Morgunblaðið - 17.02.1966, Síða 26

Morgunblaðið - 17.02.1966, Síða 26
26 MORGU N BLAÐIÐ Fimmtudagur 17. febrúar 196? x-ÍSSkSSRSW-: K***‘ W-Wfí * ' * .................... «lW ..:>: ■ Sexþrauiarkeppni KR. KR-ingar í 65 m. grindahlaupi inni NÆSTSÍÐASTA greinin, sem keppt var í á vegum KK-inga í sexþrautinni nafntoguðu, var ekki síður nýstárleg en fjórða greinin, 25 m hlaupið. Miðviku- daginn 9. febrúar fór fram keppni í 65 m grindahlaupi. — Hlaupið var eftir U-laga braut með tveimur grindum á hvorri langhliðinni, samtals fjórum. Beygjan var mjög kröpp, enda kom á daginn, að hún varð erfið- ust viðfangs og réði e.t.v. úrslit- unum að mestu leyti. Sigurvegari varð Ólafur Guðmundsson með nokkrum yfirburðum. Þetta er fyrsta grein þrautarinnár, sem hann hlýtur sigur í, en síðasta grein þrautarinnar mun verða 300 m hlaup. Sennilega hefur , aldrei verið keppt í svo löngu i hlaupi innanhúss hér á landi og verður fróðlegt að sjá hvernig slíkt tekst í framkvæmd. — Kannski fá íslenzkir ffjálsíþrótta menn bráðlega tækifæri til að reyna sig í hinni nýju og glæsi- legu íþróttahöll í Laugardal og e.t.v. reynist kleift að keppa í stuttum hlaupum þar, jafnvel millivegalengdum. Úrslit í 65 m grindahlaupi: sek. 1. Ólafur Guðmundsson 10.0 2. Björn Sigurðsson 10.4 3. Sigurður Björnsson 10.5 4. Úlfar Teitsson 10.6 5. Valbjörn Þorláksson 10.6 6. Trausti Sveinbjörnsson 10.7 8. Ólafur Sigurðsson 11.0 9. Nils Zimsen 11.8 10. Kóbert Þorláksson 11.9 Stigakeppni fyrir síðustu grein: 1. Valbjörn Þorláksson 10 stig 2. Ólafur Guðmundsson 21 — 3. Björn Sigurðsson 25.5 — 4. Nils Zimsen 35 — Körfuknattleiksmótið í kvöld: _ * KR og Armann mætast — og einnig IR og ÍKF ISLANDSIMÓTIÐ í körfuknatt- Jeik heldur áfram í kvöld, fimmtudaginn 17. febrúar, að Hálogalandi kl. 8,15. Þá fara fram tveir leikir í fyrstu deild, sem báðir hafa mikla þýðingu. Fyrri leikurinn verður. milli ÍR og ÍKF. Þeir ÍKF-menn hafa sýnt mikinn baráttuvilja og dugnað í mótinu hingað til, þótt ekki hafi þeim enn tekizt að bera sigur úr býtum. ÍR-ingar leika ekki með fullum styrk- leikar frekar en fyrri daginn, því einn sterkasti leikmaður mótsins, Birgir Jakobsson, slas- aðist á fæti fyrir skömmu og getur því ekki leikið með. Síðari leikurinn verður milli hinna gömlu keppinauta, Ármanns og KR. Alltaf hefur verið hörð keppni milli þessara liða og get- ur brugðizt til beggja vona nú sem fyrr um úrslit. Þrjú lið eru nú taplaus í mót- inu og lítur röðin þannig út: Ármann 2 leikir 4 stig ÍR 1 leikur 2 stig KR 1 leikur 2 stig * ÍKF 2 leikir 0 stig KFR 2 leikir 0 stig Eftir leikina í kvöld munu línurnar sennilega skýrast nokk uð og verður gaman að fylgjast með hverju fram vindur, því sjaldan hafa liðin í íslandsmóti verið eins jöfn að styrkleika og að þessu sinni. Keppnin hefst kl. 8,15. Á Akureyri hefur verið mikill og góður skíðasnjór og bæjarbúar notað sér það í ríkum mæli. Við Skíðahótelið hefur verið séð um skíðakennslu. Myndirnar eru teknar í skíðalandi Akur- eyringa, þar sem hvergi sér á dökkan díl — og þar sem f jöldi fólks nemur skíðalistina. Húsavík STÓRSVIG-FIRMAKEPPNI Völsungs fór fram í Húsavíkur- fjalli síðastliðinn sunnudag. 50 firmu tóku þátt í keppninni. 1. Varði h.f., keppandi Gísli Vigfússon 46.1 sek. 2. —3. Rafv.st. Arnljóts Sigur- keppandi Sigurður Hákon- arson 47.0 sek. 2.—3. Hlynur s.f. keppandi Þórhallur Bjarnas. 47.0 sek. Brautin var 700 m. löng, hlið 28. Veður og færi var ágætt og mikill fjöldi áhorfenda fylgdist með keppninni sem var mjög spennandi og aðeins sekúndu- brot skildu að fjölda keppenda. Keppt var um fagran silfur- bikar sem K. Þ. gaf til keppn- innar. Skíðaráð Völsunga sá um mótið. Kappleikir unga fólksins Hörkukeppni í yngri fl. kvenna og hjá „gömlu mönnunum" UM helgina fóru fram þrír leikir í II. flokki kvenna. Ármann — Víkingur 3:3 Þetta var nokkuð jafn leikur frá byrjun. Fyrsta mark leiksins skoraði Eygló fyrir Ármann, en Víkingsstúlkurnar jöfnuðu á sömu mínútu. Mínútu síðar kom ast Víkingsstúlkurnar yfir og var þar að verki Björg. Var nú barist á báða bóga og Ármanns- stúlkurnar greinilega ákveðnar að jafna metin, en það tókst ekki í fyrri hálfleik því á 10. og jafnframt síðustu mínútu fyrri hálfleiks tóks Björgu í Víking að skora þriðja mark ' Víkings. Staðan í hálfleik 3:1 fyrir Vík- ing, Ármannssstúlkurnar komu nú einbeittar til leiks og eftir að tvær mínútur voru liðnar af seinni hálfleik skorar Eygló annað mark Ármanns. Færðist nú harka og fum í leikinn. Vík- ingsstúlkurnar reyndu sem ákafast að bæta við mörkum en tókst ekki. Á 9. mínútu tókst Ármannsstúlkunum að jafna með marki af línu. Lauk þannig leiknum með jafntefli 3:3. Víkingsliðið er að sækja sig mjög mikið, þær áttu þarna prýðisgóðan leik þar til á síð- ustu fimm mínútunum. Beztar voru þær Björg, Arnfríður og að ógleymdri dömunni í marki. Ármannsliðið er einnig að sækja sig, en því miður treysta þær of mikið á skothörku Eyglóar, sem átti góðan leik. K.R. — Í.B.K. 4:2 K.R.-stúlkurnar byrjuðu á að skora fyrsta mark leiksins og var þar að verki Lóa sem er örvhent og er lagin við að skora mörk. Í.B.K.-stúlkunum tókst að jafna úr vítakasti, sem Vigga átti auðvelt með að skora úr. Á 7. mínútu misnota K.R.-stúlk- urnar vítakast, en Arndís kom K.R. yfir með fallegu marki af línu. Fleiri urðu mörkin ekki í fyrri hálfleik. Leikurinn var nokkuð jafn í byrjun seinni hálf leiks, en á 6. mín. taka K.R.- stúlkurnar af skarið og skorar Lóa þriðja mark K.R. af línu. Tveim mínútum síðar bæta K.R.-stúlkurnar við sig fjórða markinu og skoraði það fyrir- liði liðsins, Anna, af línu. Á síðustu mínútu leiksins skoruðu svo f.B.K.-stúlkurnar síðasta mark leikgins. Leiknum lauk því með réttlátum sigri K.R.-stúlknanna 4:2. K.R.-stúlkurnar áttu góðan leik, beztar voru þær Lóa, Arn- dís og Anna fyrirliði, ásamt markverði liðsins. Í.B.K.-stúkurnar léku ágæt- lega og eru nú orðnar rólegri í leiknum, bezt var Vigga. F.H. — Víkingur 1:7 Víkings-stúlkurnar unnu leik- inn með góðri markatölu sem ekki gefur þó nógu r-étta mynd af styrkleika liðanna. Víkingsliðið sækir sig í hverj- um leik, og er ekki vafi á því að þær eiga eftir að verða þeim liðum sem þær eiga eftir að leika við í mótinu erfiðir keppi- nautar. Með Björgu, Arnfríði og Guðrúnu í fararbroddi. F.H.-liðið var í leik þessum hikandi, en ég er sannfærður um að þær eiga margt betra til í pokahorninu, en kom fram i leik þessum. Því fyrsti leikur vetrarins er alltaf erfiður. Aðrir leikir sem fór fram um helgina, voru einnig margir hverjir spennandi. f I. flokki kvenna fóru fram þrír leikir og lyktaði þeim þannig. Valur — Ármann 8:2 Þetta var skemmtilegur leikur og komú þarna fram kunnugleg andlit í Ármannsliðinu, lands- liðskonurnar Rut Guðmunds- dóttir og Svana Jörgensdóttir ósamt Sigríði Lúthersdóttur. Valur — Fram 2:4 Framliðið var betra í leik: þessum og voru þetta réttlát úr- slit. Hinsvegar voru Valsstúlk- urnar óheppnar og létu verja frá sér tvö vítaköst. Víkingur — Ármann 4:7 Ármannsliðið lék betur og átti sigur skilið gegn ungu Vík- ingsliði. Þá fóru einnig fram þrír leikir í I. flokki karla. Þróttur — f.R. 17:9 Þróttararnir áttu ekki í nein- um vandræðum með Í.R.-ingana, sem léku slappan sóknarleik. F.II. — Haukar 18:8 F.H.-liðið sigraði nágranna sína Hauka með yfirburðum. Með F.H.-liðinu léku kunnir kappar svo sem Geir Hallsteinsson, Ólafur Thorlacius körfuknatt- leiksmaður, og Þórarinn frjáls- iþróttamaður. Frh. á bls. 27

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.