Morgunblaðið - 13.11.1965, Qupperneq 8
8
MORGU N BLADIÐ
L'augardagur 13. nóv. 1965
lan Smith og Rhódesía
IAN Smith hefur nú gert
alvöru úr því að lýsa ein-
hliða yfir sjálfstæði Rhódes-
íu. Að morgni dags s.l.
fimmtudag hélt hann fund
með stjórn sinni, en gaf síð-
an út yfirlýsingu, þar sem
sagði, að héðan í frá væri
ný stjórnarskrá í gildi fyrir
Rhódesíu, en samkv. henni
væri landið sjálfstætt ríki
innan brezka samveldisins.
Maðurinn, sem stóð fyrir
sjálfstæðisyfirlýsingu Rhodes
íu s.L fimmtudag, Ian Smith
hefur án afláts unnið að sjálf
stæði landsins, frá því að
hann varð forsætisráðherra
þess fyrir 19 mánuðum. Af-
staða hans gagnvart Bret-
landi og hin ósveigjanlega
barátta hans fyrir hagsmun-
um hvítra manna í Rhodesiu,
hafa gert hann að hetju í
augum þeirra.
Ian Smith hefur aldrei gef
ið mikinn gaum að hótunum
Bretlands og samveldislanda
þess um gagnráðstafanir, ef
Rhodesia lýsti yfir sjálfstæði
sínu einhliða. Strax eftr að
hann komst til valda, lét
hann hafa eftir sér, að gagn-
ráðstafanir vegna þess
myndu ekki standa lengur yf
ir en fáeina daga. Síðar hef-
ur hann svo hvað eftir annað
verið á fremsta hlunn kom-
inn með að lýsa yfir sjálf-
stæði nýlendunnar, en hætt
við það á síðustu stundu. í
sumar varð hann hins vegar
vegna krafna óþolinmóðra
stuðningsmanna sinna að
skuldbinda sig til þess að
hafa náð sjálfstæði á einn
eða annan hátt fyrir næstu
áramót.
Viðhorf Smiths kom glöggt
fram í ræðu, sem hann hélt
s.l. laugardag fyrir hóp af
skólapiltum. „Þið megið
aldrei láta af hendi það land,
sem þið hafið fengið að erfð-
um“, sagði hann. ,,Rhodesíu-
menn verða að vinna að því,
að næsta kynslóð þeirra
hljóti enn betra land en það,
sem þeir hafa erft.“
Ian Smith er 46 ára að aldri,
hávaxinn og myndarlegur
maður. Hann hefur áður ver-
ið orrustuflugmaður og eig-
andi að búgarði. Hann er
fyrsti forsætisráðherra Rhód
esíu, sem fæddur er þar í
landi. Á skólaárum sínum
var hann snjall rugbyleikari
og kappróðramaður. Hann
lauk prófi frá Rhodesháskóla
í Suður-Afríku og barðist í
brezka flughernum í síðari
heimsstyrjöldinni. Tvisvar
var flugvél hans skotin nið-
ur og slasaðist hann þá á
andliti, svo að framkvæma
varð margsinnis á því skurð-
aðgerðir. Ber hann þess
nokkur merki.
Er hann kom heim aftur
1946, fór hann að gefa sig að
stjórnmálum og var kjörinn
þingmaður 1948. Hann gekk
úr flokki sínum, Sameinaða
sambandsflokknum 1961 og
stofnaði síðan sérstakan flokk
Rhódesíuhreyfinguna, sem
vann í kosningum 1962.
Tveimur árum síðar tók hann
við forsætisráðherraembætt-
inu af Winston Field.
★
í Rhodesíu munu nú vera
um 217Ö0Ö0 hvítir menn en
um 4.020.00 af öðru kyni, að
langmestu leyti svertingjar.
Þrátt fyrir þetta hafa hvítir
menn verið alls ráðandi í land
inu og meinað hinum inn-
fæddu nær öll afskipti
af stjórnmálum landsins,
Samkv. stjórnarskrá þeirri,
sem í gildi var í landinu þar
til nú, réðu innfæddir að-
eins yfir 15 þingsætum af
65 alls, en sú stjórnarskrá
tók gildi 1961.
Menntun svertingjanna er
bágborin og stjórn hinna
Kort af Rhodesíu.
Bústaðir hinna svörtu standast
hvitu, en munu þó vera betri
viða annars staðar í Afríku.
illa samanburð við hús hinna
en bústaðir svartra manna
ivítir menn við kúluleik i Sallsbury, höfuðborg Rhódesíu.
l bak við sér í fögur háhýsi borgarinnar, en þar er veimeg-
n mikil.
hvítu hefur verið það lítið
áhugamál að auka hana, þar
eð slíkt kynni að verða yfir-
ráðum þeirra hættulegt. Mikl
um meiri hluta svartar
manna er einungis leyft að
njóta skólavistar fram að
menntaskóla en ekki lengur,
hljóta ,,þjónsmenntun“, eins
og haft er eftir einum þeirra.
Úr hópi innfæddra eru aðeins
til þrír lögfræðingar, 12 lækn
ar en ekki einn einasti maður
í æðri embætti. Hinir fáu
innfæddu ,sem sitja á löggjaf
arþinginu, eru einskis megn-
ugir og hræddir, því að lög,
sem hæfa lögregluríki, heim-
ila ríkisstjórninni að fang
elsa sérhvern þann, sem
vandræðum veldur að henn-
ar áliti án nokkurra skýringa
og í fullkomlega ótiltekinn
tíma. Hinir innfæddu þing-
menn voru þar að auki til-
nefndir af flokkum, sem hvít
ir menn ráða að miklu leyti
Hinir tveir helztu stjórnmála
flokkar innfæddra hafa verið
bannaðir fyrir löngu. Annar
þeirra er Afríski alþýðuflokk
urinn (ZAPU), en leiðtogi
hans séra Joshua Nkomo, 48,
hefur verið í gæzluvarðhaldi
síðan í apríl á síðasta ári í
fangabúðum skammt frá
landamærum Mosambík. í
enn öðrum fangabúðum
dvelst séra Ndabaningi Sit-
hole, 45, en hann sleit sam-
starfi við Nkomo 1963 til
þess að stofna Afríska þjóð-
arsambandið, sem er hinn að-
alflokkur hinna innfæddu.
Samkv. lögum njóta hvítir
verkamenn forréttinda um-
fram hina svörtu. Meðaltekj-
ur hinna svörtu eru um 70
sterlingspund á ári en með-
altekjur hvítra manna aftur
á móti um 700 pund. Hinir
síðarnefndu eru í öllum á-
byrgðarstörfum en svertingj-
arnir alls staðar í undir-
manns stöðum.
Bæir og borgir hinn inn-
fæddu eru samt hreinir og
vel skipulagðir og enda þótt
fá að húsum þeirra hafi raf-
magn eða vatn, eru þau mun
betri en hinir rotnandi smá-
skúrar fátækrahverfanna í
Suður-Ameríku, Asíu og öðr
um löndum Afríku. Svertingj
ar Rhodesíu gera sér hins
vegar þetta síðasta atriði ekki
ljóst, því að hið eina sem
þeir sjá. er að bæjarhverfi
þeirra standast hvergi nærri
samanburð við hin vel hirtu
bæjarhverfi hinna hvítu, þar
sem þeir eiga oft leið um.
En svertingjarnir taka gjarn-
lan Smith.
an þessari annars flokks stöðu
sinni með þolinmæði. Skort-
ur á ‘menntun, rótgróin auð-
sveipni og hin öfluga ríks-
lögreglan valda því, að þeir
eiga engra annarra kosta völ.
Ian Smith heldur því fram,
að hann stjómi með hags-
muni hinna innfæddu fyrir
augum jafnt sem hvítra
manna, því að hinir inn-
fæddu myndu augljóslega
ekki vera þess megnugir að
stjórn sér sjálfir. Hann
bendir hreykinn á þá stað-
reynd, að lífskjör hinna inn-
fæddu eru betri í Rhodesíu
en á meðal nokkurra svert-
ingjaþjóðanna, sem búa fyr-
ir norðan Rhodesíu. Hsinn
státar af því, að um 85% af
öllum bömum á skólaaldri
séu raunverulega í skóla og
að nýtízku sjúkrahús séu
til fýrir svertingja bæði
í Salisbury og Bulawayo.
,,Svörtum mönnum og hvít-
um kemur vel saman“, segir
hann.
Aðstaða hinna svörtu mun
hins vegar fara versnandi.
Stjórnin hefur fyrir skömmu
hert enn á löggjöf þeirri,
sem fjallar um rétt svartar
til þess að eiga fasteignir I
Salisbury, höfuðborginni.
Stjórnin er ennfremur tek-
in til að reyna að þröngva
skólum, þar sem nemendur
er blandaðir, þar eða bæði
af hvítum og svörtum litar-
hætti, til þess að meina hin-
um svörtu um skólavist. I>á
hefur stjórnin ennfremur
hafnað kröfum svertingja um
land, sem engirm er eigandi
að og gert hefur verið ráð
fyrir, að þeim stæði til boða.
Einnig hafa verið settar regl
ur, sem miða að því að koma
í veg fyrir, að svertingjar,
sem búa á landsvæðum ætt-
flokka sinna, en kynnu að
vilja flytjast til borganna,
framkvæmi það áform. Á-
stæðan að baki þessu öllu er
augljóst: ,,Ef svertingjarnir
komast til valda á meðan að
við erum á lífi“, segir Ian
Smith, „þá mun það vera
okkur að kenna, af því að við
höfum leyft þeim að taka
of hröðum framförum“.
Kaupfél. Hafnarf j. opnar
nyja búð á Hvaleyrarholti
Verzlunarskælingar halda
skemmtun til styrktar
„Herferð gegn Hungri44
KACPFÉLAG Hafnfirðinga varð
20 ára nú í haust, en það var
stofnað 11. okt. 1945. Það minn-
Ist afmælis síns meðal annars
með því, að opna nýja matvöru-
kjörbúð að Smárahvammi 2, en
það er á Hvaieyrarholti í Hafn-
arfirði.
Verzlunarlóð að Smára-
hvammi 2 ásamt byrjunarfram-
kvæmdum að byggingu keypti
kaupfélagið á sl. vori af Krist-
SÍS af Hákoni Hertervig arki-
tekt.
Búðin er innréttuð eftir
sænskri fyrirmynd og innrétt-
ingar sænskar, keyptar af
sænska samvinnusambandinu I
Stokkhólmi, sem sýndi félaginu
þá miklu vinsemd að senda einn
af búðasérfræðingum sínum til
Hafnarfjarðar til þess að vera
kaupfélaginu til ráðuneytis um
skipulag búðarinnar.
ins, en matvöruverzlun hefur
ekki verið þar þangað til nú.
Hin nýja matvörukjörbúð var
opnuð fimmtudag 11. nóv. og
leysir nú af hólmi kjörbúðar-
vagninn í þeim bæjarhluta.
Eftir að þessi nýja búð tekur
til starfa, rekur Kaupfélag Hafn-
firðinga 5 matvöruverzlanir, 3
kjörbúðarvagna, raftækjaverzl-
un, veiðarfæra- og byggingavöru
verzlun, búsáhaldaverzlun og
vefnaðarvöruverzlun.
Kaupfélagsstjóri er Ragnar
Pétursson en formaður félags-
stjórnar er Jóhann Þorsteinsson.
Aðrir í stjórn eru Þórður Þórð-
arson, Stefán Júlíusson, Hall-
steinn Hinriksson og Hermann
Guðmundsson.
MALFUNDAFELAG Verzlun-
arskóla Islands hefur ákveðið
að halda skemmtun í Háskóla-
bíói n.k. miðvikudagskvöld kL
23.00. Skemmtikraftar verða
bæði fyrrverandi og núverandi
nemendur skólans. Skemmtun
þessi hefur verið vei undirbúin
og hafa allir þeir, sem hlut eiga
að máli, látið vinnu sína í té
endurgaldslaust.
Dr. Jón Gíslason skólastjóri
mun flyta ávarp.
Af gömlum nemendum, sem
koma fram eru: Guðmundúr
Jónsson, Kristinn Hallsson,
Ólafur Vignir Albertsson, Bessi
Bjarnason og Gunnar Eyjólfsson
Núverandi nemendur skólana
munu skemmta með söng, eftir-
hermum o. fl.
Gestur kvöldsins er: Ómar
Ragnarsson.
Þá hefur forstjóri Strætisvagna
Reykjavíkur ákveðið að láta
strætisvagna ganga til kl. 2 e.m.
Miðar verða seldir í bókabúð-
um Lárusar Blöndal
ens Sigurðssyni kaupmanni. — fbúar á Hvaleyrarholtinu og
Verziunarhúsið er á einni hæð, nágrenni þess, hafa notið þjón-
360 ferm., teiknað á Teiknistofu ustu kjörbúðarvagns kaupfélags-