Morgunblaðið - 17.07.1965, Side 17
Laugardagur 17. júlí 1965
MORGUNBIAÐIÐ
17
MYNDIR FRA NÍJA SKIPULAGINU
w\ , •- ». % \ \v ».-• •. ^ w VXWtJWTOWiWK '-'<• \>.\ 'WPWt'íV' ' \ "♦ 'WWw' m
f- 'JRK \ ■■■ ■V'.'T\V,TO\-’
:¥:>:
M
í MORGUNBLAÐINU í
^ter birtust tvær myndir af
hinu nýsamþykkta aðal-
skipulagi Reykjavíkurborg
ar. A forsíðu var ljósmynd
áf líkani skipulagsins í
hinu nýja Árbæjarhverfi.
Þar sáust Elliðaárnar niður
að stíflu, og neðst í horn-
inu til hægri var hinn fyr-
irhugaði skeiðvöllur Fáks
ásamt hesthúsum. Línurn-
ar í neðra f jórðungi mynd-
arinnar til vinstri sýna
hugsanlegar götur í öðrum
áfanga Breiðholtssvæðis,
og línan, sem sker mynd-
ina þvera, sýnir væntan-
legan Suðurlandsveg. í Ár-
bæjarhverfinu miðju er nú
verandi Suðurlandsbraut,
en þar fyrir ofan Suður-
landsbraut hin nýja, sem
þegar hefur verið lögð.
Efst sjást svo Vestur- og
Norðurlandsvegur framtíð-
arinnar.
Á myndinni á bls. 8 í gær
sáust aðalsamgönguæðar
um borgina.
Hér eru birtar þrjár
myndir til viðbótar.
Á fimm dálka myndinni
er líkan af Fossvogshverf-
inu, og sést Borgarsjúkra-
húsið í jaðrinum lengst til
vinstri. Efst liggur Bú-
staðavegur, sem tengist í
austri nýjum Suðurnesja-
vegi (Reykjanesbraut), en
vesturendinn tengist Hafn-
arfjarðarveginum núver-
andi, sem ekki sést á mynd
inni. Neðst er nýr vegur
um Fossvog, sem kemur á
Suðurlandsveg sunnan Ell-
iðaáa. Efst í hverfinu verða
tveggja til þriggja hæða
sambyggingar, þá einnar
til einnar og hálfrar hæðar
hús, og neðst einbýlishús.
Húsin næst Borgarsjúkra-
húsinu verða sennilega
handa starfsfólki sjúkra-
hússins.
Á annarri fjögurra dálka
myndinni er yfirlitskort af
Reykjavík, sem allar götur
eru merktar á, bæði hrað-
brautir, tengibrautir, safn-
götur og íbúðarhúsagötur.
Svört strik (t.d. á Öskju-
hlíðarsvæðinu) t á k n a
göngubrautir. Þær liggja
víða um göngubrýr eða
göng, og á t.d. að vera hægt
að ganga frá Elliðaám og
út á Seltjarnarnes, án þess
að fara nokkru sinni yfir
aðalbraut. Landabréf þetta
er í átta litum í frumriti, og
er þar hægt að glöggva sig
á því, hvernig greiðfærast
er að aka á milli allra staða
í borginni. — Hin nýja
höfn inn með Sundum
(Sundahöfn) er efst til
hægri.
Á hinni fjögurra dálka
myndinni er líkan af nokkr
um hinna nýju svæða og
umhverfi þeirra. Efst til
vinstri (næst svarta skugg-
anum) er Grafarvogur og
neðar Ártúnshöfði og Ell-
iðaárvogur. Ofarlega á
miðri mynd er Rauðavatn
Framhald á bls. 21.