Morgunblaðið - 15.06.1965, Page 19
Þriðjudagur 15. júní 1965
MORGU N BLAÐIÐ
19
FERÐASKRIFSTOFUR
Tvítug stúlka, sem stundað hefur nám í skólum,
bæði í Sviss og Englandi og talar auk þess norður-
landamál, óskar edtir atvinnu á komandi hausti.
Tilboð sendist í P. B. 176, Vestmannaeyjum, merkt:
„Ferðaskrifstofur".
Husbyggjendur
Af sérstökum ástæðum get ég bætt við mig verk-
um nú þegar. — Hef góða smiði, þaulvana móta-
uppslætti. — Upplýsingar í síma 22825.
PARÍS
HAMBORG
KAIPMANNAHÖFIM
PARÍS
HAMBORG
KAUPMANNAHÖFN
★ Fjórar höfuðborgir
ic Bílferð um fimm lönd
Ein ódýrasta ferð
sumarsins.
Þægilegar flugferðir
heiman og heim.
15 daga ferð — kr. 11.874,00.
Allt innifalið.
Brottför 26. ágúst.
IT L&L 110.
Hér er um að ræða skemmti-
lega Parísarferð, auk þesa
sem við skoðum nokkrar vin-
sælustu ferðamannaborgir
álfunnar, en um leið gleym-
um ekki löndunum sjálfum.
Ferðast er um nokkur feg-
urstu héruð Hollands og
Belgíu og nefna má, að á heim
leiðinni er farið um staði eins
og Reims, Dinant og Köln að
ógleymdri Hamborg, þar sem
við dveljum í þrjá daga. Ekki
er þörf að hafa mörg orð um
París, sem notið hefur vin-
sælda ferðamanna um alda-
raðir.
Farþegar mæti við afgreiðslu
Loftleiða í Reykjavik kl. 13,00
þann 26. ágúst. Er þeim ekið
til Keflavíkurflugvallar. —
Kl. 14,30 er flogið með einni
af hinum þægilegu DC6b flug
vélum Braathens SAFE, án
viðkomu til Malmö í Svíþjóð.
Þar er komið kl. 21,00 og farið
með ferjunni yfir til Kaup-
mannahafnar. Þar er dvalið
á Hotel Kansas, sem er vel
staðsett í miðbænum-
27. ágúst: Dvalið í Kaup-
mannahöfn. Þessi dagur er far
þegum til frjálsra ráðstafana.
28. ágúst: Snemma um morg
uninn er ekið með iþægilegum
langferðabíl í suðurátt frá
Kaupmannahöfn. Haldið er í
áttina til dansk-þýzku landa-
mæranna, síðan um Suður-
Schlesvig, um Hamborg, sem
við heimsækjum á bakaleið-
inni og til bæjarins Delmen-
horst.
29. ágúst: Eftir morgunverð
er haldið frá Delmenhorst um
Nordhorn og yfir landamærin
til Hollands. Sérkenni lands-
ins, skurðirnir, vindmyllur,
frjóssamir akrar og hreinar
borgir koma fljótt fram.
Skömmu síðar er enn farið um
landamæri og nú inn í Belgíu.
Farið verður m.a. um Ant-
werpen, gegnum göngin undir
Schelde-fljótið og litlu síðar
er komið til Brússel, höfuð-
borgarinnar.
30. ágúst: Þetta verður sið-
asti áfanginn til Parísar. Ekið
er einnig þennan dag um
marga merka staði, en á þess
ari leið eru margir þeirra
staða, sem frægastir urðu í
heimsstyrjöldinni fyrri. Þegar
við nálgumst París ber fyrst
Eiffelturninn við himin. Strax
fyrsta daginn kynnumst við
nokkrum þeim stöðum í borg-
inni, sem þekktastir eru, t.d.
Sigurboganum, Concorde-torg
inu, gröf óþekkta hermanns-
ins, Óperutorginu, Notre-
Dame kirkjunni, gröf Napole-
ons og þannig mætti lengi
telja.
31. ágúst: Þennan dag efn-
um við til ferðar út til Versala
sem öllum er frjálst að taka
þátt í. Bæði byggingarnar svo
og hinar frægu garðar eru það
umfangsmiklir að ætla verður
heilan dag til þessarar ferðar.
Ferðin er innifalin í heildar-
verði ferðarinnar.
1. sept.: Þetta er dagur í
París til frjálsrar ráðstöfun-
ar. Um kvöldið er tilvalið að
skoða næturlíf Parísar, sem
heimsfrægt er.
2. sept.: Frjáls dagur í París
3. sept.: Nú yfirgefum við
Paris og höldum í austurátt.
Fyrst heimsækjum við Reims
og skoðum hina heimsfrægu
dómkirkju þar. Siðar komum
við í kastalabæinn Dinant við
fljótið Meuse. Þessi héruð í
Ardennafjöllunum búa yfir
mikilli náttúrufegurð og eru
því viðbrigðin mikil þegar
ekið er um iðnaðarhéruð
Belgíu, t.d. bæinn Liege Og
síðar inn í Þýzkaland. Farið
er um Aachen og gist í bæn-
um Diiren.
4. sept.: Ekið frá Dúren til
Kölnar. í Köln skoðum við
að sjálfsögðu Kölnar-dóm-
kirkjuna, sem að miklu leyti
hefur verið endurbyggð eftir
skemmdir frá síðasta stríði.
Seint um dainn er komið til
Hamborgar. Þar mun marga
langa til að heimsækja St.
Pauli, skemmtihverfi Ham-
borgar, sem allir Islendingar
hafa einhvern tíma heyrt
nefnt.
5. sept.: Frjáls dagur í Ham
borg. Verzlanir eru margar og
góðar þar, og vöruverð þykir
einkar hagstætt.
6. sept.: Enn leggjum við
land undir fót, síðasta spölinn
til Kaupmannahafnar. Ekið er
um Frederica óg komið' seint
um daginn til kóngsins
Kaupinhafnsu-.
7. —8. sept.: Frjálsir dagar
í Kaupmannahöfn.
9. sept.: Snemma morguns
er farið yfir sundið til Malmö
og ferðast heim með flugvél
Braathens SAFE. Lent verður
seinni hluta dags í Keflavík
og farþegar fluttir til Reykja-
víkur. ,
★ VERÐ
Verð ferðar kr. 11.874,00.
ínnifalið í verðinu er: Flug
ferðir milli landa, bílferðir
svo sem segir í ofan-
greindri áætlun með
kynnisferðum, fararstjóri,
söluskattur, gistingar og
fullt fæði allan tímann,
nema tvo síðustu dagana í
Kaupmannahöfn, en þá er
aðeins morgunverður inni-
falinn. — Ekki er innifalið:
Flugvallarskattur í Malmö
(Skr. 15,00), drykkir með
na-at og aðrar persónulegar
?reiðslur.
LÖND OG LEIÐIR
Aðalstrœfi 8 - Símar 20800 - 20760
Iðnaðarhusnæði
Mjög gott 150 ferm. iðnaðarhúsnæði á jarðhæð laust
nú þegar. — Upplýsingar í síma 25942 í dag milli
kl. 18 og 20.
Til sölu
rafdrifinn vörulyftari í mjög góðu lagi á sanngjörnu
verði. — Upplýsingar í síma 51551.
Keflavík
Til sölu er nú þegar vegna brottflutnings íbúðar
hæð, 3 herb. og eldhús og tvö lítil herbergi í risi í
eldra húsi. Lóð ræktuð og girt. — íbúðin er í 1. fL
ástandi. Útborgun ca. 120—150 þús. kr. —
Nánari upplýsingar gefa:
Hans Eriksen, sími 1784, og
Eigna og verðbréfasalan, símar 1430 og 1234.
Til leigu
Höfum verið beðnir að leigja 5 herbergja nýlega
íbúð. íbúðin er laus nú þegar. — Upplýsingar um
íbúðina verða veittar í síma 16766 frá kl. 2—5 síðd.
MÁLFLUTNINGSSKRIFSTOFA
Vagns E. Jónssonar og
Gunnars M. Guðmundssonar.
Austurstræti 9. — Símar 14400 og 20480.
HÆNSNABÍÚ
Mjög arðbært hænsnabú til sölu ásamt öllu tilheyr-
andi. Sem sagt íbúð, 3ja ha. land getur fylgt.
Ýmiskonar hlunnindi og góð sölusambönd.
Upplýsingar gefur;
FASTEIGNASALAN Tjarnargötu 14.
Símar 23987 og ^0625.
HAGTRYGGING HF.
auglýsir eftir starfsfólki
1. FramkvæmdastjórL
2. Skrifstofustúlka.
Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um mennt
un og fyrri störf leggist inn á skrifstofu Hagtrýgg-
ing h.f. fyrir 25. júní nk. — Fyrirspurnum ekki svar
að í síma.
HAGTRYGGING HF.
Bolholti 4.
Til sölu m.a.:
5 herb. risíbúð við Lönguhlíð um 130 ferm. ásamt
háalofti yfir allri íbúðinni, þar sem gera mætti
með góðu móti a.m.k. 2 herbergi. Hluti af íbúð-
inni hentar vel til að leigja út, m.a. 2 sérstök herb.
á fremri gangi: — íbúðin er mjög lítið undir súð
og með skemmtilegum kvistgluggum. Sér hiti,
hitaveita, inngangur er sameiginlegur með miðhæð-
inni, þvottahús með 3 öðrum íbúðareigendum. Góð
teppi á stofum og skála.
4ra herb. 1. hæð við Bólstaðahlíð, um 117 ferm. _
Ný og vönduð íbúð, laus strax.
4ra herb. 1. hæð við Barmahlíð um 125 ferm. —
Tvíbýlishús.
JÓN INGIMARSSON, lögmaður
Hafnarstræti 4 — Sími 20555.
kl. 10—12 og 14—16.