Morgunblaðið - 01.10.1965, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 01.10.1965, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLADIÐ Föstudagur 1. október 1965 Reynir Wilson að stjdrna með eins atkvæðis meirihluta? Efnir sennilega ekki til kosninga á næstunni nema tilneyddur — Skoðanakönnun sýnir verulega fylgisaukningu stjórnarinnar UM þessar mundir er hið mesta fjör í brezkum stjórn- málum og margt skrifað og skrafað um lífsvon stjórnar Verkamannaflokksins, undir forsæti Harolds Wilsons. Til- •fnið er það, að sl. mánudag hófst í Blackpool landsþing Verkamannafiokksins — ný- lokið er landsþingi Frjálslynda flokksins i Scarborough og 13. •któber næstkomandi hefst landsþing íhaldsflokksins í Brighton, þar sem Edward • Heath, hinn nýkjörni leiðtogi flokksins mun án efa gera gang- skör að því að hressa upp á heilsufar flokks síns. Eftir skrifum brezkra stjórn- málafréttaritara að undan- förnu að dæma, virðist óliklegt, að Wilson láti fara fram nýjar kosningar á næstunni — eins og margir hafa talið óumflýjan- legt, vegna hins nauma meiri- hluta stjórnarflokksins — nema því aðeins, að eitthvað gerist, er beinlínis neyði hann til þess. Þó hefur forsætisráð- herrann lýst því yfir, að hann sé alls óhræddur að ganga til kosninga, knýi stjórnarandstað- an hann til þess — en hann kýs að halda baráttunni áfram ó- trauður og koma fram fyrir- ætlunum sínum — og til þess kveðst hann þurfa 12 mánuði eða þar um bil. Þá hyggst hann leita álits þjóðarinnar, áður en hann heldur áfram að byggja á þeim grundvelli, er hann hefur m verið að leggja, frá því hann tók við embætti forsætisráð- herra. Margir samráðherrar Wilsons eru þess fýsandi að ganga til kosninga nú þegar og reyna að auka meirihluta flokksins á þingi — því að samkvæmt síð- ustu Gallup-könnun hafa vin- sældir Wilsons og stjórnar hans aukizt verulega síðustu vikurn- ar. Svo var komið í sumar, að íhaldsflokkurinn virtist, sam- kvæmt skoðanakönnun, hafa TVz% fylgi umfram Verka- mannaflokkinn. En nú hefur vænkazt svo hagur Wilsons, að flokkur hans hefur nú 6%% umfram íhaldsflokkinn. Ef dæma ætti eftir þessum upp- lýsingum gæti Verkamanna- flokkurinn fengið allt að því 150 þingsæta meirihluta í Neðri málstofunni yrði efnt til kosn- inga þegar í stað. Wilson er sjálfur sagður taka þessum tölum með tortryggni Og varúð. En hann er, að sögn, sannfærður um, að flokknum mundi takast að ná í 30—40sæta meirihluta ef nú væri kosið. Á fainn bóginn er hann þeirrar skoðunar, að meirihluti lands- manna hafi hreint engan áhuga á kosningum, eins og sakir standa, heldur kjósi, að áfram verði haldið tilraunum til þess að bæta efnahagsástandið í Bretlandi, styrkja sterlings- pundið o. s. frv. — og vilji, að stjórnin fái frið til þess að - reyna að komu fyrirætlunum sínum í framkvæmd. — ★ — Meðal áhugamanna um brezk stjórnmál var þess beðið með mikilli eftirvæntingu, hvernig málum yrði háttað á landsþingi Frjálslynda flokksins — hverja stefnu Jo Grimmond og flokkur hans myndu taka gagnvart brezku stjórninni. Frjálslyndi flokkurinn, sem hefur í Neðri málstofunni tíu hingmenn með þrjár milljónir kjósenda að baki sér, er í mjög öflugri aðstöðu um þessar mundir og gæti með lítilli fyrir- höfn brugðið fæti fyrir Wilson og knúð fram kosningar. Var því helzta umræðuefni á þing- inu, hvernig nota skyldi þessa sterku aðstöðu flokksins til sem mestrar eflingar hans. Að því er stjórnmálafrétta- ritarar segja, má Wilson, for- sætisráðherra, vel við una þá stefnu, er þingið í Scarborough tók — þar eð fram hafi ljóslega komið, að Frjálslyndir hneigist fremur til vinstri en hægri — og þótt þeir haldi uppi harðri gagnrýni á stefnu stjórnar Verkamannaflokksins, séu þeir sízt hrifnari af íhaldsflokknum og telji því vænlegra að leyfa stjórninni að lifa, a.m.k. fyrst um sinn, meðan hagsmunamál flokkanna jaðra a.m.k. í ein- hverjum málum. Frjálslyndir eru á öndverð- um meiði við ýmis baráttumál Verkamannaflokksins og lítt um önnur gefið og hafa verið uppi ákafar rökræður innan flokksins um, hvernig við skuli brugðizt ýmsum frumvörpum stjórnarinnar, sem rædd verða á næsta þingi. Meðal helztu á- greiningsmálanna mætti nefna lóðafrumvarpið, innflýtjenda- og stálfrumvarpið, sem öll gætu orðið stjórninni að falli — ekki sízt, þar sem innan stjórnar- flokksins sjálfs er einnig veru- legur ágreiningur um þau. Á þinginu í Scarborough veittu Frjálslyndir leiðtoga sín- um, Jo Grimmond, fullt umboð til þess að haga viðskiptum sín- um við stjórnina eins og honum þykir réttast hverju sinni. Og í lokaræðu sinni gerði Grimmond ljóst, að hann mundi ekki stefna að því að fella stjórn Wilsons — sem þýðir, að þingmenn Frjálslyndra annaðhvort greiða atkvæði með frumvörpum stjórnarinnar eða sitja hjá við atkvæðagreiðslur — en hann mundi heldur ekki telja sér skylt að halda í stjórninni líf- inu, ef atkvæðameirihluti henn- ar minnkaði ennþá. Mátti ráða af ræðu hans, að þingmenn Frjálslyndra myndu greiða at- kvæði með lóða- og innflytj- endafrumvörpunum — en stjórnin skyldi engu að síður búast við harðri gagnrýni á þau af þeirra hálfu. „Því það er lýðum ljóst", sagði Grimmond, „að undir stjórn Verkamanna- flokksins mun skriffinska fara vaxandi og skrifstofubáknið stækka — en lóðaverð lækkar áreiðanlega ekkert". Stálfrum- varpið munu Frjálslyndir hins- vegar ekki styðja — hvort þeir láta sér nægja að sitja hjá, þeg- ar það kemur til atkvæða- greiðslu, er enn óvitað. Lóðafrumvarpið var mikið rætt á fundinum í Scarborough, því að nokkrir framámenn Frjálslyndra höfðu barizt gegn því af mikilli hörku, gefið alls kyns yfirlýsingar um það mál í blöðum og krafizt þess, að stjórnin yrði felld á því. Þeir, sem börðust gegn þessari af- stöðu tefldu fram þeim rökum helztum, að hér væri um að ræða kænskubragð af hálfu Wilsons — hann hefði í raun- inni ekkert á móti því að sjá Frjálslynda taka afstöðu gegn frumvarpinu og snúast á sveif með íhaldsmönnum og lóða- bröskurum — því þar með gæti hann gert málið að hita- máli í kosningunum og yrði það Verkamannaflokknum ef- laust til framdráttar. Voru marg ir þingfulltrúa á því, að lóða- málið væri ekki nægilega mikil- vægt til þess að fella stjórnina á því — þeir yrðu að gæta þess að fella hana einungis á stór- máli — ella myndu þeir glata trausti þjóðarinnar. Einn ræðu- manna, J. Pardoe, talsmaður flokksins í málum, er varða einokun í viðskiptum, var lóða- frumvarpinu meðmæltur, taldi víst, að það yrði til þess að lækka verð byggingarlóða og hrósaði Wilson fyrir það hug- rekki, er hann sýndi með því að ráðast á þetta vandamál með fyrirsjáanlegan aðeins eins at- kvæðis meirihluta á þingi. , — ★ — 1 lokaræðu sinni á þinginu 1 Scarborough bauð Jo Grimm- ond Verkamannaflokknum ó- beint til samstarfs — en óstað- festar fregnir herma, að hann hafi þreifað fyrir sér um möguleika þess að undanförnu. Jafnframt gagnrýndi hann Wil- son harðlega, einkum fyrir að vera of eftirgefanlegur við vinstri arm flokks síns. Sagði hann, að „styrkur" vinstri arms ins væri ekki orðinn annað en „þjóðsaga", sem Verkamanna- flokkurinn gerði rangt í að halda lifandi. „Ég veit, sagði Grimmond, að það er talið óhugsandi fyrir Wilson að stefna okkur nær, vegna þess að hann muni þá kljúfa flokk sinn. Um það hlýt ég að segja það eitt, að vilji hann afla sér meira fylgis, verð ur hann fyrr eða síðar að horf- ast í augu við, að það er óum- flýjanlegt. Geri hann það ekki, getur hann gengið að því sem gefnu að verða af miklu fylgi meðal þeirra, sem hvorki eru ánægðir með íhaldsflokkinn né Verkamannaflokkinn*‘. — Og Grimmond hélt áfram: „Verka- mannaflokkurinn hefur lagt nið ur sósíalisma án þess að taka nokkuð upp í staðinn. Kæmi til samstarfs hans og Frjálslyndra yrðu hinir síðarnefndu eflaust að sjá þessum ógnarstóra mynd lausa líkama, sem við erum beðnir að bjarga frá hyldýpis örvæntingu — fyrir bæði heila og hjarta“. Jo Grimmond lauk ræðu sinni með því, að Frjálslyndi flokk- urinn gagnrýndi Wilson ekki harðast fyrir að vera of róttæk- ur eða byltingarsinnaður, — þvert á móti teldu flokksmenn hann of íhaldssaman og hæg- fara. Sagði Grimmond framá- menn Verkamannaflokksiiis vanmeta mjög þörf þjóðarinnar og óskir um róttækar breyting- ar og nýtt andrúmslot í lífi og starfi — og jafnframt mikla um of fyrir sér þau vandkvæði, sem á því væru að koma þess- um breytingum í framkvæmd. Ræðu Grimmonds var af- bragðs vel tekið á þinginu og segja stjórnmálafréttaritarar, að komið hafi betur í ljós en nokkru sinni fyrr, að sem ræðumaður beri hann höfuð Jo Grimmonds. og herðar yfir hina flokka- leiðtogana, þá Wilson og Heath. Hafi blaðamönnum fundizt ræða hans þurr og leiðinleg, er þeir lásu hana fyrirfram en hrífandi af vör- um hans. — ★ — Það var ljóst, þegar áður en árslþing Verkamanna- flokksins hófst í Blackpool, að Wilson mundi lítt sinna sam- starfstil'boði Grimmonds. Það var Wilson mjög í hag, að árs- þingi Frjálslyndra skyldi lok- ið áður en þing Verkamanna- flokksins hófst, því þá gat hann hagað ræðum sínum og barótt- unni við vinstri arminn í sam- ræmi við upplýsingar frá Scarborough. Einnig varð þetta til þess að auka mjög á bjart- sýni þingfulltrúanna, 1200 tals- ins, annarra en þeirra, sem komnir voru til þess að hella sér yfir Wilson fyrir brot á stefnuskrá flokksins, frávik frá sósíalisma o.s.frv. Á þriðjudagin gerði Wilson grein fyrir stefnu stjórnarinnar og störfum til þessa. I 70 mín- útna ræðu sinni lagði hann mesta áherzlu á að sannfæra þingheim um, að hann hyggð- ist ekki gera neinn samning við Frjólslynda um stjórnar- samstarf — en kvaðst jafn- framt fagna mjög stuðningi þeirra við þær fyrirætlanir, er hann hyggðist leggja fyrir þing ið. Gerði stjómarandstaðan stjórninni hinsvegar ókleift a3 halda áfram raurihæfu stjórnar- starfi, mundi hann ekki hika við að vísa málunum til þjóðar- innar — hann væri reiðubúinn til kosninga hvenær sem væri. Wilson ræddi ýtarlega um innflytjendafrumvarpið, sem mætt hefur öflugri andspyrnu innan Verkamannaflokksins. Kvað hann nauðsynlegt að tak- marka innflutning fólks frá samveldislöndunum — sem farið hefur hraðvaxandi á síð- ustu fimm árum — til þess þannig að reyna að koma í veg fyrir árekstra í þjóðfélaginu er leiða myndu til aukins kyn- þáttamisréttis — fordóma og haturs. Væri hrein vitfirring að leyfa óhindraðan fólksflutning til landsins, — til svæða sem engan veginn væru því viðbúin að taka við þessu fólki — þá færi aðeins svo, að það safnað- ist saman í fátækrahverfi með þeim hörmulegu afleiðingum. sem slíkt hefði jafnan í för með sér og kunn væru frá fjölmörg- um öðrum ríkjum. Ræðu Wilsons var forkunnarvel tekið af þingheimi og síðustu daga hefur ekki verið annað sýnilegt, en að hann muni hafa í fullu tré við öfgamenn vinstri armsins, þótt þeir hafi gert að honum allharða hríð. Álykt- anir þeirra hafa verið felldar hver af annarri, en þær hafa fjallað um ýmiss mál, m.a. verðlags- og launamál, þjóð- hagsáætlunina, innflytjenda- Framh. á bls. 31 Harold Wilson í hópi rithanda safnara.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.