Morgunblaðið - 13.11.1965, Page 6
/
6
MORGU N BLAÐIÐ
Laugardagur 13. nóv. 1965
ÚTLAGARNIR FRÁ
ORGOSOLO.
Leikstjóri, framleiðandi &
kvikmyndari: Vittorio de
Seta. Handrit: Vittorio de
Seta & Vera Gherarducci.
Tónlist: Valentino Bucchi.
tölsk frá 1961. Hafnarfjarðar-
bíó. 98 nún. Danskur texti.
Frumheiti: Banditi a Orgo-
solo.
VITTORIO de Seta (ruglist ekki
saman við Vittorio de Sica) mun
vera einn fremsti heimilda-
kvikmyndari á Ítalíu. Einkum
hefuir hann sinnt kvikmyndun á
lífi fiskimanna á Sikiley og
bænda á Sardiníu. Við gerð Út-
laganna frá Orgosolo leitaði de
Seta á slóðir hiima síðamefndu.
Hann kvikmyndar líf fátækra
bænda eyjunnar, sem hann virð-
ist þekkja ágætlega hvað lífs-
■kjör og hugsunarhátt snertiir.
Fyrir þessa fyrstu leiknu mynd
sína fékk de Seta byrjenda-
verðlaunin — Opera Prima —• í
Feneyjum 1961, fyrir utan marga
aðra viðurkenningu, svo sem
Flaherty-verðlaunin, sem kennd
eru við hinn frægasta kvik-
myndastjóra heimildarmynda.
Leikendur eru allir íbúar í Orgo-
solo, sem leika raunar aðeins
sjálfa sig, líf þeirra mun áþekkt
lífi þeirra sem myndin fjaliar
um. Hún er því Ihálfgildis heim-
ildarmynd með leikendum og
ákveðinn söguþráð er sýnir eink-
ar vel og sannfærandi lífsskil-
yrði og siðferðislög fátækra
bænda og hjarðmanna í Orgo-
solo, einangruðu og eyðilegu
fjallahéraði á Sardiníu.
Útlagarnir frá Orgosolo segir
' Bariiasamkom-
ur Dómkirkj-
unnar
hefjast að nýju í Tjarnarbæ n.k.
sunnudag kl. 11 og verða haldn-
ar á hverjum sunnudagsmorgni
í vetur.
Þetta verður flubt: Sögur og
söngur, fræðsla og ávörp. Kvik-
myndir verða svndar.
B amsa mkomun a á sunnu-
dagsmorgun annast séra Krist-
ján Róbertsson og síðan séra
Óskar J. Þorláksson og séra
Kristján til skiptis.
* Bamasamkomurnar í Tjarnar-
bæ voru að jafnaði fjölsóttar og
mun svo verða enn. Ég bið for-
eldra að benda bömum sínum á
þetta barnastarf. En foreldrum
nokkuð stálpaðra barna vil ég
benda á það, að hentugt er þeim
að skilja börnin eftir í Tjamar-
bæ meðan ellefu-messan í Dóm-
kirkjunni stendur yfir og vitja
þeirra aftur í Tjarnaribæ eftir
messu. Þetta hefur ýmsum ung-
um foreldrum þótt hentugt fyrr.
Jón Auðuns.
frá einum af þessum fátæku en
stoltu hjarðmönnum. Michele
Jossu (Michele Cossu) á lítinn
kindahóp sem haann gætir eins
og gimsteina, enda er lífsafkoma
hans og f jölskyldu algjörlega háð
kindunum. Hann leitar haga
handa þeim í hrjósturlendinu
ásamt litla bróður sínum Papp-
eddu (Pappeddu Ouccu). Fátækt
in og eymdin rekur marga fátækl
inga til að gerast sauðaþjótfar
eins og á íslandi til forna. Þeir
gæta því hjarðarinnar með vopn
um öxl, eins og flesitir hjarðeig-
endur. Dag einn sér Michele
menn nokkra fela svín í helli
skammt frá og um kveldið setj-
ast þeir upp hjá honum, í fullri
óþökk hans. Herlögreglan nálg-
ast kofa Micheles og ræningjarn
ir flýja. Tortrygginn og hræddur
neitar Michele að vita nokkuð
um ferðir þeirra, en þegar lög-
reglan finnur svínakjöt þeirra,
verður honum erfitt um svöir.
Þegar einn lögreglumannanna
fellur fyrir skoti ræningjanna,
flýr Michele burt með hjörð sína.
Vegna þess fellur' grunur á hann
og það er lýst eftir honum. En
Midhele treystir ekki á réttvis-
ina. Þegar hann verður var leit-
arflokks, flýr hann upp á há-
lendið. Þar fyrir handan ætlar
hann að leynast og finna haga
fyrir hjörðina sína. Ferðalagið
yfir auðnina reynir þó of mikið
á hjörðina. Einn morguninn
vakna bræðurnir og sjá allar
kindurnir, sem ailt líf þeirra
The Kinks
Hér er bréf frá einum,
sem greinilega er ekki bítla-
aðdáandi. Hann er æði lang-
orður, en ég held að bezt sé að
birta bréfið lítið stytt:
„Kæri Velvakandi.
Ég þakka þér fyrir allt, sem
þú hefur birt í þætti þínum
frá sjálfum þér og öðrum til
andmæla bítlafarganinu, er nú
um stund hefur farið og fer sem
logi um akur þjóðfélagsins.
Það sýnist vera andvaraleysi
á hæsta stigi, þegar enskum
innrásarsveitum bítlanna er
tekið með kostum og kynjum,
þá þær síga hér á land, eins og
þær væru boðberar háiþróaðrar
menningar. Dagblöðin birta
hástemdar myndafréttir af lubb
um þessum, áróðurgreinar og
skrum auglýsingar. En vægast
sagt sýna myndirnar að „séntil
menn“ þessir reiði ekki vitið í
þverpokum. Því furðanlegra, að
þeir skuli hitta. í menningar
þjóðfélagi fjölda fáráðlinga sér
heimskari, og sem þeim tekst
að æsa, trylla og féfletta. Ekki
mun þó allur þorri þeirra ung-
menna er glepjast láta, andlega
vangefnir, en þeir eru óþrosk-
aðir, börn og unglingar á gelgju
byggðist á, liggja í dauðateygj-
unuim.
Aðeins eitt liggur fyrir Mic-
hele að gera. Hann skilaar Pepp
eddu litla heim, fær byssu hjá
eldri bróður sínum, leggst út og
stelur sauðfé frá öðrum fátæk-
um fjárbónda. Nú er hann einn
af sauðaþjófunum. Fyrir honum
og mörgum hans líkum liggur
aðeins tvennt fyrir: að deyja úr
hungri og vesöld eða gerast þjótf
ur. Og skyldan við fjölskylduna,
sem setur hin einu lög sem fátæk
ur og fáfróður bóndi þekkir,
rekur hann til að stela. Lög þjóð-
félagsins þekkir hann ekki. Lög-
regla og yfirvöld eru í hans aug-
um fjarlægir óvinir. Fjölskyldu-
böndin eru sterkari en svo, að
nokkur lög fái hróflað við þeim.
Þannig hefur tortryggni Miohel-
es og fávísi, óvinveitt og fram-
andi afstaða yfirvaldanna, gert
hann að þeim „banditt“ sem hann
var í fyrstu talinn vera.
Þessa harmsögu hjarðmanns
segir Vittorio de Seta í mjög
sparsömum og hægum stíl. Útlag
arnir frá Orgosolo er raunar
gerð í anda nýraunsæisstefnunn-
ar — neorealismans — ítalska
eftir stríð og mimnir stundum á
Reiðhjólaþjóf de Sica, sem
stendur henni samt mifelu fram-
ar. Einhæfni myndarinnar og
framsetning efnisins heldur áhorf
andanum ávalit í nokkurri til-
finningalegri fjarlægð. Þrátt
fyrir sinn hæga gang er mynd-
in þó spennandi á sinm hátt, nær
allt í gegn. Landslagið á eynni
er hrikalega fagurt og vel fallið
til kvikmyndunar, minnisr á auðn
ir íslands, enda gæti margt í
myndinni verið íslenzkt, fátækt
basl fjárbænda á hrjóstugu landi,
sauðaþjófnaður, þögulit stolt fá-
tæklingsins. Þessir fámálu og
imnihverfu Sardiníubændur virð-
ast hafa ótrúlega líka lund og
islenzkir afdalabændur, sem þög
ulir glímdu sína lífsbaráttu.
skeiði, verða því auðveldlega
séfjaðir og ætt úr í hverskonar
skrílsæði. Þá er þetta taumlaus
hjörð, er meira hefur mótast
fyrir aðgerðir illra afla í um-
hverfinu en fyrir áhrif uppal-
enda sinna og skólanna. Aga-
leysi og takmarkalaust frelsi
til hvers sem vera skal eru
skaðvaldar, er varast ber. Hins
verður vitanlega að gæta, að
hemla í hófi atJhafnaþrá og val-
frelsi æskulýðsins. Sök hinna
fullorðnu er sem fyrr segir:
Agaskortur, vöntun góðra fyxir-
mynda, slén, sjálfsekka, van-
mat á áhrifamætti fjandsam-
legra afla, er sitja um sálir
barnanna. Þetta eru einkenni
vorra tíma. Að láta reka á reið
anum er fyrirhafnarminnst.
^ Erlendir leppalúðar
Nýir, hressandi menning-
ar straumar frá nágrönnum vor
um eru aflgjafar, sem okkur fs-
lendingum ber að taka opnum
örmum, og veita um þjóðlífið í
islenzkum farvegum. En hins-
vegar verður að setja öíluga
vörzlu til að bæja sorarennsli
erlendra stórborga frá dyrum
íslenzkra heimila og öðrum sal-
arkynnum barnánna. Því miður
lifum við ekki lengur í skjóli
Dýrkun de Seta á landslaginu
og ofmyndun hans á því dregur
nokkuð athyglina frá persónum
myndarinnar og eykur á tilfinn-
ingalega fjarlægð áhorfandans,
sem fer að beina athygli sinni að
fögru umhverfinu á kostnað
persónanna. 1 stað þess að raun-
gera persónurnar enn frekar,
eins og umhverfi ætti að gera,
dregur það stundum athyglina
frá þeim. Kannske hefur de
Seta ætlað sér að beita þeirn að-
ferðum Brechts, eins og sumir
gagnrýnendur hafa ályktað, að
útiLoka tiifininingalega innLifun
og höfða aðeins til skynseminnar,
hugsunarinnar. En sum vinnu-
brögð hans betnda þó ekki til
slíks, því sumum atriðum, eins
Landvættanna. Sýnast má Land-
vættunum nú, að mennirnir
trúi einvörðungu á mátt sinn
og megin, enda eigi þeir og
þúsund ára þjálfun og þroska-
feril að baki, og því full færir
til að sjá sér og sínum borgið.
Of margir horfa sljóvgum
augum á börnin æða blindandi
undir áhrifavald bítlanna, tryll
ast og öskra, svo að fullorðnir
menn óttas um hljóðhimnur
sínar, og fýlja sem fætur toga.
Menn hlusta og andvaralausir
á erlendu leppalúðana boða
barnafjöldanum „fagnaðarer-
indi“ sitt. Rólyndu mennirnir
segja bítlapláguna stundarfyr-
irbæri, og sem engan saki.
Menn þessir gleyma því, að
stærstu slysin verða tíðum á
einu augnabliki. Ekki þarf
nema eina öskursamkomu með
tilheyrandi, til að ungmennin
bíði varanlegt tjón á sálu sinni.
Aðgerðarlausir megum við
ekki horfa á einn ungling ganga
á vald helstefnunnar, hvað þá
heila hópa.
Leysast úr álögum
Ailir uppalendur, skólar,
blöð, útvarp og aðrir áhrifa-
miklir aðilar verða einhuga og
og með drengnum Peppeddu,
virðist beint að tilfinningunum
og vegna viss skyldieika með
Reiðhjólaþjófnum, gæti maður
freistazt til að æ\la að de Seta
hefði sótt margt í þá mynd, etn
slíkt getur verið tilviljun.
Innan hins þrönga cvg spar-
satma stíls skapar de Seta þó
mynd, sem er eftirtektarverð og
sérstæð og ætti því skilið betri
aðsókn en hefur verið. Fólk ætti
ekiki að draga að sjá myndina,
nema það hugsi eins og srtúlkan
sem ég hleraði segja við vinkonu
sína á Mokka: „ . . . . leiðinleg.
Ef þig langar til að sjá geitur
og svoleiðis, þá . . .“. Það skiptiir
engu máli iþótt hún þekki ekki
kindur frá geitum.
Pétur Ólafsson.
með fullri einurð og einbeitni
að vinna að útrýmingu bítla-
plágunnar sem og öllum líkum
faraldri ,er herjar þjóðfélagið.
Hérlendir apakettir, er feta i
fótspor þeirra ensku, skulu
dæmdir til skóggangs, þ.e.a.s.
í óeiginlegri merkingu, svo sem
til forna, því ekki mega þeir
saurga þessa fáu en fallegu
skóga okkar. Ég má og biðja
saklausa apakynið afsökunar á
líkingunni
Þökk færist þeim Skólastjór-
um, er nú þegar hafa krafizt
þess, að nemendur kæmu i
skólana: klipptir, kembir, þvegn
ir og snyrtilega klæddir. Sam-
son missti afl sitt, þegar hár
hans var skorið. Bítla aðdá-
endur munu leysast úr álögum,
verða aftur mennskir og öðlast
rétt eðli, ef svo er með farið
sem fyrr segir.
Ég vil aldrei framar þurfa að
sjá „THE KINGS” prentað
með stærsta og feitasta letri á
síðum daglblaðanna.
íslenzkri æsku er af henni
þjóðfélagsins nú búin betri
Skilyrði til menningarþroska en
nokkru sinni. Sjálft er æskufólk
ið vel af guði gert. En komist
höggormurinn inn í Paradía
æskunnar og verði ekki þaðan
útrekinn, mun margt gott
mannsefnið tortímast.
Vökumenn þjóðarinnar mega
ekki bregðast skyldum sínum.
ANDVART*
Kaupmenn - Kanpfélög
Gulu rafhlöðuriiar
fyrir segulbönd,
myndavélar og málara.
BræéurnirOrmssonhL
Vesturgötu 3, LágmúU 9->.,
Sími 38830.