Morgunblaðið - 21.09.1965, Qupperneq 3
r
3
Þriðjudagtir 21. sept. 1965
MORGUNBLAÐID
f
P
f.
SÓLIN speglaðist í kyrrum,
olíuíbráikuðum hatffletinum í
igeer, er vfð snöruðum okkur
um borð í þýzka skipið Posei-
don, sem heitið er eftir gríska
(hafguðinum. Á Miðum skips-
iins stendur stórum stöfum
orðið „Fishereisöhutzboot" og
'gefur það til kynna, að hér
sé um hjálparskip fyrir fisk-
vefðitflotann þýzka. Þegar um
borð var komið, hittum við
ifyrir ' 1. stýrknann herra
Koelln, og tekur hann okkur
opnum örmum og sýnir okk-
ur skipið.
- Skipið er byggt árið 1957 og
er 934 tonn að stærð. Áihöfnin
er 31 maður, þar af tveir ve'ð-
urfræðingar og einn læknir.
í skipinu er gufuvél og þegar
við spyrjum, hvers vegna svo
®é, svarar 1- stýrimaður.
Skipsmennirnir, sem tóku á móti okkur taldir frá vinstri: 1. stýrimaður Koelln, skipstjórinn.
Dalunen og iæknirinn dr. Roehrs.
Heimsókn í fljótandi sjúkrahús
Þjóðverja á ísiandsmiöum
— Ég býst við því að það
hafi verið vegna þess, að þeir
áttu vélina tilbúna, þegar þeir
voru a'ð smíða skipið. Þið eruð
ekki þeir fyrstu, sem spyrjið
um þetta. Það finnst öllum
þetta mjög merkilegt, að
svona nýtt skip skuli vera með
gufuvél. Annars fáum við
nýtt skip næsta ár og verður
það með diselvél og auk þess
tvöfalt stærra en þetta. Þetta
skip mun þó halda áfram að
þjóna sínu hlutverki eftir sem
éður.
Herra Koelln sýnir okkur
veðurathugunarskrifstofu, sem
er í skipinu með öllum ful'l-
komnustu tækjum á því sviði.
Hann segir okikur, að þeir
sendi út veðurfregnir til skipa
og veiðíbáta tvisvar á sólar-
hring, kl. 7 á morgnanna og
kl. 7 á kvöldin hvern daig- Að
því starfi tveir veðurfrœðing
ar og hafi þeir ærinn starfa
við það.
t
Miðskips er allsæmilegur
salur. Þar tekur skipstjórinn
á móti gestum, en skipið er
eign vestur-þýzka ríkisins. Á
veggjunum hanga tveir silf-
urskildir og á öðrum stendur:
„Til Poseidon for fortjeneste-
fuld inidsats i eftersögningen
efter ms. Hans Hedtoft, sam
forliste 30. januar 1959 syd
for Gröndland“, en á hinum,
stendur: „Til minnis um 24. 7.
1963 við tökk fyrir bjarging
manning oig ferðafólk við ms-
Btikur". Á veggnum and-
spænis dyrunum er svo stórt
málverk af gríska guðinum
Poseidon. Við spyrjum 1.
stýrimann hve marga særða
menn e'ða sjúka þeir hafi að
stoðað það sem af er árinu og
hann svarar, eftir að hafa
blaðað í bókum nokkra stund.
— Fimm hundruð og fimm
alls, þar með taldir sjúklingar
með tannpínu og áðra smá-
vægi'lega kvilla. Annars er
það allt annað en gaman að
ifá tannpínu úti á rúmsjó, seg
ir hann og brosir.
í skipinu er fullkomið
sjúkrahús með skurðstofu og
öllu, sem henni tilheyrir á—
samt röntgentæikjum. L.ækn-
irinn, dr. Roehrs, segir að til
þeirra leiti menn með alls
kyns kvilla og séu beinbrot
og botnlangakvillar algengast
ir- í sfðustu ferð hafi leitað
til þeirra yfir 200 manns með
tannpínu og þegar við látum
í ljósi undrun yfir, hve fjöld-
inn, sé mikill, segir hann:
— Já, en þið verðið að
gæta að því að á vestur-þýzk
um verksmiðjutogurum er á-
höfnin skipúð 60 mönnum, og
þar eð Poseidon er sex vikur
í hverri ferð, vill það oft
verða svo að sjúkilingarnir,
sem til okkar leita verða marg
ir.
Sjúkrahúsið um borð tek-
ur 16 sjúklinga, þar af eru
tvö sjúkrarúmin ætluð mönn
um, sem setja þanf i sóttkví,
tækjum.
en slíkt getur ávallt komi'ð
fyrir, að bráðsmitandi sjúk-
dómar komi upp.
Skipið veitir öllum hjálp,
án tillit til þjóðernis þess
skips, sem um hana biður.
Aðspurður um það hvort þeir
veiti sovétskum skipum að-
sto'ð, svöruðu þeir félagar:
skipum, sem öðrum alla þá
hjólp er við getum, en gail-
inn er bara sá, að þeir biðja
okkur al'drei um hana. Þá
veitum við einnig austur-
þýzkum skipum alla þá að-
stoð er við getum og hafa þeir
þegi'ð hana. Þeir veita einnig
ölllum læknishjálp, jafnt okk
ur sem öðrum, en aðra að-
stoð láta þeir ekiki í té. Við
gerum við skipin, sé þess ósk
að og höfum til þess kafara
um borð, sem getur gert allar
smáaðger'ðir neðansjávar.
— Það má geta þess, sagði
skipstjórinn, sem nýkominn
var frá landi og við hittum
úti á dekki, er við vorum að
fara frá borði, að vi’ð aðstoð-
uðum íslenzkt skip í síðustu
ferð- Það var togarinn Narfi,
sem þurfti aðstoðar vi'ð vegna
sjúks skipverja.
— Hvert er svo ferðinni
heitið að lokinni þessari dvöl
ykkar hérna?, spyrjum við
um leið og við kvéðjum,
— Ætlunin er að við verð
um hér í nokkra daga við ís-
land, en förum svo til Cux-
haven, en þaðan er ödl skips
höfnin og munum við þá eiga
tveggja vikna frí þar til vfð
höldum áifram norður ' til
Grænlandis að nýju, sagði
skipstjórinn, herra Dahmen
um leið og við kvöddum þá
félaga.
Poseidon, þar sem hann lá við Ægisgarð i g óða veðrinu í gær. (Ljósm. Sv. Þorm.)-
STAKSTIIiyAR
Aumingja Framsókn
Alltaf er niálgagn Framsókn-
arflokksins jafn seinheppið, og
er ekki ofsögum sagt af þeirri
ólukkustjörnu, sem hvílir yfir
Framsóknarflokknum og mál-
gagni hans. * I eitt ár hefur
mikið starf verið unnið á veg-
um samlaka ungra Sjálfstæðis-
manna við athuganir á mennta-
málum og hverju hreyta mætti
til hatnaðar í þeim efnum. Auð-
vitað eru margir aðrir aðilar í
þjóðfélaginu að vinna að þessu
máli, en ekki er óeðlilegt, að um
einhverja þætti þess sé fjallað
af stjórnniálasamtökum ungs
fólks, og ber að meta það starf,
sem þegar hefur verið unnið í
þessum efnum af ungum Sjálf-
stæðismönnum. Sl. laugardag
birtist hér í Morgunblaðinu ein
opna með skýrslum og ályktun-
um þings Sambands ungra Sjálf-
stæðismanua um menntamál
ásamt kafla úr ræðu Þórs Vil-
hjálmssonar um Skólann og Þjóð
félagið, og viðtali við Þóri Ein-
arsson, sem veitt hefur forstöðu
athugunum ungra Sjálfstæðis-
manna á ir.enntamálum. ítarleg
skýrsla var lögð fram á sam-
bandsþinginu um barnafræðslu-
stigið og gagnfræðastigið, og var
hluti þeinar skýrslu hirtnr í
Morgunblaðinu og má öllum
ljóst vera, að mikið starf hefur
verið unnið víð að taka saman
þessa skýrslu og móta stefnu
ungra Sjálfstæðismanna í þess-
um málum, sem raunar hefur
ekki verið gert endanlega enn.
Sýndarmennska?
En einmitt þennan laugardag,
þegar Morgunblaðið birtir heila
opnu um athuganir ungra Sjálf-
stæðismanna á menntamálum,
gerir málgagn Framsóknarflokks
ins þessar athuganir að umræðu-
efni, og lætur að því liggja, að
hér sé uiR sýndarmennsku eina
að ræða, tekur örfáar setningar
upp úr stjórnmálaávarpi ungra
Sjálfstæðirimanna og ætlar mönn
um að halda að það sé það eina,
sem frá þiugi þeirra hafi komið
um menntamálin. Þannig segir
Tíminn: „Ýmsum mun nú finnast
að þetta sé heldur lítið til þess
að „setja svip á þingið“ og að
frumlegri niðurstöðu hefði mátt
komast og meiri nýmælum en
þeim, að menntunin verði að
auka þroska hvers einstaklings.
Sú spurning hlýtur að vakna
hvort hér sé aðeins til þess stofn
að að gcra þessi mikilvægu
vandamál að áróðursgagni fyrir
nnglingasamtök íhaldsins".
í þessum skrifum kemur fram
sterk óskhyggja um, *að starf
ungra Sjálfstæðismanna í þess-
um efnum verði sýndarmennska
ein, en segja má með sanni, að
ólukkustjarnan sveimi yfir Fram
sóknarflokknum og málgagni
hans, að þessi skrif skuli birtast
einmitt sarna daginn og ítarleg
skýrsla um athuganir ungra
Sjálfstæðismanna á menntamál-
um er hirt í Mbl.
Allt gengur a
afturfótunum
Þetta dæmi sýnir eins og svo
margt annað, að hjá Framsókn-
armönnum gengur allt á aftur-
fótunum. Þeiin mistakast allir
hlutir sem þeir reyna við. Gæfan
hefur greinilega snúið haki við
þeim- ólukkufuglum, sem þar
ráða ríkjum, og er það ekki von-
um seinna. Framsóknarmönnum
væri nær að hvetja sína ungu
menn til aukinna átaka í þessum
efnum sem öðrum, en að gera
tortryggilega lofsverða viðleitni
ungra manna í öðrum flnkknm.