Morgunblaðið - 12.12.1965, Síða 12
MORCUNBLAÐID
Sunnudagur 12. des. 1965
mglilQ
ANGLI - SKYRTUR
ERU FÁANLEGAR f 14 STÆRÐUM FRÁ NR. 34 TIL NR. 47.
MISMUNANDI ERMALENGDIR . MISMUNANDI FLIBBA-LAG.
HVÍTAR — MISLITAR — RÖNDÓTTAR.
ANGLI - ALLTAF
Sigurfón Guðlaugsson
bifreiðastjóri — IVIinning
MÍNAR þakkir verða fluttar með
fáum orðum til hans sem fallinn
er frá. Mig setti hljóðan þegar
mér var tilkynnt andlát vinar
míns Sigurjóns Guðlaugssonar,
bifreiðastjóra, Grafarnesi í
Grundarfirði. Sigurjón heitinn
lézt á Landsspítalanum 19. f. m.,
eftir fárra daga legu og gat eng-
inn mannlegur máttur bjargað
honum.
Sigurjón var fæddur þ. 17/8
1914 að Hólabrekku í Miðnes-
hreppi, sonur hjónanna Guðlaugs
Jónssonar og Valgerðar Einars-
dóttur, sem síðar fluttu að Efra-
Hofi Garði og var því suður-
nesjamaður að ætt. Rétt eftir
fermingaraldur verður hann fyr-
ir þeim þunga harmi að missa
móður sína. Nálægt tvítugu flytzt
hann til Reykjavíkur og fer að
vinná þar ýmis störf. Þar kynnt-
ist hann hinni elskulegu eftirlif-
andi eiginkonu sinni Guðveigu
Þorleifsdóttur frá Stykkishólmi á
SnæfeHsnesi. Ég sem þessar línur
rita átti því láni að fagna að
kynnast Sigurjóni rétt eftir að
,þau hjón flytjast til Grundar-
fjarðar. Tókst með okkur sú vin-
átta sem hélzt til hinnar síðustu
stundar og aldrei mun ég gleyma
þeim stundum sem við áttum
saman, bæði á þeirra heimili og
eins á vinnustað. Þvi ég átti því
láni að fagna að vinna með hon-
um um nokkurra ára bil.
Sigurjón var einn af þeim fáu
mönnum sem alltaf var eins kát-
ur, hress, orðheppinn og hrókur
alls fagnaðar, bæði heim að
sækja og á vinnustað. Eftir að
ég fluttist til Reykjavíkur hélst
okkar vinátta jafnt sem áður. Og
eitt veit ég að nú verður ekki
jafn bjart yfir Grafarnesi þegar
maður kemur þangað næst.
Eftirlifandi eiginkonu hans,
einkasyninum Hirti og systkin-
um hins látna votta ég mínar
innilegustu samúð og bið góðan
Guð að styrkja þau í þeirra
miklu sorg. Megi minningin um
góðan vin verða þeim styrkur í
þungri raun.
Kristján Ólafsson,
Sr. Jón Kr. ísfeld
prestur á Æsu-
stöðum
PRESTSKOSNING fór fram I
Æsustáðapres.tkalli í Húnavatns-
prófastsdæmi 28. nóv. sl. At-
kvæði hafa nú verið talin í skrif-
stofu biskups.
Á kjörskrá voru 231 í presta-
kallinu. Þar af kusu 138. Eini
umsækjandinn, sr. Jón Kr. ísfeid,
fékk öll atkvæðin. Hlaut hann
því lögmæta kosningu.
b /ggingavörur h.f.
Laugavegi 176 — Sími 35697.
HÖGGBORAR 3 stærðir BORVÉLAR 6 stærðir — eins og tveggja hraða. — SLÍPIVÉLAR
ÚTSÖGUNARSAGIR — HANDSAGIR — S MERGELSKÍFUR — BORVÉLASTATIF —
HJÓLSAGARBLÖÐ — ÚTSÖGUNARBLÖÐ.
TIL NOTKUNAR MEÐ BORVÉLUNUM
Höfum við einnig fengið margar gerðir af TÓMSTUNDAVERKFÆRUM svo sem RENNI-
BEKKl — HJÓLSAGIR — BORÐSAGIR — HEFLA — ÚTSÖGUNARSAGIR einnig mjög
fullkominn VERKFÆRASETT og VERKFÆ RASKÁPA.
NYTSAMAR OG GLÆSILEGAR JÖLAGJAFIR
METABO VERKFÆRI ERL SELD MEÐ ÁBYRGD
RÁFMAGNS HIDVERKF/ERI
FYRIR ÞÁ SEM VILJA AÐEINS ÞAÐ BEZTA
IKIÐ LRVAL NYROMID