Morgunblaðið - 31.10.1965, Side 6
3
MORCU N BLAÐIÐ
Sunnudagur 31. október 1965
Frá Herferð gegn hungrl:
Fjársöfnun hefst á morgun
Deyjandi barn á hungurtímum í V-Afríku.
FjársöfnUn Herferðar gegn
hungri byrjar á morgun, 1. nóv- I
ember. í Reykjavík verður tek- I
Brúarstæðið yfir
Hvalf jörð
Akranesi, 29. okótber.
BRÚARSTÆÐI er til yfir Hval-
fjörð. Hnausasker er á miðjum
fir’ði, 100 metra langt og 50
metra breitt, og stendur upp úr
sjó á stórstraumsföru og einnig á
smástr aumsf j öru.
Frá Hólabrú, sem er klettabelti
norðan fjarðar og nær fram í
sjó, er línan þaðan yfir Hvalfjörð
um Hnausasker 2 sjómílur
stranda á milli. Frá ströndinni
að sunnanverðu ganga út grynn-
ingar í átt að Hnausaskeri. Á
suðurströndinni munu vera klett-
ar við sjó framini gegnt Hnausa-
skeri og Hólabrú.
Ekki er ólíklegt að þeir tímar
komi, að íslendingum verði ekki
um megn að byggja brú þarna
yfir Hvalfjörð. — Oddur.
ið á móti framlögum í bönk-
I um, útibúum þeirra, sparisjóð-
um, verzlunum sem hafa kvöld-
söluréttindi og á dagblöðunum.
Bankar, útibú, sparisjóðir og
innlánsdeildir kaupfélaga ann-
ars staðar á landinu munu byrja
að taka á móti framlögum síðar
í vikunni, og um sama leyti
verður móttaka hafin í öllum
kaupfélögum og hjá aðilúm
Verzlanasambandsins um land
allt.
Eftir hádegi laugardaginn 6.
nóvember verður gengið í hvert
hús í Reykjavík og öllum stærri
kaupstöðum á landinu, þar sem
'því verður við komið. Fram-
kvæmdanefnd HGH hefur feng-
ið fjölda sjálfboðaliða til að
annast þessa söfnun í Reykja-
vík, héraðsnefndir standa fyrir
sams konar aðgerðum annars
staðar á landinu. Allir þeir að-
ilar,. sem taka við fé til her-
ferðarinnar, afhenda kvittun
fyrir hverju framlagi. Söfnun-
arféð verður afhent FAO, Mat-
væla og landbúnaðarstofnun
Sameinuðu þjóðanna, sem ábyrg
ist réttar ráðstafanir, en til-
gangur söfnunarinnar hér á i
landi er — sem þegar hefur
verið skýrt frá — að stuðla að
fiskveiðum á Madagaskar,
greiða vatnsdælur til notkunar
á eyðimerkursvæði Nígeríu, og
auk þess að leggja nokkuð af
mörkum til skólagarða og hús-
mæðrafræðslu, sem Matvæla
og landbúnaðarstofunin gengst
fyrir í vanþróuðum rikjum. Þær
upphæðir, sem renna til síðast
töldu verkefnanna, koma til
nota í Afríku. Matvæla og land-
búnaðarstofnunin hrindir þess-
um verkefnum í framkvæmd,
en ríkisstjórnir viðkomandi
landa leggja til fjárupphæðir,
jafn háar þeim, sem koma frá
íslandi. Sami háttur er á hafð-
ur við þessar framkvæmdir,
hvar sem er í heiminum.
HGH hefur notið ómetanlegr-
ar aðstoðar og velvildar fjöl-
margra aðila við undirbúnings-
framkvæmdir sínar. Dagblöðin
hafa birt auglýsingar herferð-
arinnar endurgjaldslaust og
sömuleiðis Ríkisútvarpið; marg-
ar prentsmiðjur og myndamóta-
gerðir hafa framkvæmt allt
prentverk fyrir herferðina án
í þess að greiðsla kæmi til; fyr-
irtæki sem annast vörudreifingu
hafa flutt upplýsingarit herferð
arinnar endurgjaldslaust; pen-
ingastofnanir og aðrir aðilar,
sem taka við framlögum, veita
þjónustu sína ókeypis, Æsku-
lýðsráð og Kvenfélagasamband
íslands veita HGH ókeypis hús-
næði, og fjölmargir aðrir aðilar
hafa lagt málefninu lið með
endurgjaldslausri þjónustu.
Allt fé, er hér safnast með
frjálsum. framlögum almenninga
rennur óskert til verkefnanna.
Miðvikudagurinn 3. nóvem-
ber verður fræðsludagur HGH
í öllum barna og unglingaskól-
um landsins.
Fjársöfnunin stendur til nóv-
emberloka.
• Bréf frá lögmanni
í Morgunblaðinu 247. tbl., er
kom út 29. október sl., er frá-
sögn um harðan árekstur við
slökkviliðsbifreið. Skýrt er frá,
að einkabíl hafi verið ekið
sunnan Snorrabraut og haft
græn götuljós á móti sér við
gatnamótin, og þar af leiðandi
ekið yfir Hverfisgötu, en á
sama tíma hafi slökkviliðsbif-
reið ekið austur Hverfisgötu á
móti rauðu ljósi með þeim af-
leiðingum að árekstur varð
milli bifreiðanna. í greininni er
eftirfarandi setningu skotið inn
í í svigum:
„Rétt er að geta þess að
slökkviliðsbílar hafa rétt
til að aka yfir gatnamót á
hvaða ljósi sem er með
sírenu í gangi“.
Þessi setning verður vart
skilin öðruvísi en svo, að það
sé skoðun blaðamannsins, að
ökumenn slökkviliðsins séu í
fullum rétti, þótt þeir aki á
miklum umferðagötum yfir
gatnamót á móti rauðu ljósi.
Hér er um hreinan misskiln-
ing að ræða, sem full ástæða
er til að leiðrétta, ekki sízt
með tilliti til þess, að hægt er
að finna blóðug för slökkvi-
liðsbifreiða í dómasöfnum.
í 38. gr. umferðalaga nr.
26/1958 eru ákvæði um um-
ferðareglur og segir þar svo:
„Vegfarendum er skylt
að hlýða leiðbeiningum eða
fyrirmælum, sem lögreglu-
yfirvöld eða vegamála-
stjórn gefa með umferðar-
merkjum, sem sett eru
samkvæmt heimild í lögum
þessum.
Stjörnendur lögreglubif-
reiða, sjúkrabifreiða og
slökkvibifreiða eru þó eigi
háðir ákvæðum þessum, ef
brýna nauðsyn ber til, enda
gæti þeir sérstakrar varúð-
ar“.
Eins og sjá má á þessari til-
vitnuðuð lagagrein, er öllum
vegfarendum, þar á meðal lög-
reglubifreiðum, slökkviliðsbif-
reiðum og sjúkrabifreiðum,
skylt að fara eftir umferða-
merkjum, sem sett eru samkv.
lögum. Þó hafa lögreglubifreið-
ir, sjúkrabifreiðir og slökkvi-
liðsbifreiðir heimild til þess að
víkja frá settum reglum enda
séu tvær veigamiklar forsend-
ur uppfylltar, þ. e. að brýn
nauðsyn sé til, og að gætt sé
sérstakrar varúðar. Því miður
hefur þessi lagabókstafur eigi
verið brýndur fyrir ofangreinl-
um aðilum, sem skyldi. Það ljt-
ur út fyrir að ökumenn þessara
bifreiða standi í þeirri trú, og
það virðist blaðamaðurinn einn
ig gera, að ef þeir aðeins hafi
sírennur í gangi og blikki
rauðu ljósi, þá hafi þeir skil-
yrðislausan rétt til að kol-
brjóta allar umferðareglur og
verði eigi gefin sök á um-
ferðaslysum, sem af árekstrum
kynnu að hljótast.
Á jafn fjölförnum vegamót-
um eins og á mótum Snorra-
brautar og Hverfisgötu mynd-
ast nærri undantekningarlaust
tvöföld bifreiðaröð meðan beð-
ið er eftir grænu ljósi. Gatan
er þannig lokuð umferð sem á
eftir kemur, slökkviliðsbílum
sem öðrum. Vegfarandi, sem
heyrir { sírenum getur enga
grein gert sér fyrir því hvaðan
hljóðið kemur, það hef ég
sjálfur reynt. Getur það alveg
eins borizt aftan frá og eru það
því alveg eðlileg viðbrögð að
aka yfir á móti grænu ljósi til
þess að stifla ekki umferðina.
Það getur hinsvegar aldrei tafið
slökkviliðsbifreið nema brot úr
minútu að hægja ferðina á
slíkum gatnamótum og telji
ökumaðurinn brýna þörf á að
aka á móti rauðu ljósi, að al^a
þá yfir gatnamótin f fyrsta gír,
en auka síðan hraðan þegar
yfir er komið. Ökumenn slökkvi
liðsbifreiða verða að læra „að
flýta sér hægt“,- því það verða
þeir að muna, að ef bifreið
þeirra lendir í árekstri og verð-
ur ógangfær kemur f lýtir
þeirra að engum notum, en
veður aðeins til tjóns. Það er
betra að koma tveim mínútum
seinna á brunastað. en að eiga
það á hættu vegna ógætilegs
aksturs að komast alls ekki,
eða koma eftir langar tafir
vegna áreksturs, hafandi valdið
tjóni, slysum eða jafnvel dauða
á leið sinni.
• Sunnudagur
fjölskyldunnar
Nú er enn kominn sunnu
dagur, frídagur húsbóndans og
e. t. v. húsfreyjunnar úr vinnu
utan heimilisins, og frídagur
barnanna úr skólanum. Þetta
er dagurinn, sem margir hafa
beðið eftir alla vikuna, ekki
sízt krakkarnir. Sunnudagurinn
er eitthvað til að hlakka til í
amstri hversdagsins. En hvað
á að gera við hann? Nú er tæki-
færið fyrir fjölskylduna að
eyða deginum saman við eitt-
hvað skemmtilegt eða upp-
byggilegt.
Á þessum tíma er dagur far-
inn að styttast og með heppni
er hægt að aka eitthvað éða
vera að leik úti. Reyndar eru
krakkar lítið spenntir fyrir því
einu að aka eftir veginum. Þau
þurfa meiri tilbreytingu en að
sitja og horfa út um bílglugga.
En hvað þá? Margir leysa vand
ann með því að gefa bara krökk
unum peninga fyrir bíóferð, og
eru þarmeð laus við þau og
geta sinnt sínum fullorðins
áhugamálum eða bara lagt sig.
Eru þá einhverjar kvikmyndir,
sem sjáandi eru fyrir börn? Það
kemur fyrir. En hvað margir
athuga það, áður en bíóleyfið
er veitt? Stundum er það aug-
ljóst, ef litið er í auglýsing-
arnar frá kvikmyndahúsunum,
að ákveðin mynd er ekki hæf
fyrir börn en önnur gæti verið
ágæt. En iðulega er ekki gott
um þetta að vita nema fara
sjálfur og athuga málið. Þetta
verður nú samt þrautaráð
margra, að losna við vandamál-
ið með því að láta sem það sé
ekki til.
• Sameiginlegar
skemmtanir
Annars er fólki vorkunn,
þ.e.a.s. á þeim heimilum, þar
sem fjölskyldan hefur ekki
skapáð sér einhver sameiginleg
áhugamál snemma og þarf
enga utanaðkomandi skemmt-
un. Því miður er ekki öllum það
lagið. En ef foreldrarnir, afi og
amma eða frænka og frændi
ætla að gera börnunum daga-
mun yfir helgina, hvert eiga
þau þá að fara með þau, annað
en í bíó.
Því mfður er ekki um auðug-
an garð að gresja hér hjá okkur
og nær ekkert á boðstólum við
hæfi barna, að minnsta kosti
ekki meðan barnaleikritin í
leikhúsunum eru ekki byrjuð.
Og hin gífurlega aðsókn að
þeim sýnir einmitt vel hve
mikill skortur er á slíkum
barnaskemmtunum.
VeitingahÚB eitt í Kaup-
mannahöfn, hið 100 ára gamla
Lorry, sem tekur nokkur hundr
uð manns í sæti, býður síðdegi3
á hverjum laugardegi upp á
skemmtun fyrir fjölskylduna.
Þar koma fullorðnir með prúð
búin börn, gefa þeim súkkulaði
og tertu eða kók og brauðsneið.
Á meðan þau borða horfa allir,
fullorðnir og börn, á skemmti-
atriði, leikfimismenn og trúða
og hlusta á söng og frásagnir,
miðað vfð að þau yngstu jafnt
sem elztu geti haft nokkurt
gaman af. Síðan fá börnin að
dansa svolítið á hinu geysistóra
sviði undir stjórn danskennara.
Og heim er farið fyrir kvöld-
mat. Ef stálpuð börn fara ein
eða í hópum, fá þau hjálp vi’ð
að komast heim. Kona í ein-
kennisbúningi og með derhúfu
sér um það, hópar barna úr
sama hverfi fari saman og send
ir þau af stað í leigubílum sam-
an. Hver borgar sinn hlut í biin
um. Þarna er nokkurs konar
„jólaskemmtun" á boðstólum
um hverja helgi. Ekki svo að
skilja að börn eigi að hafa jól
um hverja helgi, en að fjölskyid
an fari stundum og skemmti sér
saman hlýtur að vera ákjósan-
legt. Munur væri ef til væri
einhver slíkur staður hér.
0 Engum má leiðast
Annars þurfa auðvitað
ekki allar fjölskyldur á slíkum
utanaðkomandi hjálparmeðul-
Úm að halda. Á sumrum fara
allir kannski saman í fjöru að
tín skeljar, upp í fjöll eða skoða
grös eða út á grasflöt í bolta-
leik. Á vetrum má fara á skíði
og stundum skauta og inni má
auðvitað dunda við leiki, spil
eða annað, sem allir geta tekið
þátt í. Aðalatriðið er bara að
gera það sem allir hafa gaman
af og njóta samvistanna, svo
allir eigi sunnudag. Engum leið
ist samfélag hinna.
Kaupmenn - Kaupíélog
Nú er rétti timinn til að panta
Rafhlöður fyrir veturinn.
Bræðurnir Ormsson hf.
Vesturgötu 3, I.ágmúla 9.
Sími 38820.