Morgunblaðið - 12.12.1965, Page 23
Sunnudagur 12. des. 1965
MORGUNBLAÐID
Ungur og reiður öldungur
Snæbjörn Jónsson:
Lokasjóður, 260 bls.
ísafoldarprentsmiðja h.f..
- 1965.
SÚ KYNSL.ÓÐ rithöfunda, sem
kom fram á þriðja tug þessarar
aldar, hefur oft verið kölluð hinir
reiðu ungu menn. Snæbjörn Jóns
son fyrrum bóksali var orðinn
reiður ungur maður tuttugu ár-
um fyrr og er það enn. Það
mætti kveða fastar að orði og
segja, að hann vaeri rauðglóandi,
ýmist af reiði og vandlætingu
eða af ást og aðdáun, því að hann
er mikill vinur vina sinna og
6ker lof þeirra og hróður aldrei
við neglur. Það er alltaf gaman
að því að fylgja þessum geðsveifl
um hans, því að maðurinn er
mjög vel ritfær og stíll hans er
aldrei bragðíaus, heldur ýmist
með römmum eða ljúfum keim,
oft og einatt í sömu grein. Hann
hefur. skrifað fjöldann allan af
greinum um menn og málefni og
gefið út söfn þeirra, nú síðast
það, er hér skal getið og hann
kallar Lokasjóð.
Það sem einkum kemur mér til
eð benda á þessa bók, er sú
óherzla, sem höfundur leggur á
að kynna þýðingar íslenzkra
ljcla á enska tungu. Hér heima
hefur því verið alltof lítill gaum-
ur gefinn, að vestan hafs eru til
menn, sem hafa leyst slíkar þýð-
ingar af hendi með snilldarbrag.
Margir kannast að vísu við
prófessor Watson Kirkconnell,
því að hann var gestur Háskóla
íslands fyrir tveimur árum og
flutti þar fyrirlestur. Fæstir á-
heyrenda nutú hans að vísu vel,
því að prófessornum liggur mjög
lágt rómur, en enginn hátalari
var í salnum og hljómburður
þar er frekar lélegur. Dr. Kirk-
connell er manna hagmæltastur
og frábær málamaður, les flest
eða öll Evrópumál, tók sér fyrir
he»dur að gefa út þýdd ljóðasöfn
af 36 tungum og byrjaði á íslenzk
unni með bók sinni The North
American Book of Icelandic
Verse. Auk þess hafa birzt eftir
hann ýmsar ljóðaþýðingar af ís-
lenzku í öðrum bókum og gefið
hefur hann út smásagnasafn, þar
sem íslendingar eru höfuðper-
6ónur í einni sögu, en hann var
um tíma kennari við Manitoba
háskóla og hefur kynnst íslend-
jngum þar.
Þá getijr Snæbjörn nokkuð
ítarlega annars manns, sem er
mikið skáld, bæði á íslenzku og
enska tungu og hefur þýtt margt
íslenzkra ljóða. Það er jafnaldri
hans, Páll Bjarnason í Vancouv-
er. Páll ræðst ekki á garðinn,
þar sem hann er lægstur, því að
hann hefur m.a. þýtt mörg af
kvæðum Einars Benediktssonar
©g lætur sig ekki muna um það
að halda bæði höfuðstöfum og
Stuðlum í þýðingunni. Til dæmis
ekal hér tekin upp þýðing hans
ó fyrsta erindinu -í „Hvað bindur
vorn hug við heimsins glaum“:
What chains our mind to the
mundane scheme,
Since men hve Eternal lesas?
Pretending to live, as we loll
and dream,
We last till the feigning ceases.
We shudder at death and his
darkling stream,
Though dying our life increases.
Ég heimsótti þennan nafna
minn fyrir 1S árum og við höf-
um stundum skrifazt á síðan og
skipzt á bókum. Páll er mað-
ur yfirlætislaus og nokkuð ein-
rænn og það hefur háð vinsæld-
um hans vestan hafs, að hann er
mjög ákveðinn kommúnisti. En
hvað um það, hann er snillingur,
sem á heiður skilið af löndum
sínum og væri þess verður, að
honum yrði boðið heim, ef hann
treystir sér til slíkrar farar. Hann
er fæddur þar vestra og ég veit
ekki, hvort hann hefur nokkurn
tíma til íslands komið, en ís-
lendingur er hann ágætur. En
hvers vegna gefur ekki Menning
arsjóður út helztu þýðingar hans | minningargreinar, sem mér þykir
í stóru upplagi og dreifir þeim mjög merkilegar. Önnur er um
út um heiminn? Það væri sann-
arlega góð landkynning.
Þá er ég Snæbirni þakklátur
frændur mína húnvetnska, bræð-
urna Ragnar og Guðbjörn Stefáns
syni, sem voru skólabræður hans
í Flensborg. Þeir voru báðir góð
skáld, einkum Ragnar heitinn.
Allmörg kvæði hans birtust í
Heimskringlu.
Þá eru í þessari bók Snæbjarn
ar margar æviminningar látinna
manna, nokkuð einhliða lýsing-
ar, því að þar eru aðeins dregn-
ar upp myndir af mannkostum
þeirra. Snæbjörn hefur margt
lært af Englendingum, m.a. lært
það af Nelson að setja sjónauk-
ann fyrir blinda augað, þegar
það hentar. En þarna eru tvær
an hátt en með hálfgerðri lítils-
virðingu af skólabræðrum min-
um á Hafnarslóðum, Snæbjörn
lýsir honum sem dálítið sérvitr- t
um, en mjög heiðarlegum manni
í vitrænum skilningi, yfirlætis-
lausum og sjálfum sér með |
andi um takmarkanir sínar, ágæt
um íslendingi og góðum dreng, ,
sem bjó þó jafnan við erfiðar
ástæður og aðkast margskonar. |
Hin greinin er um Halldór
Briem bókavörð, sem okkur,
stundendum lestrarsalsins á
Landsbókasafninu-í gamla daga
þótti heldur skringileg persóna. 1
Snæbjörn dregur hér upp mynd I
af ágætismanni, " sem alla tíð |
barðist við basl og fátækt, var |
gáf„ður og fjölmenntaður, en ein .
rænn og dulur að eðlisfari og dró
sig lengst af ævi sinnar inn í |
skel. Ungur að aldri hafði hann
fyrir það, að ein grein hans,
mjög lofsamleg, er um tvo
samt brugðið við og slegizt í för
Boga Th. Melsted, sem ég las með hópi umkomulausra vestur-
eftir upphaf rækilegrar íslend- : fara á Sauðárkróki fyrirvara-
ingasögu mér til mikils gagns, laust, en með samþykki föður
þegar ég var ungur strákur, en 1 síns, Eggerts Briems sýslumanns,
heyrði aldrei annars getið á ann- I til þess að verða túlkur þeirra
■ og ráðgjafi og forustumaður, er
i vestur kom í óbyggðir Nýja ís-
lands. í öllu baslinu og einangr-
, unninni í þessari nýlendu var
það afreksverk unnið að kaupa
| prentsmiðju og gefa út blað,
Framfara, og var Halldór rit-
, stjóri þess. Snæbjö n á þakkir
skilið fyrir að bæta með grein
i þessari, að svo miklu leyti sem
hægt er, fyrir þann misskilning
og vanmat, sem þessi ágætis-
maður varð fyrir hér heima á
ættjörð sinni, þótt skapgerð hans
ætti þar sjálfsagt nokkra sök.
Aftast í bókinni, sem er vönd-
uð að frágangi, eru 16. bls. með
mannamyndir.
Hafi svo Snæbjörn þökk fyr-
ir þennan lokasjóð sinn, sem inni
heldur margskonar mynt, suma
slegna úr gulli eða silfri, þótt
innan um slæðist koparskilding-
ar og jafnvel einstaka spilapen-
ingar eða buxnatala.
P. V. Kolka.
Sjáið hið krystal-tæra VAUTIER munnstykki
Hreint og stöðugt í munni yðar, það er með hin-
um sérstæða H54 filter — sem gefur yður hreinni
og mildari reyk, en þér trúið, að gæti verið mögu-
legt. Það er engin furða, hvers vegna svo margir
sígarettu-neytendur skipta yfir til VAUTIER
vindla . . . þeir eru framleiddir í Svisslandi úi
bezta tóbaki, sem völ er á.
+
Vindlarnir með munnstykki og filter
Framleiddir með allri þeirri þekkingu og
nákvæmni, sem Svisslendingar eru írægir fyiir.