Morgunblaðið - 15.06.1965, Blaðsíða 1
32 slður
Herforingiaráð
í Saigon á ný
— me/rí eining sögð rikja en áður —
Tayíor mun hafa haft hönd / bagga
Baigon, 14. júní — AP — NTB.
Herforingjar tóku í dag- á nýj-
•n leik völdin í S-Vietnam. í
Hýju stjórninni, eða þjóðarráð-
Inu, sitja 10 hershófðingjar, sem
allir eru sagðir sammála um að
binda enda á ósigra stjórnarhers
landsins á vógvöllunum, og
Btöðva þá óeiningu í innanríkis-
•náium, sem ríkt hefur undan-
farið.
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum, að það sé fyrir áhrif
Bandaríkjanna, að stjórnin nýja
telur 10 menn. Á hádegi í dag,
mánudag, var frá því skýrt í
Kaigon, að ætlunin væri að
■nynda þriggja manna stjórn.
bessari ákvörðun var síðar
breytt, og segja fréttamenn, að
•endiherra Bandaríkjanna í Saig
®n, Maxwell Taylor, hafi komið
|>ví til leiðar. Taylor kom til
Saigon í dag, eftir viðræður við
ráðamenn í Washington.
í*að mun hafa verið hugmynd
eeö.sta manns hersins í S-Viet-
»iam, Nguyen van Thieu, að láta
•ðeins þrjá menn sitja í stjórn,
sem hefðj þá lotið sérstakri for-
mennsku Cao Ky, flugmarskólks.
Það embætti hefði í raun og veru
svarað til embaettis forsætisráð-
herra, en gegn því mun Taylor
hafa beitt sér.
í 10 manna stjórninni mun
Ky að vísu fara með all valda-
mikið embætti, en annar maður
verða nefndur í embætti for-
manns.
Meðan stjórnarmyndun fór fram
í Saigon, var hópur falllhlífar-
hermanna sendur í skyndi til
flugvallar fyrir norðan bæinn
Dong Xoai. Þar hafði frétzt um
liðssöfnun Viet-cong liða.
Enn lögðu flugvélar frá S-Viet
nam til atlögu við hernaðar-
mannvirki í N-Vietnam í dag.
Utanríkisráðuneyti N-Vietnam
lýsti því yfir það, að almenn-
ingur í S-Vietnam hefði nú full-
an rétt til þess að biðja um að-
stoð frá bræðrum sínum norðan
landamæranna, og frá öðrum vel
viljuðum ríkjum, er Bandaríkja-
menn hefði nú opinberlega gerzt
aðilar að styrjöldinni í Vietnam.
„Við erum lýð-
ræðissinnar"
— segja stuðningsmenn Imberts
Santo Domingo, 14. júní,
AP, NTB
l’M 5000 stuðnlngsmenn Antonio
Imbert. hershöfðingja, kröfðust
þess í dag, að hreinsað yrði til í
þeim hluta höfuðborgar Domini-
hanska lýðveldisins, Santo Dom-
fngo, sem er í höndum kommún-
|sta.
þjálfun í Kína og Sovétríkjun-
um, en hefðu flestir snúið heim
til Dominikanska lýðveldisins
snemma í april í ár. Taldi Vaug-
han lítinn vafa á því leika, að
mangir þessara manna gegndu
nú hlutverkum forystumanna
kommúnista í lýðveldinu.
Bardagar hafa verið mjög harðir undanfarna daga i Viet Nam. Hér á myndinni má sjá grát
andi móður með látið barn sitt, sem beið bana í hinum mannskæðu orrustum um bæinn Dong
Xoai fyrir nokkrum dögum, en þar létu margir óbreyttir borgarar lífið. llin langvinna styrj-
öld hefur krafizt ósegjanlegra fórna af landslýðnum.
Stuðningsmenn Imbert gcngu
f fylkingu um 4 km leið, frá flug-
vellinum við borgina, að stærsta
gistihúsinu, EI Embajador, þar
eem sendimenn bandalags Amer-
íkurikja, OAS, hafa aðsetur sitt.
Aðalritari OAS, Jose Mora,
veifaði til fólksins, af svölum
gistihússins, er það safnaðist þar
fyrir utan, að göngunni lokinni.
Var þar lyft morgum kröfu-
epjöldum, þar sem þess var kraf-
jzt, að tekið yrði fyrir aðgerðir
kommúnista í höfuðborginni.
Imbert, hershöfðingja var einnig
vel fagnað, er hann kom akandi,
til að halda útiræðu.
Fólkið hrópaði m.a.: „Við er-
um lýðræðissinnar, og óskum
eftir að lifa, án þess að svelta.
Við höfum sýnt umheiminum, að
við aðhyllumst ekki stefnu komm
únista, en óskum eftir friði og
ró.“
Frá því var skýrt í dag, að
vopnahléið á laugardag hefði
verið rofið átta sinnum. í þrjú
ekipti svöruðu bandarískir her-
menn vopnahlésbrotum méð
ekothríð.
Talsmenn bandarískra yfir-
valda telja, að um 5000 kommún-
jstar séu í Dominikanska lýð-
veldinu. Segir franska fréttastof
»n AFP, að varautanríkisráð
herra Bandaríkjanna, Jack H.
Vaughan, hafi staðfest þá tölu í
ejónvarpsviðtali í gærkvöld.
Sagði Vaughan, að margir þess
sora kommúnista hefðu hlotið
Hörðustu árásir Peking á
sovézka valdhafa til þessa
— arftakar Krúsjeffs taldir
hættulegri endurskodunar-
sinnar en fyrirrennarinn —
Tokyo, 14. júní — AP.
Alþýðudagblaðið í Peking
og frétfastofan „Nýja Kína“
hafa borið núverandi ráða-
menn í Moskvu, arftaka
Krúsjéffs, harðari sökum en
áður hefur heyrzt í garð sov-
ézkra ráðamanna. Telja tals-
menn Pekingstjórnarinnar
valdhafana nýju í Moskvu
hafa gerzt meiri svikarar við
málstað kommúnismans, en
áður séu dæmi.
Ummælin birtust í gær,
sunnudag, og þar segir m.a-:
„Þeir (þ.e. nýju valdhafarn-
ir) stunda hættulegri endur-
skoðunarstefnu, og af meiri
kænsku, en fyrirrennari
þeirra, Nikita S. Krúsjeff.
l*eir eru önnum kafnir í
Washington, London og París
við að reyna að koma á frið-
arsamningum í N-Vietnam,
og leggja hart að sér við að
reyna að hjálpa bandarísku
ofheldisöflunum“.
Ummælin birtust fyrst í Al-
þýðudagblaðinu i Peking og
timaritinu „Rauði fáninn" i gær,
en var síðar sama dag útvarpað
á vegum fréttastofunnar „Nýja
Kína“.
• í fréttastofufregninni var
vísað til greinanna, og sagt, „að
þótt nýju valdihafarnir í Moskvu
hafi gert mikið til að villa á sér
heimildir og loeitt mörgum
brögðum, þá hafi þeir ekki vik-
ið frá endurskoðunarstefnu
Krúsjefs,. né hugmyndinni um
betri sambúð við Bandaríkin,
sem eigi að ná hámarki sínu
me'ð heimsyfirráðum þessara
stórvelda". Siðan bætir frétta-
stoían við:
• „í samanburði við Kriís-
jéff, þá eru- nýju valdihafarnir
hins vegar slægvitrari, og endur-
skoðunarstefna þeirra hættu-
legri“.
• Alþýðublaðið telur alla af-
stöðu ráðamanna nýju í Moskvu
til N-Viétnam mjög váfasama,
og það sé ætlun þeifrá að koma
3andarikjamönnum til hjálpar í
því máli. Síðan segir: ’ . .
„Kínverskir kommúnistar
verða nú að finna svar við þeirri
spurningu, hvort þeir eigi að
halda áfram baráttunni gegn
endurskoðunarsinnum eða ekki.
Sovéskir leiðtogar eru árangurs-
laust að reyna að stöðva barátt-
una gegn endurskoðunarstefn-
unni. Kínverjar munu hins veg-
ar hafast annað að. Þeir munu
halda áfram sigurgöngu sinni,
baráttunni gegn endurskoðunar-
stefnu Krúsjeffs og eftirmönn-
um hans, unz fullnaðarsigur er
unninn“