Morgunblaðið - 16.11.1965, Page 19
?>rf?fjudagur 16. nóv. 1965
MORGUNBLAÐIÐ
19
OPIÐ BREF
til dómsmdlardðherra, Jóhanns Hafstein
GREIN ÞESSA taldi Mbl. rétt
að birta þótt lengd hennar sé
í litlu samræmi við þýðingu
hennar. Þar sem höfundur getur
þess að Mbl. hafi ekki viliað
b'irta aðra grein hans, fylgir
hér með mynd af bréfi frá hon-
um, sem henni fylgdi, og skilur
væntanlega bæði hann og aðrir
að blaðið hefur annað og betra
við rúm sitt að gera en birta
slikar greinar, sem áður hafa
komið í öðrum blöðum.
— Ritstj.
Hafið þökk, herra ráðherra,
fyrir það hugrekki að hafa
reynt í Morgunblaðinu að verja
embættisveitinguna í Haf nar-
firði. Fólk er nefnilega ekki
vant þvi, að stjórnmálamenn
svari alltaf rökstuddri gagnrýni
é umdeild stjórnarstörf. Treyst
er heldur á tóm þagnarinnar og
gröf gleymskunnar.
Þar sem ég hætti mér út á þá
braut að deila á veitingu fógefa
embættisins í Hafnarfirði í
stuttri grein, sem ég sendi Mcrg
unblaðinu, en ekki fékkst þar
birt, og mig grunar, að sú grein,
sem birtist í öðrum blöðum,
hafi meðal annars valdið við-
brögðum yðar. hlýtur mér að
leyfast að senda yður nokkrar
línur. Þá þess heldur sendi ég
yður þetta bréf, þar sem fram
kom í téðri grein minni, að á-
stæða væri fyrir yður að verja
málstað yðar varðandi embætt
isveitinguna. Þér hafið nú skil-
eð vörn í málinu, og langar mig
því að svara:
Ég fagna, að þér eruð mér
sammála um hæfni Björns
Sveinbjörnssonar til að gegna
embættinu áfram. Hinsvegar
harma ég, að skoðanir okkar
um verðleik umsækjendanna til
stöðunnar fara' ekki saman. Þér
verjið miklu rúmi til að verja
og réttlæta gerðir yðar. Vil ég
nú með nokkrum orðum rök-
Styðja efasemdir mínar gagn-
vart réttmæti niðurstöðu máls
yðar, þegar þér segið: „Ég tel,
að hún (embættisveitingin) fái
mjög vel staðizt, ef menn gera
sér rétta grein fyrir málavöxt-
um og meta málið af sann-
girni“. — Svo mörg eru þau
orð —.
Hverjar eru svo forsendur
yðar?
Þér segið: „Setning í embætti
skapar hvorki lagalegan, venju-
bundinn né siðferðilegan ,rétt til
skipunar í embætti . . . Það er
rétt, að engin venja er til um
•vo langa embættissetningu, og
Björn Sveinbjörnsson hafði,
enda er hún algert einsdæmi
hér á landi. Hinsvegar gátuð
þér ekkert fordæmi bent á til
réttlætingar verkum yðar, enda
mun ekkert dæmi um það hér-
lendis, að embættismanni með
góðan starfsferil að baki hafi
verið vikið úr starfi með þess-
um hætti.
Varðandi lagahlið í bókstafs-
túlkun skal játað, að Bjöm var
settur, en ekki skipaður. Hitt
vil ég fullyrða, að öll réttsýni
og sanngirni hlýtur að mæla
með því að nær 10 ára seta í
slíku embætti geti í eðli sínu
jafngilt skipun. Munurinn er
nánast formsatriði. — Okkur
var báðum kennt í háskólanum,
að rás tímans og aðgerðarleysi
aðilja gæti haft áhrif til sköp-
unar réttar eins aðilja og um
leið réttarmissis annars. Finnst
yður það fráleitt eða ósann-
gjarnt að halda því fram, að
þegjandi samþykki fjögurra
dómsmálaráðherra á svo löng-
um setutíma í embætti geti
skapað rétt handa Birni Svein-
björnssyni, siðferðilegan eða
lagalegan, og um leið valdi því
glötun réttar yðar að taka af
honum embættið og veita það
öðrum?
Hvenær og hvernig stofnast
þá almennt séð siðferðilegur
réttur í augum til réttarsköpun-
ar fyrir einstakling?
í gildandi lögum eru engin á-
kvæði um lengd setningar í em- ,
bætti. Hinsvegar eru í dönsk-
um lögum, sem hafa á ýmsum
sviðum verið fyrirmynd okkar
lagasmíði, ákvæði, þar sem tírna
lengd setningar í dómaraem-
bætti er bundin við eitt ár, sem
síðan má framlengja tvisvar um
eitt ár í senn, þannig að há-
markstími setningar í dómara-
embáetti verður þrjú ár. Talar
þetta ekki sínu máli um rétt-
mæti þess málsstaðar, sem ég
vil verja?
Þá teljið þér, að viðurkenn-
ingin á siðferðilegum rétti
Björns Sveinbjörnssonar um-
fram annað geti ,,verið mikil
misbeiting réttar gagnvart mörg
um öðrum, sem hvorki hefir
verið gefinn kostur á að vera
settur né að sækja um veitingu
fyrir embættinu, meðan það
var laust til umsóknar“, eins og
þér komizt að orði. Ég virði
slíkar réttlætishugmyndir yðar,
en þær verða bara blekking ein
við skoðun á þeirri embættis-
veitingu, sem þér verjið af
kappi. Haldið þér ekki, að fleiri
úr hópi hinna mörgu ungu sýslu
manna og bæjarfógeta úti á
landi, dómarafulltrúa og starf-
andi lögmanna, hefðu viljað
sækja um embættið, ef þeir
hefðu vitað um réttlætisást yð-
ar? En enginn af þessum mönn-
um sótti nema sá, sem náðina
fann,- og það á síðustu stundu,
að því er sagt er. Það skyldi
þó ekki vera, að siðgæðishug-
myndir þeirra, sem ekki sóttu
um embættið, hafi verið eitt-
hvað öðruvísi en þær, sem þér
hafið sýnt með embættisveit-
ingunni?
Þér segið ennfremur: „Ég
hafði ekki minnstu löngun til
að níðast á nokkrum". Þótt á-
setning skorti, geta gáleysisverk
oft haft sömu afleiðingar. Það
getur ekki hafa farið framhjá
yður, að fólki finnst hafa verið
níðzt á Birni Sveinbjörnssyni.
Léiði ég sem vitni í því sam-
bandi til dæmis alla átta hrepp-
stjórana í Gullbringusýslu, sem
sendu yður mótmælabréf, þar
sem þeir m.a. telja „ósæmilegt
að vísa svo góðum dreng og á-
gætum embættismanni burt úr
starfi eftir svo langan og mis-
takalausan embættisferil“, sbr.
bls. 2 í Morgunblaðinu 13. nóv.
ember. — Sannar ekki stormur
almenningsálitsins gegn verki
yðar, að loftv^g hins pólitíska
siðgæðis hefir staðið lágt þeg-
ar þér í skyndi eftir lok um-
sóknarfrestsins veittuð embætt-
ið?
Ekki batnar hlutur yðar, þeg-
ar við nú komum að meðferð
þeirri. sem eitt virðulegasta og
merkasta yfirvald þessa lands,
herra Jóhann Gunnar Ólafs-
son, bæjarfógeti á ísafirði, fær
við embættisveitinguna. Ég við-
urkenni fúslega, að skipun hans
í embættið hefði verið verjandi
að vissu marki, þótt það sé skoð-
un mín, að Björn hefði ekki
þurft að víkja fyrir honum. En
með því að ganga einnig fram-
hjá Jóhanni Gunnari finnst
mér ranglætið í þessu máli full-
komnað. Hann hefir að baki
22 ára starfsaldur sem bæjar-
fógeti á ísafirði auk þess að
hafa verið hátt á fjórða ár full-
trúi við bæjarfógetaembættið
í Hafnarfirði, og því kunnugur
í umdæminu, og settur bæjar-
fógeti um tíma við það em-
bætti og víðar. Það eru ekki
frambærilegt rök fyrir mann í
yðar stöðu að réttlæta höfnun
svo góðs embættismanns með
því einu, að þér teljið hann
„helzt til fullorðinn“. Hann er
nú 62 ára að aldri. Þér fáið ekki
breytt þeim lögbundna rétti
hans að mega sitja í embætti
rúm 7 ár til viðbótar eða allt
til 70 ára aldurs. Fyrst þér lát-
ið viðgangast, að hann star.fi
sem bæjarfógeti á ísafirði gátuð
þér rökrétt ályktað hann hæfan
til að flytjast milli embætta. —
Tll Rltstjóra Morgunblaðsins,
Revk.iavlk.
Mistök ollu því, a8 meBfylgjandi grein mln,
eem birtist I dag I Tímanum og AlþýBublaBinu, var ekki
yöur einnig send i gœr, en þaB var ætlun min. Pyrir því
.sendi ég yBur nú þaB eintak greinarinnar, sem MorgunbláBiö
étti aö fá £ von um , aö hún veröi birt og þd einkúm þar sem
fýölraargir lesendur blaösins hafa án> ðskaö eftir þvi viö
mig «
íyllst,
Það hefir aldrei þótt til vegs —
eða virðingarauka að tala tung-
um tveim. Því segi ég þetta hér,
þar sem ég man ekki betur en
þér hafið áður talið háan aldur
ekki gildandi rök fyrir höfnun
manns í virðingarstöðu, og ekki
ætti virðing yðar fyrir ellinni
að minnka með árunum.
Eða er það ekki rétt, að þér
voruð fremstur í flokki þeirra,
sem vilduð gera séra Bjarna
Jónsson á áttræðisaldri að for-
seta þjóðarinnar? — Finnst yð-
ur annars ekki, ef vel er að gáð
einhver eðlisskyldleiki vera á
milli forsetakosninganna árið
1952 og embættisveitingarinnar
í Hafnarfirði? Er það ekki rétt
munað, að fjöldi fólks vildi ekki
hlíta forsjá yðar í þeim sögu-
frægu kosningum? Þá höfðu
flokksforingjar löngun til að
velja fyrir fólkið. En fjöldinn
sagði: Þetta látum við ekki
bjóða okkur. Sama segir almenn
ingur í dag gagnvart embætt-
isveitingunni í Hafnarfirði. Það
hljótið þér að hafa fundið.
Málsstaður yðar veikist enn,
þegar þér svarið þessari spurn-
ingu Morgunblaðsins: „Hvert' er
þá viðhorf yðar til Einars og
Björns“? „Ég tel báða hæfa til
starfans“ svarið þér, og enn-
fremur: ......valdi ég Eipar
Ingimundarson en ekki Björn
Sveinbjörnsson, þar sem Einar
Ingimundarson hefur verið skip
aður bæjarfógeti í 13 ár, en
Björn settur í rúm 9 ár“. Þessi
samanburður yðar á starfsaldri
er bæði rangur og villandi. Við
nánari athugun kemur nefnilega
í ljós, að Einar var þingmaður
Sjálfstæðisflokksins fyrir Siglu-
fjörð 1953 — 1956 og fyrir sama
flokk í Norðurlandskjör-
dæmi vestra frá 1959 og síðan.
Vægt áætlað hefir Einar því
verið fjarverandi úr embætti
sínu vegna þingmennskunnar
suður í Reykjavík í þágu Sjálf
stæðisflokksins í a.m.k. 4—5 ár.
Sé samanburðinum haldið á-
fram, kemur í ljós, að Einar
byrjaði hjá tollstjóranum
Reykjavík 1." nóv. 1944, unz
hann hóf starf hjá sakadómar-
anum í Reykjavík 1. jan. 1946,
en þar var hann, unz hann var
skipaður bæjarfógeti á Siglu-
firði. — Björn Sveinbjörnsson
byrjaði hinsvegar við embættið
í Hafnarfirði sama árið og hann
’lauk lögfræðiprófi eða haustið
1945, og hefur starfað hér í
Hafnarfirði við embættið alla
tíð síðan eða rúm 20 ár.
Munurinn á heildarstarfsaldri
Björns og Einars er því svo til
enginn.
Það er drengilegt af yður að
feta ekki í fótspor staksteiná
Morgunblaðsins og reyna að
verja embættisveitinguna með
því, „að öðrum hafi tekizt mið-
ur“, eins og þér komizt að orði
enda var okkur báðum kennt :
fræðum réttvísinnar, að mis-
gjörð eins verði ekki afsökuð
með annarra misgjörðum. Þó
endurtek ég, að jafnvel þótt þér
vilduð þannig réttlæta gerðir yð
ar, er það ekki hægt þar sem
embættisveitingin á sér alls ekk
ert fordæmi.
í lýðræðisþjóðfélagi verða ráð
herrar að sætta sig við, að gerð
ir þeirra sæti rökstuddri gagn-
rýni, og henni geta þeir ekki
svarað með því einu að segja:
Það er ég, sem valdið hef. Þess
vegna tel ég ekki rétt hjá yð-
ur að tala um. að verið sé „að
svívirða“ yður með skrifum um
þetta mál.
Þér hafið vafalaust lesið
Reykjavíkurbréf Morgunblaðs
ins sunnudaginn 14. nóvember,
en höfundur þess er sagður vera
forsætisráðherra Bjarni Bene-
diktsson, og er hér gengið út
frá því. Hann segir þar m.a.
um gagnrýnina: „Eðlileg gagn-
rýni er öllum holl“. Þessu til
áréttingar segi ég við yður: Því
aðeins þjónar^lýðræðið og frels-
ið tilgangi sínum, að hvort
tveggja sé virt í verki. Því að-
eins eigum við skilið að njótá
mannréttinda, að við virðum
annarra rétt. Það er því ekki
sæmandi kollega yðar, Bjarna
Benediktssyni, að óvirða rétt al-
mennings til að gagnrýna í verki
brottrekstur Björn Sveinbjörns-
sonar með því að skrifa eftir-
farandi í Reykjavíkurbréfinu:
„Siðleysið lýsir sér í því að
hafa uppi ósannar ásakanir og
beita óhæfilegum þvingunarráð-
söfunum". Vill forsætisráðherra
bera ábyrgð á slíkum skrifum?
Er ekki of langt gengið, þegar
æðstu menn þjóðarinnar lýsa
þegnum sínum sem iðkendum
siðleysis fyrir það eitt að hafa
haft manndóm til að sýna þá
sterkustu gagnrýni gagnvart
ranglæti yðar með því að fórna
starfi sínu? Lögleg viðbrögð
þessa fólks .í þágu réttlætisins
verða ekki flbkkuð undir „sið-
leysi“ hvað sem Hður skoðun-
um stjórnlagafræðingsins
Bjarna 3enediktssonar.
Skoðanir ykkar Bjarna Bene-
diktssonar virðast stangast nokk
uð á, þegar þið metið hinn sið-
ferðilega rétt Björns Svein-
björnssonar til embættisins, og
hæfir það málstað ykkar. Af
ummælum Bjarna í Reykjavík
urbréfinu verður ráðið, að hann
telji, að setning í embætti geti
aldrei skapað þeim, sem settur
er, siðferðislegan rétt til stöð-
unnar ef hún losnar. Hinsvegar
hafið þér, herra dómsmálaráð-
herra, að því er virðist viður.
kennt siðferðilegan rétt Björns
Sveinbjörnssonar til að geta
komið til mála í vali yðar á
manni í stöðuna, sbr. fyrrgreind
ummæli yðar hér að framan’ í
þættinum um starfsaldur Björns
og Einars.
Þegar svo er komið málsstað
ykkar, að þið eruð ósammála
um, hvernig ranglætið skuli var-
ið, er ekki að furða þótt mál-
gagn yðar hafi talið þann kost
vænstan að kalla á heimilislækni
sinn til hjálpar, Pál V.G. Kolka
Eins og góðs læknis er von og
vísa, brá hann skjótt við, og
kemst að sjúklegu ástandi hjá
einum málspartinum, og kallar
það „andlegt kölduflog“. Hann
sálgreinir á síðum Morgunblaðs-
ins sunnudaginn 14. nóvember
sjúklinga sína á sýsluskrifstóf-
unni í Hafnarfirði og úrskurðar
þá standa á svipuðu þroskastigi
og vökukona nokkur norður
Blönduósi, sem sinnaðist við
lækninn á sínum tíma. Svo að
jafnræði málsaðilja sé fullnægt,
finnst mér, herra ráðherra nú
vanta í málsskjölin úrskurði um
sálarástand fleiri aðilja, t.d. yð-
ar og Bjarna Benediktssonar.
Kannske Kolka læknir eða ein-
hver annar vilji bæta úr því?
Annars talar þessi læknisvitjun
á Morgunblaðið skýru máli um
ástandið í herbúðum yðar þessa
dagana og hvernig eigin menn
virða málsstað yðar í embættis-
veitingunni.
Að lokum leyfi ég mér að
draga ályktanir af því, sem
fram hefir komið í málinu. Ég
tel ómaksins vert fyrir yður,
ráðherra dómsmála, eða aðra, að
kanna fræðilega þann lögmætis-
grundvöll, sem þér viljið byggja
á embættisveitinguna til Einars
Ingimundarsonar. Sú stjórn-
valdsráðstöfun yðar verkar þann
ig á mig og fleiri, að það hafi
verið pólitískar og persónulegar
ástæður, sem réðu því, að hann
hlaut embættið. Verði svo talið,
er að mínum dómi um vald-
níðslu að ræða í lagalegum
skilningi. Vegna þeirra lesenda,
sem eru ólögfróðir, skal upp-
lýst, að valdníðsla er ein ástæða
fyrir ógildi stjórnvaldsráðstaf-
ana, en í flokki þeirra teljast
embættisveitingar. Fræðilega
skilgreint telst það valdníðsla,
þegar stjórnvald lætur gerðir
sínar ráðast af ólögmætum sjón-
armiðum, t.d. pólitískum eða
persónulegum. Dómstólar hér á
landi hafa ekki til þessa dæmt
um tilvik, þar sem reynt hefir
á lögmæti embættisveitinga sem
st j órnvaldsr áðstöf unar.
Hvað sem líður lögmæti hinn-
ar umdeildu embættisveitingar,
tel ég dóm almennings í mál-
inu vera afdráttarlausan. Hann
vitið þér um, og við hann verð-
ið þér að sætta yður, hvort sem
yður líkar betur eða verr.
Hafnarfirði, 14. nóv. 1965,
Árni Gunnlaugsson.
Bréf þetta var sent öllum dag-
blöðunum samdægurs til birting
ar.
Ný bók:
Gjafabókin
handa vinum og kunniingjum
erlendis.
Fögur myndabók um fuglalíf
á íslandi. Listrænar myndir.
Mjög góð prentun. Myndir:
Harmann Schlenker. Texti:
Broddi Jóhannesson og Stein-
dór Steindórsson. —- Bókin
er þegar komin í bókaverzlan
ir með enskum og þýzkum
texta. Hún heitir:
Wings over Iceland
(enskur texti)
Island-V ogelland
(Þýzkur texti)
Siðar í þessum mánuði er
bókin væntanleg með íslenzk-
um texta.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs
fegfoiiTft
4
€RB RIKISINS
M.s. Esja
fer vestur um lsmd í hring
ferð 13. þ.m. Vörumóttaka i
dag til Patreksfjarðar, Sveins
eyrar, Bíldudals, Þingeyrar,
Flateyrar, Suðureyrar, ísa-
fjarðar, Siglufjarðar, Akur-
eyrar, Húsavíkur, Raufarhafn
ar Og Þórshafnar. Farseðlar
seldir á miðvikudag.
Kæru bræður og systur
í Drottni
Við óskum eftir trúuðum
samherjum á vettvangi
landbúnaðarins. Sveita-
menningunni má ekki
hnigna. Vinsamlegast send-
ið Mbl. nöfn yðar, merkt:
„Norðurljós—6153“.