Morgunblaðið - 15.06.1965, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 15.06.1965, Blaðsíða 3
[ Þriðjudagur 15. júní 198® MORGUNBLAÐIÐ 3 Svellakal á allstörum svæð- 9 um á Austurlandi 'r Blaðið aflaði sér nánari upplýsinga um kalskemmdir í túnum á Austurlandi, en frá þeim var skýrt hér í blað- inu í saimtali við fréttaritara nú fyrir helgina. í ljós kemur að kalskemimd ir eru miklar í Breiðdal, um miðbik Fljótdalshéraðs, á utanverðum Jökuldal og nokkuð í Borgarfirði eystra og á VopnafirðL Orsakanna yirðist að leita í svellalögum á flötum mýrartúnum. Hér fara á eftir nánari frá- eagnir fréttamanna blaðsins ©g samtal við dr. Bjama Helgason jarðvegsfræðing, eem athugaði kalið fyrir ekemmstu. Císlárstekk, "Brelðdal, 14. júnl. Hér eru kalskemmdir senni- iega meiri en nokkru sinni áður, grasspretta því mjög léleg á ræktuðu landi. Mun jafnvel betri á útjörð. Er þetta svo alvarlegt að varla er hægt að segja að tún séu farin að spretta að Uokkru marki. Fyrirsjáanlegt er að sláttur get nr ekki hafizt fyrr en einhvern tíma í júlí. Tún eru í betra á- •tandi á Berufjarðarströnd en hér í Breiðdal, sömuleiðis eru þau betri í Stöðvarfirði hér. fyr- ir norðan. í dag átti ég tal við Guðmund Jónsson bónda á Höskuldsstöð- um hér í Breiðdal. Sagði hann um % kalinn af túninu og tæpast mætti segja að bithagi væri á hinum hluta túnsins. Ástandið er víða svipað o>g sumir hafa jafn- vel verri sögu að segja. _ Páll. Egilstöðum, Yöllum 14. júní. Hér er mikið kal um Mið-Hér- að og er það mest á marflötu landi, framræstum mýrartúnum, sem víða eru aldauð. Kalið er verst á sömu stöðum og var 1962, en þá kól hér mikið. í Fljótsdal er ekkert kal. Orsak- anna er fljótt á litið helst að leita til veðurfars, en á þessum slóðum voru mikil svellalög í vetur. í Norðfirði er mjög mikið kal og mun alvarlegast þar. Yfir höfuð ber mönnum saman um að mest beri á kalinu þar sem mest hefir verið notað af til- búnum áburði. - Þetta mun valda stórfelldri uppskerurýrnun á mörgum bæj- um. Þess eru dæmi að tún, sem unnin voru upp eftir kalið 1962 er nú kalin á ný. Síðustu tvö ár var ekki kal á þessum stöðum en það var vetrarveðrátta svo að ekki var teljandi snjókoma og svellalög engin. Það -er einnig athyglisvert að ekki er um kal að ræða á út- haga, þótt hann liggi við hlið kalinna túna. — Jónas. Hvanná, Jökuldal, 14. júni. Mikið kal er á túnum jarða hér á utanverðum Jökuldal. Hins vegar ber lítið á þessu hér inn- an við Hvanná og ekki heldur úti í Jökulsárhlíð. Sömuleiðis er lítið sem ekki kalið í Hróars- tungu. Hér voru í vetur mikil svellalög á sléttum og*voru þær blautar er leysa tók í vor. Þetta er mjög alvárlegt ástand fyrir allmarga bændur og verð-’ ur ekki annað séð en að þar verði um heyskort að ræða í sumar. Desjamýrl, Borgarfirffi, eystra 14. júní. — Hér er mikið kal í túnum á þremur bæjum í sveit- inni, en það er fyrst og fi'euns í miðju héraðinu. Skiptir kalið hektörum þar sem mest er. Kal- ið er fyrst og fremst á flötum nýræktartúnum. Ekki ber á kali út við Sjóinn og ekki innantil í sveitinni. Þar sem kalsins gætir voru mikil svellalög í vetur og snjóa tók seint upp. — Ingvar. Vopnafirffi, 14. júní. Yfirleitt er ekki um að ræða kal hér í sveit að marki nema Mao, heill heilsu, boðar nýiar kjarnorlcutilraunir - forseti indónesíska þingsins segir ekkert hæft í orðróm um veikindi IWaos fyrst um sinn að Indónesíu. Sukarno, forseti, hefur boðið heimsækja landið. heimsækja Indónesíu- honum að á þremur bæjum við norðan- verðan Vopnafjörð, Hvamms- gerði, Hámundarstöðum og Ljósalandi. Annarsstaðar ber lítilsháttar á kali í mjög flat- lendum túnum. Mest er kalið á Hámundarstöðum og er um helm ingur túnsins kalinn. — Sigurjón. Blaðið átti í gær tal við dr. Bjarna Helgason jarðvegsfræð- ing, en hann fór austur nú fyrir skemmstu og athugaði kal- skemmdirnar og tók jafnframt nokkur jarðvegssýnishorn. Skoð- aði hann aðallega. Mið-Hérað. Taldi hann, að ef svo mætti að orði kveða, myndu bændur hafa flutt til Ameríku, ef þetta hefði skeð fyrir rúmri hálfri öld svo alvarlegt væri þetta á allmörg- um jörðum. Mætti segja að þar yrði varla umt kúhaga að ræða á túnum í sumar, svo slæmt væri kalið. Dr. Bjarni taldi að þetta fylgdi algerlega svellalögum í vetur og mætti því kalla þetta svellkal. Ekki sagði hann kal sjást á úthaga. Spurningin væri því sú hvort hér gæti verið um að ræða of lingert grasfræ fýr- ir okkar veðráttu og stofnarnir sem fluttir eru inn, ættu ekki við hér -á landi. Styddi það enn nauðsyn þess að við gætum kom- ið upp okkar eigin grasfræstofni. Þá kaémi eflaust að einhverju leyti til áburðarnotkun og kalk- skortur á jarðvegi, en þau mál væru enn á algeru rannsóknar- stigi. Kalið virðist fylgja eftir djúpplægðum mýrum. Alvarlegast virtist honum á- standið niðri á Norðfirði, en þar liti út fyrir að erfitt yrði með kúahaga í sumar, hvað þá hey í vetur. Um frekari niðurstöður kvað dr. Bjarni ekki að ræða á þessu stigi málsins. 17. júní Ríkisstjórnin mælist til þess eins og að undanfömu, að 17. júní verði almennur frídagur um land allt. Ríkisstjórnin tekur á móti ges^ um í ráðherrabústaðnum, Tjarn- argötu 32, þjóðhátíðardaginn 17. júni kl. 4-6. SMSTEINAR Seinheppni Tokyo, 14. júni — AP. JAPANSKA fréttastofan Kyodo, •kýrffi frá þvi i dag, aff Mao Tse tung, leiðtogi kinverskra komm- únösáa, sé viff beztu heilsu, þrátt fyrir þrálátan orffróm um, að hann hafi veikzt hættulega nýveriff. Segir fréttastofan, aff í viðtali, sem Mao Tse-tung átti við forseta þjóðþings Indónesíu, Arudji Kartawinta, 10. júni, hafi kommúnistaleiðtoginn sagt, að undirbúningur væri nú hafinn undir þriffju og fjórðu kjamorku tilraun Kínverja. Japanska fréttastofan hefur frétt sína eftir eigin fréttamanni i Djakarta, höfuðborg Indónesíu, «em segist hafa rætt við þingfor •etann, skömmu eftir að hann átti hálfrar annarar stundar við tal við Mao Tse-tung I Hanchow. Kartawinta mótmælti því í við tali sínu við japanska frétta- manninn, að nokkuð sé í því ■hæft ,að Mao hafi verið alvar- lega veikur að undanfömu. Hins vegar hafi hann verið í löngu ferðalagi um Kina, en hann verji að jafnaði níu mánuðum árlega til slíkra ferðalaga. Haft er einnig eftir Mao Tse- tung við þetta tækifæri, að eng- in ástæða sé til þess, að Peking- stjórnin sendi her N-Vietnam liðsauka, meðan stjórnin í Hanoi hafi nægu liði á að skipa. Loks er haft eftir þingforset- anum, að Mao hafi lýst því yfir, að hann sé enn um sinn svo mörgum störfum hlaðinn, að 'hann hafi ekki komið því við Gísti HatLdórsson. hlaut SiLfurLamparm. SILFURLAMPAHÁTÍÐ Félags íslenzkra leikdómenda var hald- in í gærkvöldi í Þjóffleikhúskjall aranum, aff viffstöddum leikurum og leikdómendum blaðanna. Á hátíðinni voru kunngerff úrslit leikdómenda um bezta leik sl. leikárs, og hlaut lampann aff þessu sinni Gisli Halldórsson fyr ir leik sinn í einþáttungum Dari os Fos. Hlaut hann 425 stig af 600 mögulegum. Næstir honum voru Gestur Páls eon með 250 stig fyrir leik sinn í „Sú gamla kemur í heimsókn“ eftir Dúrrenmatt, og þriðji varð Róbert Arnfinnsson með 200 stig fyrir leik í „Hver er hræddur við Vinginíu Wooif?" Aðrir, sem atkvæði hlutu, voru Bessi Bjarnason fyrir leik í „Stöðvið heiminn“j Regína Þórð ardóttir fyrir leik í „Sú gamla kemur í heimsókn", Helga Valtýs dóttir fyrir ieik í „Hver er hrædd ur við Virginíu Woólf?", Herdís Þorvaldsdóttir fyrir leik í „Sköll ótta söngkonan" og Gunnar Eyj- ólfsson fyrir leik í „Járnhausn- um“. Sigiu-ður A. Magnússon, form. FéL isL leikdómenda, afhenti Silfurlampann. A. P. Möller lézt d laugardag — danski skipstjórasonurinn, sem varb einn af 10 rikustu mönnum heims Kaupmannahöfn, 13. júní: LÁTINN er A. P. Möller, út- gerðarmaður, sem oft hefur verið talinn í hópi 10 ríkustu manna í heimi. Möller varð 88 ára. Möller var á leynd fluttur í sjúkrahús í Kaupmannahöfn fyrir þremur dögum, eftir nokkurra mánaða sjúkleika. Ekki hefur verið frá því skýrt hvaða sjúkdómur leiddi hann til dauða, en vitað hefur verið um nokkurt skeið, að hann hefur þjáðst af blóðsjúkdómL Möller var einn af nafntog uðustu mönnum í Danmörku, skipstjórason1 jr, sem byrjaðd feril sinn með tvær hendur tómar en tókst með tímanum að byggja upp fyrirtæki, sem mörg skipafélög, skipasmíða- höfðu hagsmuna að gæta um stöðvar, efnaverksmiðjur, auk heim allan. aninanna veirksmiðja og mairgvís Þótt rikur væri, brást það legra og mikilla eigna í A- 1 aldrei, að hann sækti ellilíf- eyri þann, sem danska ríkið veitir hverjum íbúa landsins, sem kemst á eldri ár. Möller gekk hvarvetna und ir nafninu A. P. Möller, en stafirnir A. P. standa fyrir Arnold Peter. Allir starfs- menn hans nefndu hann Hr. Möller. Er Möller lézt, átti hann Afríku. Svo flókin hafa fjár- mál hans löngum þótt, og eign ir hans margvíslegar, að fæst ir hafa treyst sér til að meta þær til fjár. Um skipaeign hans við and látið er það þó vitað, að hann átti um 100 skip ,þ.á.m. mörg sfór - olíuskip, samfólis a@ stærð um ein milljón brúttótonn. ÞAÐ er ekki ©fsögum sagt af seinheppni Þjóffviljans. Sl. laug- ardag birtist „viðtal* við kennara á Raufarhöfn, sem kvaff verkafólk þar yfirleitt „snúast á móti" . Norðurlandssamningnum, „teldi hentugri leiff aff auglýsa kaup- taxta í samræmi við ætlun aust- firzku féiaganna". Kvöldiff áffur en „vifftal" þetta birtist í Þjóff- viljanum, var haldinn fundur í Verkalýösfélaginu á Raufarhöfn og þar voru samningarnir stað- festir meff öllum greiddum atkv. en einn maffur sat hjá. Sá aem Þjóðviljinn birti „viðtaliff“ viff. Þarna má sjá svart á hvítu aff hve miklu leyti „vifftöl" Þjóff- viljans aff undanförnu túlka hinm raunverulega hug verkafólks til samninganna í dag. r r Arásir erfðaprinsins Innan Sósíalistaflokksins «r lítil klíka manna, sem eru þó svo , innbyrðis klofnir, aff þeir eiga lítiff sameiginlegt nema eitt: Þeir eru allir forstokkaðir afturhalds- menn, sem lifa og starfa enn í . samræmi viff tíðaranda og hugs- unarhátt sem er áratuga gamall. Einn þessara manna er Magn- ús Kjartansson, erfðaprins Einars Olgeirssonar in spe. 1 pistli sinum á sunnudaginn ræffst hann harkalega aff hinni nýju stefnu í kjaramálum, sem verkalýffsféiögin hafa veriff a9 marka síffustu tvö árin, stefnu sem er byggff á sorglegri reynslu af verðbólguþróun síðustu ára- tuga, stefnu sem miðar að þvi aff ná fram fyrir meðlimi verka- lýffsfélaganná raunhæfum kjara- bótum í staff þeirra, sem reynsl- an sýnir að etnar eru upp á skömmum tima af verffbólgunni. Magnús Kjartansson veit, aff flokkurinn sem hann vonast til að veita forystu einhvern tima framtiðinni á sér eina lífsvon: A3 hann geti haldiff áfram aff nota verkalýðshreyfinguna, sem tæki í pólitískri baráttu Sósíal- istaflokksins, aff hann geti haldiff áfram að kynda undir verffbólg- una, sem hér hefur leikiff lausum hala meira og minna frá stríffs- lokum, aff hann geti haldiff áfram aff ala á óánægju verka- fólks meff þvi að firra þaff raun- hæfum kjarabótum og félagsleg- um umbótum. Af þessum sökum beitir erfffa- prinsinn blaffi sínu eins og hann framast þorir, til þess aff hafa af láglaunamönnum réttlátar og sanngjarnar kjarabætur. En þaff væri hyggilegt fyrir erfffaprins- inn að reyna aff skilja, aff hann situr nú einn uppi með fámennri og sundurlausri klíku í Tjarnar- götu 20. Hann og hans likar hafa orffiff eftir, þeir hafa ekki fylgzt með þróun tímans. Við þá er ekki talaff. Foringjadraumar 1 hættu Forystumenn verkalýffsfélag- anna vinna nú að nýjum kjara- samningum þessa dagana og sumir hafa þegar samiff. Þeir vinna aff þessum samningum með reynslu aldarfjórffungs verff- bólgu í huga. Þess vegna sömdu þeir nm Júnísamkomulagið, sem ekki fól i sér beinar kauphækkanir heldur ýmsar affrar kjarabætur, sem þeir töldu ekki síður mikils- vert aff fá fram. Þess vegna vinna þeir aff samkomulagi nú, á lik- um grundvelli og þeim sem Júní- samkomulagiff byggðist á. Og einmitt þess vegna er Magnús Kjartansson, erföaprins Sósial- istaflokksins, að reyna aff spilla þessum samningum. Hann veit að haldi svo áfram sem horfir, verffur þaff affeins lítiff flokks- krili, sem verður hans ríkL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.