Morgunblaðið - 01.10.1965, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 01.10.1965, Qupperneq 28
20 MOHGUNBLABIB Fostudagur 1. október 196! PATRICK QUENTIN: GRUNSAMLEG ATVIK Ég gekk í. áttina og leit nið- ur fyrir mig, og óskaði þess heit ast, að ég væri orðinn brjálað- ur. En sú var ekki raunin. Þarna voru þau í skugganum, þar sem hsegðarleikur var að láta sér sjást yfir þau. — Fjögur greinileg hunds- spor! Vitanlega hafði mér verið það ljóst frá upphafi ,að ég mundi aldrei leggja trúnað á söltin og megrunina eða hjartaslagið. En samt væri hugsanlegt, að Sylv ia hefði nú, þrátt fyrir allt og allt, orðið sjálfdauð, fyrir einhverja tilviljun. En nú var úti um þann mögu- leika. Hundsspor og óhrein bað Fjaðrlr, fjaðrablöð, hljóðkútar púströr o. fL varahlutir margar gerðir bifreiða Bílavörubúðin FJÖÐRIN Laugavegi 168. — Sími 24180. motta. Hundsspor, sem hlutu að hafa verið út um allt gólf, en baðmottan hafði þurrkað út Hafði Sylvia fallið í ómegin við að sjá Tray? Sylvia í baðinu og sá allt í einu hund? 1 — Við verðum eitthvað að gera, Ronnie! Ég gat heyrt Ronnie og mömmu þjótandi um allt svefn- herbergi. Ég þreif baðmottuna, féll á hnén við fatakörfuna og þurrkaði út hundssporin, svo að engar menjar sáust eftir Tray. 15. kafli. Ég lagði niður baðmottuna við baðkerið. Svo stóð ég and- artak og safnaði kröftum. Síðan gekk ég inn í svefnherbergið til hinna. Ronnie og mamma voru steinhætt allri leit. Ronnie stóð þara siginaxla, úti við gluggann en mamma sat á rúmi Sylviu. Ég reyndi að líta á mömmu en gat það ekki. Ég gekk yfir til Ronnie. — Funduð þið þau? — Þau eru ekki hér. Hann sneri sér snöggt við og hljóp til mömmu þar sem hún sat á rúm inu. — Við getum ekki skilið hana svona eftir. Ég verð að ná í lækni og lögreglu. Það er úti um mig, en það verður þá að hafa það. Farðu nú út, Anny. Þið Nikki bæði. Ég ætla að hringja í afgreiðsluna. Ég stóð við gluggann, þar sem Ronnie hafði áður staðið og horfði á risastóra sundpollinn. Það lék kastljós á vatninu I honum, og uppljómaði líka gervipálmana og allt tilbúna landslagið. Enda þótt ég gæti ekki horft á mömmu, var rétt eins og allt herbergið væri fullt af persónu hennar. Ég beið eft- ir, að hún segði eitthvað, en hún sagði ekkert. En ég heyrði, að hún tók upp símann. Svo bað hún um númer. — Vert þú ekki að þessu, Anny! Ronnie næstum öskraði þetta. í guðs bænum, þá er þetta mitt mál. Þetta...... En nú heyrðist röddin í mömmu, sem var hressileg og alveg eins og hún átti að sér. — Mary?..........Mary, elskan, þetta er Anny. Er hann Steve þarna? .... Þakka þér fyrir, elsk an! Ég snarsneri mér frá glugg- anum. — Steve? sagði mamma í sím ann. — Ó, elsku Steve, gætirðu ekki komið hingað? í Tamber- laine....íbúð 32 .... Já, elsk- an, strax. Og hafðu engan ineð þér! Hún lagði frá sér símann. — Marnma! sagði ég. — Nei, Nikki minn. Þetta er hræðilegt, en hún er dauð. Við getum ekkert fyrir hana gert. Við verðum að hugsa um okkur sjálf. Sittu bara rólegur og þeg- iðu. Og eins þú, Ronnie. Við sátum því bara þegjandi. Eftir um það bil stundarfjórð- ung var barið að dyrum. Mamma opnaði og Steve kom inn. Hann var í smokingfötum, en framkoman var sú sama og hversdagslega, róleg og blátt á- íram. — Anny, ég fékk ekki tæki- færi til að koma og óska þér til hamingju. Þú varst alveg dá- samleg. Þú líka, Nikki. Öll sýn- ingin var framúrskarandi. Nátt- úrlega er stúlkan dálítið könt- uð, en hún er lagleg. En það gerir ekkert til með hana, því að þú ert stærsta stjarnan, sem nokkurntíma hefur sýnt sig hér í Las Vegas. — Þakka - þér fyrir, elskan. Röddin í mömmu var næstum eins og hún átti að sér, og bros ið sagði: „Er fólkið ekki gott að vera svona hrifið af mér“. — Steve, hér hefur gerzt nokkuð, sem er alveg hræðilegt. Og úr því að þú átt nú hótelið, verð- urðu að kippa því lag. — Svo tók hún að útskýra málið og það var hreinasta furða, hvað hún hafði getað fundið upp á jafn stuttum tíma Donsskóli Hermanns Ragnars Skírteini afhent í dag, föstudag 1. okt. og á morgun, laugardag 2. okt. frá kl. 3—7 e.h. háða dag- ana í Skátaheimilinu við Snorrabraut. Síðustu innritunardagar. Kennsla hefst 4. október. DANSKENNARASAM BAN D ÍSLANDS og eins og á stóð, þegar við Ronnie. báðir höfðum verið að niðurlotum komnir. Mamma sameinaði prýðisvel æsing og ró- semi, og útskýrði, að Rpnnie og Sylvia hefðu komið fljúgandi til að sjá sýninguna. (Þetta eru svo gamlir vinir og vildu fyrir engan mun missa af henni). Við höfðum öll borðað morgunverð saman og Sylvia hafði leikið við hvern sinn fmgur. (Gerði hún það ekki, Nikki? Og svo áberandi mögur, það er víst þessi nýja megrunaraðferð). En svo eftir þennan síðbúna morg- unverð hafði mamma verið svo eigingjöm (óforsvaranlega eig- ingjÖrn) að fara fram á það við Ronnie, að hann færi nú strax í smókingfötin sín, til þess að geta verið hjá okkur alveg fram að sýningunni, og gefið mömmu hinar og þessar kunnáttusam- legar bendingar um sýninguna. Þegar við skildum við Sylviu, hafði það verið aftalað, að hún skyldi hitta okkur í Mona Lisa- salnum, rétt fyrir sýninguna, en þá hafði hún ekki komið. Eftir sýninguna, hafði Ronnie þotið til hennar, dauðskelfdur og á- hyggjufullur. Og við flýttum okkur öll þrjú inn í íbúðina hennar Sylviu. Og þar — get- urðu hugsað þér annað eins, Steve — lá veslings Sylvia í baðkerinu, steindauð. — Það er vitanlega þessi megrun hennar. Hún var að svelta sig og svo voru þessi andstyggðar baðsölt, sem áttu að éta burt fituna. Manstu ekki, Steve, Mariu Montez og baðið hennar? Þessi megrunarsölt og j heita vatnið og áreynslan á hjartað? Ég hefði átt að gera mér ljóst, hvað þetta var hættu legt. Ég hefði átt að vara hana við. Ég get aldrei fyrirgefið sjálfri mér þetta! Meðan þessu fór fram hafði Steve staðið og horft á mömmu, með hendurnar í smókingjakka vasanum. Ljósa hárið hafði aldrei verið ljósara, bláu augun. aldrei blárri. Á þessari stundu, þegar við Ronnie gerðum ekki annað en rétt að vera til, lagði mamma hönd á arminn á Steve og dró hann áleiðis til baðherbergisins. Þar voru þau inni svo sem eina mínútu. Svo komu þau út aft- ur. — Þú skilur þá, hvemig 'þetta er, Steve. Þetta er óskap- lega sorglegt, en við verðum fyrst og fremst að hugsa um hann Ronnie. Þú veizt auðvitað allt um Normu. Ekki nema fá- ar vikur síðan það skeði. Ves- lings Norma datt niður stigann — og Sylvia fé'kk hlutverkið hennar. 0, Steve hugsaðu þér allar kjaftasögurnar! Ronnie og Sylvia hérna sitt í hvorri íbúð- inni. Vitanlega var það allt í fyllsta sakleysi, en þú þekkir hugsunarháttinn hjá fólki. Hneyksli.....og það svona fljótt eftir að Norma deyr. Og svo er það kvikmyndin hans Ronnie. Sex milljón dali er hann búinn að setja í hana, og þú veizt hvernig bankarnir geta stundum verið smásmugulegir. Steve Adriano dró aðra hönd- ina upp úr vasanum og strauk henni um ljósa hárið. — Allt í lagi Annie. Ég sé hvernig allt er í pottinn búið. Hvað viltu, að ég geri? — Ja, það veit ég nú ekki al- mennilega, en....... — Hva ðsegirðu um að skjóta henni yfir í eitthvert annað hótel? Þetta gekk alveg fram af mér, og ég held, að mömmu hafi jafnvel ofboðið líka. — Skjóta .... ? — Hvað segirðu um Hopi? Láta finna hana þar. Kannski á morgun? Þá fá strákarnir tæki- færi til að skjóta henni seinna, þegar allt er orðið rólegt á göt- unum. Steve var eins og ofur- lítið hugsi. — Já, við látum ein- hverja stúlkuna finna hana í fyrramálið í Hopi. Woodside læknir getur skoðað líkið og ég skal sjá um, að O.Malley lög reglustjóri taki á þessu með silkihönzkum. Svo sneri hann sér að Ronnie með barnalegu og næstum af- sakandi brosi. — Ég er hrædd- ur um, að þetta veki nú samt talsvert umtal, hr. Light. Og það getum við ekki stöðvað ... þar sem Sylvia La Mann er þekkt og þar að auki búin að fá þetta hlutverk. En þér verð- ið hér í Tamberlaine og hún verður í Hopi. Jafnvel þó að þið hafið flogið hingað saman, er ekki nema eðlilegt, að þið séuð sitt í hvoru gistihúsi. Það er fullerfitt að fá inni — svo er henni Anny fyrir að þakka. Hafði því engar áhyggjur. Þetta verður aldrei neitt stórmál. Ég vissi, að Las Vegas var I Las Vegas. Vitanlega vissi ég það. Og ég vissi líka, að Las Vegas var að mestu leyti sama sem Steve Adriano. En þetta var svo ævintýralegt, svo ó- skiljanlegt, að ég varð að sann- færast um, að heilinn í mér væri sínum stað. — En, Steve, sagði ég. — Hvað um læknisskoðunina? Hvað verður, ef þetta reynist nú alls ekki vera hjartaslag? Steve deplaði augum. — Já, en, Nikki litli, hún mamma þín segir, að það sé hjartaslag. Og hann leit á mömmu og mamma leit á hann og ég gleymi aldrei þessu augnatilliti, af því að það var milli jafn- ingja. Mamma og Steve Adriano hefðu getað stjórnað öllum heiminum í félagi. Ronnie hafði setzt á rúmið. Steve stóð andartak með hend- urnar í smókingjakkavösunum. Svo leit hann á úrið sitt. _ — Anny, hún er rétt að verða tíu. Þú ættir að fara að verða til fyrir seinni sýninguna. Þér veitir ekkert af tímanum. Já, vel á minnzt, hún Mary ætlar að efna til stóreflis veizlu fyrir ykkur. í Hopi, eftir sýninguna. Hún ætlaði nú að koma ykkur á óvart með það, en mér finnst réttara, að þið vitið það strax. Mér finnst þi ættuð að verða þar öll saman. Líka hr. Light. Það lítur betur út. Allt í lagi, hr. Light, farið þér nú inn í íbúðina yðar, og hvílið yður. Og þú ferð að hafa þig til, Anny mín. Taktu mannskapinn eins með trompi og þú gerðir í dag. Bless!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.