Morgunblaðið - 19.02.1966, Side 20

Morgunblaðið - 19.02.1966, Side 20
20 MORCU N BLAÐIÐ Laugar'dagur 19. febrúar 196í ^enni^er 1^4meó: Kringum hálfan hnöttinn Hr. Kudo gaf mér mánaðar- kaup í staðinn fyrir uppsögn. Mónaðarkaup! enöurtók hann. — I>að hossar nú vLst aldrei hátt. Og hvar getur maður á mínum aldrei fengið aðra atvinnu í Tokyo? Það er fjandans erfitt fyrir Bvrópumann að fá nokkurs staðar atvinnu! — Gaeti þér ekki diottið í hug að fara aftur til Englands, paWbi? Etfann hugsaði sig um sem snöggvast en hristi svo höfuðið. — Ég vil það bara ekki .... ef einhivernveginn verður hjá því komizt. í»ví að það þýðir sama sem, að ég verð að yifirgefa Yosiko. Hann bætti við og rödd- in eins og baðst meðaumkunar: — Þú skilur .... ég elska Yos - iko, Clothilde. — Gætirðu ekki gifzt henni og tekið hana með þér? Hann andvarpaði. — Ég er hræddur wn ekki. _ Hún er ómyndug og alveg í klónum á Mamma-san, sem hefur kennt henni. Ef hún vill sleppa frá henni, verður hún að endur- greiða allt, sem til hennar hefur verið kx>stað síðan hún kom þarna fynst, þrettán ára gömul. Ég hef verið hálf-óstöðugur í rásinni, alla tíð, eins og þú veizt. Það var það, sem hiún mamma þín gat aldrei þolað og ég lái henni það ekki. En á seinni árum er ég farinn að spekjast. En bara of seint til þess að geta lagt nokkuð fyrir. Eftir að ég hef greitt mömmu þinni það, sem henni ber, er það rétt svo, að ég hef haft til hnífs og skeiðar. Heather hjálpar mér með leig- una fyrir húsið. Ég efast um, að að ég hefði getað komdzt af áfram, eftir að hún væri gift. Og það ketmur ekki til mála, nema eitthvert kraftaverk gerizt, svo að ég nói mér í aðra atvinn-u, ekki lakari en hjá Kudo. Hann var svo niðurdreginn, að hún vildi ekki anigra hann með sínum eigin áhyggjum og ótta. — Fáðu þér eitt glas, pahbi, sagði hún. — Ég skal svo ná í mat handa okkur báðum. Heath- er skildi eftir boð um, að hún ætlaði að borða úti með Min- ouru. Ég sá einhverja steik í kæliskápnum. Ég er nú hrædd um, að ég geti ekki búið til neinn japanskan rétt handa þér, en ég get þó alltaf steikt kjöt — Ég er ekkert svangur, sagði hann, en bætti svo við: — Finnst þér ég ætti að segja Yoshiko þetta í kvöld eða sjá til fyrst, hvort ég get náð mér í nokkra BÉLAR Volkswagen ’65 — Volvo ’64 ekinn 15.000 km. Bronco ’66, verð kr. 210.000. Skipti koma til greina. Söluumboð fyrir Trabant bifreiðar. Nokkrir bílar fyrirliggjandi. Greiðsluskilmálar. BÍLASALA GUÐMUNDAR Bergþórugötu 3 — Símar 19032 og 20070. Akranes Húsið nr. 27 við Laugarbraut á Akranesi er til sölu. Á efri hæð er 5 herbergja íbúð, en á neðri hæð 3 herbergja íbúð. Efri hæð fylgir bílskúr. Húsið er nýlegt og í góðu ástandi. Lögfræðiskrifstofa Stefáns Sigurðssonar Vesturgötu 23, Akranesi — Sími 1622. ' Húsið nr. 148 við Vesturgötu á Akranesi er til sölu. í húsinu eru 5 herb., 2 eldhús og kjallari. Bílskúr fylgir. Lögfræðiskrifstofa Stefáns Sigurðssonar Vesturgötu 23, Akranesi — Sími 1622. vdnnu á morgun? — Ég mundi bíða með það, svaraði hún. — Yoshiko er ung og kynni að segja Mamma-san frá þessuu. Ég þekki vitanlega ekki gömlu konuna, en mér finnst emhvernveginn, að hún muni fyrst og fremist v.era hag- sýn, og henni gæti fundizt, að Yoshiko gæti verið betur stödd að fara eitthvað annað, enda þótt hún sé enn ekki útlærð. Hann setti. upp van/dræðalegt bros. — Þetta er sjálfsagt alveg rétt hjó þér. Þessi Mamma-san finnst mér alltaf vera hálfgerður hrytllingur. Þau fengu sér síðan kvöld- verð, en bæði voru um of á- hyggjufull til þess að hafa veru- legt gagn af matraum. Lögreglustjórinn hafði sagt henni að vera viðbúin frekari spurningum. Enn hafði hún ekki verið köiluð fyrir. En gæti hún ekki orðið það á hverri stundu? Hann hafði sagt henni, að hún yrði að mæta við réttarhaldið. Og hvað yrði þá? Nabuko-san mundi áreiðanlega segja, að þeg- ar hún hefði ruðzt inn í herberg ið, hefði Clothilde staðið þar yfir líkinu, með hnífinn í hend- inni. Clothilde myndi koma með sína skýringu, en yrði henni trú- að? Var það ekki hugsanlegt, að hún yrði ákærð fyrir morð? Henni var kalt og hafði velgja, svo að hún ýtti frá sér diskinum. Faðir hennar hafði verið niður- 24 □- sokkinn í sína eigin þungu þanka, en tók samt eftir þessu. — Hvað gengur að, barnið gott? sagði hann snöggt. — Hún píndi sig til að brosa. — Ek’kert. Mig langar bara ekki í meiri mat. Hann seildist yfir borðið og greip 'hönd hennar. — Þetta hef- ur verið ljóta aðkoman béma hjá þér í Japan — finnst þér ekki? Ken hverfur og svo er Arao myrtur. En iþetta skánar hjá þér þegar hann húsbóndi þinn kemur. Þú hefur svo oft minnzt á hann í bréfunum þín- um .... hann heitir Gary O’ Brien, er það ekki? Hún jánkaði þvi. — Ég vissi bara ekki, að ég hefði skrifað neitt um hann. Hann brosti ofurlítið. — Þú nefndir hann oft. Ég las nú milli línanna og komst að þeirri nið- urstöðu, að þú værir skotin í honum. Ég var að vona, að þú værir það ekki. — Hversvegna vonaðirðu það? — Það er alltof hversdagslegt, að einkaritari sé s'kotinn í bús- bónda sínuni. Hann verður ekki Skotinn í einkaritaranum, fyrst og fremst vegna þess, að í frí- stundum vill hann komast sem lengst burt frá starfinu. Já, ég hélt, að þú værir skotin í honum, en 9vo þegar þú komst með Ken Brooks, fór ég að vona, að það RAUÐI KROSS ÍSLANDS Reykjavíkurdeild Oskudagssamkvæmi að Hótel Sögu 23. febrúar n.k. kl. 19,30 til ágóða fyrir hjálpar- starf Rauða krossins. Aðgöngumiðar fást í skrifstofu RKÍ, sími 14658. — Pantanir óskast sóttar sem fyrst. — Borðpantanir hjá yfirþjóni Hótel Sögu mánudaginn 21. febrúar kl. 16—18 sími 20221. Húsinu lokað kl. 20,30. — Samkvæmisklæðnaður. Heiðursmerki. væri hann. Það lítið ég hef kynnzt honum, er hann almenni- legasti náungi, og svo er hann skotinn í þér, Clothilde. Það var þó huggun, að faðir hennar skyldi tala um Ken eins og hann væri enn í lifenda' tölu. Ég kann ágætlega við Ken. Ef öðruvísi stæði á, er ég alls ekki frá því, að ég gæti orðið ofurlítið .... og kannski meira en ofurlitið .... skotin í honum. — En srvo kemur húsbóndinn á milli ykkar? Hann brosti. — Segðu mér eitthvað af honum, Clothilde. Hvað veiztu um hann annað en það, sem þú sérð í skrifstofunni? Ég veit sáralátið um einkalíf hans, sagði hún. — Hann talar aldrei um það í skrifstofunni. Hann hafði meira að segja aldrei boðið mér út að borða fyrr en rétt áður en ég fór hingað. Hann er viðkunnanlegur en mjög hlé- drægur. Það er ekki auðhlaupið að því að kynnast honum náið. Ég hélt, að ég væri farinn að þekkja hann, en svo sá ég, að mér hafði skjátlazt. Hann var umkringdur einhverjum múr af afskiptaleysi. Ég var enn einka- ritarinn og hann húsbóndinn. Hann meira að segja varaði mig við því að leggja ofmikið upp úr þvi að hann gæti stundum verið mannlegur. — Það er líkast því sem eitt- hvert umliðið ævintýri hafi gert hann súran, sagði Jack. — Svona var ég láka þangað til ég hitti Yoshiko. Hún elskar mig af öllu hjarta, og það bætir mikið úr súru skapi að vita, að einhver gerir það. Og O’Brien er á leið- inni og verður kominn hingað á morgun, eða hvað? — Já, hann verður kominn á morgun. Clofhilde andvarpaði ofurlítið og augun ljómuðu. Faðir hennar þrýsti hönd hennar. — Jæja, gangi þér vel, barnið gott. Kannski O’Brien geti einhverntíma farið — utan skrifstofunnar — að iíta á þig sem eitthvað annað en bara einkaritara. Hún roðnaði. — Ég er nú ekki frá því, að hann sé þegar farinn til þess. NY SENDING Þýzkar kuldahúfur Glugginn Laugavegi 30. Stýrimann og matsvein vantar á góðan togbát sem gerður er út frá Vestmannaeyjum. — Uppl. hjá: ÍSFÉLAGI VESTMANNAEYJA Sími 1100. Kópavogsbuar Sunnudaginn 20. þ. m. opna ég brauðbúð að Auðbrekku 51 Sími 41539 Gunnar Jóhannesson. TIL LEIGU Glæsileg ný 5-6 herb. íbúð í sambýlishúsi á bezta stað í borginni. Tilboð með upplýsingum sendist Mbl. merkt: „Ný íbúð — 8376“. /

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.