Morgunblaðið - 11.08.1965, Side 13

Morgunblaðið - 11.08.1965, Side 13
MioviKuaagur 11. agust 1965 MOKGU N BLAÐIÐ 13 Observer: flpartheit og Cormen HVÍTU borgararnir í Jóhann- esarbor.g hafa streymt í Borg- araleikhúsið, til að hyila ó- peruflokk svertingja frá Höfðabong, sem var á ferð- inni með ítalska óperu. En hjá Eoa-flokknum var þessi vel'gengni háði blandin. Vegnia nýútkomins banns stjórnar Suður-Afríku gegn „blöndiuðum“ áheyrendum, gátu engir litarbræður þeirra eða neinir Afríkubúar fengið aðgamg a'ð leikhúsinu, sem var „alhvítt". Hópurinn tók því það ráð undir lok dvalar sinnar þarna, að flytja söngv- ara sína, áhöld og alhvítu hljómsveitina inn í hinn geysi stóra ráðhússal Jóhannesar- borgar, ti‘l þess að leika Car- men fyrir alsvörtum áheyr- endahópi. En bannið gegm blönduðum áheyrendum úti- iokaði Afríkana enn frá að- gangi að sýningunni. En velgengni þessa hóps er merkilegur að öðru leyti en því, sem kynþættina snertir. Fyrir 32 árum var ensk kona við mannúðarstarf fyrir hina undirokuðu negra í Höfða- borg, og hún fór að eins og svo margir sérvitrir Bretar erlendis og tók að kenna þeim taltækni, til þess að „þeir kæmu betur fyrir, er þeir leituðu sér atvinnu." Hún nefndi þetta fyrirtæki sitt EOA (eftir gríska orðinu eos, sem þýðir dögun) og setti fram tilgang sinn í viðeigandi reglum, þar sem því var haldi'ð fram, að „fyrir atbeina EOA myndu hinir svörtu skynja dögun menningarþró- unar innra með sjálfum sér, samhliða líkamlegri og sálar- legri vellíðan." Hún leigði sér því íbúð í svörtu fátækra- hverfi, þar sem drykkjus'kap- ur var mikill (6. hverfi) og stofnaði fyrsta framsagnar- skólann sinn. Frú Southern-Holt (en svo hét konan) sá betri árangur erfiðis síns en henni hefði nokkurntíma geta dottið í hug. f dag hefur EOA-flokkur inn sitt eigið hús, hefur kennsilu í leiklist, rekur 10 balletklúbba, drengjaklúbb, gistihæli og óperudeild. I>að hefur nú sex ítailskar óperur til sýninga og er þannig eina óperufélagið í Su'ður-Afríku, sem hefur margar sýningar- hæfar óperur í senn. Og hinir 2000 félagar hópsins hafa að orðtaki: „Væri ekki EOA, Verwoorg forsætisráðherra værum við ekkert“. Hin nýlega yfirlýsing dr. Verwoerds um að litaðir menn skuli alltaf verða ann- ars flokks borgarar í „hvítri“ Suðux-Afríku, gerir þessu um mæli meir en lítið gremjuleg. Meira en helmingur fólks í Höfðaborg, þar sem forsætis- ráðherrann gaif þessa yfirlýs- ingu, er litaður og eins er alllt vesturhéra'ð Höfðans. Ef litaðá fólkið í þessu ríka hér- aði hætti að vinna, stæðu hvítu mennirnir uppi matar- lausir, fatalausir og bygging- ariðnaðarmannalauisir. Afrek EOA-samtakanna gera sitt til að gera þetta litarhátt- arbrjálæði hlægilegt. Það eru þessi samtök, >em hafa hald- ið lífinu í óperunni í Höfða- borg. Og rétt eins og hvítu áheyrendurnir í Jóhannesar- borg, eru þáð hvítir menn í Höfðaborg, sem halda sýn- ingum EOA uppi fjárhags- lega. En EOA-samtökin hafa fleira til síns ágætis en nei- kvæða framhaldstilveru kyn- þátta'löggjafarinnar £ Suður- Afríku. Þessix 60 menn og konur, sem hafa verið að fyi'la Borgaraleikhúsið í Jóhannes- arborg með söng og fagnaðar- látum, eru líklega einkenni- legasta leikfélag, sem nú er starfandi. * Helmingur al'lra mynda í forstofu leikhússins sýna söngvarana við sína daglegu vinnu. Hér má sjá Soffíu Andrews, mezzóspran, sitja rólega og sauma í fataverk- smiðju. Hvert bezta óperuhús heims gæti verið fullsæmt af Azuoenu hennar í IL TROVA- TORE. Hér er líka hávaxin og glæsileg sópransöngkona, Patricia van Graan, við rit- vélarborði'ð, eða Vera Gow, sem er í líknarstarfsemi. James Momberg, sem leikur Nemorino í TÖFRADRYKKN UM eftir Donizetti, er hrein- gerningamaður í ráðhúsinui, og hreinsar leiksviðið, sem hann kemur fram á sjálfur. Þegar Momberg er snögglega kallaður á æfingu, kemur hann með burstann sinn og hnjápúðana með sér. Leikhópurinn hefur aðeins einn atvinnusöngvara. Hinir eru í fjögurra mánaða kaup- lausu ,fríi sem forstjórinn þeirra sé um að útvega þeim, en hann er dr. Joseph Salva- tore Manca, sjálfur í fríi frá hárri stöðu í endurskoðun. Manca er sonur rakara frá Sikiley, sem kom til Suður- Afríku, rétt eftir aldamótin. Hann fékk fyrstu tónlistar- kennslu sína, fimm ára að aldri hjá ítölskum söngstjóra við kaþólskt barnaheimili. Plötusafn föður hans fyllti upp í eyðurnar, ef kennarinn kunni efcki einhverjar óperu- aríur. Þessir svörtu söngvarar frá Höfðalandinu áttu það sam- eiginlegt að kunna ekki að lesa nótur, hafa aldrei séð ó- peru á sviði, kunna ek'kert í ítölsku nema textana, en Manca hefur æft þá nægilega til þess að líta út eins og ítali á sviðinu. Og vissulega gæti helmingur þeirra gengið sem hvítir Suður-Afríkuibúar, og það gerir enn dapurlegri setningamar eftir Adam Small, svertingjaskáldið: „Drottinn hristi teningana og þeir féllu okkur í óhag.“ Dragnðtaveiðar brugðust í Húnaflóa Vonbrigði á Skagaströnd Myndin var tekin á laugardag í Emeryville í Kaliforníu, er fólk, sem mótmælir aðgerðum Bandaríkjastjórnar í málefnum S-Vietnam, reyndi að stöðva herflutningalest. Lögregla skarst í leikinn, og sá til þes s, að lestin komst leiðar sinna r. Mótmælagöngur, svipaðar þess ari, fóru viða fram í Bandarí kjunum um helgina. — AP. Pekingstjórnin gegn vopnahléi Segir tilraunir Titos og Shastri blekkingu til að hjálpa USA DRAGNÓTAVEIÐI hefur brugðizt algerlega að heita má í Húnaflóa á þessu sumri, en menn höfðu gert sér tals- verðar vonir um hana, vegna þess að vel veiddist í fyrra. Hér fara á eftir ummæli frétta ritara Mbl. á Skagaströnd og í Hólmavík. Skagaströnd, 7. ágúst. Mikil vonbrigði eru hér meðal fólks, vegna þess að dragnóta- veiðarnar hafa alveg brugðizt. Menn höfðu treyst á veiðarnar, •f því að þær heppnuðust ágæt- lega í fyrra. Að vísu komu þær þá eins og happdrættisvinningur fyrir byggðarlagið, en menn bjuggust almennt við því, að sag- »n endurtæki sig nú. Þess vegna höfðu allir búið sig undir góða veiði og vinnu í sambandi við hana nú í sumar. Staðurinn bygg ir alla afkomu sína á sjósókn, og gerðar- höfðu verið ráðstafanir til að apðvelda fiskmóttöku. — Tveimur til þremur milljónum króna hefur verið varið til end- urbóta í frystihúsinu, og öll að- staða til móttöku og vinnslu fisks verið bætt. í fyrra var unnið til kl. tólf á hverju kvöldi, en nú átti að vera hægt að taka á. móti meira fiskmagni með skemmri vinnutímatilhögun. — Aflaleysið kemur mjög illa við flesta, þvi að menn höfðu ál- nrtennt fei'knað með góðum afla- brögðum hjá dragnótabátunum. Þrír bátar hófu dragnótaveið- •r héðan um miðjan júní. Voru það Vísir, Stígandi og Hrönn. Fyrst leituðu þeir fýrir sér í fló- - anum, en fengu ekkert eða- sára- lítið. Þá leituðu Hrönn og Vísir til Eyjafjarðar, en Hrönn er nú hætt þar og farin suður á humar- veiðar. Stígandi er á heimamið- um, að mestu mannaður ungl- ingum. Nokkrar trillur hafa v.erið við handfæraveiðar, en afli þeirra hefur verið sáratregur. Tíðarfar hefur hins vegar verið mjög gott til sjósóknar, því að dag hvern gefur á sjó. Þótt talað sé um að flytja sild til Norðurlandshafna, heyrist aldrei minnzt á Skagaströnd í því sambandi. Virðist sildin bara eiga að fara til Siglufjarðar. Spretta og heyskapur hefur aldrei gengið betur, enda hefur hér verið einmunatíð. Aldrei kemur dropi úr lofti, og er það helzt að, að jörð vantar vætu. Allar ár eru vatnslausar eða vatnslitlar, og fiskigengd því lítil í þeim. — Þ. J. • Hólmavík, 7. ágúst. Fjórir bátar hófu dragnóta- veiðar um mánaðamótin júní/ júlí. Afli þeirra hefur verið sára- lítill og niður í ekki neitt. Þeir hafa farið um Húnaflóa og einnig verið hér iivni í Steingrímsfirði. þessar veiðar heppnuðust mun betur i fyrra, og hefur þetta aflaleysi því valdið mönnum miklum vónbrigðum. Atvinna hefur því verið rýr og reytings- leg. Nú upp á síðkastið hefur afli verið heldur skárri: á færi. Færa- bátarnir hafa verið hér vestur með Ströndum. -r-e Á. Ó* Saigon, Hioog koog. 9. ágúat (NTB) PEKINGSTJÓRNIN hefur lýst því yfir, að hún sé mótfallin vopnahléi í Vietnam, og sé til- raun Júgóslavíu og Indlands til aó koma á vopnahlésumræðum aðeins gerð til að koma Banda- rikjunum tit hjálpar. Yfirlýsing Pékingstjórnarinnar • • • t • birtist i málgagni hennar, „AI- þýðudagblaðinu'*. Þar segir, að tilraun Shastri, forsætisráð- herra Indlands, og Titos, forseta Júgóslaviu, sé dulbúin blekking. Verið sé að slá ryki i augu fólks, sem gerj sér ekki grein fyrir því, hvað er að gerast í Vietnam. Verið sé að koma Bandarikjun- um til hjálpar, svo að þeim gefist timi til að senda enn fleiri her- menn til SA-Asíu, svo að þar megi enn stofna til meiri ófriðar. Sovézka blaðið „Izvestia", seg- ir í dag, að umtal Banúacíikj- anna um vopnahlé sé fra.m koim- ið til að beina athygli man,na frA san.nleikanum. Á meðan ba-nida- rískir hermenn séu í S-Vietnam sé engin von til þess, að friður komist á. Hermenm stjórnar S-Vietnatn biðu ósigur í minini háttar bar- dögum á Pleiku-slétunni í dag. Liðsaufci er nú á leið til ataðar nærri landamærum Kambixiiu, þár sem fallhlífarhermenn, sem þar var varpað-niður, hafa barizt sleitulaust í 5 sólarhi-toga. Her- mennirnir eru umkrmgdir .VAet Cong liðym, sem sækja að þeim úr öllum átbum. Bandarrískar ftugvélar, og Framhald á bls. 15

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.