Morgunblaðið - 10.12.1965, Qupperneq 19
f Fostudagur 1®. des. 1965
MOHGUNBLABia
19 [
IMýtt bindi
komið út
HEIMDRAGI
íslenzkur fróðleikur
gamall og nýr
Hér birtist annað bindi HEIMDRAGA og
flytur eins og hift fyrsta íslenzkan fróð-
leik, gamlan og nýjan, eftir ýmsa höf-
unda víðsvegar af landinu. Af efni fyrsta
bindis vakti hvað mesta athygli dagbók
Nínu, dóttur Gríms amtmanns Jónsson-
ar, enda ekki á hverjum degi, sem slíku
efni skolar á fjörur lcsenda. — I þessu
bindi HEIMDRAGA birtast endurminn-
ingar Nínu, ritaðar nokkru síðar en dag-
bókin. Gefa þær að ýmsu leyti betri hug-
mynd um heimilislíf foreldra hennar en
dagbókin. Auk þess birtast hér mörg at-
hyglisverð bréf frá Grími amtmanni.
Af öðru efni HEIMDRAGA að þessu
sinni skal aðeins minnt á ýtarlegan þátt
um fyrsta íslenzka kvenlækninn eftir
Kristmund Bjarnason, þátt um Magnús
Magnússon skákkappa, frænda Friðriks
Olafssonar stórmeistara, eftir Gils Guð-
mundsson og ritgerð um höfund sögunn-
ar Valtýr á grænni treyju, eftir Vilmund
Jónsson.
HEIMDRAGI flytur fjölbreytt og fróðlegt efni, skemmtilegt aflestrar. —
Unnendur þjóðlegs fróðleiks ættu ekki að láta þetta nýja safnrit fram hjá
sér fara, því að reynslan sýnir, að slík ritsöfn seljast tiltölulega fljótt upp
og hækka þá mjög ört í verði.
IÐIJNN
Ný æslspennandí skáldsaga eftir Alistair IViacLean
A valdi óftans
Þessi nýj'a saga Alistair MacLean
er með talsvert öðrum hætti en
aðr§r sögur hans. Spenna sögunn-
ar er kvnngimagnaðri en nokkru
sinni fyrr. Dulúð sögunnar orkar
sterkt á lesandann, sem hefur óljóst
hugboð um harmsögu bak við sög-
una sjálfa. Og þegar þræðirnir taka
að skýrast, stendur lesandinn bók-
staflega á öndinni af eftirvæntingu.
Getur þessi þrautþjálfaði höfundur
alltaf boðið upp á magnaðri sögu
og meiri spennu en í næstu bók á
undan? Mörgum mun finnast, að
svo sé, en annars verður hver og
einn að svara fyrir sig sjálfan. —
En eitt er víst: Alistair McLean
hefur aldrei verið betri en nú.
Áður eru komnar út eftirtaldar bækur eftir
Alistair MacLean: Byssurnar í Navarone,
Nóttin langa, Skip hans hátignar ÓDYS-
SEIFUR, Til móts við gullskipið og Neyð-
arkall frá norðurskauti.
Eígnizt bækur McLean áður
en jbær seljast upp!
IÐUNN
spenna
glæpur
i"
Saga sem
enginn leggur
frá sér fyrr en
hún er lesin
«
á enda
S>káIí|oIt þ.f.