Morgunblaðið - 06.01.1966, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 06.01.1966, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Fimmtudagur 6. janúar 1966 íbúð óskast Hjón utan af landi óska eftir 3ja—4ra herbergja íbúð. Uppl. í síma 36417. Veitingahús Vantar 1—2 stúlkur. Upp- lagt fyrir mæðgur. Hús- næði á staðnum. Uppl. í síma 12165. •; Til sölu 2ja herb. íbúð í Hlíðunum. Félagsmenn hafa forkaups- rétt lögum samkvæmt. Byggingarsamvinnufélag Reykjavíkur. Vist Unglingsstúlka óskar eftir vLst hjá góðu fólki úti á landi. Má vera í sveit. Upplýsingar í síma 10842. Fatahengi — Fatastatíf Vil kaupa fatahengi. Æski- leg lengd um 2 m. Uppl. í sírna 31380. Til sölu herðasjal (cape) og jakka- kjóll úr cripline efni. Sér- stakt tækifærisverð. Sdmi 32745. Skíði notuð Kastle 190 om og ný Kneissel 200 cm með bind- ingum til sölu. Uppl. í síma 51639. Tvær reglusamar stúlkur óska eftir herbergi á leigu með aðgangi að eldhúsi og baði, helzt í Hafnarfirði eða nágrenni. UppL í síma 51889. Kona óskast til að sjá um heimili á meðan húsmóðirin vinnur úti. Uppl. í síma 19467. Stúlka óskast strax í tvo mánuði vegna veik- indaforfalla. Uppl. í sima 19457 og á Kaffistofunni Hafnarstræti 16. Stúlka með stúdentspróf óskar eftir vinnu hálfan daginn. Tilboð sendist Mbl. merkt: „Fyrir hádegi 8176“. England Stúlka óskast á gott heimili í London, ekki yngri en 17 ára. Uppl. í síma 20793. íbúð óskast Ung kennarahjón vantar tveggja til þriggja herb. fbúð. Algjör reglusemi. — Upplýsingar í síma 30070. Vanur garðyrkjumaður óskast í gróðurhúsavinnu, helzt strax. Tilboð merkt: „Gróðurhús — 8172“ legg- ist inn á afgr. Mbl. Fiskbúð óskast til leigu. Tilboð sendist Mbl. fyrir mánud., merkt: „Fiskbúð — 8169“. IJr íslendingasögunum ÞOBMÓÐUK KOLBBÚNARSKÁLD (deyr). „Þormóður kvað: Emkak rauðr, en rjóðum ræðr grönn Skögul manni haukasetrs en hvita Hyggr fár of mik sáran. Hitt veldr mér, at meldrar morðvenjanda Fenju djúp ok danskra vápna. Dagshríðar spor sviða. Ok er hann hafði þetta kveðit, þá andaðist hann standandi við vandibálkinn ok féll eigi fyrr til jarðar en hann var dauðr.“ (Fóstbræðra saga). FRETTIR Hjálpræðisherinn Fimmtudag kl. 20:30. Jólahá- tíð fyrir almenning. Foringjarnir á Bjargi stjóma. Fíladelfía, Beykjavík Almenn samkoma í kvöld kl. 8:30. Signe Eiríksson og Hall- grímur Guðmundsson tala. Nsesta sunnudag verður fórn- arsamkoma vegna kirkjubygg ingarinnar. Frá Guðspekifélaginu. Jóla- trésfagnaður barnanna er að venju á þrettándanum. 6. jan. og hefst kl. 3 í Guðspekifélagshús- inu Ingólfsstræti 22. Þátttaka til- kynnist í síma 17520. Þjónustu- reglan. Kvenfélag Ásprestakalls held- ur jólaskemmtun fyrir böm í Laugarásbíó, fimmtudaginn 6. janúar (þrettándanum) kl. 2. Að- göngumiðar seldir frá kl. 1 sama dag i Laugarásbíói. Stjómin. Frá Leikfélagi Kópavogs. Jóla trésskemmtun félagsins verður fimmtudaginn 6. janúar í Sjálf- stæðishúsi Kópavogs, kl. 3. Að- göngumiðar í síma 40704 og 40309. Fataúthlutun Mæðrastyrks- nefndar. Síðustu dagar fataúthlutunar- innar er á miðvikudag og finuntu dag Njálsgötu 3. — Mæðrastyrks nefnd. Óháði söfnuðurinn: Jólatrés- fagnaður fyrir böm sunnudaginn 9. jan. kl. 3 í Kirkjubæ. Að- göngumiðar í verzl. Andrésar Andréssonar, Laugaveg 3, fimmtu dag, föstudag og laugardag. Kvenfélag Garðahrepps. Eng- inn fundur fyrr en þriðjudaginn 11. janúar. Stiórnin. Stork- urinn sagði að ekki hefði hann fyrr verið búinn að spá fyrir árgæzku hins nýbyrjaða árs, en verðáttan brá undir sig verri löppinni og hellti úr sér stórkostlegri rigningu, svo að við ló, að öll ræsi stífluðust, og einstaka regnhlífar sáust á götunum af allavega gerðum. Og það var mikið skammdegi, og þó er okkur sagt, að það sé að birta, sólin hækkandi og allt það, en samt er eins og sé svarta myrkur um miðjan dag. En við ráðum víst ekki ennþá við náttúruöflin, nema þau allra meinlausustu. Sem ég var að fljúga þar suð- ur í Vatnsmýri, þar sem gullið fannst forðum, hitti ég mann á skurðbarmi, en þeim hefur fækk að frá því að strákamir hér áður fyrri fóru í Indiánaleiki þar um kring, og oftast á svellL Storkurinn: Eitthvað ert þú þungbúinn í dag, maður minn? Maðurinn á skurðbarminum: Já, og hér í nágrenninu sérðu hvað veldur. Líttu til þessarar glæsilegu og fallegu Umferðar- miðstöðvar, þar sem saman fer fallegt hús og fallegt og alúð- EG er dyrnar, ef einhver gengur inn um mig, mun hann hólpinn verða (Jóh. 10, 9). í dag er fimmtudagur 6. janúar og er það 6. dagur ársins 1965. Eftir lifa 359 dagar. Þrettándinn. Árdegisháflæði kl. 4:34. Síðdegisháflæði kl. 16:56. Cpplýsingar um læknaþjon- ustu í borginni gefnar í sím- svara Læknafélags Beykjavíkur, Símin er 18888. Slysavarðstofan i Heilsuvrrnd- arstöðinni. — Opin allan sotir- kringinn — sími 2-13-30. 'Helgidagsvörður. Nýársdagur. Lyfjabúðin Iðunn. Næturvörð- ur vikuna 1/1—8/1 Beykjavíkur- apótek. Næturvörður vikuna 24. des. til 31. des. er í Vesturbæjar- apóteki. Næturlæknir í Keílavík 6/1— 7/1 Guðjón Klemensson sími 1567 8/1—9/1 Jón K. Jóhannsson sími 1800. 10/1 Kjartan Ólafsson sími 1700, 11/1 Arnbjörn Ólafs- son, sími 1840, 12/1. Guðjón Klemensson sími 1567. Næturlæknir í Hafnarfirði að- faranótt 7. des. er Jósef Ólafsson sími 51820. Kópavogsapótek er opið alla virka daga frá kl. 9:15—20. laug- ardaga frá kl. 9:15—16, helgidaga frá kl. 13—16. Framvegis veróur tekið á mótl þelm, er gefa vilja blóð I Blóðbankann, sem hér segir: Mánudaga, þrlðjudaga, fimmtudaga og föstudaga frá kl. 9—11 f.h. og 2—4 e.h. MIÐVIKUDAGA frá kl. 2—8 e.h. Laugardaga fra kl. 9—11 fJi. Sérstök athygil skal vakin á mið- vikudögum. vegna kvöldtimans. Holtsopótek, Garðsapótek, Soga. veg 108, Laugarnesapótek og Apótek Keflavíkur eru opln alla virka daga kl. 9. — 7., nema laugardaga frá kl. 9 — 4 og helgl daga frá kl. 1 — 4. Upplýsingaþjónusta AA samtak anna, Hverfisg. 116, síml 16373. Opin alla virka daga frá kl. 6-7 Orff lífsins svarar 1 síma 10000. I.O.O.F. 11 = 147168H = l.O.O.F. 5 = 147618% = legt afgreiðslufólk, sem vill hvers manns vanda leysa. En sjáðu þetta myrkur allt í kringum stöðina. Veit ég til þess, að slys haifa orðið vegna þess, hve umhverfið er illa upplýst, sérstaklega í sambandi við gang- brautir. Skyldi það annars setja Reykjavíkurborg á hausinn að ganga frá 'almennilegri lýsingu þarna um slóðir? Tæpast held ég, og svona nú, góðu drengir, kippið þessu í lag hið allra bráð- asta! Þú ferð með rétt mál, hinn frómi, sagði storkurinn, og með það flaug hann upp á þakið á Umiferðarmiðstöðinni, og svona í leiðinni minnir hann á nauð- synina á greiðum strætisvagna- ferðum að og frá hinni miklu stöð til þæginda fyrir fólkið, og mér er spurn sagði storkurinn, um leið og hann lagði haus imdir væng og fékk sér hænublund: „Er nokkurn tímann ofgert fyrir fólkið í þessu velferðarríki?" Akranessferðir með sérleyfisbifreið- um ÞÞÞ. Frá Akranesi mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og laugar- daga kl. 8, miðvikudaga og föstudaga kl. 12, sunnudaga kl. 4. Frá Rvík alla daga kl. 5:36, nema laugardaga kl. 2 og sunnudaga kl. 21:00. Afgreiðsla 1 Umferðarmiðstöðinni. Pan American þota kom frá NY kl. 06:20 í morgun. Fór til Glasgow og Kaupmannahafnar kl. 07:00. Vænt- anlega frá Kaupmannahöfn og Glas- gow kl. 16:20 í kvöld. Fer til NY kl. lö :00. Hafskip h.f.: Langá er á leið til Akureyrar. Laxá er í Rvík. Rangá er í Hull. Seliá lestar á Austf j arðarhötfn- um. H.f. Jöklar: Drangjökull er í Vigo, fer baðan í dag til De Havre, Rotter- dam og London. Hofsjökull er í NY. Langjökull fór í gær frá Dan- mörku til Færeyja. Vatnajökull fór í gærkveldi frá Seyvlsfirði til KLaup- mannahafnar, Gdynia og Hamborg- ar. Skipaútgerð ríkisins: Hekla kom til Rvikur í morgun að vestan. Bsja er á Austfjörðum á suðurleið. Herjólfur fer frá Rvík kl. 21:00 í kvöld til Vest- mannaeyja. Skjaldbreið er á Húnatflóa höfnum á austurleið. Herðubreið er á Austfjörðum á norðurleið. Otur fer frá Rvík í kvöld til Snætfellsness- og* Breiðafjarðarhafna. Flugfélag íslands h.f. Millilandaflug: Sóltfaxi er væntanlegur kl. 16:00 í dag frá Kaupmannahöfn og Glasgow. Innanlandsflug: í dag er áætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), ísa- fjarðar .Egilsstaða, Vestmannaeyja, Húsavikur, Sauðárkróks, Kópaskera og Þórshatfnar. Loftleiðir h.f. Vilhjálmur Stetfánsson er væntanlegur frá NY kl. 10:00. Held ur áfram til Luxemborgar kl. 11:00, Er væntanlegur til baka frá Luxem- borg kl. 01:45. Heldur átfram til NY kl. 02:45. Bjarni Herjólfsson er vænt- anlegur frá Amsterdam og Glasgow kl. 01:00. Snorri Þorfinnsson fer til Oslóar, Gautaborgar og Kaupmanna- hafnar kl. 10:45. H.f. Eimskipafélag íslands: Bakka- foss fer frá Reyðarfirði 5. þm. tii Antwerpen, London og Hull. Zrúar- foss fer frá Bremerhaven 6. þm. til Hamborgar. Dettifoss fer frá Ham- borg 6. þm. U1 Rvíkur. Fjalltfoss fer frá NY 5. þm. til Rvíkur. Goðafosa fer frá Vestmannaeyj um 6. þiö. til Keflavíkur. Gullfoss fór frá Cuxhav- en 5. þm. til Hamiborgar og Kaup- mannahafnar. Lagaríoss kom til Rvíkur 30. fm. frá NY. Mánatfoss fór frá Þórshöfn 5. þm. til Bakkafjarðar, Seyðistfjarðar, Norðfjarðar, Eskitfjarð- ar, Djúpavogs og Fáskrúðstfjarðar, Reykjatfoss fór frá Hafnarfirði 5. þm. til Keflavíkur. Selfoss fer frá Jsa- firði 5. þm. til Grundarfjarðar, Stykk- ishólms og Vestmannaeyja. Sikóga- foss er á Akranesi. Tungutfoss fór frá Hull 4. þm. til Rvíkur. Askja kom til Rvíkur 4. þm. frá Hamborg. Utan skrifstofutíma eru skipa- fréttir lesnar í sjálfvirkum sím- svara 2-1466. Spakmœli dagsins Það eru affeins tvö vopn í heim inum — sverffiff og penninn. Og aff lokum ber hiff siffarnefnda alltaf sigur ai hólmi. Napoleon. GAMALT og con Álfavísa Sól og tungl í suðri er með sinni mekt. Margur lofar milding þann, sem er minnilegt. sá HÆST bezti Maður nokkur hér sunnanlands ræktaði sér nýrækt spölkom upp frá búi sínu. Meðal annars ræktaði hann þar kartöiflur. Reit þennan kallaði hann „Paradís“ til aðgreiningar frá öðrum stöðum í landareigninni, og var þá oft svo til orða tekið, að fara upp 1 Paradís. Nú var það um haust eitt um uppskeru tímann, að bóksala bar að dyrum hjá bónda og knúði dyra. „Er hann pabbi þinn heima?“ spurði bóksalinn. „Nei“, svaraði drengurinn, hann fór til Rvíkur í morgun. „En hún mamma þín“? spyr þá bóksalinn. „Nei, hún er upp í Paradís“, svarar sá litli. „Jæja vinurinn minn“, sagði þá bóksalinn og var fullur sam- úðar með drengnum, „er hún dáin?“ „Nei nei“, sagði sá litli „hún er bara að taka upp kartöflur“.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.