Morgunblaðið - 01.10.1965, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 01.10.1965, Qupperneq 31
Föstudagur 1. oktðber 1965 MORGUNBLAÐIÐ 31 LmÁ Emil Jónsson, utanríkisráðherra, tekur við bréi'i utanrikisráð- herra Bandaríkjanna úr hendi herra James K, Penfield, sendi- hcr ra. Kveðjaí tilefni 25 ára skipta íslands og USA í TILEFNI af þvi, að á þessu ári eru liðin tuttugu og fimm ár síðan Island og Bandaríkin hófu formleg samskipti sín á milli með opnun ræðismanns- skrifstofu í Reykjavík af hálfu Bandaríkjastjórnar, og aðalræð ismannsskrifstofu í New York af hálfu íslands, gekk ambassa- dor Bandaríkjanna hér, herra James K. Penfield, í dag á fund Emils Jónssonar, utanríkisráð- herra, og fiutti honum bréf með kveðjum frá Dean Rusk, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna. í bréfi þessu lýsir Dean Rusk ánægju sinni yfir þvi, að á þess um árum hafi gagnkvæm virð- ing, skilningur og samúð meðal þessara tveggja þjóða farið sí- vaxandi, en vekur jafnframt at hygli á, að þessi einkenni séu einmitt óhjékvæmileg skilyrði fyrir vinfengi milli bæði ein- staklinga og þjóða. Þakkar ráð- herrann þetta ekki Sízt því, hversu vel starfsliðunum við sendiráð beggja rikja hafi tekizt að leysa af hendi skyldustörf sín. Emil Jónsson hefur flutt hr. Rusk þakkir fyrir þessa kveðju og jafnframt tjáð honum, að ís lenzka þjóðin kunni að sínu leyti vel að meta þau vináttu- tengsl sem skapazt hafa milli þessara þjóða sitt hvoru megin við Atlantshafið á undanförn- um aldarfjórðungi. (Frétt frá utanríkisráðu- neytinu). Aflabrögð Grinda- víkurbáta batna Myndarlegar gjafSr til Björg- urearskútusjóðs Austfjarða FRIÐGEIR Þorsteinsson, odd- viti, Stöðvarfirði, hefir fyrir hönd slysavarnardeildarinnar þar afhent Slysavarnarfélagi ís- lands 10 þúsund krónur í Björg- unarskútusj óð Austfjarða, en þetta er gjöf frá Helga Erlends- syni, Vengi, Stöðvarfirði til minningar um konu hans Krist ínu Rrynjólfsdóttur. Áður var oddvitinn búinn að afhenda til sama sjóðs 5 þúsund króna gjöf frá Guðmundínu Einars- dóttur og Sigfúsi Jónssyni til minningar um aldarafmæli Jó- hannesar Sigurðssonar. (Frétt frá S. V.F. 1.) Góð línuveiði Akranesi, 28. sept. ÞRÍR línubátar voru á sjó héð- an í dag, Haförn fiskaði 7 tonn, Ver 4 tonn en Reynir var ekki kominn að kl. 21.30. Þilfarstrill- an, svo og trillurnar Sæljón og Bensi voru á sjó í dag og réru með línu og allar þrjár fengu þær samtals 5 tonn. — Ný söngplata Framhald af bls. 6 myndarbrag. Upptakan sjálf er ■vel af hendi leyst, og umbúðir nm plötuna með svipuðu sniði og bezt gerist annars staðar. En textabiað, sem fylgir henni, er frábærlega hroðvirknislega úr garði gert. Við fljótlegan yfir- lestur og án samanburðar við heimildir fann ég þar nokkuð á annan tug prentvillna. Jón Þórarinsson, — Óliklegf Framhald af bls. 3z ið á til þess tíma. Eftir kl. 10 tók skyggni að versna og sást mökkurinn ógreinlega. Hann lagði til norðvesturs. Er á dag- inn leið rofáði aftur til og var mökkurinn enn sýnilegur en var Xiiú ljós orðinn. Hann var á sama stað og leiddi til sömu átt- ar og áður. Um fjarlægðina að þeim stað, er mökkurinn átti upptök sín, var ekki hægt 'ða segja. Okkur virtist, er á dag- inn lei'ð, að hér myndi ekki vera um gos að ræða og með kvöld- inu, er skyggja tók, höfðum við einskis ortiið vör, sagði Björg- vin að lokum- Flugmálastjóri, Sigurður Þórar insson jarðfræðingur, Birgir Kjaran og Björn Pálsson flug- maður flugu þegar, er tilkynn- ingin barst frá veðurathugunar- Stöðinni, inn yfir miðhálendið og allt til Öskju, en urðu einskis varir á leið sinni er benti til eð um gos væri að ræða. Skýja- bakki lá yfir norðanverðum Hofs jökli og Sprengisandi. Björn Pálsson flaug einnig siðari hluta dags í gær um þessar slóðir. Ekki varð neins vart í þessum flugferðum, er gæti bent til goss. Björn kvað það samdóma álit þeirra, er í flugið fóru, að hér væri um að ræða skýjamyndanir, eða tætingsvindský, eins og það er nefnt- Þau verða þannig til að vindur hrífur þokubakka með sér niður með fjalls/hlíðum og síðan frá þeim og upp aftur og verður þokan þá sem gufustrók- ur úr gosL í gær var hvöss sunnan og suðvestanátt á þessum slóðum og kvað Björn þá félaga hafa séð greinilegan vott þessara skýjamyndana. Eru því allar likur til að hér hafi ekki verið um gos að raeða. Grindavík, 30. sept.: — HÉÐAN hefir róið einn bátur, Hrafn Sveinbjarnarson, sl. 3 vikur með línu. Hefir hann á tímabilinu fengið um 70 tonn fisks og meðalafli verið tæp 6 tonn í róðri. Síðustu daga hafa fleiri línu bátar bætzt í hópinn og eru þeir nú alls fjórir og munu fl.eiri bætast við á næstunni. Auk þess hafa nokkrir aðkomu- bátar, úr næstu verstöðvum, verið á línuveiðum hér undan. Línubátarnir eru frá 10 tonnum og upp í 60 tonn að stærð. Tveir bátar héðan hafa verið á síldveiðum hér á Selvogs- banka og við Vestmannaeyjar, þeir Andvari og Þorkatla. Hefir afli verið fremur tregur nema nú síðast fengu þeir allt upp í 700 tunnur í veiðiför, annars hef ir aflinn verið 100—300 tunnur á nóttu. Svipaður afli hefir ver ið hjá nokkrum aðkomubátum, sem hér hafa lagt upp, Síldin er nærfellt öll fryst. Humarveiðar hættu um miðj an mánuðinn, en þá runnu út leyfin fyrir slíkum veiðum. Nokkrir bátar héðan stunda fiskitroll og í síðustu veiðiför fengu þeir allt upp í 11 tonn, en það var afli Hafrennings. Héðan úr Grindavík eru 4 bát ar á síld fyrir Austurlandi og gengið sæmilega og tveimur þeirra ágætlega. Segja má í heild, að afli Grindavíkurbáta hafi heldur glæðzt að undanförnu. — T. — Sovétrikin Framíhald af bls. 1. á, að undanfarið ár hafi stjórn Sovétríkjanna forðast að ræða ágreiningsmálin opinberlega. Síðan segir: „Sovétríkin vilja taka höndum saman við Kína og önnur sósíalistaríki — og frið- elskandi þjóðir í heiminum — um að brjóta á bak aftur ofbeldi Bandaríkjanna í Vietnam, og veita almenningi þar nauðsynleg an stuðning“. Fyrr í dag lýsti aðalritari Kommúnistaflokks Sovétríkj- anna, Leonid Breshnev, því yfir, að núverandi ráðamenn í Moskvu harmi, að þeim skuli ekki hafa tekizt að bæta á nýjan leik sambúð Sovétríkjanna og Kína. — Risaþota Framhald af bls. 1. um smíði 58 véla, ásamt vara- hlutum til tíu ára. Verksmiðjurnar eru Lock- heed, Boeing og Douglas, sem allar eru heimsþekktar. Gene- ral Electric mun framleiða hreyflana. Fúllhlaðnar munu flugvél- arnar, er nefnast munu C-5A, vega rúm 300 tonr., og verða mun stærri en Antonov 22 flugvélarnar, sem Sovétrikin sýndu á flugsýningunni í Par- ís nýlega. Burðarþol banda- rísku vélanna verður rúm 115 tonn, miðað við rúmlega 70 tonna burðarþol sovézku vél- anna. McNamara, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, hefur skýrt frá því, að flutnings- kostnaður með þessum nýju vélum muni verða 30—40% lægri en með stærstu flutn- ingaflugvél bandaríska hers- ins, sem nú er í notkun. Flugvélin getur hafið sig til flugs á 8000 feta langri braut, fullhlaðin, og lent á 4000 feta braut. Nýjni aðalbiautir UMFERÐANEFND liefir lagt fyrir borgarráð eftirfarandi til- lögur: 1. að biðskylda verði sett á vesturhluta Túngötu við Hofs- vallagötu. 2. að bifreiðastöður verði bannaðar á Öldugötu að norðan verðu frá Brekkustíg að Unnar stíg. 3. að Ægisgata verði gerð að aðalbraut, þó þannig að umferð um hana víki fyrir umferð um Myrargötu, Vesturgötu og Tún- götu. Ennfremur að stöðvunar- skylda verði sett á Ægisgötu við Vesturgötu til norðurs. 4. að Bræðraborgarstígur verði gerður að aðalbraut, þó þannig að umferð um hann víki fyrir umferð um Hringbraut og Vesturgötu. 5. að Höfðatún verði gert að aðalbraut, þó þannig að umferð um Höfðatún víki fyrir umferð um Laugaveg og Borgartún. Borgarráð hefir fallizt á allar fyrrgreindar tillögur nefndarinn ar. — Chou En Lai Framh. af bis. 1. og endurskoðunarsinnarnir í norðri (hér var greinilega átt við Sovétríkin).“ Chen Yi lýsti því yfir, að herj- ir allra þessara ríkja yrðu þurrk- aðir út. Chou En-lai endurtók í dag, að Pekingstjórnin muni ekki hlýða á umræður á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, nema gerðar séu róttækar breyting- ar á sáttmála samtakanna. Þá lagði forsætisráðherrann á- herzlu á, að stjórn sín gæti ekki stutt friðsamlega sambúð við auðvaldsríkin. „A síðustu 12 mánuðum", sagði Chou En-lai, „hafa Kínverjar hert sóknina gegn heimsvalda- sinnum, gamalli og nýrri ný- lendustefnu og nútíma endur- skoðunarsinnum .... við vinnum ötullega gegn tilraunum nokk- urra stórvelda til að leggja undir sig heiminn, þjóða, sem nota Sameinuðu þjóðirnar til að blanda sér í innanríkismál ann- arra landa, og kúga byltingar- sinna í baráttu sinni. Við munum aldrei gefa eftir einn þumlung, hvað þá meir“, sagði forsætisráðherrann, „hversu óveðrasamt sem verða kann á alþjóðavettvangi, og hversu langt sem bandarísk- ir heimsvaldasinnar og þeirra stuðningsmenn ganga í ógnun um sínum við okkur, jafnvel þótt þeir fari með styrjöld á hendur okkur“. - Reynir Wilson Framh. af bls. 10. frumvarpið, stefnuna í afvopn- unar- og kjarnorkumálum, Vietnam og Asíu yfirleitt o.s.frv. Á miðvikudrg urðu heitar umræður um stefnu stjórnar- innar í utanríkismálum. Vaf Wilson þá m.a. að því spurður, hvort verið gæti, að stuðningur Breta við stefnu Bandaríkja- stjórnar í Vietnam stæði í ein- hverju sambandi við aðstoð Bandaríkjamanna við að styrkja sterlingspundið. Brást Wilson fokreiður við — annars er hann ýfirleitt kaldur og ró- legur, er hann svarar andstæð- ingum sínum —-og sagði um- rnæli þessi meiðyrði um John- son, forseta og brezku stjórniná. „Þjóð okkar verður hvorki keypt né leidd út í siðspillingu“ sagði hann. Því næst skýrði hann svo frá, að Bandaríkja- stjórn hefði í sumar farið þess á leit, að Bretar sendu lið til Vietnam til þess að sýna í verki stuðning við stefnuna þar — ,,en þeirri bón var afdráttar- laust synjað, enda þótt sterlings pundið stæði þá mjög höllum fæti“ sagði Wilson. Umræðunum á miðvikudag lauk svo, að samþykkt var með yfirgnæfandi meirihluta — 4.065.000 atkv. gegn 2.204.000 — að styðja stefnu stjórnarinn- ar í Vietnam. Varðandi ofan- greindar atkvæðatölur skal þess getið, að fulltrúar á þing- inu greiða atkvæði samkvæmt félagatölu samtaka þeirra, sem þeir eru fulltrúar fyrir, hvort sem um er að ræða verkalýðs- félag, aðra hagsmunahópi eða landsvæði. Þannig kom um það bil helmingur ofangreindra mótatkvæða frá fulltrúa hins geysifjölmenna Sambands Flutninga- og almennra verka- manna (Transport and General Worker's Union). í vinstri armi Verkamanna- flokksins er sú skoðun ráðandi, að stjórnin hafi brugðizt stefnu miðum flokksins í fjölmörgum málum. Lóðafrumvarpið segja vinstri menn bera vitni fá- dæma hugleysi, — það sýni, að stjórnin hafi heykzt á fyrirætl- unum sínum um þjóðnýtingu jarðeigna og byggingarlóða. f innflytjendamálinu og utanríkis málum fylgi stjórnin hálf- íhaldssamri stefnu og ekki hafi orðið miklar breytingar á staðsetningu Polaris-kafbát- anna. Þá hafa þeir litla trú á að Wilson knýi fram frumvarp- ið um þjóðnýtingu stáliðnaðar- ins. En barátta vinstri armsins hefur ekki verið eins öflug og oft áður. Kemur þar ýmislegt til m.a. að hann er nú, að því er brezkir blaðamenn segja, eins og höfuðlaus her, skortir skeleggan leiðtoga — hefur ekki einu sinni sinn gamla Frank Cousins, sem jafnan velgdi Hugh Gaitskel undir uggum. Wilson hefur bundið Cousins rækilega á ráðherra- stól. Þá er þess að gæta, að Wilson og stjórnin njóta veru- legra vinsælda 1 flokknum og reka stuðningsmenn stjórnarinn ar sterkan áróður gegn því að veitzt sé að henni um of, meðan hún á fyrir höndum erfiða daga. — ★ — Þing kémur aftur saman í Bretlandi 9. nóvember n.k. Hvort stjórn Wilsons lifir lengi úr því þorir enginn að spá um, en heldur virðist útlitið svart. Eins og nú horfir eru líkur fyr- ir þvi, að „The Speaker" verði kjörinn úr hópi þingmarrna Verkamannaflokksins og jafn- vel hugsanlegt, að þeir verði að láta mann í annað embætti í Neðri málstofunni, sem ekki fyigir atkvæðisréttur undir venjulegum kringumstæðum. Með eins atkvæðis meiri- hluta þarf lítið út af að bregða til þess að stjórnin riði til falls.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.