Morgunblaðið - 15.06.1965, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 15.06.1965, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 15. júní 1965 \ Hallkell markvörður Fram í návígi við Bergsvein innherja Vals. Valur hafði heppnina með sér og vann Fram 2:1 VAI.SMENN hafa enn aukið á forskot sitt í 1. deildarkeppninni í knattspymu. Á sunnudags- kvöldið unnu þeir Fram með 2—1 og hafa þá fengið 7 stig í mótinu — aðeins tapað einu stigi í 4 leikjum. Úrslit leiksins milli Vals og Fram 2—1 gefa ekki rétta mynd aí gangi ieiksins, því sannarleiga geta Valsmenn lofað gæfuna fyrir að fara með bæði stigin frá leiknum. Eftir tæki- færunum að dæma hefði jafn- tefli verið réttlátara og hefði annað liðið átt að sigra stóð Fram nær sigrinum en Valur. Enn sem fyrr munaði mestu um frammistöðu Sigurðar Dags- sonar í marki Vals — og á hann mestan þáttinn í sigrinum. Varði hann stórvel á stundum einkum er leið á leikinn, en þá sótti Fram mjög að marki Vals. Fram tók forystu í leiknum um miðbik fyrri hálfleiks. Hreinn Elliðason hinn ungi en mjög efnilegi miðherji Fram, sem nú er „markakóngur'* í 1. deild, skoraði markið mjög laglega eftir góða sendingu frá Baldri Scheving á hægri kanti. Valsmenn náðu að jafna leik- inn innan 10 mínútna og var Bergsveinn v. innherji þar að verki. Komst hann í sendingu bakvarðar til markvarðar og var ekki að sökum að spyrja. Eins og fyrr segir lá mjög á Valsliðinu í síðari hálfleiknum. Dundu skot — sum mjög góð — á Valsmarkinu, en Sigurður markvörður var alltaf á réttum stað með sín áigætu grip og ör- uggu stöðu. Eina mark hálfleiksins skoruðu þó Valsmenn. Var það sannar- lega heppnismark. Ámi Njáls- son bakvörður sendi langa send- ingu fram völlinn og Ingvar Elísson fylgdi eftir og tókst að skora úrslitamark leiksins. Hreinn Elliðason miðherji Fram er skemmtilegur leikmað- ur og fremstur þar í flokki. Verður gaman að fylgjast með honum í náinni framtíð. Hjá Val var nú beztur sem fyrr Reynir Jónsson h. útherji — og hefur þeigar áunnið sér rétt til lands- liðsstöðu. Unnti í Keflavík 1:0 HÆFIEEIKINN tö að skora mark er horfinn íslandsmcistur- unum frá Keflavík. Akureyring- ar heimsóttu þá á sunnudaginn og sóttu tvö dýrmæt stig í fang þeirra. Hafa nú Keflvíkingar leikið fjóra leiki og í þeim aðeins skorað 3 mörk. Ekkert lið I 1. deild er eins markasnautt á töfl- unni og sannarlega er þetta alvar legt íhugunarefni fyrir Keflvík- inga — því án marka vinnst eng- inn leikur. Akúreyringar unnu leikinn á sunnudaginn með 1—0. Var Akur eyrarliðið allan tímann betra lið ið á vellinum og verðskuldaði sigurinn. Hefði um önnur úrslit átt að vera að ræða hefði sigur Akureyringa átt að verða stærri en raun varð á. Akureyringar léku skemmti- lega knattspyrnu og gáfu leikn- um lit, en Keflvíkingar voru afar mistækir er þeir nálguðust mark mótherja sinna. Kom þarna enn fram sami gallinn og í fyrri leikjum liðsins. Eina mark leiksins var skorað um miðbik fyrri hálfleiks. Val- steinn v. útherji Akureyrar hljóp inn í sendingu sem Högni Gunn- laugsson miðvörður Keflavíkur ætlaði Kjartani markverði. Önn- ur og betri færi áttu Akureyr- ingar en fengu ekki nýtt, en sem fyrr segir var sigur fyllilega verð skuldaður eftir gangi leiksins. . Það er einhver undarlegur og lítt skiljanlegur drungi yfir Kefla víkuriiðinu um þessar mundir. Sennilega tekur það ein'hvem tíma fyrir liðið að komast yfir Iþetta tímabil — en á meðan er möguleikinn á að halda íslands- meistaratitlinum að renna út 1 sandinn. 3 stig úr 4 leikjum er heldur lítil uppskera og þegar ofan á bætist lélegt markahlut. fall — og engin geta til að skora, versnar ástandið enn. Beztu menn Keflavíkur Voru varnarleikmennirnir og áttu þó engan glæsidag. Hjá Akureyring um var Skúli Ágústsson örugg- astur og Steingrímur Björnsson miðherji átti ágætan leik. STAÐAN 11. DEILD 1. deild: Keflavik O — Akureyri 1 Valur 2 — Fram 1. ÍA3-KR2. Staðan: Valur 4 3 10 10—5 7 Akureyri 4 2 11 7—7 5 K.R. 4 12 1 7—7 4 Í.A. 4 112 8—9 3 Keflavik 4 112 3—5 3 Fram 4 1 0 3 6—8 2 Hrafnhildur varð fimmfald- ur íslandsmeistari í sundi Hrafnhfldur Kristjánsd. Á 1:08,5 mín. Matthfldur G-uðmundsd. Á. 1:13,0 min. Guðfinna Svavansd. Á 1:14,4 min. 100 m. baksund karla: Guðmundur Gislason ÍR 1ÆQ,9 mín. L>avíð Valgarðsson IBK 1:10,3 mdn. \ Tryggvi Tryggvaoon Vestra 1:23,5 mia. 200 m. bringusund karla: Árni Þ. Kristjánsson SH 2:42,6 mín. Fylkir Ágústsson Vestra 2:44,6 mán. Gestur Jónsson SH 2:49,8 mán. Reynir Guðmundsson Á 2:52,8 min. Akureyringar unnu islandsmeistarana Tvö Isl. met sett á Sund- meistaramótinu StaÖan í 2. DEILD UM HEDGINA fóru fram leik- ir í 2. deild Að vísu var einn leikurinn ekki leikinn, þar sem eitt liðið mætti ekki til leiks. Á Siglufirði léku Þróttur og K. S. og varð jafntefli 4:4. í Vestmannaeyjum léku F.H. og Í.B.V.. — F.H. sigraði 1:0. Á ísafirði léku Í.B.Í og Víking «r. — Í.B.Í. sigraði 51:. í Kópavogi áttu að leika Hauk mr úr Hafnarfirði og Skarphéðinn en Skarphéðinn mætti ekki til leiks og fengu Haukar því bæði •tigin keppnislaust. Staðan í annarri deild er þessi: A rlðill: Þróttur 3 2-1-0 20:5 5 st. Siglufj. 2 1-1-0 7:4 3 st. Haukar 2 1-0-1 1:3 2 st. Reynir 1 0-0-1 0:3 0 st. Skarph. 2 0-0-2 0:12 0 st. B riðill: F.H. 2 2-0-0 9:0 4 st. Í.B.Í. 2 1-0-1 9:7 2 st. Í.B.V. 2 1-0-1 6:5 2 st. Breiðabl. 2 1-0-1 3:9 2 st. Víkingur 2 0-0-2 2:8 0 st. Næstu leikir í 2. deild: í kvöld, þriðjudag, í Hafnar- firði kl. 20:30 F.H. — Víkingur. Melavöllur, föstudaginn 18. júní Þróttur — Keynir kl. 20:30. Hrafnhildur Guðmundsdóttir ÍR varð fimmfaldur íslands- meistari á Sundmeistaramátinu sem háð var um helgina. Sigr- aði hún í öllum sundgreinum kvenna og vann þær flestar með yfirburðum. Tvö íslandsmet voru sett á mótinu. Setti Davíð Valgarðsson ÍBK íslandsmet í 100 m flug- sundi á 1.02.7 en eldra metið átti hann sjálfur. Þá setti sveit Ármanns í 4x100 m skriðsundi kvenna sem var aukagrein á mót inu, á 5.03.9 min. Það sund hef- ur ekki verið synt áður. Mótið tókst mjög vel og var sundlaug Vesturbæjar skemmti- legur vettvangur mótsins en blíð skaparveður var báða keppnis- dagana. Úrslitin verða um sinn að tala sínu máli um skemmtilega keppni, en í mótslok var kepp- endum og starfsfólki boðið til kaffidrykkju í Breiðfirðin.gabúð en þar fór fram á laugardag árs- fundur Sundsambandsins og var Erlingur Pálsson endurkjörinn formaður sambandsins. ÚRSUT: 100 m. skriðsund karla: Guðanundur GLslason ÍR 57,4 sek. Davíð Valgarðsson ÍBK 60,6 sek Guðan. Þ. Harðarson Æ. 61 ,2 sek. Traueti Júlíusson, Á. 61,8 aok. 100 m. bringusund karla: Fylkir Ágústsson Vestra 1:13,8 mín. Horður B. Finnsson ÍR 1:14,9 mín. Árni Þ. Kristjánsson SH 1:15,9 mia. Gestur Jónsson SH 1:18,9 mán. 100 m. baksund kvenna: Hrainhildur Guðmundsd. ÍR 1:20,6 min Hrafnhildur Kristjánsd. Á. 1:28,1 mdn. Auður Guðjónsdóttir ÍBK. 1:25,1 min. Hulda Róbertsdóttir SH. 1:29,8 mín. 100 m. baksund karla: Davíð Valgarðsson ÍBK. 2:48,9 mín. Trausti Júlíusson Á. 2:49,0 mín. Guðmundur Þ. Harðareon Æ. 2:53,5 100 m. bringusund kvenna: Hrafnhildiur Guðmundsdóttir ÍR 3:08,1 Matthildur Guðmundsdóttir Á. 3:07,2 Eygló Hauksd. Á. 3:14,0 mín. Kolbrún Deifsdóttir Vestra 3:17,0 mán Sigrún Einarsdóttir Á. 3:17,0 mín 200 m. fjórsund karla: Guðmundur Gíslason ÍR 2:22,6 mín. Davíð Valgarðsson ÍBK 2:30,0 mín. Guðmundur Þ. Harðarson Æ. 2:41,1 Trausti Júlíusson Á. 2:50,7 min. 3x50 m. bringusund kvenna: A-sveit Ármanns, 1:52,0 míi. Sveit Vestra 1:56,1 mín. B-sveit Ármanns 1:59,0 mín. Sveit SiH 2:00,4 mín. 4x100 m. fjónsund karla: Sveit SH 5:00,8 mín. Sveit Ármanns 5:00,8 mán. Sveit Vestra 5:20,8 min. SÍÐARI DAGUR: 100 m. flugsund karla: Davið Valgarðeson IFkK 1:02,7 mán. Hrafnhildur Guðmundsdóttir ísl.met Guðmundur Gíslason ÍR. 1:03,1 mín. Trausti Júláusson Á. 1:08,6 min. 100 m. bringusund kvenna: Hrafnhildur Guðmundsd. ÍR. 1:24,2 MatthiLdur Guðmundsd. Á 1:27,7 mín. Kolbrún Deifsdóttir Vestra 1:29,2 min. Eygló Hauksdóttir Á. 1:29,9 míi. 400 m. skriðsund karla. Davíð Valgarðseon ÍBK. 4:41,0 mín. Guðmundur Gíslason ÍR. 4:46, 5 mín. Trausti Júlíusson Á. 5:07,2 mdn. Gunnar Kristjánsson SH, 5:24,5 mán. Einar Einarsson Vestra 5:26,3 Sv.met 100 m. skriðsund kvenna: I Hrafnhildur Guðmundsd. ÍR 1:07,9 200 m. fjórsund kvenna: Hrafnhildur Guðmundsd. ÍR 2:53,5 Matthildur Guðmundsd. Á 3:00,0 mín. Hrafnhildur Kristjánsd. Á 3:03,3 mín, Kolbrún Leifisdóttir Vestra 3:13,1 min. 4x200 m. skriðsund karla: Sveit SH 10:08,4 mán. Sveit Ármanns 10:15,3 mán. Sveit Vestra 10:38,9 min. 4x100 m. skriðsund kvenna (aukagrein) Sveit Ármanns, 5:03,9 min. Þetta er f fyrsta sinn, sem konur synda þcssa vegalengd og áxangurinn er því að sjáifsögðu nýtt íslandsmet. Akranes vann KR í GÆRKVÖLDI léku KR og Akurnesingar í 1. deild á Laug ardalsvellL Leikurinn var heldur lélegur en Akurnesing ar fóru með sigur af hólmi, skoruðu 3 mörk gegn 2. Ríkharður Jónsson skoraði öll mörk Akurnesinga en Gunnar Felixson bæði mörk KR. KR-ingar sóttu öllu meira og áttu mun fleiri tækifæri, m.a. björguðu Akurnesingar fimm sinnum á marklínu eftir að KR-ingar höfðu leikið fram hjá Helga Daníelssyni mark- verðL Þetta er fyrsti sigur Skaga manna í mótinu til þessa og jafnframt fyrsti tapleikur KR.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.