Morgunblaðið - 12.12.1965, Side 25

Morgunblaðið - 12.12.1965, Side 25
Sunnudagur 12. des. 198S MORCUNBLADIÐ 21 Um gæði TRABANT þarf ekki að efast. Spyrjið eigendur bíl- anna. Hér getið þið lesið ummæli nokk- urra þeirra: Ágúst Jóhannesson, kaupmaður. Átti áður amerískan bíl og Trabantinn minn gefur honum ekkert eftir. Árni Guðjónsson, lögfræðingur Tryggingarstofnunar ríkisins. Ég hef átt Trabant fólksbifreið í hálft annað ár, me'ð ágætum órangri. Fyrir utan hvað bíllinn er ódýr í innkaupi er hann ódýr í reksti óg gerir það mér kleift að eiga bíl, sem væri mér annars ofviða. Brandur Jónsson, skólastjóri. Fór um «lla Vestfirði á honum í fyrrasumar. Finnst bíllinn ákaflega þægilegur í keyrslu, vinnslan er ágæt. Gunnar Júlíusson, véivirki. Trabant hefur reynzt vel að öllu leytL Aðalkost bílsins tel ég hve vél og allt gangverk er einfalt og sterkt. Ef ég keypti nýjan bíl þá myndi ég hiklaust velja aftur Trabant. Högni ísleifsson, viðskiptafræðingur. Trabant bíllinn hefur reynzt mér lipur, sparneytinn og þægi- legur í alla staði. Hvort sem var úti á landi eða í borginni. Verðið á bílnum ætti að hjálpa fleirum en ella til að eignast nýjan, ágætan bíL Helgi Valdimarsson, húsameistari. Ég hef átt marga bíla og Trabantinn gefur ekki öðrum bílum neitt eftir. Jóhann Vilhjálmsson c/o Prentfeil, Hörpugötu 14, Reykjavík. Trabant er einhver sá þægilegasti og liprasti bíll í umferð- innL sem ég hefi átt. Það veit enginn áð mínum dómi um gæði hans og kosti, nema sá, sem hefur átt hann og reyht. c Jón Múli, útvarpsþuiur. Trabantinn minn er búinn að fara 25 þús. km. án meiri háttar viðgerða. Hann hagar sér yfirleitt eins og traktor á vondum vegi og tryllitæki á góðum. Trabant 601 Framhjóladrif, mjög góð lega á vegi, hjólbarðar 520 xl3, loftkæld 2 strokka tvígengisvél, snörp vinnsla, 600 ccm, 26 hestöfl 4 gíra syncroniseraður gírkassi með sjálfvirku fríhlaupi í 4. gír, hámarkshraði 120 km. Sjálfstætt stál- grindarhús klætt með Duroplasti (sem aldrei ryðgar), tvær breiðar dyr, stillan leg framsæti, stqrt farangursrými, armpúðar við aftursæti, ljós í farangurs- rými, assymetrisk ljós, ásamt aurhlífum aftan og framan, tveim speglum úti og inni, 2 öskubákkar við aftursæti, varadekk og verkfærasett, innifalið í verðinu. 2 yfirferðir og uppherzlur eftir 1000 og 2500 km. akstur. Tvímælalaust hagkvæmustu bílkaupin í dag eru T R A B A N T 601. Leitið nánari upplýsinga. Lárus Ólafsson, forstjóri. Er búinn að keyra um 70 þús. km. á rúmu ári. Hef ekki keyrt betri bíl úti á vegum! Engar bilanir. Lárus Pálsson, leikari. Líkar hann því betur, sem ég kynnist honum betur. Ævar Rvaran, leikari, Rauðalæk 13, Reykjavík. Bílar eru of dýrir á íslandi. Trabant er svarið. Gó'ður? Ég fæ mér annan fyrir jóL Yerð kr. 91340.- Vegna verðhækkana á flutningsgjöldum á öll- um bílum, h æ k k a TRABANT bílar, sem koma eftir áramótin um að minnstakosti kr. 2.500,00. Eigum í dag fáeina fólksbíla árgerð 1966, hvíta með rauðum sætaáklæðum og króm- uðum stuðurum. Verð kr. 88.900,00. Verð kr. 99280.— ÞIÐ GETIÐ EKKI GERT BETRI KAIIP Einkaumboð: Ingvar Helgason, Tryggvagötu 8, sími 19655. Söluumboð .Guðmundar, Bergþórugötu 3, sími 20070.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.