Morgunblaðið - 28.12.1965, Page 8
8
MORCU N BLAÐIÐ
Þriðjudagur 28. des. 1965
Þao gengur
sæmilega,
segir Halldór Gröndal um
rekstur lceland Food Centre
lokum um leið og hann spurði
um veðri'ð hér heima.
Myndirnar, sem hér birtast
eru írá opnun veitingastaðar-
ins hinn 16. des. sl.
★
Ein myndin sýnir 5 af hin-
um 8 framreiðslustúlkum, sem
ganga um beina í veitingahús
inu. Sömu kröfur eru gerðar
til þeirra og til flugfreyja. —
Fengu þær sérstaka þriggja
imánaða þjálfun hér heima áð
ur en þær héldu utan. Auk
enskuþjálfunar var þeim
kennd saga íslands og íslenzkr
ar menningar og að sjálfsögðu
framreiðsla. „Hugmyndin var
áð stúlkurnar væru einskon-
ar sendiherrar lands okkar
ekki síður en framreiðslustúlk
ur“, lét Halldór Gröndal um
mælt, er hann kynnti þær.
★
Á myndinni eru stúlkurnar
í þjóðbúningi, sem þær bera
við þjónustustörfin. — Frá
vinstri talið: Kristín Richards-
dóttir, Kristín Kristinsdóttir,
Aðalheiður Halldórsdóttir,
Kristín Þorsteinsdóttir, og
Hildur Pálsdóttir.
★
önnur mynd sýnir tvo heið
ursmenn við barinn. Eru þáð
brezkir þingmenn, sem báðir
hafa komið hingáð til lands.
T.v. Mr. Caster Jones, Verka-
mannaflokksþingmaður og t.h.
Dr. Bennett, þingmaður íhalds
flokksins, en hann var for-
maður þingmannanefndar
Breta, sem kom hingað til
lands.
★
Þá er mynd af Halldóri
Gröndal, forstjóri Iceland
Food Centre, þar sem hann
sýnir einum gestanna kalda
borðið ,en á því má sjá kæst-
an hákarl, laufabrauð svið
(heila hausa), brauð hvers-
konar, súrmat á fati, heilan
hrygg og fleira góðgæti.
Enn er mynd af arkitekt-
inum, sem teiknaði staðinn og
gekk frá öllu útliti, Jóni Har-
aldssyni þar sem hann held-
ur á einu ljóskeranna, sem
staðinn prýða.
★
Og loks er mynd af vín-
korti staðarins, en á því er
vakin sérstök athygli á ís-
lenzika brennivíninu, og er
það selt á sama verði og hin-
ir dýru erlendu veigar svo
sem viský og koníak. Framan
á kortinu er merki staðar-
ins, tveir drekar, og neðst
nafnið, Iceland Food Centre,
með fornri stungu, en á bak-
hlið hinn gamalkunni flösku-
miði af brennivnísflösku.
— REKSTUR veitinga-
hússins hefir gengið sæmi-
lega er óhætt að segja,
þessa viku, sem það hefir
nú verið starfandi, sagði
Halldór Gröndal, forstjóri
Iceland Food Centre, í Lon-
don, er blaðið átti stutt
samtal við hinn í gær. — í
heild hefir allt gengið hér
vel og árekstralaust. Það
vekur mikla athygli hve
staðurinn er allur smekk-
legur og snotur að öllum
búnaði, bætti hann við.
Við spyrjum nú hverjir hafi
aðallega sótt staðinn það sem
af er.
— Það má heita, áð ein-
göngu Englendingar, sem ver
ið hafa hér á ferð um götuna,
sem komið hafa inn, allskonar
fólk, sem hefir verið í jóla-
önnum.
— Og hvaða réttir eru vin-
sælastir?
— Lambakjötið í hinum
ýmsu myndum, sem það er
hér framleitt, kótelettur eru
mjög vinsælar. Við settum auð
vitað hangikjötið á jólamat-
seðilinn, en það fór ekki mikið
af því.
— Var um einhverja sér-
staka jólaskreytingu að ræða
hjá ykkur?
— Já, við skreyttum glugg-
ann og þótti þáð takast vel.
Sem sagt er mér óhætt að
fullyrða að staðurinn vekur
sérstaka athygli fyrir smekk-
legt útlit, sagði Halldór að
f
I