Morgunblaðið - 23.01.1966, Side 5
•f Sunnudagur 23. Janöar 1966
MORGUNBLADIÐ
5
4
Fæðingarstaður Ásgríms
1 tilefni af því, að nú um
nokkurt skeið munu birtast
myndir í Dagbókinni eftir
Ásgrím Jónsson, áskmt völd-
um köflum úr uppáhalds
þjóðsögum hans, hittum við
að máli bróður hans, Jón
Jónsson. Hann léði okkur til
birtingar mynd þá, sem að of-
an birtist. Er húin af málverki
Ásgríms af fæðingarstað
Ásgrímur fæddist í Rúts-
staðahjáleigu í Flóa árið 1876.
— RútsstaðasuSurkot, eins og
það var kallað, er í Gaulverja
bæjarhreppi í Árnessýslu, en
nú er þessi bær fyrir löngu
kominn í eyði. — Listmálar-
inn Ásgrímur Jónsson, var svo
lánssamur, að eiga heima í
barnsæsku sinni og unglings-
árum á þessum stað sem víð-
áttan er mjög mikil, enda
beindust augu listamannsins
snemma á unga aldri til fjar-
lægðarinnar í landslaginu,
því frá Rútsstaðahjáleigu,
blasti við honum daglega út-
sýni til allra átta. — í þess-
um sjónhring rís í vestri upp
frá hafinu, Hel'lisheiðin, en þó
fyrst Hlíðartáin, og Kvenna-
gönguhólar og miklu austar
Hengill og Geitafell, og Ing-
ólfsfjall, til norðurs á milli
þess og Búrfells, bera
Botnssúlur við himinn, aust-
FRÉTTIR
K.F.U.M. og K. Hafnarfirði:
Almenn samkoma á sunnudags-
kvöld kl. 8:50. Páll Friðriksson
og Sigursteinn Hersveinsson tala.
Allir velkomnir.
Ejósastofa Hvítabandsins, er
opin mánudaga, miðvikudaga og
föstudaga. Sími 21584.
Fótaaðgerðir fyrir aldrað fól-k
eru nú aftur í Safnaðarheimili
Langholtssóknar þriðjudaga kl.
9 — 12. Vegna mikillar aðsóknar
gjörið svo vel að hringja í síma
34141 mánudaga kl. 5 — 6.
Langholtssöfnuður. Spila- og
kynningarkvöld verður í safnað
arheimilinu sunnudagskvöldið 23.
janúar kl. 8. Mætið stundvíslega.
Safnaðarfélögin.
Þorrablót Kvenfélags Keflavík
ur verður laugardaginn 29. janú-
ar í Ungmennafélagshúsinu kl. 8.
stundvíslega. til skemmtunar
söngur, leikþáttur og fleira. Að-
göngumiðasala á mánudag og
þriðjudag hjá frú Steinunni Þor-
steinsdóttur, Vatnsnesvegi 21.
Nefndin.
Bræðrafélag Bústaðasóknar:
Fundur mánudagskvöld kl. 8.30
í Réttarholtsskólanum. Stjórnin.
Hjálpræðisherinn. Sunnudag
kl. 11 talar majór Ona. Kl. 20:30
talar Auður Eir Vilhjálmsdóttir,
cand. theol. Allir velkomnir. Kl.
14 Sunnudagaskóli.
Kristniboðsfélag karla í Reykja
vík. Fundur mánudagskvöldið 24.
jan. kl. 8.30. ' --ðlimir komi með
sparibaukana.
Húsmæðrafélag Reykjavíkur:
Fræðslufundur verður í Odd-
fellowhúsinu niðri miðvikudag-
inn 26. jan. kl. 8.30. Húsmæðra-
kennari sýnir fræðslukvikmynd
þeirra bræðra og hefur hann
málað hana 1909.
Ásgrímur var fæddur í
Rútsstaðahjáleigu í Gaul-
verjabæjarhreppi í Flóa. Jón
lýsir staðliáttum þeim, sem
sjást á myndinni á þann veg,
að bærinn lengst til vinstri
séu Rútsstaðir, en framan við
þá er Suðurkot, .þar sem þeir
bræður voru fæddir. Til
ur sér yfir Kálfstinda, og
fjöllin sem eru upp af Laug-
ardal og Biskupstungum,
Högnahöfði Hlöðufell og Þór-
ólfsfell. — Einnig má þar til
nefna Heklu, fjalladrotning-
una, eins og hann sjálfur
kallaði hana, en fyrir sunnan
hana eru fjöll og jöklar í
mikilli röð. Tindafjallajökull
o. fl. en suður í hafi rísa Vest
mannaeyjar. f þessum faðmi
fjalla blárra ólst listamaður-
inn upp. — Að ofan við bæ-
inn Hróarsholt er dálítill ás,
en syðst á honum heita Hró-
arsklettar mjög hugstætt varð
Ásgrími huldufólkið í Hróars
holtsklettum, og kirkja þess
þar í hamrinum, og af þess-
um klettum gerði hann ein-
hverja fyrstu mynd sína úr
leir og grjóti, svo urðu þær
alllöngu síðar uppistaða í eins
konar þjóðsagnamynd. Ás-
grímur segir í minningum sín
Skagfirðingar — Siglfirð
ingar, Keflavík
Hef opnað nýlendu- og mat
vöruverzlun í Smáratúni 28
Keflavík, undir nafninu
Smáraborg. Sími 1777. —
Sigfús Þorgrímsson.
Keflavík
Hið margumtalaða og eftir
spurða kínverska hunang
og rótarsafi, nýkomið. —
Smáraborg, sími 1777.
Keflavík
Rauðar íslenzkar úrvals
kartöflur í heilum og
hálfum pokum.
Smáraborg, simi 1777.
hægri yzt á myndinni heitir
Brenna, en Súluholtsverfi í
þar næst. í fjarska á miðri
mynd er Vesturkot í Súlu-
holtshverfi.
1 Suðurkoti má sjá frá
vinstri: fjósið, búrið, bæjar-
dyrnar, baðstofuna og
skemmuna. Kálgarðurinn er
fyrir framan.
um: „Þessir fögru og unaðs-
legu klettar, sem blöstu við
augum minum hvern morg-
un, þegar ég kom á fætur,
höfðu til að bera seiðandi
aðdráttarafl, sem lét mig
aldrei í friði, í huga mínum
fengu þeir yfir sig dularfull-
an ævintýraljóma, sem
greindi frá öllu öðru lands-
lagi, sem ég þekki. En ég
kannaðist því betur við þetta
hugnæma umhverfi úr þjóð-
sögunum, sem ég hafði
lesið, eða heyrt á vöks
unni og flestar fjölluðu
um útlegumenn eða álfaslóð-
ir“. — Að mála þjóðsagna-
myndir þarf bæði skáldgáfu
og snild þetta hefir Ásgrími
tekist svo vel að furðu sætir
og munu myhdir þær sem
birtar verða hér í blaðinu
verða sjón sögu ríkari.
um frystingu matvæla og fleira.
Einnig verða sýnd ýmisskonar
eldhúsáhöld og ílát til matvæla-
geymslu í írystikistur. Hinar
margeftirspur .u „grill“-uppskrift
ir verða seldar á fundinum.
Systrafélag Keflavíkurkirkju
heldur fund í Æskulýðsheimil-
inu mánudag 24. jan. kl. 8:30.
— Stjórnin.
Prentarakonur- Spilafundur
verður í félagsheimili prentara
mánudaginn 24. jan. kl. 8:30.
stundvíslega. — Stjórnin.
Fíladelfía P 'ykjavík: Almenn
samkoma sunnudag kl. 8:30.
Ræðumenn: Guðmundur Markús
son og Þorsteinn Einarsson. Safn-
aðar samkoma kl. 2. Bænasam-
koma kl. 2. Bænasamkomur
mánudagskvöl ’ og svo hvert
kvöld vikunnar, kl. 8:30.
Kristileg samkoma verður hald
in í samkomusalnum Mjóuhlíð
16 sunnudagskvöldið 23. janúar
kl. 8. Allt fólk hjartanlega vel-
komið.
Kvenfélag Hallgrímskirkju
heldur fund þriðjudagskvöldið 25.
jan. í Iðnskólanum kl. 8.30.
Spilafundur. Mætið stundvíslega.
Stjórnin.
Á sunnudag kl. 5 flytur
Jóhann Þorvaldsson trúboði
frá Nigeriu erindi í Aðvent-
sá NÆST bezti
Einar Benediktsson var eitt sinn á gangi á götu í Reykjavík og
mætti þá piparmey, sem var að koma úr Gróðrarstöðinni með fang-
ið fullt af rófum.
Þá segir Einar:
„Það verður ekki sagt um yður, fröken Finsen, að þér berið ekki
ávöxt“.
kirkjunni. Sýnir auk þess lit-
skuggamyndir frá Nigeriu.
Allir eru velkomnir.
Fíladelfía, Reykjavík. Bæna- 1
samkoma hvert kvöld vikunnar
kl. 8.30.
Kvenfélag Neskirkju býður
eldra fólki í sókninni í síðdegis-
kaffi í félagsheimili kirkjunnar
sunnudaginn 23. jan. kl. 3 að
lokinni guðsþjónustu. Stjórnin.
Sunnudagaskólar
Sunnudagaskólar K.F.U.M. og K.
í Reykjavík og Hafnarfirði hefj-
ast kl. 10:30 á hverjum sunnu-
dagsmorgni í húsum félaganna.
Öll börn eru velkomin.
Sunnudagaskólinn í Betaniu,
Laufásveg 13 er alla sunnudaga
kl. 2. öll börn velkomin.
Fíladelfía
Sunnudagaskólar eru hvern
sunnudag á þessum stöðum kl.
10:30. Hátúni 2, Hverfisg. 44 og I
Herjólfsg. 8. Hafnarf. öll börn |
hjartanlega velkomin!
Stmnudagaskóli Iljálpræðis-1
hersins: Öll börn velkomin á !
sunnudag kl. 2. Verðlaunum verð |
ur úthlutað á sunnudaginn.
Keflavík
Sendum heim.
Smáraborg, sími 1777.
Lítil íbúð
eða gott herbergi með baði,
óskast strax fyrir einhleyp
an verzlunarmann. Há mán
aðargreiðsla, þó ekki fyrir-
fram. Uppl. í síma 33622,
kl. 9—12 alla virka daga. ^
Göt í eyrun
Verð stödd hér á landi til
3. febr. Notið tækifærið og
fáið göt í eyrun fyrir
eyrnalokka. Pantið í síma
3-59-49.
Tvær stúlkur
óska eftir vinnu, helz.t á
sama stað. Upplýsingar í
síma 37194.
Miðaldra maður
óskar eftir léttu starfi. —
Laghentur. Hef meirapróf.
Tilboð sendist Mbl. merkt:
„12—8315“.
Volkswagen ’58—’60
óskast. Tilboð um verð,
greiðsluskilmála og ástand
sendist fyrir 25. þ.m. til
Mbl. merkt: „VW—83*14“-
Svefnbekkir kr. 2.300,00
nýir, gullfallegir svefnsóf-
ar, kr. 3.500,00. Úrvals
tizkuáklæðf. Sófaverkstæð
ið, Grettisgötu 69. Opið til
kl. 9. Simi 20676.
Flugfreyjur
Áríðandi fundur verður haldinn hjá Flugfreyjufé-
lagi íslands sunnudaginn 23. jan. að Bárugötu 11
kl. 3 e.h. — Mætið stundvíslega.
STJÓRNIN.
Ford umboðið
Sveinn Egilsson hf
Rafgeymar í enska Ford bíla.
Loftnetsstengur, læstar.
Hvítir felguhringir 13 og 14 tommu.
Framlengingar á pedala fyrir
kennslubifreiðar.
Leigubifreiðarstjórar
athugið
Tökum að okkur allar alm. viðgerðir.
Höfum opið frá kl. 8 — 22.
Reynið viðskiptin.
Bifreiðaverkstæði
SIGURÐAR HARALDSSONAR
Skjólbraut 9, Kópavogi.
Steikarpanna
fyrir mötuneyti
óskast strax. Tilboð sendist afgr. Mbl.
merkt: „Steikarpanna — 9510“.
Tjarnarkaffi —
Keflavík
vantar frammistöðustúlku og aðstoðar-
stúlku. Helzt vanar. — Frítt húsnæði og
fæði. — Sími 1282.