Morgunblaðið - 16.05.1965, Qupperneq 2
2
MORCUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 16. maí 1965
Markmið ráðstefnunnar er að
finna leiðir til jþess að bæta nú
t>egar úr ríkjandi atvinnuleysi
og svo að athuga möguleika á
að byggja upp atvinnuvegi á
ýmsum stöðum Norðurlands, sem
gætu fyrirbyggt eða dregið veru
lega úr því, að erfiðleikar vegna
atvinnuleysis endurtaki sig, jafn
TALSVERÐ sildveiði hefur
verið að undanförnu í ísa-
fjarðardjúpi, að því er Guð-
finnur Einarsson framkvæmda
stjóri í Bolungarvík tjáði biað
inu gær. Kvað Guðfinnur hér
vera um millisíld að ræða, og
hefði hún öll farið í bræðslu.
Það var vélbáturinn Dagrún
frá Bolungarvík, sem fyrst hóf
veiðarnar fyrir þremur vikum,
og hefur hann nú veitt um 1,0
þúsund tunnur síldar. Guð-
finnur sagði, að tveir aðrir
bátar Bolvíkinga væru nú um
það bil að hefja síldveiðar í
Djúpinu, og í fyrradag hefði
Hugrún komið inn w.ð 2500
tunnur.
—Forsætisrá&herra
Framhald af bls. 1.
norsku ríkisstjórnarinnar í Ak-
erhus-höllinni. Á mánudag nær
heimsóknin hámarki, en þá halda
Norðmenn hátíðlegan þjóðhátíð-
ardag sinn. Þá mun forsætisráð-
herrann fylgjast með fjölmennri
skrúðgöngu barna frá Stórþings-
húsinu, en gert er ráð fyrir að
um þrjátíu þúsund börn taki þátt
í göngunni og hundruð skóla-
lúðrasveita. Er Óslóarborg fagur-
lega skreytt með blómum og fán-
um í tilefni hátíðarinnar.
Eftir útihátíðahöidin á mánu-
dag mun Bjarni Benediktsson sjá
sýningu í Þjóðleikhúsinu, og um
kvöldið er veizla í þjóðminja-
safninu.
Á þriðjudag hefur Bjarni Bene
diktsson fund með Einari Ger-
hardsen, forsætisráðherra, legg-
ur blómsveig að minnisvarða fall
inna hermanna við Akershus,
heimsækir háskólann, situr fund
um utanríkismál í utanríkisráðu-
neytinu, heldur fund með frétta-
mönnum og heldur kvöldverðar-
veizlu.
Ferð Bjarna Benediktssonar
um Noreg hefst á miðvikudag, og
heimsækir hann meðal annars
Bodö, stáliðjuver, Þrándheim og
Steinkjær. Forsætisráðherrann
heldur heimleiðis frá Noregi hinn
23. maí.
— / EHiðaám
Framh. af bls. 28
(Korpu) og víðar. í framtíð-
inni verður jafnan nokkur
hluti niðurgönguseiða, sem
sleppt er úr eldi, þannig
merkt að því er Þór Guðjóns-
son tjáði fréttamanni Mbl. Er
þess jafnframt óskað að veiði-
menn gefi gaum að því, hvort
annan kviðuggann vanti á þá
laxa, sem þeir veiða, og sé
svo eru þeir vinsamlegast
beðnir að gera Veiðimála-
stofnuninni aðvart. Þarf ekki
að hafa mörg orð um hve
mikilvægt þetta er fyrir allar
laxarannsóknir hérlendis, ekki
sízt með tilliti til framtíðar-
eldis á laxi hér.
100 þús. seiði áriega
Hin nýja eldisstöð við Ell-
iðaár er í umsjá Ingólfs
Ágústssonar, verkfræðings, en
um daglegan rekstur hennar
sér Kjartan Þórðarson.
Ingólfur sagði í gær, að haf-
izt hefði verið handa um að
byggja klakhúsið í febrúar
1964. 4. janúar í vetur voru
siðan fyrstu seiðin sett í hús-
ið. Voru þau þá írá 0,5 til 0,8
grömm að þyngd, en eru nú.
stærst 10—12 grömm. Um nið-
urgönguseiðin, sem sleppt var
í gær sagði Ingólfur að þau
væru tveggja ára gömul, og
hefðu verið í útieldi í tjörn-
unum við Elliðaár þar til í lok
marzmánaðar að þau voru
flutt Fnn í klakhúsið.
Með tilkomu klahússins
sagði Ingólfur að vaxtartími
seiðanna styttist um eitt ár
eða svo vegna hinna sérstak-
lega góðu skilyrða, bæði með
tilliti til jafns vatnshita og
fæðu, sem húsið veitir. Ráð-
gert er að klakstöðin skili um
100 þús. niðurgönguseiðum á
ári. Sjálft tekur húsið um
40—50 þúsund seiði, en það
sem á vantar í 100 þúsund
verður í útieldi í tjörnunum,
Klakhúsið ætti því að geta
alið hátt í þessa tölu til að
sleppa þegar á næsta ári.
Ákveðinn hluti af seiðunum
er ætlaður Elliðaánum, en hitt
verður selt í ár víða um land.
í hinu nýja klakhúsi eru 9
eldisker, og auk þess klak-
skápar o. s. frv.
Ekki er vafi á að eldisstöðin
við Elliðaár á eftir að verða
bæði Elliðaánum, svo og öðr-
um íslenzkum laxám, hinn
mesti búhnykkur.
Þór Guðjónsson, veiðimálastjórl, merkir fiskinn.
NÝLEGA var opnuð ný vefn-
aðarvöruverzlun í Safamýri 2,
en eigandi er Ólöf Konráðs-
dóttur. Ólöf hefur í mörg ár
unnið við verzlunarstörf á
ísafirði, m.a. í verzlun Karls
Olgeirssonar, sem hún var um
nokkurt skeið meðeigandi í
og einnig rak hún til skamms
tíma þar veitingahúsið Upp-
sali. — Mun verzlunin leggja
aðaláherzlu að hafa sem mest
af alhliða vefnaðarvöru á
boðstólum, en einnig verða
þar fáanleg leikföng svo og
annar smávarningur. í þessu
sama verzlunarhúsi er einnig
stærsta kjörbúð landsins,
bakarí og einnig mun eiga að
koma þar mjólkurbúð og fisk-
búð. Hverfið þarna í kring er ;
nú að verða eitt fjölmennasta =
hverfi Reykjavíkur, en þar er |
nú óðum að rísa mikill fjöldi |
húsablokka. Hefur hingað til 1
verið þar mikill skortur á |
verzlunum í hverfinu, en úr |
því mun nú rætast, með til- |
komu hins nýja verzlunarhúss |
við Safamýri 2.
/55
9iS
ENGIN breyting var í gær orð
in á veðráttunni hér á landi,
blíða og vorlegt á Suðvestur-
andi, en sama hrímþokan við
iorðausturströndina og hitinn
við frostmark, jörðin hvít og
dauð, þar sem snjórinn er
ekki ennþá. í innsveitum er
þó stórum betra, oft sól og
5—10 stiga hiti síðdegis.
KEFLVÍKINGAR þustu að úr öllum áttum, til að horfa á slökkvistarfið við frystihússbrunan í
Keflavík í fyrrakvöld. Tók Ingvar Guðmundsson þessa mynd, en hann tók myndina er var á bak-
aiðu blaðsins i gær með fréttinni.
Atvinnumálaráðstefna
á Norðurlandi
DAGANA 29-30 maí n.k. er fyr
irhuguð atvinnumálaráðstefna
hjá kaupstöðum og kauptúnum
á Norðurlandi og verður hún
haldin á Akureyri. Auk fulltrúa
viðkomandi staða er gert ráð
fyrir, að alþingismenn Norður-
landskjördæmis vestra og eystra
munu vera viðstaddir ráðstefn-
una.
Verkefni ráðstefnunnar verður
að ræða hið erfiða atvinnuá-
stand, sem skapazt hefur vegna
aflabrests á þremur síðustu ár-
um fyrir Norðurlandi, einkum .
hvað snertir þorskveiðarnar þrjú
s.l. ár og síldveiðarnar tvö s.l.
sumur, auk þeirra erfiðleika,
sem hafísinn hefur valdið í vet-
vel þótt aflabrestur verði m.a.
með því að koma upp iðnaði og
skapa betri möguleika á hag-
nýtingu í landi á þeim sjávarafla
sem fæst. Einnig verður rætt
um möguleika á síldar- og öðr-
um fiskflutningum frú fjarlæg-
ari miðum.
„8vanur“
á Austurvelli
LÚÐRASVEITIN Svanur leikur
á Austurvelli í dag kl. 4. Þetta
eru fyrstu útihljómleikar sveitar-
innar á þessu sumri. Sveitina
skipa nú 23 hljóðfæraleikarar. —
Stjórnandi er nú Jón Sigurðsson
(trompettleikari), Hefur hann
æft og þjálfað sveitina í velur.
Talsverö síldveiði
í ísafjarðardjúpi
3