Morgunblaðið - 16.05.1965, Side 6

Morgunblaðið - 16.05.1965, Side 6
e MORGUNBLAÐID Sunnudagur 16. maí 1965 Sr. Jakob Jonsson: Hvernig aetti að byrja í Skálhoiti? ÞAÐ vseri ranglæti að halda því fram, að endurreisn Skálholts væri ekki þegar byrjuð. Það er orðið prestssetur að nýju. Skál- holtssókn hefir fengið fagra og stóra kirkju. Og staðarforræði eru í höndum biskups og kirkju- ráðs. Afhending staðarins í hend- ur hinnar innri stjórnar kirkj- unnar er meira atriði í íslenzkri kirkjuskipun en þorri manna virðist hafa gert sér grein fyrir til þessa. En frá því að endur- reisn staðarins komst fyrst fyrir alvöru á dagskrá. — og allt til þessarar stundar hefir það verið lýðum ljóst, að hér á ekki að nema staðar. Með þessu er öllu heldur verið að skapa skilyrði fyrir því, að eitthvað meira verði framkvæmt. Og það hefir ekki skort hugmyndir og hugsjónir um framtíðina. Rætt hefir verið um Skálholt sem biskupssetur, prestssetur, prestaskóla (í kenni- mannlegri guðfræði) kirkjuaka- demíu, leikmannaskóla, kristileg- an lýðháskóla, samkirkjulega stofnun (ökumeniskt institut) gistiheimili fyrir fræðimenn og rithöfunda, menntaskóla og ef til viil fleira. Allt er enn á huldu um endur- reisn biskupsstólsins, að öðru leyti en þvi, að kirkjuþingið hef- ir kosið nefnd í málið og óskað eftir þvi, að prestastefnan í sum- ar bæti mönnum í þá nefnd. Gert er ráð fyrir, að nefndin afgreiði málið í frumvarpsformi, og að síð an gangi það til alþingis. Hvað menntastofnanir staðar- ins snertir, er ákveðið, að reisa skuli kirkjulegan lýðháskóla. — Hefir menntamólanefnd þjóð- kirkjunnar haft málið til með- ferðar, og er hugmyndin smám saman að fá fastara snið. Að mínu áliti og margra annarra er Skálholt raunar ekki endurreist fyrr en það er orðið biskupssetur að nýju, en úr þessu verður það varla fyrr en með næstu kyn- slóð,nema stjómarvöldum kirkju og ríkis auðnist að taka af skarið. Ríkisvaldið hefir verið hlynnt Skálholti, en kirkjan sundruð og hikandi með tilliti til biskups- stólsins. Sumt af því starfi, sem menn hafa gert sér vonir um, að tengt yrði við Skálholt, er nýj- ung í íslenzku kirkjulífi, þó að J>að hafi fyrir löngu orðið fastur liður í kirkjúlífi annarra þjóða. En það er ekki nema eðlilegt, að mönnum hrjósi hugur við því, að fjöldi stofnana eigi að rísa í einu. >á kemur fram sú spurn- ing, á hverju sé unnt að byrja með þeim húsakosti, sem þegar er til á staðnum eða verður til á allra næstu árum, þannig að kostnaður verði heldur ekki um megn. Ég hefi nokkuð reynt að hugsa þetta mál, út frá þeirri þekkingu, og kynnum, sem ég hef haft af kirkjulegum menntastofn. unum í öðrum löndum. Tillög- urnar eru ekki að neinu leyti frumlegar, en þær eru tilraun til að koma málinu á þann grund völl, að unnt sé að hefjast handa, í smáum stíl, en stefna um leið til víðtækari framkvæmda. Ég hugsa mér vísi að menntastofnun, sem með tíð og tíma geti þróazt yfir í flest ef ekki allt það, sem góðir ntenn láta sér til hugar koma að staðsetja í Skálholti. Þessi stofnun er ekki miðuð i við presta og guðfræðinga eina, og ekki við kirkjuna eingöngu, heldur er gert ráð fyrir því, að kirkjan vilji starfa í tengslum við þjóðmenninguna á sem flest- um sviðum. Vér íslendingar höf- um orðið svo lánsamir, að hér hefir ekki orðið það bil milli kirkjunnar og forystuafla al- mennrar menningar, sem vér finnum sumstaðar annans staðar, og oss ber í tæka tíð að sjá um, að slíkt bil myndist aldrei. Stofnun sú, sem hér um ræðir, á að vera lítil í upphafi, með einum rektor og engum fasta- kennurum, en aðfengnir fyrir- lesarar og fræðarar ár hvert svari til eins aukakennara, eða því sem næst. Kostnaðurinn sé ekki eingöngu greiddur af ríkinu, heldur fari sumt af starfseminni fram í samvinnu við landssam- tök, stéttarsamtök Og menningar- samtök af ýmsu tagi (t.d. nám- skeið og mót). Ytra form stofn- unarinnar sé með tvennum hætti. 3—4 mánuðir á ári hverju (eða jafnvel aðeins annað hvert ár) séu helgaðir prestsmenntuninni, og aðrir 3 mánuði- almennri menningu. Skal nú stuttlega gerð grein fyrir hvoru fyrir sig. n. Prestaskólinn (pastoral-semin- arium) starfi frá janúar til vors. Fyrirkomulag kennslunnar sé iíkt því og tíðkast við slíka skóla utan lands. Aðalkennslugreinar séu fimm: 1. Predikunarfræði. Þar sé lögð áherzla bæði á verklegar æfingar, predikunarsögu, stíl og byggingu, og farið nákvæmlega í al’an undirbúning. 2. Trúarleg uppeldisfræði og barnaspurningar. Samvinna sé höfð við presta í nágrenni staðar- ins og uppeldisfræðingur fenginn til fyrirlestra og viðtals. 3. Sálgæzla og pastoral-sálar- fræði. Sálfræðingur, læknir, saka málfræðingur og „social worker“ til fyrirlestra og viðræðu. 4. Helgisiðarfræði og sálma- fræði. Þar séu söngfræðingar og listfræðingar fengnir til aðstoð- ar. Daglegar helgiathafnir fari fram, 5. Kirk jufræði (eccleiologi). Þar sé lögð áherzla á skýringu og þróun kirkjuhugtaksins,stjórn og skipulag kirkjunnar, samband kirkjudeilda innbyrðis og sam- band kirkjunnar við önnur trú- félög, og loks hin venjulegu við- fangsefni presta í embætti og um skóla sem þessum, en þjóð- inni fjölgar óðum og kirkjan þarf að taka tillit til þess í því, sem hún byggir upp. Samkvæmt minni hugmynd á þessi mennta- stofnun ekki að vera ætluð ung- um guðfiæðingum einum, heldur prestum, sem búnir eru að öðlast nokkura reynslu í starfi. Rosknir menn þurfa að kynnast nýjung- um í fræðigrein sinni og nýjum starfsaðferðum. Ég veit af eigin um. Ég hugsa mér, að þau séu tvennskonar. 1. Fræðslustundir um ákveðin námsefni, bókleg og verkleg. Hér er þörf á mikilli fjölbreytni, og sama verkefni yrði því aðeins endurtekið á margra ára fresti. Sem dæmi nefni ég bókmenntir, kristin fræði, stjómmólastefn- ur, menningarsögu, samtíðarsögu (straumar og stefnur samtíðar- innar), leikstjórn, ræðumennsku, kvikmyndir. Ennfremur smíði og vefnað eða útsaum með sérstöku tilliti til kirkjulegra þarfa. Sér- stök námskeið eða fræðslumót mætti hafa fyrir starfsmenn kirkjunnar, svn sem organleik- ara, meðhjálpara, sóknarnefndar- menn, æskuleiðtoga etc. — Ýms námskeið mætti og hafa í sam- safnaðarstarfi. Hér má gera ráð fyrir aðstoð frá lögfræðingi, hag- fræðingi, og fulltrúum annarra trúfélaga, er starfa í landinu. Sumir fyrirlesarar þurfa ekki að dvelja á staðnum nema 1—2 daga. Það, sem ég tel miklu máli skipta við prestaskóla af þessu tagi, er það að stúdentar og kandidatar taki sameiginlegan iþátt í helgiathöfnum á staðnum, séu ótruflaðir við vísindastörf og andlegar iðkanir, og geti gefið sig alla við verkefnum sínum þá mánuði, sem skólinn starfar. Sumir segja, að íslenzkir guð- fræðikandidatar séu að jafnaði of fáir til þess, að þörf sé á slík- Skálholt raun, hversu Brfandi það getur verið að dvelja um skeið við guð- fræðilega námsstofnun, þegar mörg ár eru liðin frá því „alma mater“ sendi nýútskrifaðan kandidat út af Brkinni. Og ég hygg einnig, að ungir menn hafi gott af að eiga sálufélag við vænt anlega starfsbræður • af eldri kynslóðinni, ræða við þá og hlýða á erindi, er þeir kynnu að flytja. III. ‘ Almenn námskeið tel ég heppi- legra, að fram fari fyrri hluta vetrar eða á sumrin. Geta þau verið löng eða stutt eftir atvik- vinnu vlð landssamtök, t. d. skáta, kennara, búnaðarfélög, slysavamafélög, kvenfélög o. s. frv. 2. Námskeið eða ðllu heldur mót fyrir vissa starfshópa og áhugamanna um sérstök efni. Er hér átt við það, meðal annars, að hinar ýmsu stéttir þjóðfélags- ins fái tækifæri til gagnkvæmra kynna. Ekki til að ræða stéttar- málefni í venjulegum skilningi, heldur til að kynhast hver ann- ars sjónarmiðum í sambandi við sameiginleg verkefni og áhuga- mál, og samvinnu þeirra innan mannfélagsins. Ég nefni sem Framhald á bls. 21 • MAGNÚS SÝNIR MYNDIR Ég sé, að Magús Jóthanns- son er að sýna syrpu af kvik- myndum sínum í _ Gamla bíó nú um helgina. Ég hef séð nokkrar þessara mynda og ef- ast ekki um að margir munu hafa gaman af að sjá þær. Það er e.t.v. ekki lengur stórfrétt þótt íslenzk kvikmynd sé sýnd almenningi. En þeir eru svo fáir, sem fást við kvikmynda- töku hérlendis, að ný mynd vekur alltaf talsverða athygli. Það er ósanngjarnt að gera sömu kröfur til áhugamann- anna, sem eru áð fást við þetta hér hjá okkur — og gerðar eru til erlendu atvinnumannanria, sem hafa ekki aðeins meiri reynslu, heldur margfalt full- komnari og dýrari tæki til að vinna verkið með. • SKIPAÚTGERÐIN Nýlokið er ferðamálaráð- stefnu og var hennar getið hér í blaðinu í gær. Ein af þeim samþykktum, sem ráðstefnan gerði, var sú að beina til Ferða málaráðs þeirri ábendingu, að ráðið hlutaðist til um að Skipa útgerð ríkisins tæki upp sama hátt á greiðslu umboðslauna til ferðaskrifstofanna vegna far miðasölu svo sem almennt tíðk ast erlendis og hjá öðrum sam- göngufyrirtækjum hérlendis. Ef ég man rétt kom einnig fram tillaga um að ráðstefnan beindi þeim óskum til Skipa- útgerðarinnar, að útgerðin léti af hendi prentaðar áætlanir skipanna tregðulaust. Fundarmenn urðu samt sam- mála um að fella þetta niður af ályktanalistanum, ekki vegna þess áð einhver virtist hafa eitthvað við þessa ályktun að abhuga, heldur til þess að forða forráðamönnum útgerðarinnar frá hneisunni. Það er út af fyrir sig hneisa að gefa tilefni til þess að slík mál beri á góma á ferðamálaráðstefnu. • FLUGVÖEEUR Vert er áð vekja athygli S þeirri ályktun ferðamálaráð- stefnunnar, sem fjallaði um flugvailamálin: „Ráðstefnan telur aðkallandi að auka verulega framlög tii aðalflugvalla landsins ög stefna beri að því að fullgera þá svo fljótt sem .unnt er og tengja þá næxliggjandi byggðarlögum með greiðfærum vegum. Enn- fremur vekur ráðstefnan at- hygli á að endanleg stefna í flugvallarmáli höfuðtoorgarinn- ar hefur enn ekki verið mörk- uð“. í flugvallarmáli Reykjavíkur hefur lítið gerzt að undanförnu, lítill skriður virðist hafa kom- izt á málið þrátt fyrir allar þær athuganir og rannsóknir, sem bæði erlendir og innlendir að- ilar hafa gert fyrir íslenzk stjórnarvöld. Ummæli þau, er flugmálaráð herra, Ingólfur Jónsson, við- hafði við komu Friendship vél ar Flugfélagsins, voru því orð í tíma töluð. Anægjulegt var að heyra, að flugmálaráðherra hefur fullan hug á að láta til skarar skríða —• og að stefnan verður mörkuð á grundvelli þeirra rannsókna, sem undan- farfð hafa farið fram. Veit ég, að þessi ummæli féllu í einkar góðan jarðveg meðal þeirra, sem talið hafa hagkvæmast og heppilegast að gera flugvöil á Álftanesi fyrir Reykjavik og nágrenni. Ég þori líka að full- yrða, að meirihluti þeirra sér- fróðu manna, sem fjallað hafa um málið, hafa komizt áð þeirri niðurstöðu, að ekki ætti að ráð stafa Álftanesi til annarra nota. < PIB SJMVARPSLOFTII 4 gerðir frá kr. 370,-. Magnarar og úrval af öðru sjónvarpsefni. Bræburnir Ormson hf. Vesturgötu 3.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.