Morgunblaðið - 16.11.1965, Síða 30

Morgunblaðið - 16.11.1965, Síða 30
30 Þriðjudagur 16. nóv. 1965 Mf\Bcnuni Anin K.R féll úr Evrópukeppninni Gdður fyrri hálfleikur en hraði Svía réði úrslitum KR - ingar áttuðu sig úrskurði dómaranna aldrei SÍÐARI leikur íslandsmeistara KR í körfuknattleik og sænsku meistaranna Alvik í Stokkhólmi var leikinn á heimavelli Svíanna á laugardaginn. Svíarnir sigruðu með 89 stigum gegn 61. Þar með er KR úr leik í keppni meist- araliða um Evrópubikarinn, en Alvik mætir Evrópumeist- urum Real Madrid í næstu umferð keppninnar. Ræður sam- anlögð stigatala úr báðum leikjum liðanna og unnu Aivik með 149 stigum gegn 109. KR-ingunum tókst vel upp framan af í leiknum og vöktu athygli fyrir góðan leik. Framan af fyrri hálfleik var leik- urinn mjög jafn, en rétt fyrir hlé tókst þó Svíunum að ná forystunni og í hléi var staðan 38 stig gegn 32. ★ Svíar finna leiðina KR-liðið átti snemma í erfið- leikum með að verjast körfu- skotum Svíanna einkum er Sví- arnir skutu af færi, í stað þess að reyna að leika að körfu KR. Þetta neyddi KR-inga til að láta af svæðisvörn, sem liðs- menn eru leiknir í. Er Svíar höfðu á þennan hátt fundið veikieika í vörn KR, uku þeir hraðann og réðu í síðari hálf- leik lögum og lofum á vellin- um. ★ Dómararnir Dómarar í leiknum voru A- Þjóðverjinn Hercher og Finninn Ahlblom. Þeir tóku mjög hart á öllum — jafnvel hinum smá- vægilegustu — líkamsátökum og mótmæltu áhorfendur oft og töldu þá spilla leiknum með sí- felldu flauti. Þessi afstaða dóm- aranna kom í veg fyrir að um‘ nokkra eiginlega baráttu yrði að ræða, segir fréttamaður AP- fréttastofunnar og bætir því við að svo hafi virzt sem KR-ing- arnir véku fremur undan held- ur en að eiga á hættu að fá á sig víti fyrir hættulausan árekst ur við Svíana. ★ Einar út af Þegar staðan var 60-43 var fimmta vitið dæmt á Einar Bollason og varð hann að yfir- gefa völlinn. Hann hafði fram að því verið máttarstólpi KR- liðsins. Með þessu var mjög dreg ið úr mætti KR til að skora. Kolbeinn Pálsson tók við fyrir- liðastarfi, en bilið milli liðanna breikkaði unz lokasitaðan var 89-61. Stighæstu menn Svíanna voru Sviden 20, Hakánsson 19, Grön- lund 16, Kent Gunná 8, Preutz 6. Hjá KR voru stighæstir Kol- beinn Pálsson 13, Hjörtur Han's- son 12, Einar Bollason 11, Gutt- ormur Ólafsson 10 og Kristinn Stefánsson 9. Hermann Gunnarsson, einn bezti maður landsliðsins, sést hér skora. Gunnlaugi snöggu skotinu. ValsliÖsins og væntanlega tekst ekki að verjast Sigur Islandsmeistara Fram í hættu Eftir hálfleikshlé tóku Sví- arnir upp mjög hraðan leik og gerðu reyndar út um allar von- ir KR-inga um sigur eða jafn- an leik á örfáum mínútum. Fjórír FH-ingar slasast ó æfingu FJÓRIR ungir leikmenn hins fræga FH iiðs I handknatt- leik meiddust á æfingu félags- ins í Valsheimilinu um helg- ina. Var verið að æfa byrjun- aræfingar fyrir leik, hröð hlaup og knattsendingar. — Vildi það þá til samtímis að tveir og tveir af yngri leik- mönnum rákust saman. Ann- ars vegar voru það þeir Gils Stefánsson og Þorvaldur Karls son, en hins vegar Þorsteinn Björmsson og Friðrik Yngva- son. Meiddust þeir allir svo að flytja varð þá á Slysavarð- stofuna. Hjuggust þeir Gils, Þorvaldur og Þorsteinn á vör- um eða augabrúnum svo taka varð saumspor í þá alla, sá er stærstan áverka hlaut var með u.þ.b. þumlumgsskurð. Mest högg fékk þó Friðrik Yngvason (R. Baldvinssonar Sundhallarstjóra). Lá h,ann meðvitundarlaus um 5 min eftir áreksturinn og hlaut við hann heilahristing. Birgir Björnsson þjálfari liðsins kvað þetta einstakt ó- happ en leikmennirnir sem léku með knött samfara hröð- um hlaupum litu ekki upp sem skyldi. Kvað Birgir þá alla á batavegi en Friðrik myndi lengst að ná sér. Hið unga liðs Vals hafði náð forskoti og leik sem verðskuldaði sigur ÁGÆTUR leikur Fram og Vals í rn.fl. karla á sunnudags- kvöldið sýndi og sannaði að ekkert eitt lið getur verið ör- uggt og fullvisst um að vinna mót í handknattleik hér á landi. Framliðið hefur að ýmsu leyti sýnt betri leiki en áður að hausti til nú í Rvíkurmótinu. En ein- mitt sama móti tapaði félagið í fyrra öllum á óvænt. Á sunnu- daginn mættu Framarar hinu unga liði Vals, sem í fyrra á- vann sér rétt til keppni í 1. deild. Og þar skeði það sem fáir bjuggust við. Tvö mjög góð lið mættust, léku bæði 'óðan hand knattleik og hið unga og ó- reynda virtist ætla að hafa sig- ur — en flaustur á siðustu stundu hjá Val og reynslan hjá Fram sneri spilinu við á síðustu stund, svo Fram vann 11-10. Óhætt mun þó að ætla að þetta lið Vals eigi eftir að velgja liði Fram, sem safnað hefur „stjörn- um“ úr ýmsum áttum, undir uggum í framtíðinni. HIN „óvæntu“ úrslit í Reykja- víkurmótinu í handknattleik urðu í leik milli KR og Víkings í m.fl. karla á sunnudaginn. Vík- ingar unnu sigur 11—9 og sá sigur var fyllilega verðskuldað- ur eftir leilcnum. KR-liðið átti mjög slakan leik miðað við venju, en það virðist svo sem liðið nái sér aldrei veru lega á strik gegn Víking. ★ 5-5 í hléi Leikurinn var þegar frá byrj- un skemmtilegur og margir kafl ar hans gullfallegir eftir þvi sem verið getur að Hálogalandi. Eftir stutta stund stóð 2-2 og hafði Valur verið á undan að skora. í þeirri stöðu mistókst Gunnlaugi vítakast — markvörð- ur Vals varði vel. Upp úr því nær Valur forskoti. Jón Ágústs- son skorar eftir að Hermann sendi gullfallega inn að línu til hans. Stuttu síðar óx forskot Vals í 4-2 með marki Hermanns úr vítakasti. En síðan jöfnuðu þeir Sig. Einarsson og Guðjón fyrir Fram og Jón Friðsteinsson náði forskoti. En skömmu fyrir hlé jafnaði Bergur Guðnason. Fyrn hálfleikurinn sem lykt- aði 5-5 var mjög vel leikinn og þó kom frammistaða Vals að vonum meir á óvart, og vakti meiri athygli. Á Valur nær 3 marka forskoti í byrjun síðari hálfleiks skipt- Víkingar tóku forystu í byrjun og héidu henni óslitið utan það að KR jafnaði 3—3. í hálfleik var staðan 7—5 fyrir Víking. Síðari hálfleikurinn var'ð aldrei verulega spennandi. Víkingar höfðu frá 1 til 3 mörk í forskot og leik lyktaði með 11—9 sigri Vikings sem fyrr seeir. ust liðin á forystu til skiptis' unz staðan var 7-7. En þá fer saman að Framarar eru óheppn- ir og Valsmönnum tekst mjög vel upp og um miðbik hálfleiks ins breytist staðan í 10-7 fyrir Val. „Stjömuliðið“ átti í vök að UNGVERSKA kvennalandsliðið í handknattleik hreppti heims- meistaratitilinn, eftir harða og jafna keppni. Á laugardaginn fóru fram úrslitaleikir í loka- keppninni og mættust þá í bar- áttu um titilinn liðin er sigrað höfðu í riðlakeppni lokakeppn- innar, Urigverjar og Júgóslavar. Þórarinn var langbzti maður Víkings-liðsins í þessum leik og lykillinn að sigrinum. Helgi mark vörður stóð sig og mjög vel og átti sinn þátt í sigrinum. í heild lék Víkingslfðið ákveðnari leik og jákvæðari en KR-liðið. Hjá KR voru beztir Karl Jóhannsson og Herbert HaraJdsson og voru reyndar þeir einu sem reyndu að byggja upp skipulegan leik. verjast og Hermann, Bergur og Jón Ág. fengu skorað og skapað forskotið. Hið unga Valslið var komið í vígaham. 3 mín voru til leiks- Framhald á næstu síðu. í kcppni um þriðja sætið mætt- ust liðin er orðið höfðu nr. 2 í hvorum riðli, í keppninni um 5. sætið Danir og Rúmenar (urðu nr. 3 í hvorum riðli) og Ioks Japanir og Pólverjar í keppni um 7. sætið. í úrslitaleiknum um titilinn vann ungverska landsliðið Júgó- slava með 5 mörkum gegn 3. Þyk ir markatalan furðulega lág og ber vott um góða vörn. Leikurinn var harður. í hálfleik stóð 3—2 fyrir Ungverja. V-ÞýzkaJand hlaut bronzverð- laun í keppninni með því að sigra Tékkóslóvaku með 11—10 eftir framlengdan leik. Staðan var jöfn J—7 eftir venjulegan leiktíma. Danmörk hlaut 5. sætið með því að sigra Rúmeníu — fyrrver andi heimsmeistara í greininni —• með 10—9. Danir höfðu forystu í hléi 6—4. Japan hlaut 7. sætið eftir keppni við Pólverja. Vann jap- anska li'ðið með 6—5. í hálfleik í þeim leik höfðu Japanir for- ystu 4—1. Víkingur varin KR nokk- uð óvænt meÖ 11 gegn 9 Ungversku stúlk urirr sigruöu Þær donsku uröu í 5. sæti

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.