi til að
tryggja varnir landsins. Verð-
ur þessi aðstoð veitt sam-
kvæmt samningi, sem gerður
hefur verið þar að lútandi.
Gagnrýndi forsætiráðherrann
Bandaríkin harðlega í ræðu
sinni fyrir stefnu þeirra og
framkomu í Vietnam.
Ræðu sína flutti Kosygin á
fundi vináttusamtaka Sovétríkj-
anna og Indlands, en fundurinn
var haldinn í tilefni af komu
Shastris. Sagði Kosygyn að Viet-
nambúar berðust ekki aðeins fyr
ir eigin málstað, heldur fyrir mál
stað allra sósíalískra ríkja og
friðelskandi þjóða.
Um tvö þúsund manns voru á
fundinum og hlýddu á -ræðu Kosy
gings. Sagði hann að Bandaríkja-
menn hefðu tekið upp baráttuna
gegn þjóðernislegri frelsishreyf-
ingu í Vietnam undir því yfir-
skini að þeir væru að berjast
gegn kommúnisma. En Sovétrík-
in mundu ætíð fylgja málstað
réttlætisins og aðstoða þær þjóð-
ir, sem berjast fyrir frelsi sínu.
„Þetta er grundvallarstefna Sov-
étríkjanna, sem ekki verður
breytt eftir aðstæðum", sagði ráð
herrann.
— Það er fullljóst að dvöl
Bandaríkjanna í Suður-Vietnam
er orðin metnaðarmál, og þess-
vegna ekki auðvellt fyrir þá að
fara þaðan, sagði Kosygin. Ef
bandaríska stjórnin heldur að
virðing Bandaríkjanna aukist við
nýlendustefnu, við að bandárísk-
ir hermenn taki erlendar eignir