Morgunblaðið - 19.10.1965, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.10.1965, Blaðsíða 1
32 siður 52. árgamgmir. 238. tbl. — l»riðjudagur 19. ©btóber 1965 Frentsmiðja Morgunblaðsins. Atmenningur á kröfu lil, að Ráðdeild og hagsýni ríki í meðferö opinbers fjár Hryn þörf hugarfarsbreytingar borgaranna til fjjármála ríkisins — sagði Magnús Jónsson, íjáimálciráðberra við fjárlagaumræðuna í.gærkvöldi f GÆRKV ÖLDl voru íjárlög íy rir árið 1966 til fyrstu umræðu é Alþingi. í itarlegri og glöggri ræðu gaf f jármálaráðherra, M.ugnús Jónsson, greinargott yf- Iriit yfir fjárhag rikissjóðs 1964 ©g 1965 og gerði grein fyrir fjár- lagafrumvarpi því, sem nú ligg- ur fyrir Alþingi. f ræðu íjármálaráðherra kom fram að | stefnt er að greiðsluhalla- lausum fjárlögum á næsta ári ©g í því skyni er nokkrum útgjöldum létt af ríkissjóði en ýmis gjöld og skattar á tak- Smith hafnar til- mælum Wilsons Salisbnry, Rhodesia, 18. okt. AP. IAN SMIXH, forsætisráðherra Rhodesiu, hefur neitað að taka á móti nefnd forsætisráð'herra Ibrezku Samveldisríkjanna, og jafnframt lýst því yfir að ákvörð un verði tekin næstu daga um hvort gefin verði út einhliða yf- irlýsing um sjálfstæði iandsins. Var það Harold Wilson, for- eæ-tisráðiherra Bretlands, sem fór l>ess á leit að ráðherranefnd Samveldisríkjanna yrði falið a'ð reyna að leysa ágreining stjórnar Bretlands og Rhodesíu um sjólf- etæðismólið. 1 neitun sinni við a'ð verða við tilmælum Wilsons segir Ian Smifch að útilokað sé fyrir stjórn eína að leggja málið í hendur ráð'herra Samveldisríkjanna, sem margir hverjir hafi fyrirfram lýst yfir andstöðu við sjálfstæðis etefnu Rihódesíustjórnar Smith bendir á að hann hafi dvalið í Xondon í viku til viðræðna við "Wilson, og sú dvöl verið árangurs 3aus. Sjái hann því ekki hva'ða áhrif það gæti haft að ræða við aðra forsætisráðherra Samveldis rikjanna. Þá ger'ðist það í Salisbury í dag eð Reginald S. G. Todd, fyrrum forsætisráðherra Rhodesíu, var meinað að fara úr landi. Var hann að fara til fyrirlestraferð til Edinborgar í bo'ði háskólans þar. Hann hefur löngum barizt fyrir rétti blökkumanna í Rho- desiu. mörkuðum sviðum eru hækkaðir. hiulur . stjórnsýslukosfn- aðar af ríkisútgjöldum hefur heldur farið lækk- andi á undanförnum ár- um og er í fjárlögum 1965 áætiaður 10,5% af riiksútgjöldum. unnið verður að ræki- Jegri undirbúningi fjár- laga í framtíðinni og strangara eftirliti með framkvæmd þeirra. þess verður gætt, að hið mikla fjármagn, sem rík- issjóður leggur tíl fram- kvæmda á hverju ári nýt íst sem hezt og m.a. kann- aðir möguleikar á frek- ari útboðum fram- kvæmda en nú er. settar verða reglur um umráð ríkisbifreiða, lög- gjöf um embættismanna- bústaði endurskoðuð og athugað, hfc'ort auðið er að setja fastar reglur um utanferðir embættis- manna. Lagt verður allt kapp á að uppræta tollsyik og skattsvik. Efnahagsstofnuninni hef- ur verið falið að kanna, hversu langt ríkið megi ganga í tekjuöflun á næstu árum án þess að raska eðlilegu jafnvægi í þjóðfélaginu. ,Framh. á bls. 2 Magnús Jónsson flytur fjárlaga- ræðu sín<a í gærkvöldi. Starfsemi kommiínista bönnuð í Jakarta Herinn grípur fram fyrir hendurnar á Sukarno Jakarta og Kuala Lumpur, 18. okt. — (AP-NTB) — HERINN í Indónesíu hefur nú hannað alla starfsemi kommúnista í höfuðborginni Jakarta og nágrenni hennar. Virðist herinn með þessum aðgerðum hafa gripið fram fyrir hendurnar á Sukarno forseta, sem að undanförnu hefur neiíað að verða við kröfum um að banna flokk komnuinista, P.K.I. Fjöldi kommúnista hefur verið handtekinn í Jakarta í dag og í fyrrinótt, þeirra á meðal fyrrverandi forstöðu- maður ríiksútvarpsins og rit- stjórar konimúnistablaða. Indónesíski kommúnista- flokkurinn er þriðji stærsti kommúnistaflokkur heims, næst á eftir flokkunum í Sovétríkjunum og Kína, og telur um þrjár milljónir fé- lagsmanna. Tilkynningin um bann við starfsemi kommúnista í höfuð- borginni var birt í Jakarta síð- degis í dag. Segir þar að bannið nái til flokksins sjálfs og átta undirdeilda hans, og að starf- semin sé bönnuð vegna aðildar kommúnista að byltingartilraun- inni, sem gerð var um síðustu mánaðamót. Sagði útvarpið að Umar Hadi- kasumo hershöfðingi, yfirmaður hersins á Jakarta syæðinu, hefði fyrirskipað bannið, og jafnframt Framhald á bls. 2. Hlaup er byrjaS úr Grænalóni. (Sjá frétt á baksíðu). — Þessi mynd er tekin við Grænalón í sl. mánuðt Þar sést hve vatns borðið er orðið hátt. Skriðjökull iim nær niður í vatnið ©g jakar eru á því. (Ljósm.: G. G.) Samið í V-Þýzkaiandi * Aframh^ldandi sfjórnarsam- vinna IHendes og Erhards LUDWIG Erhard kanzlari Vestur-Þýzkalands og Er- ich Mende vara-kanzlari, tilkynntu um miðnættið í nótt að kominn væri á samningur um áframhald- andi stjórnarsamstarf Kristilega demókrata- flokksins og Frjálsra demó krata. Hafa samningaviðræður um stjórnarsamvinnu staðið yfir daglega frá þingkosningunum 19. september sl., og virtist þeim ekkert miða í samkomu- lagsátt. Strönduðu allar við- ræðurnar á þeirri kröfu Frjálsra demókrata að Mende yrði áfram falið embætti inn- an stjórnarinnar, þar sem á- hrifa hans gætti í utanríkis- málum. Hvorki Erhard né Mende hafa skýrt frá því á hvern hátt unnt var að ná samningum um þetta mál, en margir Kristilegir demókratar hafa látið í ljós óánægju með afskipti Mende að sameining- arfálum Þýzkalands, sem til- heyrðu hans ráðuneyti í sið- ustu ríkisstjórn. Má segja að ekki hafi verið seinna vænna að ná sam- komulagi um stjórnarsamstarf ið, því hið nýkjörna þing kem ur saman til fyrsta fundar á morgun, þriðjudag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.