Morgunblaðið - 17.02.1966, Side 4
4
MORGU NBLAÐIÐ
Volkswagen 1965 og ’66.
RAUÐARÁRSTÍG 31
SÍMI 22022 ,
BÍLALEIGAN
FERÐ
Daggjald kr. 300
— pr. km kr. 3.
S/Af I 34406
SENDUM
LITL A
bílaleigan
Ingólfsstræti 11.
Volkswagen 1200 og 1300.
BIFREIÐALEIGAN
VAKUR
Sundlaugav. 12.
Daggjald kr. 300,00
og kr. 3,00 pr. km.
Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
BfLAR
Höfum kaupendur að:
Simca ’63—’64.
Comet eða Falcon ’60 eða
yngra.
Volkswagen ’62—’63.
Chevrolet ’65 í skiptum fyrir
Cortina ’65.
Jeppa ’46—’47 o. fl.
Til sölu m. a.:
Frambyggður Willys ’65 með
húsi, talstöð o. fl.
Volkswagen ’61.
Bílasalan Billinn
Höfðatúni 4. Sími 21522.
Málflutningsskrifstofa
Sveinbjörn Dagfinnsson, hrL
og Einar Viðar, hrl.
Hafnéirstræti 11 — Sími 19406,
Höfum flutt verzlun vora og
verkstæði að
LÁGMÚLA 9
Símar:
38820 (Kl. 9—17)
38821 (Verzlunin)
38822 (Verkstæðið)
38823 (Skrifstofan)
Bræðurnir Ormsson hf.
Vesturgötu 3, Lágmúia 9.
Sími 38820.
■fc Skipasmíði
íslenzkum skipasmíðum
virðist nú vera að vaxa fiskur
um hrygg. Unnið er að smíði
fiskiskipa víða um land og von-
andi verður þess ekki langt að
bíða, að Íslendingar geti sjálfir
srniðað öll sin fiskiskip og
meira til.
i>egar nýja stálskipinu var
hleypt af stokkunum norður á
Akureyri á þriðjudaginn, var
það skírt úr sjó, en ekki kampa-
víni, eins og jafnan hefur tíðk-
azt. Ekki veit ég hvort það er
vegna þess, að eigendur eru
bindindissinnaðar og hafa
fremur trú á sjónum en vín-
inu. Ýmsir munu sennilega
mæla með sterkum bjór við
sl'ík iaekifæri.
Hótel úti á landi
Á síðasta ári fjölgaði
þeim ferðamönnum, sem hing-
að lögðu leið sína, stórlega —
og má búast við, að sú þróun
haldist einnig á þessu ári þrátt
fyrir allt. Ég segi þrátt fyrir
allt — af því að verðlagsþró-
unin hér á landi hefur verið sl,k
undanfarin ár, að vax'tarmögu-
leikarnir í þessum atvinnuvegi
eru orðnir mjög takmarkaðir.
Það, sem m.a. hefur au’kið
ferðamannastrauminn 'hingað
verulega á síðasta ári, er eins
dags dvölin, sem Loftleiðir
bjóða farþegum sínum á leið
yfir hafið. Hefur þessi fjöldi
verið takmarkaður (hverju
sinni við getu Hótel Sögu til
þess að taka á móti ferðafólk-
inu. Nú opna Loftleiðir sjálfir
hins vegar nýtt hótel og þurfa
að fylla það. Hefur félagið þeg-
ar byrjað herferð, sem miðar
að því að tryggja rekstur hótels
ins — og þegar ég hitti Sigurð
Helgason, forstöðumann New
York skrifstofu félagsins, um
helgina, sagði hann, að horf-
urnar væru ágætar.
Með opnun þessa nýja hóteLs
eykst hóteliými í hötfuðþorg-
inni verulega. Næsta átak á
þessum sviðum þarf að gera úti
á landi. Bifröst í Borganfirði
hetfur fyrir löngu sannað ágæti
sitt — og við þurfum fleiri slík
hótel: Húsnæði, sem nýtist að
vetrinum til skólahalds — og
leysir gistivandræðin að sumr-
inu.
Fyrirhugað er að reisa
menntaskóla á ísafirði — og
heimavist í sambandi við hann.
Hér er kærkomið tækiifæri til
þess að byggja í leiðinni mynd-
arlegt suimarhótel. Af þeim er
ekki af margt á Vestfjörðum
— og sama ætti að hafa í huga
við skólabyggingar annars
staðar á landinu.
Pósturinn
Stöðumælagjöld hækka
um þessar mundir — og við því
er sjálfsagt ekkert að segja.
Hví skyldu þau ekki hækka
eins og allt annað? Helmings
hækkun er þó öllu stærra skref
en við eigum að venjast, en við
eigum víst enga slegna mynt
mitt á milli einnar króna og
tveggja króna — og það hlýtur
að ráða.
Annars skiptir það yfirleitt
ekki öllu máli, hvort maður
greiðir eina króna eða tvær
krónur — ef hægt er að fá
stæði á annað borð.
Hvergi er erfiðara að fá
bílastæði en við Póstlhúsið í
Austurstræti. Þangað á geysi-
legur fjöldi fólks erindi — og
fyrirtæki, sem senda mikið í
pósti, ég tala nú ekki um út-
gáfufyrirtækin, eiga í stöðug-
um erfiðleikum. Töluvert batn-
aði ástandið eftir að blaðamót-
takan fluttist inn í Umferðar-
miðstöðina, en samt leysti það
ekki allan vandann. Því fer
fjarri.
Á dögunum kom maður nokk-
ur að máli við mig — og hann
er einn þeirra, sem oift þarf að
bera blöð og tímarit í póstinn.
Hann sagði, að þjónusta Póst-
stotfunnar væri fyrir neðan all-
ar hellur. Eftir að innritaði
pósturinn fluttist út í Umferð-
armiðstöð verður að bera allan
annan póst, bverju nafni sem
hann nefnist, upp í almennu
atfgreiðsluna — og tímunum
saman — jafnvel dögum saman
— er ekki hægt að £á stæði fyr-
ir bíl hjá pósthúsinu á þeim
tímum, sem það er opið —
nema þá að hringsóla og bíða
færis tímunum saman.
Auðvitað á Pósthúsið að hafa
sérstök stæði fyrir viðskipta-
vini sína í miðbænum. Og etf
það getur ekki útvegað stæðin
— þá ber brýna nauðsyn til
þess að það opni aðra atfgreiðslu
einhvers staðar í miðbænum,
afgreiðslu, sem hægt er að aka
að. Það er ekki hægt að ætlast
til þess, að þeir, sem þurtfa að
koma heilu bílfönmunum í
póst sélflytji þá langar leiðir úr
bílum sínum. Viðskiptavinir
póstsins greiða það mikið fyrir
þjónustuna, að bæigt er með
góðri samvizku að kretfjaist
meiri tillitssemi og þjónustu atf
hálfu þessa opinbera fyrirtæk-
is, sagði maðurinn — og leyfi
ég mér að taka undir það.
Meginregla
Hér kemur eitt sjónvarps-
bréfið í viðbót — og vonandi
eru öll sjónarmið þar með
kynnt í þessum dálkum:
„Kæri Velvakandi.
Það er alger firra, að ís-
lendingum stafi meiri hætta af
bandarísku sjónvarpi, sem rek-
ið er hér á landi — en af
bandarisku eða annarar þjóðar
sjónvarpi, sem kæmi til okkar
um gervitungl. Hver er mun-
urinn, ef ég mætti spyrja? Eða,
skiptir það máli — hvar ein
og sama hljómplata er leikin?
Er ekki lagið alltatf það sama,
hvort sem platan er leikin í
Bandaríkjunum, á íslandi, eða
í Englandi? Etf við erum hrædd
við erlend áhrif frá stöðinni í
Ketflavík, ættum við ekki síður
að óttast erlendu áhrifin, þegar
tæknin gerir okkur fært að
taka við sjónvarpssendingum
frá öllum heimsins sjónvarps-
stöðvum.
Einu rökin, sem hægt er að
færa fram gegn bandarísku
sjónvarpi hér á landi, eru
byggð á „prinsip“, sem við
mundum þá e.t.v. setja okkur
sjálfir: Að á íslandi skuli að-
eins starfrækt íslenzkt sjón-
varp Allar fullyrðingar um
að tungan sé í hættu og menn-
ingin sé að deyja út á landinu
vegna bandarísks sjónvarps
eru út í hött. Þetta er fjas,
markleysa.
Hins vegar væri ekki óeðli-
legt, að við settum okkur
ákveðin „prinsip“ í þessu efni
sem öðrum — og ég man ekki
betur en að einn af ritstjórum
blaðs þíns, Veivakandi góður,
hatfi einmitt komið að þessu fyr
ir alllöngu í blaðinu. Þetta eru
einu synsamlegu rökin gegn
bandarísku sjónvarpi hér á
landi og þau komu fyrst fram
í þínu blaði.
Á sarna hátt mætti netfna, að
það er meginregla (prinsip)
hjá okkur að leyfa ekki erlend-
um þjóðum að hatfa neina út-
gerðaraðstöðu á Íslandi þótt að
það hindri á engan hátt, að
aðrar þjóðir stundi veiðar um-
hverfis landið — og í engu
minna mæli en þær gerðu, etf
þær hetfðu einhverja smáað-
stöðu hér í landi. Ekki er óal-
gengt að slfk aðstaða og margs
konar önnur til atvinnurekstr-
ar — sé veitt útlendingum í
ýmsum iöndum án þess að
tunga, menning, efnaihagur eða
önnur verðmæti séu talin í
bráðri hættu.
Lesandi í Austurbænum.“
Slæmir stólar
Og hér er bréf um bíó-
húsin:
Velvakandi!
Hve lengi á því kvikmynda-
húsi, sem hefur aðsetur sitt í
ljótum og leiðinlegum bragga
að haldast uppi að leigja hina
þröngu og óþægilegu bekki
sína á því okurverði, sem raun
ber vitni um? Allir Reykvíking
ar hljóta að hneykslast á því,
að það skuli kosta sa.ma að
fara á kvikmynöasýningu í
þessum 'kumbalda og t.d. í kvik
myndahús Háskólans. Um eld-
hættu og ótölulegan fjölda
ókosta ,,.hússins“ fjölyrði ég
ekki. B.H.“
^ Sjaldan
Næsti bréfritari er með
ábendingu, sem Velvakanda
hefur ósjaldan borizt:
„Kæri Velvakandi
Að marggefnu tilefni í dag-
blöðum og jafnvel bókum
(a.m.k. tvígefnu í Morgunblað-
inu í dag) langar mig til að
biðja þig að aðstoða mig við
að 'koma á framfæri lítilsháttar
tölvísi í þágu almennings og
sérstaklega í þágu sumra
þeirra sem rita í blöð og bæk-
ur. Það er leiðinlegt að sjá
hvernig jafnvel lærðir menn
ruglast í tiltölulega einfaldri
tölvísi og það á prenti.
Mætti ég því biðja þig að
birta eftirfarandi þrjár jöfnur,
sem ættu að vera a.m.k. öllu
meðalgreindu fólki auðskildar:
sjaldan = sjaldan,
ósjaldan = ekki sjaldan,
ekki ósjaldan = sjalöan.
Eins og þessar jöfnur bera
með sér, er frá tölvísisjónar-
miði, orðatiltækinu „ekki
ósjaldan" <xf aukið í íslenzku
máli.
Vinsamlegast.
„Töl vis.“
★ Þjóðaratkvæði
Loks er hér stutt brétf um
hægri og vinstri:
„Til Velvankanda.
Ég vil taka mér penna f
hönd og skrifa þér í fyrsta
sinn. Það er ekki kvörtun, því
ég er ánægð með tilveruna yfir
leitt. En breytingu úr vinstri
akstri í hægri finnst mér tíma-
bært að mótmæla. Þau rök
sem áhangendur hægri afcsturs
færa fram, eiga sér engar
stoðir.
Ég andmæli ekki vegna þess,
að erfitt sé að vikja til hægri,
Þeir sem dvalið hatfa t.d. í Dan-
mörku og það eru ekki svo fáir
landar, þeim hetfur ekki fund-
ist neitt effitt að hjóla til skóla
eða í vinnu hægra magin. (Hef
verið þar í 4 ár).
En við sem munum greiða
kostnaðinn eigum krötfu á þjóð-
aratkvæðagreiðslu um þetta
mál.“
^ Prentvillupúkinn
I bréfi frá Birni Indriða*
syni, sem birtist bér í dálkun-
um fyrir nokkrum dögum,
sagði, að Evrópubilar væru með
stillanlegum hjóliun. Hér átti
að standa óstillanlegum hjól-
um, en það er ósjaldan, að
prentvillupúkinn láti taka til
sín, þegar um ýmis framfara-
má'l er að ræða. Hann er greini-
lega á móti hægri handarakstrL
Vil ráða
járniðnaðarmenn
vana rafsuðu, til starfa við tankasmíðar nú þegar
Þeir sem hefðu áhuga á þessu starfi hringið í 51870
í kvöld og næstu kvöld eftir kl. 20 þar sem nánari
uppl. verða veittar.
Gamlar bækur
Næstu vikur seljum við mörg hundruð
gamlar, ódýrar, íslenzkar bækur —
Ýmsar fágætar.
Bókaverzlun Stefáns Stefánssonar
Laugavegi 8 — Sími 19850.