Morgunblaðið - 14.01.1966, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 14.01.1966, Blaðsíða 15
' Fösttidagur 14. janúar 1968 MORGU N BLAÐIÐ 15 Gunnar Fr iðriksson: Iðnaðurmn við ALMBNN skýrslusöfnun um iðnaðarframleiðslu er enn of skammt á veg komin til þess að unnt sé að gefa fullkomið tölulegt yfirlit um þróun fram- leiðslu verksmiðjuiðnaðarins, fyrr en að nokkrum tíma liðn- um. >ó mun óhætt að fullyrða, að á árinu 1965 hafi þróun hinna ýmsu greina hans verið mjög misjöfn. Á sumum sviðum hefur orðið fr^nleiðsluaukning, svo sem í steinefnaiðnaði, drykkjavöruframleiðslu, fram- leiðslu smjörlíkis, húsgagnafram- leiðslu, framleiðslu á hreinlæt- isvörum, málningarframleiðslu, sútun og ullariðnaði. í öðrum greinum hefur orðið nokkur samdráttur, meðal annars í fata- iðnaði, sælgætisframleiðslu svo svo ög framleiðslu veiðar- færa og umibúða. Framleiðsla umbúða getur raunar verið nokkrum sveiflum háð, vegna mismunandi nýtingar á fiskafla frá ári til árs. Að öðru leyti hefur framleiðslumagn verið mjög líkt og á árinu 1964, og á það einnig við um kexfram- leiðslu, þó hún hafi að undan- förnu átt við verulega örðug- leika að etja, sakir erlendrar samkeppni. Á árinu 1964 tóku erfiðleikar að gera vart við sig í ýmsum greinum verksmiðjuiðnaðarins. Stöfuðu þeir af stórauknu frjáls ræði í innflutningi, lækkun toll- verndar með nýjum tollalögum, sem sett voru á miðju ári 1963 og vegna örrar hækkunar fram- leiðslukostnaðar. Þessi þróun hélt að nokkru leyti áfram á árinu 1965 með aukningu á frí- lista, en síðast en ekki sízt fór framleiðslukostnaðurinn enn mjög hækkandi. Þessi aukni framleiðslukostnaður lenti með fullum þunga á þeim iðnaði, sem keppa verður við innflutt- ar iðnaðarvörur eða flytur fram leiðsluvörur sínar á erlenda markaði. Gagnstætt því, sem verið hefur um verðlag á út- fluttum sjávarafurðum, hefur verðlag á iðnaðarvörum á heimsmarkaðinum að mestu hald izt stöðugt og jafnvel á sumum sviðum farið lækkandi vegna aukinnar tækni. Verksmiðjuiðn- aðurinn hefur því yfirleitt ekki I Framleiðsla smjörlíkis jókst á árinu og hafin var framleiðsla á nýrri tegund, jurtasmjörlík is. Meðfylgjandi mynd sýnir stjórntöflu í smjörlíkisverksm iðju, en sjálfvirkni er mikið notuð við þá framleiðslu. ur þó haft sín áhrif á gang þess- ara mála. Unnið hefur verið að því að vinna íslenzkum iðnaðarvörum markaði erlendis og á árinu hófst útflutningur á ullarbandi í stór- um stíl, sömuleiðis á nýrri teg- und niðursoðinnar síldar. Þá hef- ur verið gerður samningur um útflutning á 250 tonnum af máln- framkvæmdum, ekki sizt vegna hins takmarkaða vinnuafls, sem fyrir hendi er, en treysta verð- ur því, að viðeigandi ráðstafanir verði gerðar til þess að jafnvægi megi haldast. Tvær rannsóknarstofnanir 1 þágu iðnaðarins tóku til starfa á árinu, og er ástæða til að ætla að þegar á næsta ári muni iðn- getað borið uppi aukinn reksturs- kostnað með hækkunum á verði á framleiðsluvörum sínum. Hefur þetta orðið til þess að veikja samkeppnisaðstöðu ýmissa framleiðslugreina, sem átt hafa 1 harðri samkeppni við erlenda framleiðslu. Harðast hefur þetta bitnað á veiðarfæraiðnaði, skó- og fatagerð svo og raftækja- framleiðslu. Uppbygging og vöxtur ýmissa iðnaðargreina hélt þó áfram á órinu og voru tekin í notkun nokkur ný versmiðjuhús og faafnar framkvæmdir við nýbygg- ingar. Takmarkað fjármagn hef- Samið var um útflutning á 25 0 tonnum af málningu á árinu 1966. Framleiðsluaukning varð á málningu fyrir innlendan markað. Myndin er af málxiingu, sem flytja á út til Rússlands. ingu á næsta ári. Mikið og vanda samt starf liggur að baki þess árangurs, sem náðst hefur í út- flutningi á iðnaðarvörum og ber að fagna hverjum áfanga, sem þar næst. Unnið var að framhaldsathug- aðurinn fara að njóta árangurs af starfi þeirra. Lánveitingar Inðlánasjóðs hafa verið svipaðar ög árið áður. Hef- ur endurskipulagning hans haft hina mestu þýðingu fyrir iðn- aðinn og kemur það æ betur í ljós með hverju árinu sem líð- ur. Vöxtur Iðnaðarbankans var einnig mjög hagstæður á síðast- liðnu ári. Opnaði hann útibú á Akureyri, en nýlega hafði hann stofnsett útibú í Hafnarfirði. Þegar horft er fram á við til hins nýbyrjaða árs, hlýtur það að valda verksmiðjuiðnaðinum nokkrum kvíða ef enn verður framhald á aukningu framleiðslu kostnað'ar. Útflutningsframleiðsl- an og sá iðnaður sem keppa þarf við innfluttan varning fær litlu ráðið um verð á fram- leiðslu sinni, gagnstætt því sem á sér stað um mikinn hluta ann- arra atvinnuvega. Ef þessi fram- leiðsla á ekki að leggjast nið- ur, á hún ekki annarra kosta völ en að mæta hinum vaxandi framleiðslukostnaði með tækni- legum ráðstöfunum. Fyrir þenn- an iðnað er því brýn nauðsýn að hann öðlist tækifæri til þess að hagnýta sér nýjustu tækni í sem ríkustum mæli. Þessvegna ber að stefna að því að lækka tolla af vélum, sem ekki eru framleiddar í landinu og stuðla þannig að aukinni vélvæðingu og sjálfvirkni. Finna þarf við- unandi lausn á því, hvernig iðn- aðurinn geti átt greiðan aðgang að tæknilegum leiðbeiningum. Kanna ætti leiðir til aukins sam- starfs og jafnvel samruna fyrir- tækja í stærri heildir og gera þau með þeim hætti öflugri og sterkari í samkeppni við er- lend fyrirtæki. Vinna þarf ötul- lega að aukinni hagræðingu í iðnaðinum, hvar sem henni verð ur við komið. Tryggja þarf fjár magn til þess að ráðast í nauð- synlega uppbyggingu og endur- bætur, og að’framkvæmdir þær, sem ráðizt er í komi sem fyrst að fullum notum. Nauðsynlegt er að vinna að lækkun hráefnis- tolla, sérstaklega í þeim grein- um iðnaðarins, sem eiga í mest- um erfiðleikum, og tryggja ótoll- vernduðum iðnaði, svo sem veið arfæraiðnaði hliðstæða aðstöðu og sams konar iðnaður nýtur í viðskiptalöndum okkar. Loks ber að stefna að því að auka og bæta tæknimenntunina í land inu sjálfu svo að Tækniskóli ís- lands verði þess megnugur að útskrifa fullgilda tæknifræðinga. Ég tel ennfremur brýna nauð- syn bera til þess að athugað verði hvort ekki sé tímabært að auka kennslu í verkfræði við Há- skóla íslands, þannig að hægt verði að ljúka hér almennum lokaprófum í þessari fræðigrein. Fyrir svo fámenna þjóð sem ís- lendingar eru, er það lífsskilyrði, að hún sé fljót til að hagnýta sér alla tækni, eins og hún er mest og bezt á hverjum tíma. í sambandi við þróun á sviði fjármála vil ég láta þess getið, að iðnaðurinn hefur fullan skiln- ing á nauðsyn þess, að hamlað Gunnar J. Friðriksson sé gegn ofþenslu með aðhaldi'á sviði peningamála. Hann telur þó, að slíkar ráðstafanir beri þá fyrst tilætlaðan árangur, að fyllsta réttlæti ríki í fyrir- greiðslu lánastofnana við at- vinnuvegi landsins. Þá er ekki síður nauðsynlegt að varúðar sé gætt á sviði fjármála ríkis, bæjar og sveitafélaga. Þessir aðilar verða að hafa mikla gát á fjár- reiðum sínum og ber þeim að leggja áherzlu á niðurskurð 4út- gjalda áður en atvinnurekstrin- um er íþyngt með nýjum álög- um. Þótt iðnaðurinn eigi nú við. ýmsa erfiðleika að etja, hlýtur iðnvæðing hér á landi sem ann- ars staðar, að vera undirstaða sóknar til aukinnar velmegunar. Er þess að vænta, að þjóðin kunni að meta það starf, sem unnið er til uppbyggingar iðnað- ar í landinu og sýni fullan skiln- ing á þeim vandamálum, sem iðnaðurinn á nú við að glíma. Hér að framan var farið nokkr um orðum um rannsóknir í þágu iðnaðarins. Ég get ekki nóg- samlega brýnt það fyrir mönn- um hversu mikilvægar slíkar rannsóknir eru fyrir allar fram- farir í landinu, ekki einungis á sviði iðnaðarins heldur og at- vinnulífsins í heild. Án grund- vallaðrar þekkingar og kunnáttu verða engar fram- farir. Kunnátta og þekking eru frumskilyrði þess, að í framtíð- inni megi þróast þróttmikið og glæsilegt menningarlíf hér á landi. Og ég vil að lokum af heilum hug taka undir þau orð, er hinn kunni og merki athafnamaður Haraldur Böðvars son á Akranesi hefur eftir Thor Thors sendiherra í nýútkominni ævisögu sinni: „Þið hafið nú fyrst og fremst í huga sjávarút- veg og landbúnað, en annars er það ykkur sjálfsagt eins Ijóst og mér, að við komumst ekki langt án bráðrar iðnþróunar, og hamingjan hjálpi okkur á því sviði, ef rannsóknir verða van- ræktar“. un á stórvirkjun við Búrfell og samkomulag náðist í megin at- riðum við erlenda aðila um bygg ingu og rekstur aluminverk- smiðju. Þótt hætta sé á því að stórframkvæmdir þessar valdi ofþenslu á vinnumarkaðinum, verður þó að teljast rétt að í þær sé ráðist, þar sem þær munu stuðla að auknum skilningi á þýðingu iðnaðar í landinu, auk þess sem flytjast mun til lands- ins ný tækni, er verða mun öll- um íslenzkum iðnaði til góðs þegar fram í sækir. öllum eru að sjálfsögðu ljósar þær hættur sem stafað geta af slíkum risa- Fullkomin ullarverksmiðja var tekin í notkun á árinu og haf inn var útflutningur á ullarbandi og er áætlað að flytja út 150—200 tonn á árinu 1966. Myndin er af spunavélasamstæðu í ullarverksmiðju.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.