Morgunblaðið - 28.12.1965, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 28.12.1965, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 28. des. 1965 Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjárnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson. Auglýsingar: Ámi Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgréiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Áskriftargjald kr. 95.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 5.00 eintakið. FRIÐARHORFUR Ctyrjöldin í Vietnam hefur ^ harðnað með mánuði hverjum og loftárásir Banda- ríkjamanna og Suður-Viet- namherja á hernaðarlega mik ilvægar stöðvar í Norður- Vietnam hafa vaxið að sama skapi. Þrátt fyrir þá auknu hörku, sem færzt hefur í Viet nam styrjöldina, urðu þó styrjaldaraðilar ásáttir um að gera vopnahlé um jólin, sem stóð í þrjátíu klukkustundir og var yfirleitt haldið, ef und- an eru skildir nokkrir her- flokkar kommúnista, sem lík- lega hafa ekki fengið boð um vopnahléð. Á undanförnum mánuðum hafa við og við borizt fregnir þess efnis, að kommúnista- stjórnin í Hanoi væri nú reiðubúin að setjast að samn- ingaborðinu án nokkurra skil yrða, en jafnan þegar reynt hefur verið að staðreyna þær fregnir, hafa kommúnistar í Hanoi ákaft borið á móti þeim. Þótt lítil ástæða sé því til aukinnar bjartsýni um frið- arhorfur í Vietnam, verður þó að segja, að vopnahléð, sem þar var gert um jólin, er það jákvæðasta sem gerzt hefur í þessari hörmulegu styrjöld um langt skeið, og þrátt fyrir allt hljóta menn um heim all- an að vona, að það verði fyrsta skrefið í áttina til víð- tækari samningaviðræðna milli styrjaldaraðila um frið í þessu landi, sem hefur verið stöðugt bitbein stríðandi afla allt frá lokum heimsstyrjald- arinnar síðari. Það er einnig alveg ljóst, að á því ári, sem nú er að líða, hún engum í hag nema kín- verskum kommúnistum. Ekki er ólíklegt, að þessar tvær staðreyndir, hin versn- andi vígstaða kommúnistaher deilda Viet Kong og hinn djúpstæði skoðanaágreining- ur meðal kommúnistaland- anna um þetta árásarstríð, verði á endanum til þess að kommúnistar sjá sér þann kost vænstan, að taka þeim friðarsamningum, sem þeim bjóðast. ÞRÓUNARLÖND- IN OG FRIÐAR- SVEITIR Okömmu fyrir jól birtust tvö ^ viðtöl hér í Morgunblað- inu við Jónas Haralz, hag- fræðing, um ferðir hans til Venezúela og Ghana á vegum Alþjóðabankans, en hann var fenginn til þess að veita for- mennsku sendinefndum Al- þjóðabankans til þessara ríkja, sem höfðu það verkefni að aðstoða þau við gerð fram- kvæmdaáætlana og úrlausn annarra efnahagsvandamála. Hér er auðvitað um mikla viðurkenningu að ræða fyrir íslenzkan sérfræðing, og leið- ir hugann að því, að í ýmsum efnum getum við íslending- ar veitt þróunarlöndunum í Asíu, Afríku og Suður- Ameríku tæknilega aðstoð, sem þeim kemur að góðum notum þótt við ekki getum veitt þeim fjárstuðning svo heitið geti. Margir eru þeirrar skoðun- ar, að verkefnin séu svo mikil y&ij UTAN UR HEIMI Herhvöt til seskulýðsins í baráttunni við hungrið Áætlunarbúskapur tengir Austur- og Vestur-Evrópu Freistandi er að draga þá ályktun, að þrátt fyrir and- stæð félagsleg kerfi muni Austur- og Vestur-Evrópa smám saman nálgast hvor aðra í leit sinni að jafnvægi milli markaðsaflanna og áætl- unarbúskaparins. R e y n s 1 a Júgóslava bendir auk þess til, að þegar hin bundnu efna- hagskerfi taka að nálgast slikt jafnvægi, muni þau standa andspænis ýmsum þeirra verðbólguvandamála, sem íbúar VesturEvrópu hafa orðið að kljást við án telj- andi atvinnuleysis. Á þetta er lögð áherzla í útdrætti ýtarlegri greinargerð ar, sem nýlega var birt af Efnahagsnefnd SÞ fyrir Evr- ópu (ECE) undir nafninu „Economic Planning in Eur- ope“. Birting þessarar greinar- gerðar vekur talsverða at- hygþ, þar sem Sovétríkin hafa nýverið skýrt frá víð- tækum endurbótum á áætl- unaraðferðum sínum, og önn- ur Evrópulönd bæði í austri og vestri — þeirra á meðal Frakkland, Júgóslavía og Tékkóslóvakía — hafa á þessu ári tekið upp eða til- kynnt mikilvægar nýjungar í áætlunarkerfum sínum. Svo virðist sem aukinn sparnaður og hvatning til sparnaðar í þágu efnahags- vaxtarins sé ekki lengur neitt J meginvandamál fyrir þá sem gera áætlanir í flestum Evr- ópulöndum, segir ennfremur í útdrætti greinargerðarinnar. í Austur-Evrópu verða menn bæði að glíma við hagræð- ingu og endurbætur áætlun- arkerfanna, þar sem lögð 1 verði meiri áherzla á skyn- samlega hagnýtingu auðlinda og mannafla en á lista yfir það hvaða vörur eigi að sitja í fyrirrúmi, og eins verða þeir að stefna að meiri af- köstum í áætlunum sínum með því að draga ákvörðun- arvaldið úr höndum einnar allsherjarstjórnar og dreifa því víðar. í Vestur-Evrópu v e r ð a menn að endurbæta undir- búning og framkvæmd áætl- ana á sviðum, þar sem mark- aðstæknin veitir enga raun- hæfa leiðbeiningu. Á það m.a. við um fjárfestingu í grund- vallariðnaði og til heilbrigðis- og skólamála. Friðarverölaunahafinn aðstoðar yfir 100 lönd Barnahjálp Sameinuðu þjóð anna (UNICEF), sem hlaut friðarverklaun Nóbels fyrir árið 1965, starfar samkvæmt þeirri meginreglu í stofnskrá S.þ., að ríki heimsins eigi að vinna saman að því að bæta efnahagsleg og félagsleg kjör í heiminum og fjarlægja þann ig orsakir styrjalda og árekstra. Barnahjálpin hefur náð veru legum, raunhæfum árangri í starfi sínu. Með fé úr sjóði hennar hafa yfir 100 millj. manna verið rannsakaðar, og 41 millj. hefur verið undir læknishendi vegna húðsjúk- dómsins yaws, sem Oft leggst á börn í vanþróuðum lönd- um. Aðeins á árinu 1964 voru 45 millj. manna í 28 löndum verndaðar gegn mýrarköldu með úðun hættulegra svæða, sem kostuð var að nokkru af Barnahjálpinni. Hún hefur einnig átt þátt í að þúa 8.610 sjúkrastöðvar og 21.000 sjúkra skýli nauðsynlegum tækjum til skyndilækninga. Hún hef- ur einnig lagt fram tæki til nálega 200 þurrmjólkurbúa og átt þátt í að mennta og þjálfa þúsundir hjúkrunar- kvenna, ljósmæðra, næringar sérfræðinga, kennara og fé- lagsmálaráðgjafa. Á yfirstandandi ári leggja 121 land og svæði fram fé til starfsemi Barnahjálpar- innar, sem nú hefur sérstök verkefni í 118 löndum og landsvæðum. Árstekjurnar nema kringum 33 milljónum doliara, og koma 80 af hundr- aði þess fjár' frá ríkisstjórn- um, en afgangurinn safnast með frjálsum samskotum, sölu jólakorta o.s.frv. Á móti hverum dollar sem Barnahjálpin leggur fram til verkefna sinna leggja mót- tökulöndin fram kringum 2,50 dollara að jafnaði. Upphafleg verkefni Barna- hjálparinnar voru barátta éfegn sjúkdóroum, matgjafir, umönnun mæðra og barna, en á seinni árum hafa bætzt við þau menntun og fagþjálfun. Barnahjálpin stuðlar enn- fremur að auknum skilningi þjóða á milli með þeim söfnunum og upplýsingaher- ferðum sem hún stendur að í hinum ýmsu löndum, þar sem innlendar nefndir eru starf- ræktar. Búizt er við, að um 45 milljónir af hinum list- rænu kortum Barnahjálpar- innar muni seljast í rúmlega 100 löndum og þjóna þeim tvöfalda tilgangi að af!a starfseminni tekna (í fyrra voru nettótekjur af kortun- um 2,5 milljónir dollara) og brefða út vitneskjuna um neyð barnanna um heim allan. Það er ekki sízt verk hins nýlátna forstjóra Barnahjálp- arinnar, Maurice Pate, að hún hefur orðið meginformælandi þeirrar hugsunar, að nauðstatt barn, hvar sem það er niður- koinfð, eigi kröfu á hjálp okkar — án tillits til kyn- þáttar, trúarbragða, pólitískar sannfæringar eða ríkisfangs foreldranna eða barnsins sjálfs. Hjálpræðisherinn heiðraði U Thant framkvæmdastjóra S.Þ. við hátíðlega athöfn ný- lega í tilefni af 100 ára afmæli hersins. Yfirmaður hans, Frederick Coutss, afhenti U Thant tvo innrammáða heið- urspeninga ásamt málmstungu þar sem framkvæmdastjóran- um var þökkuð friðarviðleitni hans. U Thant lofaði í þakkar- ræðu sinni Hjálpræðisherinn fyrir mannúðarstarf hans um heim allan. hefur taflastaðan í Vietnam breytzt mjög í vil Suður-Viet nambúum og Bandaríkja- mönnum, sem veitt hafa þeim mikilvæga aðstoð til varnar ofbeldi hinna kommúnísku árásarafla. Hin aukna og vax- andi þátttaka mesta herveldis heims er nú greinilega farin að segja til sín, og þær komm- únistaherdeildir Viet Kong, sem á síðustu árum hafa jafn- an verið í sókn í þessu landi, eru nú greinilega komnar í vörn. Frjálsir menn um heim allan geta því að þessu leyti fagnað þeirri þróun, sem orðið hefur í styrjöldinni í Viet Nam á þessu ári, og væntan- lega er kommúnistum nú orð- ið ljóst, að árásarstefnu þeirra verður svarað, hvort sem hún kemur fram í Berlín, Kúbu eða Viet Nam. Greinilegt er einnig, að í hinum kommún- íska heimi er mikill skoðana- ágreíningur um styrjöldina í Viet Nam, og ljóst, að Rússar vilja ekkert fremur en að styrjöldinni þar ljúki, enda er hér á landi, að það væri að bera í bakkafullann lækinn að dreifa þeim starfskröftum, sem við höfum yfir að ráða til starfa í þágu annarra þjóða, og vera má að mikið sé til í því. Hitt er ljóst, að þær þjóðir heims, sem búa við nokkuð almenna velmegun og lengst eru komnar á sviði tækni og vísinda, eiga vissum skyldum að gegna gagnvart öðrum þjóðum, sem enn búa við fá- tækt og fáfræði. Þar hlýtur hver að leggja það að mörk- um, sem hann getur, og í þeim efnum höfum við íslend ingar yfir að ráða tækniþekk- ingu á takmörkuðu sviði, sem komið getur þróunarlöndun- um svonefndu að miklu gagni. Það er almenn skoðun, að friðarsveitir þær, sem Kenne- dy Bandaríkjaforseti setti á stofn við upphaf hins stutta forsetaferils síns, hafi gert mikið gagn, ekki aðeins fyrir þær þjóðir, sem notið hafa starfskrafta þeirra, heldur einnig fyrir hina ungu og upp vaxandi kynslóð Bandaríkja- manna, sem farið hefur til starfa í öðrum löndum. Eng- inn vafi er á því, að fyrir ungt fólk, sem býr við velmegun tækniþjóðfélagsins er það þroskandi verkefni, að kynn- ast þeim umfangsmiklu vanda málum, sem margar þjóðir heims eiga við að etja og fá tækifæri til að leggja nokkuð af sinni eigin þekkingu af mörkum til hjálpar þessum þjóðum. Þótt við þurfum sjálfir á að halda öllum þeim mannafla, sem við höfum yfir að ráða, er ekki ólíklegt, að það myndi verða hinni ungu kynslóð íslendinga, sem er að vaxa úr grasi, mjög gagnlegt, ef einhverjir úr hennar hópi fengju tækifæri til þess að kynnast öðrum lifnaðarhátt- um og erfiðari en þeim, sem velsældarþjóðfélag íslendinga hefur upp á að bjóða. íslenzk æskulýðssamtök hafa nú riðið á vaðið með skipulagsbundna aðstoð til þróunarlandanna og það ætti að verða þeim íhugunarefni og athugunar, hvort ekki sé ástæða til enn frekari átaka á þessu sviði, sem komið get- ur okkur sjálfum að gagni, ekki síður en þeim sem hjálp- ar eru þurfi. Róm. 23. des. NTB. PÁLL páfi bað um frið í jólaboðskap sínum og Jýsti því yfir, að enginn ætti að hika við réttláta og heiðar- lega samninga. Hann nefndi ekki Vietnamstyrjöldina, en ávarp hans var samt skýrt með tilliti til áskorunar hans fyrra sunnudag, þar sem hann mælti með vopnahléi um jólin og að friðarumleit- anir fylgdi í kjölfar þess. • Vér biðjum um frið. ekki aðeins vegna þess að friður- inn sé eftirsóknarverður í sjálfu sér heldur og vegna þess að hann er í mikilli hættu í heiminum í dag, sagði páfinn í ræðu sinni. Mont, Dore, Frakklandi, 26. des NT3- SEX manns létu lífið og ellefu aðrir slösúðust í slysi, sem varð í Sancý í Mið- Frakklandi á jóladag. Einn af lyftuklefunum I skíðalyftunni frá Mont Dora varð fyrir óhappi rétt áður, en hún átti að fara inn á stöðina við Sancy. Hvasst var og lyftuklefinn sveiflaðist og rakst á einn stauranna, sem bar lyftuna uppi ,svo að einn veggurinn í lyftuklefanum brast. Fimmtán farþegar féllu niður úr lyftuklefanum og lentu á snæviþöktu fjall- inu fyrir neðan. París, 24. des. NTB. De Gaulle forseti gaf í gær fyrirskipun um að 168 manns sem setið hafa í fang- elsi fyrir skemmdarstarfsemi, yrðu látnir lausir. Mesti hluti þessara manna hafði hlotið fangelsisdóma fyrir þátttöku sína í leynihreyfingunni OAS sem allt' til enda barðist gegn því að Alsír slitnaði úr tengslum við Frakkland. Á meðal þeirra, sem hlutu náðun, er fyrrverandi hers- höfðingi, Jean-Louis Nicot, sem var yfirmaður flughers- ins í uppreisn þeirri, sem varð í Alsír í apríl 1961. Nic- ot afplánaði 12 ára fangeis- isdóm.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.