Morgunblaðið - 17.02.1966, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 17.02.1966, Blaðsíða 5
iTffTTffTiTiTfT Fímmtudagur 17. febrúar 1966 MORGUNBLAÐIÐ 5 ÚR ÖLLUM ÁTTUM Undanfarna daga hefur ver ið mikil veðurblíða í Reykja- vík, stillur og sólskin og ekki laust við að vorhugur kæmi í suma, og þá helzt í yngstu borgaranna. Við brugðum okkur á kreik um borgina, og fylgdust með leik barn- anna. Við skólanna voru mik- il læti í frímínútum. Stelp- urnar sungu hástöfum „bimbi rimbi bimm bamm“ og „hæs- inga læsinga lon don don“, en strákarnir litu á þær með Sumar voru stríðsmálaðar. Gréta með lengsta trefilinn í bænum. Börnin leika sér í gdða veðrinu fyrirlitningu og sögðu hand- bolta og fótbolta ólíkt skemmtilegri leiki Við Mið- bæjarskólann var mikið um að vera þegar við komum inn í portið. Við rákumst fyrst á telpnahóp sem var í djúpum samræðum. Það vakti athygli okkar var, að sumar þeirra voru eins og stríðsmálaðir indíánar. Við spurðum hverju þetta sætti, en fengum aðeins augngot- ur og fliss. Ein þeirra sagðist heita Gréta Reimarsdóttir og eiga lengsta trefilinn í bæn- um. Virtist það engar ýkjur, því báðir endar snertu jjörð. Er við ætluðum að ræða við þær nánar, var hringt inn og börnin flýttu sér að stilla sér upp í fallegar raðir áður en þau gengu til kennslustof- anna. Næst lögðum við leið okkar suður í Garðahrepp. Þar var hópur barna á skautum á ísi- lögðum voginum fyrir neðan skipasmíðastöðina Stálvík en •úti fyrir var dráttarbáturinn Magni að reyna að brjóta sér leið gegnum ísinn krökkunum til, mikils ama. En svo fór að lokum, að hann varð að hverfa frá, án þess að kom- ast alla leið. Varð við þetta mikil kæti meðal krakkanna, sem gátu nú leikið sér i friði fyrir öllum skipum. Á Álftanesi hittum við unga hestakonu, meira að segja kornunga. Við urðum al veg hlessa á þessu, stoppuðum bílinn og gengum í veg fyrir hana til að spyrja frétta. Stúlkan kvaðst vera fjögurra ára gömul, og heita Birgit Guðjónsdóttir, og vera alvön að fara í útreiðatúr þegar gott væri veður. Ekki leið á l'ingu þar til við fengum skýr ingu á þessu, því að í sama Kornung hcstakona mund kom móðir hennar frú Hedi Guðmudsson. En hún er þaulvön hestakona og er í þann veginn að setja á stofn reiðskóla þarna út á Álfta- nesi. En víst er að margir jafnaldrar Birgitar munu öf- unda hana af þessum forrétt- indum hennar. Húsnæði óskast 3 herbergi og eldhús, há leiga í boði, góð umgengni. Má vera í Kópavogi eða Hafnarfirði. Þarf að vera laust 1. apríl. Tilboð merkt: „Apríl — 8650“ sendist fyrir 20. febrúar til Morgunblaðsins. LOGl GUÐBRANDSSON héraðsdómslögmaður Laugavegi 12 — Sími 23207. Viðtalstími kl. 1—5 eJi. Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu Hh ■ RAUÐI KROSS ISLANDS Reykjavíkurdeild • • Oskudagssamkvæmi að Hótel Sögu 23. febrúar n.k. kl. 19,30 til ágóða fyrir hjálpar- starf Rauða krossins. Aðgöngumiðar fást í skrifstofu RKÍ, sími 14658. — Pantanir óskast sóttar sem fyrst. — Borðpantanir hjá yfirþjóni Hótel Sögu mánudaginn 21. febrúar kl. 16—18 sími 20221. Húsinu lokað kl. 20,30. — Samkvæmisklæðnaður. Heiðursmerki. Afgreiðslustulka Afgreiðslustúlka óskast í snyrtivöruverzl- un um næstu mánaðamót. Tilboð sendist Mbl. fyrir 20. þ.m. merkt: „Snyrtivörur — 8622“. Notað timbur 2” x 6” og þakjárn t i 1 s ö 1 u . HeiBdverzlunin Hekla hf. Laugavegi 170—172 — Sími 2-12-40.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.