Morgunblaðið - 16.11.1965, Blaðsíða 2
2
MORCUNBLAÐIB
Þriðjudagur 16. nóv. 1963
Stúlka tekin kverkataki
Giit kallað á hfálp — árásar-
maðurlnvi fflýði
KEFLAVÍKURFLUGVELLI, 15. | tökum, ráðizt þar á stúlku og
nóv. — Aðfaranótt fimmtudags i teki'ð hana kverkataki. Stúlkan
var kært til lögreglunnar hér j gat slitið sig lausa og kallað á
kl. 2,30, að maður hefði ráðizt hjálp, en þá flúði árásarmaður-
inn í íbúðarbragga hjá Aðalverk- inn út í myrkrið
Stúlkan þekkti manninn ekki,
en talur að hana hafi sagt eitt-
hvað við sig á ensku. Var farið
með stúlkuna til læknis. Hún er
ekki alvarlega meidd, en þó með
marbletti á hálsi Hún er nú farin
að vinna.
Á stáðnum fannst réykjarpípa,
sem talið er að árásarmaðurinn
hafi týnt. Ekki er hægt að segja
með vissu hvort maðurinn var
íslenzkur éða útlendur. Málið er
í rannsókn hjá lögreglunní. —
B. Þ.
Lát á síldveiðunum
— rýmkast hjá
verksmiðjunum
M ?ría Júlía
i fiskiranu-
sóknir
MARÍA Júlía fer í dag í leið-
angur til fiskirannsókna í Faxa-
flóa. Er þetta liður í hinum reglu
bundnu fiskirannsóknum í flóan-
um. Gunnar Jónsson, fiskifraeð-
ingur fer í leiðangurinn fyrir
hönd Fiskideildar. Skipherra á
Maríu Júlíu er Gunnar Ólafsson. I legum erindum. Fyrir helgina
Þyrlan við rannsóknar
störf á hálendinu
ÞYRLA landhelgisgæzlunnar
hefur verið mikið á ferðinni
undanfarna daga og í ýmis-
í GÆR var mikil hæð yfir
Grænlandi, og þess vegna
norðaustlæg átt á Grænlands-
hafi og íslandi. Frost var inn
til landsins, mest 8 stig á
Hveravöllufn. En úti við sjó-
inn var víðast frostlaust. Hæð
in breytist lítið, svo búast má
við frosti næstu dægrin.
Út af Biscayflóa er kraft-
mikil lægð, sem veldur þar
ofsaveðri á stóru svæði. Hún
vai á hreyfingu NA og mun
valda stormi og roki á suð-
vestanverðum Bretlandseyj-
um og Frakklandsströnd.
Veðurhorfur í gærkvöldi. —
Suðvesturland til Brefðafjarð
ar og miðin: NA-gola, stinn-
ingskaldi í Borgarfirði, bjart-
viðri. Vestfirðir og miðin: NA
gola, iéttskýjað sunnantil. —
Norðurland til Austfjarða,
mfðin og Austurdjúp: NA-gola
eða kaldi, smáél. Suðaustur-
land og miðin: NA-gola, bjart
viðri.
Veðurhorfur á miðvikudag:
NA-átt, smáél norðanlands,
einkum á annesjum, en bjart
viðri sunnanlands. Frost um
allt land
fór hún í eftirleit með bændur á
Tvídægru og Holtavörðuheiði,
eins og frá er sagt annars staðar.
Á sunnudag fór þyrlan yfir há-
lendið með tvo fulltrúa frá Sam-
einuðu þjóðunum, Norðmann og
Rússa, svo og verkfræðing frá
Raforkumálaskrifstofunni. Var
verið að sýna útlendingunum,
sem eru sérfræðingar um raf-
virkjanir, heildaráætlunina um
virkjun á Þjórsá og Þórisvatni.
I gær fór svo þyrlan með
Sigurjón Rist, vatnamælinga
mann og Sigurð Steimþórsson,
jarðfræðing og var ætlunin að
reyna að komast að mælinga-
möstrum í 1200 m. hæð á Vatna-
jökli, ef skilyrði væru hagstæð.
Ekki varð af því, en farið var
að vatns- og regnmælum á há-
lendinu, sem aðgæta þurfti.
Höfðingleg gjöf
þökkuð
LISTMÁLARINN Jóhs. Sv.
Kjarval hefur gefið Bakkagerðis
kirkju í Borgarfirði eystra kr.
50.000 til viðhalds og viðgerða.
Vil ég fyrir hönd safnaðar Bakka
gerðissóknar þakka af alhug
þessa höfðinglegu gjöf og þann
hlýhug sem að baki henni býr.
Sverrir Haraldsson.
sóknarprestur.
HAGSTÆTT veiðiveður var á
síldarmiðunum fyrir austan á
sunnudag og fram til miðnættis,
en þá tók að kalda og í gærmorg
un voru 6 vindstig. Ekkert veiði-
veður var í gær, en í gærkvöldi
voru bátarnir komnir á miðin og
farnir að kasta. Höfðu 24 skip
tilkynnt 21 þús. mála afla á
mánudagsmorgun.
Undanfarna viku hefur borizt
geysimikið magn af síld til Aust-
fjarðaverksmiðjanna, og verið
vandræði vegna löndunarbiðar.
Leituðu skip til Raufarhafnar, og
mun aldrei hafa borizt svo mik-
ið magn þar á land á jafn skömm
um tíma eins og 6 sl. daga. Og
jafnvel fóru 4 bátar til Húsavík-
ur nú um helgina.
Þetta hlé, sem nú hefur orðið
á veiðunum, hefur gert það að
verkum, að verksmiðjurnar fyrir
austan hafa heldur haft undan.
Mbl. hafði samband við nokkra
fréttaritara sína og fara frásagn-
ir þeirra hér á eftir:
Raufarhöfn, 15. nóv.
Síðastliðina sex daga hefur
síldarverksmiðjan hér tekið á
móti 77.300 málum síldar, og
mun aldrei hafa borizt jafnmikið
magn á land á svo skömmum
tíma. Hér er nú blíðalogn og
ekki er vitað af neinum síldar-
báti á leidinni. hingað. Nóg er af
vinnuafli i verksmiðjunni núna,
enda slátrun lokið og margir
sveitamenn byrjaðir að vinna I
síldinni. — Einar.
— ★ —
Neskaupstað, 15. nóv.
Bræla er nú á miðunum og
flestir bátar komnir í höfn. Nokk
uð hefur rýmkazt hjá síldarverk-
smiðjunum og þá fyrstu bátar að
landa annað kvöld. Verksmiðjan
hefur nú tekið á móti um 460.000
rrjálum og tunnum og er unnið
dag og nótt og nóg vinnuafl,
VERKALÝÐSRÁÐSTEFNA
SJÁLFSTÆÐISMANNA
UM SfÐUSTU helgi efndu Sjálf-
atæðismerm í launþegasamtökun
um til verkalýðsráðstefnu, sem
jafnframt var aðalfundur Verka-
lýðsráðs Sjálfstæðisflokksins. —
Ráðstefnan var haldin í Valhöll
og sóttu hana 92 fulltrúar frá
mörgum verkalýðsfélögum og
öðrum launþegasamtökum.
Gerðar voru margar samþykkt-
ir á ráðstefnunni um ýmis mál,
er sérstaklega varða launþega
svo sem kaupgjalds- og verð-
lagsmál, tryggingar og öryggis-
mál, húsnæðismál og atvinnu-
mál pg fl. Verður þessra álykt-
ana getið síðar.
Ráðstefnan hófst á föstudags-
kvöld og ávarpaði formaður Sjálf
stæðisflokksins dr. Bjarni Bene-
diktrson, fcrsætisráðherra, fund-
armenn í upphafi og óskaði þeim
heilla í störfum. Þá flutti Gunnar
Helgison, form. Verkalý'ðsráðs,
skýr :!u stjórnarinnar og að henni
lokinni voru frjálsar umræður.
Að síðustu voru nefndir kjörnar.
Fundarstjóri á þessum fundi var:
Pétur Sigurðsson, alþm., en rit-
arar ráðstefnunnar voru kjörnir:
Magnús L. Sveinsson, skrifstofu-
stjóri V.R. og Einar Jónsson, vara
form. Múrarafélagsins.
Á iaugardag hófst fundur kl. 2
e.h. með þvi að Pétur Sigurðsson
alþm. flutti erind: um vandamál
innleridrar og eriendrar verka-
lý'ðshreyfir.gar. Síðan var gert
kaffihlé, en að því loknu hófust
umræður um verkalýðsmál og
tóku margir til máls. Fundarstj.
á þessum fundi var: Guðmundur
H. Garðarsson, form. Verzlunar-
mamiaféiags Reykjavíkur.
Síðasti fundur ráðstefnunnar
hófst kl. 2 á sunnudag. Fundar-
stóri var Sigurður Sigurjónsson,
form. Vörubílstjórafélagsins
Þróttar. Á þessum fundi.voru tek
in fyrir álit nefnda og afgreiðsla
mála, en áð lokum fór fram
stjórnarkjör og voru eftirtaldir
menn kjöinir í stjórn Verkalýðs-
ráðs- Gurrnar Helgason, form.
Meðstjórnendur: Pétur Sigurðs-
son, Hilmar Guðlaugsson, Guð-
jón Sv. Sigurðsson; Guðmundur
Guðmundsson, Sigur'ður Sigur-
jónsson, Egill Hjörvar, Guðmund
ur H Ga'-ðarsson, Jóhann Sig-
urðsson, Sverrir Hermannsson og
Magnús Jóhanntsson.. Varastj.:
Haraldur Sumarliðason, Þórir
Einarsson, Valdiinar Ketilsson,
Halidóra Valdimarsdóttir, Bjarni
Guðbrandsson, Sverrir Guðvarð-
arson, Magnús Geirsson, Gestur
Sigurjónsson og Erla Ágústs-
dóttir.
Auk þess voru kjörnir tveir
menn í stjórn fyrir hvern lands-
fjórðung og tveir til vara: Fyrir
Suðurland: Magnús Guðmunds-
son, Garðahr. og' Gunnar Guð-
mundsson, Hafnarfirði. Til vara:
Jón X’orgilsson, Hellu og Júlíus
Daníelsson, Grindavík. Fyrir
Vesturland: Einar Magnússon,
Akrariesi og Björn Arason, Borg-
arnesi. Varamenn Ólafur Rósin-
karsson, ísafirði og Kristbjörn
Guðlaugsson, Arnarstapa. Fyrir
Norðurland: Karl Sigurðsson,
Hjalteyri, Ingibergur Jóhannes-
son, Akurevri og til vara: Jónas
Björnsson, Siglufirði og Pálmi
Sigurðsson, Sau'ðárkróki. Fyrir
Austurland: Sigurður Einarsson,
Egilsstöðum og Hrollaugur Mar-
teinsson, Nesjahr. Til vara: Jón
Guðmundsson, Neskaupstað og
Hafsteinn Steindórsson, Seyðis-
firði.
Fulltrúar á verkalýðsráðstefnu Sjalfstæðismanna.
a.m.k. eins og stendur.
Rússneska móðurskipið Nog-
insk kom inn í morgun með fár-
veikan mann og var hann strax
fluttur í sjúkrahúsið. Hann er nú
í rannsókn og vildu læknar hér
ekki gefa upp hvað að mannin-
um gengi, fyrr en rannsókn er
um garð gengin. — Ásgeir.
Fáskrúðsfjörður, 15. nóv.
Hér er allt fullt af síld og
verða bátar að bíða allt að hálf-
um sólarhringi eftir löndun. Er-
lend og innlend flutningaskip
koma í höfn á hverjum degi og
taka saltsíld og aðrar síldaraf-
urðir. Góðar gæftir hafa veriS
undanfarið en búizt er við brælu
í dag eða nótt. Alls hafa verið
saltaðar um 50.000 tunnur síldac
hér á Fáskrúðsfirði og í bræðslu
hafa farið um 150.000 mál og
tunnur. — Ólafur.
Reyðarfjörður, 15. nóv.
Búizt er við 3000 málum síldar
til Reyðarfjarðar á morgun, þar
sem þróarrými losnar hjá síldar-
verksmiðjunni. Annars hefur allt
verið yfirfullt af síld og talsverð
löndunarbið hjá bátunum. í dag
er norðaustan stinningskaldi og
tæplega um nokkra veiði að
ræða hjá síldarbátum. Saltað hef
ur verið í 23.000 tunnur hér á
Reyðarfirði og verksmiðjan hef-
ur tekið á móti um 200.000 mál-
um og tunnum. — Arnþór.
Háskólafyrirlcst-
ur um laxeldi
Svíþjóð
UM þessar mundir er staddur
hér á landi sænski fiskifræðing-
urinn dr. Erik Montén, en hann
er yfirmaður laxeldisstöðva
sænsku raforkumálastjórnarinn-
ar. Dr. Montén er kominn til
landsins að tilhlutan landbúnað-
arráðuneytisins til þess að kynna
sér laxeldismál. Svíar eru mjög
framarlega í laxeldi, og hafa
byggt upp margar fullkomnar
laxeldisstöðvar nú síðustu árin.
í kvöld kl. 8.30 mun hann flytja
erindi í 1. kennslustofu Hóskól-
ans um laxeldi í Svíþjóð, og enn-
fremur mun hann sýna kvik-
mynd frá sænskum eldisstöðvum,
Kvikmyndin heitir „Laxens
barnkammare". Mun dr. Montén
tala á sænsku. Erindið er fyrir
almenning.
Vfirlýslng
VIÐ undirritaðir herppstjórar f
Kjósarsýslu lýsum því hér mð
yfir, vegna fréttar í Morgunblað-
inu s.l. sunnudag, að til okkar
hefur ekki verið komið með neitt
skjal til undirskriftar í sambandi
við veitingu sýslumannsembættís
ins í Gullbringu- og Kjósarsýslu
og bæjarfógetaembættisins í
Hafnarfirði.
Af þessu gefna tilefni viljum
við lýsa því yfir, að af kynnum
okkar af Birni Sveinbörnssyni,
hefðum við engan fremur kosið
í embættið.
Sigsteinn Pálsson
hreppstj. Mosfellshrepps
Gísli Andrésson,
hreppstj. Kjósarhrepps
Guðmundur Ulugason,
hrepps tj. Seltj arnarhr.
Þá bfður Ólafur Bjarnason,
hreppstjóri í Kjalarneshreppi,
þess getið, að afstaða hans hafi
komið fram áður, og sjái hann
ekki ástæðu til að endurtaka
hana.