Morgunblaðið - 21.09.1965, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 21.09.1965, Qupperneq 20
20 MORCUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 21. sept. 1965 ^ — Rabb úr Rússlandsferð Framihald af bls. 17 lengd er að ræða. Sé maður í vafa um hvar skipta skuli um lestir á leiðinni er það auðleyst. í hverri stöð er kort yfir allar stöðvarnar og línurnar — og ýti maður á hnapp við nafn áfangastaðarins kviknar ljós er sýnir glöggt leiðina þangað. Þrifnaður er áberandi í Moskvu, eins og reyndar öllum Stöðum rússneskum, sem ég ikom til í ferðinni. Kemur vart tfyrir að fólk fleygi frá sér rusli é almannafæri, enda liggja við eektir, samkvæmt lögum, — en t>ó eru gamlar konur víða til taks með hrísvendi, ef eitthvað Bkyldi hrjóta í ógáti. Og á hverju kvöldi aka bílar um göt- urnar og sprauta á þær vatnL Þarf því enginn að eiga á hættu í Moskvu að renna á banana- hýði og beinbrjóta sig. En því miður dregur fólkið sjálft að mörgu leyti úr áhrifum hinna hreinu gatna — og veldur þvi fyrst og fremst klæðaburður |>ess og holdafar, einkum kvenna. Ég verð að játa, að fnér brá ofuriítið í brún við áð sjá það — 'og þé ekki síður við eð ganga um stórverzlunina „Gum“ og skoða vöruúrvaiið, þar sem var á boðstólum. Það var að sumu leyti því líkast að rekast inn í íslenzkt kaupfélag einhvers staðar í afskekktu smáþorpi — fyrir 20—25 árum. Og verðlag á fatnaði himinhátt, einkum þó á skóm, sem minntu í mörgu á íslenzka skófram- leiðslu, er hún var að stíga tfyrstu sporin. Beztu og dýrustu kvenskórnir, sem ég sá í rúss- neskri verzlun, voru að gæðum é við skó, sem hér í Reykja- vik mætti fá fyrir á að gizka 4—500 krónur, — þeir kostuðu 60 rúblur eða nærri 2.500 ís- lenzkar krónur. Sé til dæmis miðað við laun túlksins okkar, 100 rúblur á mánuði, sem eru venjuleg iaun bamakennara, að pví er hún sagði, er Ijóst, að það er betra að gera ekki alltod háar kröfur um fótabúnað sinn Ódýrustu kvenskór, sem ég só kostuðu 10 rúblur, tæpar 500 fcrónur (1 rúbla er 47—48 krón- ur isienzkar. En þegar rætt er um kaupgjald og verðlag er skylt að geta þess að. Rússar búa við mjög lága húsaleigu og ókeypis eða ódýra iæknis- hjáip o. fl. og vegur það ef- laust töluvert upp á móti hin- um dýrari hlutum svo sem fatnaði og alls konar mun- aðarvörum). Verð á karlmanna Skóm virtist mér tilsvarandi en eitthvað lægra á barnaskóm. 1 heiil virtist mér íatnaður bæði ósmekkiegur og óvandað- ur en einstaka vörutegund ný var að koma á markað og sýndi mikia fram framför. Enda er nú greinilega uppi sterk hreyfing í t>á átt að bæta og auka vöru- úrval. Fólkið hefur nú meiri peninga handa á milli en áður og gerir sívaxandi kröfur til þess að fá fyrir þá eitthvað nýtilegt. Þegar ég gekk um fyrsta dag- inn í Moskvu virtust mér allar konur eins, stuttar og feitlagn- ar — sem kemur því betur í ljós, sem undirfatnaður þeirra er hörmulegur — þreytulegar og þungbúnar á svip, með iila greitt hár — sem m.a. mun stafa af því hve sápa er dýr — og klæddar rósóttum lérefts eða poplínskjóium einhvers konar. Virtist mér þá ákaflega þrúgandi blær yfir öllu. Þegar ég að loknum kvöldverði gekk aftur út, var þyngslasvipurinn horfinn og meðalaldur borgar- búa hafði, að þvi er virtisf, lækkað uan 1—2 áratugi. Ástæð- an fyrir þessum sviplegu um- skiptum var sú, að þennan dag var einhver æskulýðsdagur haidinn hátáðlegur og unga fólkið gekk um göturnar og Rauða torgið syngjandi og spil- andi á gítar og harmoníkur, fjörlegt og fahegt æskufólk, ágætlega klætt, frjálslegt í fasi og bar höfuðið hátt. Ungar stúlkur önduðu að sér ilmi blómanna, sem piltarnir þeirra höfðu sýnilega fært þeim og í Alexandersgarðinum virtist róm antíkin allsráðandi. Sums stað- ar stóðu ungir strákar í hnapp og léku vestræn dæg- urlög á gitar, aðrir gengu um með harmonikur og léku rússneék dægurlög. Nokkur ungmenni sátu með skóiabæk- ur og lásu og á stóku stað geng- um við fram á fuilorðnar konur, þar sem þær sátu raulandi við handavinnu. í höll stjórnar- herranna í Kreml rikti glaumur og gleði — þar var verið að skemmta keisaranum í íran, sem kominn var í opinbera Háskólinn á Lenínhæðum. heimsókn. Þótt margt sé faUegt í Moskvu skýtur sú hugsun æði oft upp kollinum, þegar gengið er eða ekið um götur hennar, að hún gæti verið margfalt fall- egri. Kemur þar einkurn til byggingarstíilinn, sem þar er ríkjandi, einkum í búðarlhverf- unum i úthverfunum. Ég held, að Rússar megi vera þakklátir of sarmar eru þær staðhæfing- ar, að hús þeirra séu illa byggð — þeir geta þá með minni eftir- sjá sett á þau ýtur seinna meir og betrumbætt sína ágætu borg, gert hana eins fallega og hún á skilið. Brúðartertu-stíH Stalínstimans er löngu heims- kunnur, enda ótrúlegur óskapn- aður og miklu ljótari í reynd en á myndum að sjé. Er sorg- legt til þess að vita, hve miklu fé hefur verið eytt í prjáj qg tiidurslegar skreytingar á 'þeim tíma, er húsnæðisskortur var slikur, að fólki var hrúgað í tugatali í hverja smáibúðar- holu. Bftir þvá, sem túlkurinn ökkar, Ina, sagði varð fólks- fjölgun svo gífurleg í Moskvu eftir byltinguna, að stjórnin hefur á undanförnum árum orðið að gera sérstakar ráðstaf- anir til þess að hamla gegn flutningum fólks þangað úr öðrum byggðarlögum og jafn- framt hvatt Moskvubúa til að flytjast til annarra staða. Fólksfjöigunin olli að sjálf- sögðu miklum búsnæðisskorti — og þá bætti ekki styrjöldin úr skák, en þá voru, að sögn Inu, þriðjungur íbúðarhæfra húsa í Sovétríkjunum lögð í rúst, og 20 milJjónir manna misstu heimili sín. Fyrir bylt- inguna sagði Ina ástandið hafa verið svo í Moskvu, að aðeihs 47% borgarbúa höfðu rennandi vatn í íbúðum sínum, 30% raf- magn og 13% upphitun. Sagði hún 3.5 milljónir manna hafa fengið húsnæði 1 Moskvu frá styrjaldarlokum og á næstu ár- um væri áætlað að reisa fjölda íbúðarhverfa, íbúðareiningar fyrir 5.000—25.000 manns hverja, þar sem verði skólar verzlanir og annað, sem nauð- syplegt kann að reynast til daglegs iifs ibúanna. Fer ekki á milili mála að geysimikið er byggt af íbúðarhúsum í Moskvu. Fjöldaframleiddar húsa samstæður þjóta upp eins og gorkúlur og bæta jafnt og þétt úr húsnæðisskortinum. Og þótt nýju húsin séu langt frá því að vera falleg eru þau miklum mun skárri en það sem fyrir er. Algengt er þó ennþá, að hjón búi ásamt 2—4 börnum í einu herbergi og hafí aðgang’ að eidihúsi og baði, en einnig títt orðið að jafnstór fjölskylda fái 2—3 herbergja íbúð í úthverfunum. Stærri ibúðir en 3—4 herbergja tíðkast alis ekki. Mikið hefur verið rætt og ritað um að íbúðarhús Rússa séu illa byggð og að erfileikar séu á að fá þeim sæmilega viðhaldið. Rússneskur verkfræðingur — flokksbundinn kommúnisti — sagði mér aðspurður, að þetta væri rétt. Þeir byggðu svo óskaplega hratt, þar sem hús- næðisþörfin væri svo brýn, að það kæmi óneitanlega niður á gæðunum. Og viðhald húsa væri miklum erfiðlei'kum bund- ið sökum þess, að faglærðir iðn- aðarmenn væru allir teknir í nýju framleiðsluna jafnskjótt og þeir kæmu úr skóla. „Við eigum ekki um annað að veija en koma fólkinu í hús“ sagði hann og bætti við „við gerum okkur þetta fyllilega ljóst og höfum góðar vonir um að éstandið í þessum efnum muni fara hraðbatnandi á næstunni". í raun og veru mætti segja, að þessi síðustu orð verk- fræðingsins væru einkunnarorð alira þeirra Rússa, sem ég hitti að máli í þessari ferð. Allir voru sammála um að lífskjörin og athafnafrelsi fólksins hefði batnað afar mikið á síðustu 5—10 árum og færi fram sem horfði væri von ennþá meiri breytinga á komandi áratug. „Þið hefðuð, sagði einn mið- aldra leigubílstjórinn, átt að vita hvernig ástandið var hér á dögum Stalíns, þegar við þorðum varla að Hta upp með- an við gengum yfir Rauða torg- ið. Og þá fékkst bókstaflega ekkert. Miðað við þá daga höf- um við ekki yfir miklu að kvarta — sízt unga fólkið“, bætti hann við. Þó var unga fólkið ekki allt jafn ánægt. Á matsölustað ein- um hittum við nokkra unga stúdenta — þeir voru ekki bein Hnis óánægðir — en sögðust hafa mikla löngun til að ferð- ast, ieggja land undir fót og fara að heiman í nokkur ár, jafnvel vinna fyrir sér á leið- inni, — koma síðan heim og vinna fyrir föðuriandið. En þetta töidu þeir illframkvæm- anlegt. „Ekki ennþá — kannski seinna, eftir fimm til tíu ár". Stúdentarnir virtust lifa ágætu lífi. Þeir stund- uðu nám við Moskvu há- skólann á Lenínhæðum og höfðu námslaun, 90 rúblur á mánuði, sem entust vel, þar sem húsnæði kostaði aðeins 1,50 rúblu á mánuði, bækur voru ódýrar og hægt að borða ódýrt í mötuneyti háskólans. Sögðu þeir flesta stúdenta — um 90%; fá námslaun, 30—90 rúblur á mánuði eftir frammiStöðu í námi. I sumum greinum værii hægt að fá hærri laun en i öðrum og færi það eftir að- sókninni að deildupum og þörf- um atvinnuveganna. Moskvuháskóii var stofnaður árið 1754. Þar stunda nú nám rúmiega 30 þús. stúdentar. Nýi skólinn á Lenínbæðum, sem; byggður var á árunum 1949-53 er eingöngu fyrir raunvísinda- deildir, en hugvísindi eru kennd í gamla háskólahúsinu við Marx stræti, auk þess sem skól inn hefur kennslu í nokkrum öðrum húsum. Erlendir stúd- entar í Moskvu eru um 2000 talsins, frá 100 löndum, en auk þeirra eru margir stúdentar frá Asíu- og Afríkuríkjum við nám og herþjálfun. Við hittum oft erlenda stúdenta á barnum á „National ‘. Þangað komu aldrei rússneskir stúdentar, enda var þar eingöngu hægt að kaupa fyrir erlendan gjaldeyri, — og auk þess höfðum við grun um að reynt væri að sporna við of miklu samneyti þeirra við er- lenda ferðamenn. Einn ferða- félaganna hafði til dæmia kynnzt rússneskum stúdent og boðið honum að snæða með sér kvöldverð á hótel „National“. Þegar stúdentinn kom spurði dyravörðurinn, hvaða erindi hann ætti þangað. Stúdentinn sagði sem var. „Til hvers?, spurði dyravörður „til þess m.a. að æfa mig í ensku“ svaraði stúdentinn. „Þú getur lært énsku í háskólanum „sagði þá hinn og vísaði honum út. Og nokkrum sinnum urðum við vitni að því, að Rússum var ekki hleypt inn á „dollara“ vín- stúkurnar, eins og þær jafnan voru kallaðar öánægja Afrikustúdenta með aðbúnaðinn í Moskvu hefur oft verið umtalsefni vestrænna blaða. Reyndum við að hlusta eftir skoðunum stúdenta á þessu og fengum þá hugmynd, að ástæðan fyrir óánægju þeirra mundi fyrst og fremst vera leiðindi. Þegar þeir fyrst komu til Rússlands vöktu þeir óskipta athygli, ekki sízt kven- fólksinS, — sem vel kunni að meta þeirra „hraustlega" Htar- hátt og klæðaburð, sem tók langt fram klæðaburði og útliti rússnesku stúdentanna. Þeir aft ur á móti urðu ókvæða við, þegar stúlkurnar tóku að taka „Don Juan“-framkomu erlendu stúdentanna fram yfir „félags- lega“ framkomu landa þeirra. Gagnrýndu þeir stúlkumar harðlega fyrir og fór svo, að stúlka, sem sást á götu með Araba eða Afríkustúdent varð ámælisverð í augum félaga sinna og almennings. Afleiðing- in varð sívaxandi einangrun er- lendu stúdentanna, og jafn- framt vaxandi leiði þeirra á náminu og öUu, sem því fylgdi. í einni af nýjustu „Metro“ stöðvunum. Sambýlishús við Lomonosovskl Prospekt. ByggingarstíU, sem þessi, er ríkjandi á eldri bygg- ingum í borginni, þ.e.ajs. frá írá Stalíns-timanum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.