Morgunblaðið - 23.01.1966, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 23.01.1966, Blaðsíða 25
! Sunnuðfagttr 23. janúar 1966 MORGUNB LAÐIÐ 25 Svona er Mireille þegar sólin skin. Arftaki Edith Piaf Fyrir tæpum sex vikum var, Mireille Mathieu bara ósköp venjuleg ung stúlka suður . í Avignon í Frakklandi og hafði | nógu að sinna alla daga utan skólatíma þar sem voru yngri systkini hennar, tólf talsins. Það þarf töluvert til að halda aga í slíkum systkinahóp að Mireille var orðin ótrúlega raddsterk og dálítið hás eftir áralanga bar- átu við „tólf óþekka anga“, eins og segir í kvæðinu. Það heyTðist líka betur í henni en í flestum félögum henn ar í óperukórnum, sem hún söng heima í Avignon og þótti sum- um nóg um raddstyrkinn og hentu á lofti orð eins og Wagn- og valkyrju. Slíkt og þvílíkt fór þó ekki hátt — því Mireille er ekki nema hálfur annar metri á hæð og þyngdin aðeins 43 kíló og fátt um valkyrjur í þeim þyngdarflokki. En þegar Mir- eille raulaði dægurlög svona að gamni sínu vöknaði mörgum fullorðnum um augu og minnt- ust Edith Piaf, frægustu vísna- söngkonu Frakka sem lézt 1963 aðeins 47 ára gömul harmdauði öllum löndum sínum. Svo komu einhverjir sjón- varpsmenn suður til Avignon á dögunum til að taka upp þáttt um tónlistina og unga fólkið í Frakklandi og einhvern veginn varð það úr að Mireille hlypi undir bagga með þeiim og syngi þar eitt lag. Þátturinn kom í sjónvarpinu 21. nóvember síðast liðinn, og nú veit hvert manns- barn í Frakklandi hver Mireille Mathieu er Þeir sem til þekkja segja að þessi nítján ára gamla stúlka með djúpu röddina — sem minn ir á hunang'og hnetur, djúp og dálítið hrjúf og með suðurfrönsk um hreiim — sé verðugur arf- taki hinnar heittelskuðu Edith Piaf. „Hana vantar bara sorgina, lífsreynsluna," sagði einn gam- all aðdáandi Piaf sem heyrði Mireille syngja fyrsta sinni. „Og lífið verður fljótt að ráða á því bót, tijúi ég“. Eins og er leikur þó allt í lyndi fyrir hinum nýuppgötvaða arftaka „Spörfuglsins“ fræga. Mireille syngur nú í París og hefur á prjónunum áform um að fara vestur um haf einhvern tíma bráðum. Hún hefur látið klippa sig eftir nýjustu tízku og klæðir sig í Courreges-stíl — en JAMES BOND —>f— ~>f —>f— Eftir IAN FLEMING Ó, það er dásamlegt, að vera aftur orð- ln hrein. Það er komið að þér núna, James. Mér líður líka vel eftir þessa máltíð. Honey, það er ekki siður, að ganga svona um! Ég er bara að velja mér einn af þessum Kimonoum, James. Mundir þú vilja hafa mig í hvítum, með bláum fuglum á? J Ú M B Ö --K—< —-V— —-k— —-------K— Teiknari: J. M O R A — En það er ennþá eitt, sem þú hefur ekki gefið mér svar við, Fögnuður, sagði Júmbó. — Hvers vegna lagðir þú líf þitt í hættu til þess að bjarga mér úr höndum smyglaranna? — Nú, mér líkaði svo vel við þig, að ég gat ekki hugsað mér, að enúa við þér bakinu á örlagastund, svar- aði Fögnuður. — Þakka þér fyrir, sagði Júmbó hrærð- ur, — þetta var fallega gert. En hvað heldurðu að við verðum lengi hér á eynni? — Yfirboðari minn ætlar víst að láta okk- ur dveljast hér yfir veturinn, sagði Fögn- uður dapur í bragði. * — Allt í lagi. Veturinn er langur, og við verðum þá strax að hefjast handa um að safna eldiviði til þess að eiga yfir veturinn. — Já, veturinn er langur, tautaði Fögn- uður. — Ég er þó alltaf heppinn að eiga nóga vindlinga. \PIB' ^VIKSJÁ Fröðleiksmolar til gaans og gamans Ravidat, fengið þá hugmynd, að þeir ættu að líta nánar á litla gjótu á ákveðnum stað, sem hafði komið, þegar tré var rif- ið þar upp með rótum fyrir 30 árum . Gömul kona, sem eitt sinn hafði grafið múldýr í holunni og lá alla leið að höll- holunni hafði sagt frá gangi sem átti upptök sín í holunni, og lá alla leið að höll inni við Lascaux-hæðina. Það var enginn vandi að stökkva einn meter ofan í holuna, en þaðan hélt gangurinn áfram og þrengdist mjög næstum því lóð- réttur í jörðinni. Litlir steinar sem skoppuðu niður, virtust aldrei ætla að ná botni, og ljós- kerið, sem Marcel hafði lýsti ekki niður. En Marcel lét sig óhikað renna niður, og er hann komst til botns kallaði hann á hina og kveikti á lugtinni aftur. jorir drengir finna helli. Þegar fjórir 15-18 ára gamlir drengir voru að leika sér þann 12. sept. 1940 í héraðinu kring- hm litla bæinn Montignac í Suð- vesutr-Frakklandi, — Dordogne, baföi hinn elsti þeirra, Maroel . . . . en þegar kvöldar skiptir hún um ham. þegar hún kemur farm á sviðið í Olympía í svarta kjólnum og syngur „La Vie en rose,“ eða „Je ne regrette rien‘ ‘er eins og Edith Piaf sé þar ljóslifandi komin. Það finnst að minnsta kosti löndum hennar, sem flykkj ast í Olympía svo þar er hús- fyllir öll kvöld. Tvær konur hittust á götu. Önnur sagði: — Nú er ég skilin við mann- inn minn. — Hvers vegna? — Hann reykti alveg eins og skorsteinn, og ég sagði loks við hann að nú yrði hann að velja milli mín- og sinnar súru pípu. — Og það gerði hann. Roskin vingjarnleg kona gaf sig á tal við litla stúlku. — Hvað ertu gömul, spurði gamla konan. — Fjögra ára, svaraði sú litla, en verð bráðum fimm. — Og hvenær er það. — Þegar ég á afmæli, auðvit- að. Piparsveinar vita meira um konur en þeir kvæntu. Það er á- stæðan fyrir því, að þeir kvæn- ast ekki. — Þegar ég var skorinn upp um daginn, skildi læknirinn inn í mér heilan svamp. — Og hefurðu ekki fundið fyrir neinum óþægindum? — ó|á, ég verð stundum svaka- lega þyrstur. Maður nokkur fór í kvik- myndahús og sat fyrir framan kærustupar, sem ræddist svo á- kaflega við, að hann heyrði ekki, hvað sagt var í kvikmynd- inni. Hann sneri sér að þeim og sagði: — Eg heyri bara ekki eitt ein- asta orð. — Það er heldur ekki til þess ætlazt, svaraði pilturinn. — Ég er að ræða einslega við stúlk- una mína.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.