Morgunblaðið - 17.02.1966, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 17.02.1966, Blaðsíða 27
Fimmtudagur 17. febrúar 1966 MORGU NBLAÐID 27 — Ólafur Thors Framhald af bls. 28 ur Benediktsson, bankastjóri og Andrés Björnsson, lektor, sem einnig les stuttan formála og ‘kynnir ræðurnar. Einnig tóku fulltrúar Heimdallar þátt í vali á ræðum þeim, sem á plötunni eru. Ræðukaflar þessir eru all- ir til á segulböndum í útvarp- inu en það takmarkaði mjög val- ið, að Alþingi geymir ekki nema að takmörkuðu leyti ræður, sem þar eru teknar upp á segulbönd og sagði Haraldur Ólafsson, að það væri vissulega mjög slæmt, að ekki væru varðveitt segulbönd með umræðum um meiri háttar málefni á Alþingi. Framhlið plötuumslagsins teiknaði Haf- steinn Guðmundsson, en platan er framleidd hjá His Master’s Voice í Bretlandi og verður sett á sölumarkað erlendis og þó sér- staklega í Ameríku. Ákveðið hefur verið að stilla söluverði plötunnar mjög í hóf eða kr. 276.00 en venjulegt verð á slíkum plötum er kr .325.00. Heimdallur mun hins vegar selja félagsmönnum sínum plötuna við hálfvirði. Haraldur Ólafsson kvaðst vona, að þessi útgáfa yrði Ihinum mörgu aðdáendum Ólafs Thors kærkomin og halda á lofti minningu eins mikilhæfasta stjórnmálarhanhs og ræðuskör- ungs íslendinga. í umsögn Bjarna Benediktsson- er á bakhlið plötuumslagsins seg- ii' hann m.a.: „Platan er vissulega verðmæt söguleg heimild, því að mikið vildu menn gefa til að eiga slíkt safn ræðuskörunga fyrri tíðar. Samt er þetta safn einungis svip- ur hjá sjón miðað við að hlýða á Ólaf Thors sjálfan, því að bezt fókst honum upp, þegar hann varð að standa fyrir máli sínu í hörðum deilum á fjölmennum fundum, þar sem ekki mátti á milli sjá, hver úrslit mundu verða. Ég veit engin dæmi þess, að þá hafi Ólafur ekki gengið með sigur af hólmi. Hann hreif áheyrendur með sínum eld- snöggu tilsvörum og samblandi glettni og þunga óhagganlegrar rökfærslu. Ræða hans varð aldrei köld, heldur vermd af tilfinninga hita öruggrar sannfæringar manns, sem bar af um glæsileik og flutti mál sitt af meiri þrótti en flestir aðrir. Endurminning þessa lifir í hugum og lýsingum þeirra, sem það sáu og heyrðu. En bæði þeir og ótal aðrir munu gleðjast yfir að mega enn á ný heyra rödd hins ástsæla þjóðskör ungs, þegar hann á efri árum leit yfir farinn veg þjóðarinnar, lýsti fyrri forustumönnum hennar og flutti henni hollráð, byggð á ó- brigðuilli góðvild og reynslu langrar ævi.“ — /Jbróttir Frh. af bls. 26 Fram ,— Víkingur 12:9 Þetta var spennandi leikur og efalítið skemmtilegasti leikur helgarinnar fyrir utan lands- leikinn. Þarna sáust í Víkingslinðinu þeir Pétur Bjarnason, Rósmund ur Jónsson og Björn Kristjáns- son dómari. Með Fram léku meðal annars landsliðsþjálfar- inn Karl Benediktsson, og lands- liðskappinn Ingólfur Óskarsson ásamt fyrrverandi fyrirliða meistaraflokks Hilmari Ólafs- syni. Þetta eru efalítið sterkustu liðin í A-riðli I. flokks. — Áfengislöggjöf Framhald af bls. 28 líflegustu, enda uppi í áfengis- málunum miklar deilur um þess ar mundir, m. a. vegna ölfrum- varpsins og tollreglugerðar þeirrar, sem taka mun gildi um næstii mánaðamót, og gerir ráð fyrir því að farmenn megi taka með sér sterkt öl í lamd, en flug- áhafnir hinsvegar ekki. Aðgangur að fundinum er öll- um heimill meðan húsrúm leyf- ir, en fólki er bent á að koma tímanlega ef það vill tryggja sér sæti. (Frá Stúdentafélagi R.-víkur). Þessl mynd er frá Hanoi kom in um Austur Berlín. Hún sýnir að sögn bandarískan flugman n, Wilmer N. Grubb, kaptein, sem skotinn var niður yfir N orður Vietnam. í textanum frá Hanoi segir, að hér búi herm aður N-Vietnam um sár banda- riska flugmannsins. Þrjár nýjar bækur frá Isafoldarprentsmiðju Aristómenes-rímur Sigurðar Breiðfjörðs, þýdd ljóð eftir Þórodd Guðmundsson og Leskaflar fyrir lítil börn ÍSAFOLD sendir frá sér þrjár bækur i þessari viku, Aristómen- es-rímur, eftir Sigurð Breiðifjörð, Þýdd ljóð frá 12 löndum eftir Þórodd Guðmundsson og Les- kafla fyrir lítil börn. Aristómenes-rímur eru 5. bindi í rímnasafni Sigurðar Breið- fjörðs, sem ísafold gefur út. Sveinbjörn Beinteinsson sá um útgáfuna, en Jóhann Briem gerði myndir með rímunum. — Svein- björn Beinteinsson segir svo m.a. í inngangi: „Ariistómenesar rímur eru fjölbreyttar að brag- arháttum og eru næsta mörg til brigði við hátt hverrar rímu. .....Víða bregður fyrir gaman semi í rímunum, einkum í man- söngvum, allt það gaman er fág- að og prútt eins í Númarímum. Auðséð er að Sigurður ihefur tek ið skáldskapinn alvarlega um þetta leyti, enda má víst segja að hann væri þekktasta ljóð- skáld þjóðarinnar um langt skeið og það vinsælasta......“ í ljóðabók sinni hefur Þórodd- ur Guðmundsson tekið til þýð- ingar ljóð m.a. eftir Yeats frá írlandi, Robert Burns frá Skot- landi, Dylan Thomas frá Wales, Blake frá Englandi, Pasternak frá Rússlandi, Överland frá Nor- egi, H.A. Djurhuus frá Færeyj- Kamplinfort, 16. febrúar NTB Fimm námamenn létu í dag lífið í kolanámu í V- Þýzkalandi, og 12 lokuðust inni, er sprenging varð í námu, sem er eign Krupp, í Rhurhéraði. Talsmaður Krupp segir, að líkur séu til þess, að innilok- uðu mcnnirnir 12 séu enn á lífi, en þeir séu á svo miklu dýpi, að tekið geti rúma tvo sólarhringa að ná til þeirra. Um 80 menn voru að starfi, er sprengingin varð. um og Runeberg frá Finnlandi, svo aðeins nokkrir séu nefndir. Leskafla fyrir lítil börn hafa gert Herdís Egilsdóttir og Sigríð- ur Soffía Sandiholt. Eru þeir ætl aðir börnum á fyrsta og öðru skólaári. Til þess að geta lesið þá, þurfa þau að hafa lært alla stafina, en þó er hver blaðsíða upprifjun á einum sérstökum staf. — Sjónvarpið Framhald af bls. 28. Fílharmoníukórsins fyrir hönd kórsins, framkvæmdastjóri Sin- fóníuhljómsveitarinnar fyrir sitt leyti og bíóstjóri fyrir hönd Há- skólabíós. En um morguninn sendi formaður Starfsmannafé- lags Sinfóníuhljómsveitarinnar útvarpsstjóra til undirskriftar eftirfarandi yfirlýsingu, áður en myndataka færi fram: Samkomulag Starfsmannafé- lags Sinfóniuhljómsveitarinnar heimilar hér með ríkisútvarpinu (sjónvarpinu) að taka hljóðlaus ar fyrirmyndir eða kvikmyndir af hljómsveitinni við flutning 9. sinfóníu Beethovens 15. febrúar 1966. Leyfi þessu fylgir ekki rétt ur til birtingar myndanna í sjón varp eða á annan hátt. Skal um þann rétt samið síðar.“ Útvarpsstjóri skrifaði ekki undir þetta og um kvöldið neit- uðu hljómsveitarmenn að láta taka myndina. Sjónvarpsmenn voru komnir á staðinn og höfðu mikinn viðbúnað, þar sem þessi myndataka, að kvikmynda 200 manns á stóru sviði, er það mesta, sem þeir hafa færst í fang. Höfðu þeir komið fyrir öllum sínum ljósaútbúnaði og höfðu fengið ljósabúnað frá Þjóðleikhúsinu og ljósameistara frá Iðnó og Þjóðleikhúsinu til aðstoðar. Mbl. spurði útvarpsstjóra, Vil hjálm Þ. Gíslason, um hans sjón armið í máli þessu. Hann kvaðst hafa litið svo á að það sem Steikarpannan hættu leg vegna blýinnihalds hafa borizt upplýsingar frá Bret- landi, sem rétt þykir að skýra al menningi hér á landi frá þegar í stað. 1 ljós kom fyrir allnokkru, að á markaði þar í landi var steikarpanna, sem í tinhúðun sinni hafði að geyma 54% blý. Brezka Stöðlunarstofnunin mæl- ir svo fyrir, að í tinhúðun eld- unaráhalda skuli vera egi minna en 99.75% hreint tin, og þar með ekki yfir 0.25% blý. Nú hafa nýlegar rannsóknir leitt í ljós, að blý er mun hættu- legra en áður hafði verið talið. Létu Neytendasamtökin brezku því kanna það, hvort fleiri steik- arpönnur kynnu að vera á mark aði, sem líkt væri ástatt um og hina ofannefndu. Fjórar gerðir fundust, sem höfðu tinlhúðun með 29.2—58% blýinnihaldi. Það skal skýrt tekið fram, að hætta sú, sem hér um ræðir, varðar eingöngu eldunarílát, sem eru gerð úr tinhúðuðu stáli (tinned steel). Blý í steikarpönnum er að því leyti hættulegt, sem blýið kernst í fæðuna. Til þess að kanna hættuna var tekið til við að spæla egg með svínafleski og tó- mötum á hinum fjórum pönnun- um og einnig soðin í þeim ensk pönnúkaka. Síðan var blýmagnið í matnum rannsakað. Hið sarna var gert með pönnur með óveru- legu blýinnihaldi. Blýið í matnum! Ekki fannst vottur af blýi i matnum frá hinum síðarnefndu. En frá pönnu með 29% blý í — Þögult vitni Framh. af bls. 1. Golmutsjok, að hann hefði lesið bækur Sinyavsky og Daniel. Er Golmutsjok var að því spurður, hvernig hann hefði kom izt yfir , bækur höfundanna tveggja, sagði hann, að „góður vinur sinn hefði fært sér þær.“ Bkki hefur verið frá því skýrt, hvenær mál Golmutsjok verð- ur tekið upp. þarna var um að ræða, væri eins og hver önnur frétta- eða blaðamyndataka. Og hann hefði ekki viljað skuldbinda alveg fyrirvaralaust útvarpið og sjónvarpið umfram það sem samningar standa til. Þetta væri svipuð kynning og fram hefði farið með myndum og textum í fréttum um hljómsveitina og flutning sinfóníunnar. Og í sam- bandi við leik væru til samn- ingar um að taka megi allt að 10 mínútna efni í kynningar- skyni. Þarna sé um að ræða lið í safni um merka atburði. En engan veginn sé verið að ve- fengja rétt manna til mynda, sem blrtar eru. Þá hafði Mbl. samband við Einar B. V/aage, formann Starfs mannafélags Sinfóníuhljómsveit arinnar. Hann sagði að í samn- ingum við ríkisútvarpið séu ákvæði um að útvarpið hafi ekki leyfi til að sjónvarpa frá Sinfóníuhljómsveitinni, hvorki myndum né tali. Og hljóðfæra- leikararnir vilji ekki leyfa myndbirtingu meðan ósamið sé við þá um hana. Grein sú í samningunum, sem átt er við, mun vera 16. greinin, sem hljóðar svo: „Af hálfu Starfsmannafélags Sinfóníu- hljómsveitarmanna er tekið fram, að hljómsveitarmenn hafi ekki með þessum samningi selt neinn rétt til sjónvarps eða hljóð varps í sjónvarpi á tónflutningi hljómsveitarinnar eða einstakra hópa innan hennar og gildi þetta bæði um beinan og vélrænan tónflutning. tinihúðunnni komust 2.2 milli- grömn" í pönnukökuna og 2.5 mgr. í eggið og svínafleskið. Og í matinn á pönnu með 41% blý ko<mst 5.9 mgr. í pönnukökuna og 4.1 mgr. í hitt. Þetta blýmagn hvort um sig er meira en óhætt er almennt talið að neyta af blýi daglega. Blý safnast fyrir í líkamanum, svo að margt lítið magn getur orðið að skaðlega stóru. Nú er örlítið magn af þlýi í mörgum fæðutegundum og nauðsynlegt er, að líkaminn fái sem minnst af því efni. Matvæla- nefnd heilbrigðismálaráðuneytis ins brezka áætlaði hámark 'hættulauss daglegs magns 1—2 mgr. 1954, en nýlegar rannsókn- ir benda til þess, að blý sé enn hættulegra en áður var talið, sér staklega fyrir börn. Auk hinna skaðlegu áhrifa á líkamann geti af mikið blýmagn í blóði taifið og truflað andlegan þroska barna. Hinar viffsjárverðu steikarpönnur Vegna hins sérstaka eðlis þessa máls skulu því birt nöfn þeirra pönnutegunda fjögurra, sem að ofan er getið og höifðu ískyggilega mikið blý í tinhúð- uninni: Judge-, Jury-, Thistle-og Victorpan. Vonandi hvorki eru né hafa þessar ponnur verið á mahkaði hérlendis, en þó gæti það skeð. Því er þetta birt. Og einnig til að vekja athygli selj- enda, innflytjenda og neytenda á því,að allrar varúðar er þörf í þessu efni, svo sem af þessu má læra. Pönnur, merktar: „pure tinned steel“, stóðuet til dæmus prófun brezku Neytendasamtak- anna. Ával'lt ber að gæta vel að vörumerkingu.m, sem upplýsing- ar gefa. Mætti í því sambandi mina á það baráttumál Neytenda samtakanna að lögskylda slíkar vörumerkingar að einhverju lá'gmarki. (Frá Neytendasamtökunum). — Boðað til Framhald af bls. 1. undanförnum mánuðum, t.d. í Indónesíu. Þá er talið vist, að öllum komm únistaflokkum heims, þ.á.m. þeim kínverska, verði boðið að sitja 23. flokksfund sovézka komm- únistaflokksins, sem hefst í Moskvu 29. marz. N-Vietnam hef ur þegar tilkynnt, að fulltrúi landsins muni sækja fundinn. Ekki er enn vitað, hvort Kína sendir fulltrúa, en gert er ráð fyrir, að margir þeirra erlendu fulltrúa, sem til máls munu taka, ráðist að Kínverjum. Komi kín- versk sendinefnd, leikur lítill vafi á því, að gerð verði hríð að „endurskoðunarsinnum". Ekkert liggur enn fyrir um, hvort eða hvenær ætlunin er að efna til alþjóðafundar kommún- istaleiðtoga, en heimildir í Moskvu herma, að það verði vart fyrr en að ári. - Færeyskt sjónvarp Framh. af bls. 1 hugun á möguleikum á þvi, aff komið verði upp færeysku sjónvarpi. Þá hefur fyrirtækiff Saturn f Vestmanna ákveðiff aff kaupa fyrsta skutttogara Færeyinga. Það er togarinn Kap Farvel, sem gerffur er út frá Ham- borg, og var byggður áriff 1963. Hann er 427 brúttó- tonn að staerff og er kaup- verðiff um 37 milljónir ísl. króna. Færeysku síldveiffiskipin hafa aff undanförnu aflaff mjög vel suffur af eyjunum, þar sem vart hefur orffiff stórra síldartorfa síffustu ár- in. arge.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.