Morgunblaðið - 01.10.1965, Side 17

Morgunblaðið - 01.10.1965, Side 17
f! Föstudagur 1. olctöber 1965 MORGUNBLAÐIÐ 17 v.ÁW*, ■ >;• > UG Furðulegur sóðaskapur á ýmsum stöðum Rætt við Edvvard Fredriksen, eftirlitsmann Kristbjörn Xryggvason, yfirlæknir FYRIR tveimur árum hóf Edward Frederiksen eftirlit með veitingastöðum og gisti- húsum úti á landsbyggðinni, á vegum landlæknisembættis- ins. Hefur hann ferðazt víðsvegar um landið og kynnt sér rekstur viðkom- andi fyrirtækja og gert atlhuga semdir við það sem á hefur skort til þess að öllum hrein- lætisreglum væri framfylgt til hins ítrasta. f sumar fóru eigendur gistihúsa utan Reykjavíkur þess á leit við Edward að hann boðaði til fundar með þessum aðilum, þar sem rædd væru ýmis sam eiginleg hagsmunamál hótel- manna úti á landi. Við hittum Edward að máli í gær og spurðum hann um framkvæmd þessa móts. — Við komum saman í Barnaspítali Hringsins senn tekinn í notkun — segir Kris%b|örn Tryggvason, yfirlæknir FRAMKVÆMDUM við hinn nýja Barnaspítala Hringsins, er nú senn lokið og verður spítalinn, sem er á tveimur hæðum í vesturálmu nýbygg- ingar Landsspítalans, tekinn í notkun nú í haúst eða snemma í vetur. Barnaspítalinn er að mestu byggður fyrir fé, sem Kven- félagið Hringurinn í Reykja- vík hefur safnað af alkunnum dugnaði á þeim ujþ.b. 2ö ár- um, sem félagið hefur starf- að að þesum málum. Hafa Hringskonur lagt fram fé til bygingarinar svo og fyrir hús gögnum og ölum tækjum, sem í spítalanum verða. Við höfðum tal af Krist- birni Tryggvasyni, núverandi yfirlækni barnadeildar Land- spítalans, en hann verður yfir- læknir hins nýja Barnaspítala Hringsins, og spurðum hann um rekstur barnadeildarinnar og hinn nýja spítala. — Barnadeildin við Land- spítalann var opnuð 19. júní 1957 í bráðatoirgðahúsnæði á fjórðu hæð gamla Landspit- alahússins. Áður en hún tók til starfa voru hér ein eða tvær stofur fyrir börn á lyflækninga- og handlækn- ingadeild. Þetta var fyrsta barnadeildin við sjúkrahús hérlendis, en síðan hefur ver- ið opnuð barnadeild við Landakotsspítlann. Barna- deildin í Landspítalnum hef- ur rúm fyrir 30 sjúklinga og okkur hefur reynzt mjög erf- itt að taka á móti öllum börn- um, sem þarfnast sjúkrahús- vistar jafnvel eftir tilkomu deildarinnar í Landakoti. Nú verður barnadeildin í Land- spítalanum lögð niður og við flytjum í Hringsspítalann, sem mun hafa 60 sjúkrarúm og sennilega fjórum sinnum stærri gólfflöt en núverandi barnadeild. — Hvernig verður starfi barnaspítalans háttað? — Þar munu leggjast inn öll börn, sem þurfa á sjúkr'a- húsvist að halda og við get- um mögulega tekið á móti. Við munum njóta aðstoðar þjónustudeilda annarra, svo sem röntgendeilar, þegar þess er þörf. En annars verður starf okkar miðað við að gera litlu. sjúklingunum sjúkrahús- vistina léttbærari og í því skyni verða sem áður starf- andi föndurkennarar og barna kennari, er annast fræðslu þeirra, sem á skólaskyldualdri eru. Við verðum og að taka tillit til persónueinkenna barnanna og sjá til þess að skipa þeim sem bezt saman í sjúkrastofur. ■— Hversu fjölmennt verður starfsliðið? — Það er ekki enn að fullu ráðið, en á barnadeildinni hafa starfað fjórir læknar og verða þeir eitthvað fleiri á nýja spítalanum. Átta hjúkr- unarkonur hafa unnið þar einnig, en þær verða talsvert fleiri eftir að spítalinn verður tekinn í notkun. Það er miklu meiri vinna við börn en eldri sjúklinga og því er mjög mikil vægt að hafa allfjölmennu starfsliði á að skipa. — Ýmsir foreldrar óska eft- ir því að heimsóknartímum á barnadeildinni verði fjölgað. Verður þar einhver breyting á, þegar nýi spítalinn tekur til starfa? — Á barnadeildinni er sú regla viðhöfð, að heimsóknir eru leyfðar í eina klukku- stund tvisvar í viku. Vegna þrengsla hefur ekki verið unnt að hafa heimsóknartím- ann lengri. En ég geri ráð fyr- ir, að einhverjar breytingar verði á þessu fyrirkomulagi, þegar við flytjum. En hins vegar ber að géta þess, að heimsóknir hafa mjög trufl- andi áhrif á börnin og á barna deildinni er almennur grátur fyrsta hálftímann eftir heim- sóknir. —Eru börnin erfiðir sjúkl- ingar? — Nei, síður en svo. Börn eru miklu auðveldari viður- eignar en fullorðið fólk. Á barnadeildinni eru aldrei vandræði nema eftir heimsókn artímana, þá er grátið, en börnin jafna sig þó fljótlega, þegar þeim hafa verið sagðar sögur eða leikið hefur verið fyrir þau á hljóðfæri. — Það er greinilegt, að all- ur aðbúnaður og umgengni fer batnandi á hótelunum og ég veit að það er vilji eigenda þeirra, að gera sitt bezta. En þeir hafa átt í mjög miklum erfiðleikum með að fá hæft starfslið á sumrin til að vinna fyrir sig svo að það er brýn nauðsyn á þjálfun starfsliðs fyrir sumargistihús og veit- ingastaði. Á fundinum við Mývatn var samþykkt að efna til hótelstjóranámskeiðs á komandi vori, og munu sækja það 20 einstaklingar, en það er líka nauðsynlegt að annað starfsfólk hljóti einhverja þjálfun, því að mestur hluti þess eru skólastúlkur, sem ekki hafa fengizt við fram- reiðslustörf áður og eru ef til vill ekki færar um að ræða við gesti á erlendum tungu- málum. Fyrir utan þetta vandamál varðandi starfsliðið hefur um- gengni snyrtihertoergja verið fyrir neðan allar hellur í sum- um tilvikum og ég leyfi mér að álíta að enn eimi eitthvað eftir af öllum sóðaskapnum, Framhald af bls. 30 Edward Frederiksen, eftirlitsmaður Reynihlíð við Mývatn dag- ana 11. og 12. septemiber. Full- trúar á fundinum voru 25, eigendur eða stjórnendur gisti (húsa úr öllum landshlutum. Á fundinum voru rædd ýmis hagsmunamál hóteleigenda og var flestum málunum vísað til nefnda, sem ræða þau frekar. Á þessum fundum flutti ég er- indi um svip hótelanna utan Reykjavíkur og fjallaði um ýmis mál, sem mér eru ofar- lega í huga eftir að hafa kannað ástandið á þessum stöðum. — Hvað er það helzt, sem telja má ábótavant á hótel- unum? Björn Sveinbjörnsson, forstjóri. Gólfteppaframleiislan gengur mjög vel Rætt við Björn Sveinbjörnsson í Vef iranum UM ÞESSAR mundir eru þrettán ár liðin frá því að gólfteppagerð var hafin hér á landi. Gólfteppagerðin Vefar- inn hóf fyrst íslenzkra fyrir- tækja framleiðslu á gólf- teppum, en síðan hefur framleiðendum fjölgað, þann- ig að nú eru þeir fjórir tals- ins. Björn Sveintojörnsson, for- stjóri, sagði okkur að íslenzk gólfteppi hefðu náð miklum vinsældum. Þeir hjá Vefaran- um hófu framleiðslu sína með einum vefstóli, sem fenginn var að láni frá Noregi, og í fyrstu var byggt á reynslu Norðmanna í þesstun efnum. Norskur gólfteppaframleið- andi hafði látið í ljós þá skoð- un sína, að íslenzk ull væri sérlega heppiileg til gólfteppa- gerðar, og hafði hann blandað hráefni sitt íslenzkri (ull til að ná betri árangri. Það er togið 1 íslenzku ullinni, sem gerir hana hagstæða til gólfteppa- gerðar. í Vefaranum einum er unnið úr togi af 50—60 þús. fjár á hverju ári, ef miðað er við tölu reifa, sem eru þó vitanlega ekki notuð öll. — Hvernig er framleiðsl- unni háttað nú? — Við höfum að sjálfsögðu bætt við okkur tækjum og nú höfum við þrjá vefstóla til að vinna með. Það skapaðist strax góður grundvöllur fyrir framleiðsluna, en teppi voru aðallega flutt inn frá Englandi og Þýzkalandi, þegar rekst- ur Vefarans hófst í bragga við Skúlagötuna. Innfluttu teppin voru af ákveðnum stærðum, en við höfum fram- leitt dregla sem skeyta má saman að vild eftir því hve gólfflötur er stór, og átti þetta þegar í stað miklum vinsæld- um að fagna. — Breytist ekki tízkan í gólfteppavali? — Jú, hún breytist hægt og sígandi. Fyrir nokkrum árum voru grá teppi, einlit, mest í tízku, en nú ber allmikið á að fólk vilji litskrúðugari teppi í híbýli sín. Við framleiðum 30—40 númer af teppum, ýmsa liti og mynstur, sem eru gerð að norskri fyrirmynd að einu undanskildu, sem Magnús Bálsson, leiktjalda- málari, hefur gert. Upphaflega óttuðumst við, að íslendingar væru svo miklir einstaklings- hyggjumenn, að þeir gætu ekki haft sams konar teppi á gólfi hjá sér og nágranninn. En þetta hefur ekki reynzt svo. Nú í október höfum við fram- leitt eitt og sama efni í heilt ár og það virðist ekkert lát á eftirspurn eftir því. Salan gengur almennt mjög vel og það er tvímælalaust grund- vöillur fyrir aHa gólfteppa- Framh. á bls. 30

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.