Morgunblaðið - 01.03.1966, Side 14

Morgunblaðið - 01.03.1966, Side 14
MORGU NBLAÐID Þriðjudagur 1. mar* 1966 V Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Áskriftargjald kr. 95.00 á mánuði innanlands. í lausasölu kr. 5.00 eintakið. ISLENZKI ÞORSK- STOFNINN MINNKAR | Tpplýsingar þær, sem fram ^ koma í skýrslu Jóns Jóns- sonar, fiskifræðings, forstöðu manns Hafrannsóknarstofn- unarinnar, um ástand þorsk- stofnsins á íslandsmiðum, hafa vakið mikla athygli. í skýrslu þessari kemur fram að meira er tekið úr íslenzka þorskstofninum en hann virð- ist þola, og aðkallandi að gerðar verði ráðstafanir til þess að vernda hann og auka afkastagetu hans. Þorskveiðar hafa um lang- an aldur verið ein aðalundir- staða íslenzks sjávarútvegs, og lengi framan af var þorsk- urinn langmestur hluti heild- araflamagns íslendinga. En á árinu 1964 var svo komið, að þorskaflinn nam aðeins 22% af heildaraflanum, en síldin rúmlega 56%. Á árunum 1954 til 1964 lækkaði heildarþorsk aflinn um 22%, en sóknin í hann jókst um 87%. Það kem- ur einnig fram í skýrslu Jóns Jónssonar, að 82% af þorsk- veiði útlendinga hér við land, er fiskur undir 70 cm eða ó- þroska, en einungis 19% af heildarafla íslendinga er und ir þessari stærð. Síðan segir Jón Jónsson í skýrslu sinni: „Samfara hinni auknu sókn í þorskstofninn hefur dánar- tala aukist jafnt og þétt. Ég hef oft talað um að ekki væri æskilegt, að hún færi yfir 65% á ári hjá hinum kyn- þroska hluta stofnsins, rauða strikið, sem ég hef svo kall- að. Á árinu 1960 til 1964 var meðaldánartala hinsvegar komin upp í 7Ó%, en 65% virðist hún hafa náð í kring- um 1960, einmitt þegar þátta- skil verða í viðbrögðum stofnsins gagnvart veiði. Það blasir því við okkur sú kalda staðreynd, að meira er tekið úr íslenzka þorskstofninum en hann virðist þola. Við get- um ekki gert ráð fyrir að auka þorskveiðina að neinu ráði frá því sem nú er. Það geta að vísu komið inn nýir sterkir árgangar eða sterkar göngur frá Grænlandi, sem geta aukið veiðina eitthvað stutta stund. En sé litið á þetta til langs tíma, virðist útilokað, að stofninn geti skilað af sér meira aflamagni. Og verði* sóknin enn aukin má búast við minnkandi afla- magni á bát, og síðan minnk- andi heildarafla“. Jón Jónsson ræðir síðan um nauðsynlegar aðgerðir til verndar þorskstofninum og til þess að auka afkastagetu hans. Hann segir, að fyrsta skrefið hljóti að vera að auka möskvastærð í botnvörpum á íslandsmiðum upp í 130 m/m til samræmis við það, sem gildir í Barentshafi, og segir hann það ekki vafamál, að íslendingar muni græða þjóða mest á aukningu möskvastærðar hér við land. Þá bendir Jón Jónsson einnig á að íslendingar taka ein- ungis 18 af hverjum 100 ó- þroska fiskum, sem landað er af íslandsmiðum, en hitt taki útlendingar, og þá aðal- lega Bretar. Telur hann nauð synlegt að komist verði að al- þjóðasamkomulagi um frek- ari friðun þessa hluta stofns- ins, annaðhvort með tíma- bundinni lokun ákveðinna svæða, eða þá takmörkun á hámarksafla. Þessi skýrsla, sem unnin er af alþjóðlegri nefnd fiski- fræðinga, sem falið var það verkefni að gera skýrslur um ástand þorsks, ýsu, ufsa og karfastofnanna við ísland, Færeyjar og Austur-Græn- land, hlýtur að vekja mikla athygli og umhugsun meðal allra íslendinga. Afkoma þjóðarinnar byggist í svo rík- um mæli á sjávaraflanum í kringum landið, að ekki verð- ur setið aðgerðarlaust hjá meðan svo er gengið á fisk- stofnana, sem raun virðist vera um þorskstofninn. Síld- araflinn hefur verið okkur mikilsverður á síðustu árum, og þess vegna hafa minnk- andi þorskveiðar ekki komið að sök að ráði. En síldin er ekki óbrigðul, og þess vegna verður að gera allar nauðsyn- legar ráðstafanir til verndar öðrum fiskstofnum á íslands- miðum. Jón Jónsson hefur þegar komið fram með á- kveðnar tillögur í þessum efnum. FYRIRSPURN TIL HELGA BERGS |»ær alvarlegu staðreyndir, * sem fram koma í skýrslu Jóns Jónssonar, fiskifræð- ings, um fiskstofninn við ís- landsstrendur, undirstrika enn frekar nauðsyn þess að auka fjölbreytni í íslenzku atvinnulífi og virkja fossana, aðra mestu auðlind íslend- inga, í þágu stórfelldrar iðn- væðingar í landinu. Þegar þorskaflinn minnkar ár frá ári, og skýrslur vís- indamanna segja beinlínis, að meira sé tekið úr þorskstofn- inum en hann þoli, og síldar- aflinn verður æ stærri hluti af heildaraflamagni lands- manna, hlýtur hver einasti á- byrgur þjóðfélagsþegn að spyrja sjálfan sig, hvort verj- Tilmæli til hins frjálsa heims Sovézku rithöfundarnir Andrei Sinjavsky (Abram Tertz) og Juri Daniel (Nik- olai Arzhak) sem nýlega voru dæmdir til langvarandi fanga vistar austur í Moskvu hafa verið — og eru — aðilar að hinum óháðu bókmenntasam- lokum SMOG í Sovétríkjun- um. — Innan þeirra vébanda eru fyrst og fremst ungir sovézk- ir rithöfundar og mennta- menn. Eftir að dómar féllu í máli þeirra Sinjavskys og Daneils sendu félagar þeirra í SMOG opið bréf til ritstjórn ar bókmenntatímarits, sem nefnist „GRANI“ og er gefið út á rússnesku í Frankfurt am Main. Þetta opna bréf kalla þeir „Tilmæli til hins frjálsa heims“. SMOG hefur að megin- markmiði „endurfæðingu i| ússneskrar menningar“. Af opiniberri hálfu er félagsskap- ur þessi litinn óhýru auga — sem sézt bezt á ummælum, sem höfð eru eftir Pavlov, aðalritara æs kulýðssamtaka sovézka kommúnistaflokksins — Komsomol. — Hafði hann lýst því yfir á fundi miðstjórn ar Komsomol í júní sl. að hann ætlaði að berja niður að fullu „alla þessa Gyðinga smogista og traditionalista“. Sjálfir segja talsmenn SM- OG, að tryggð þeirra við hefð ir sovézkrar menningar komi fram í trú þeirra á hinn vest- ræna heim. Bréfið , sem tímaritinu „GRANI“ barst frá SMOG hefur nú verið fjölritað og gengur manna á milli í Framh. á bls. 19. andi sé að byggja afkomu- möguleika þjóðarinnar enn um langa framtíð á sveiflu- kendum fiskveiðum. En jafnvel þótt þessar staðreyndir liggi fyrir, og jafnvel þótt mönnum sé vel kunnugt um þær sveiflur, sem einkennt hafa síldveiðar við íslandsstrendur á þessari öld, halda Framsóknarmenn og kommúnistar enn áfram ofsafenginni andstöðu gegn iðnvæðingu íslands í krafti fossaaflsins. Þessi afstaða þeirra, og þá sérstaklega Framsóknarmanna, er að vísu hrein tækifærismennska, enda liggja fyrir ummæli háttsettra Framsóknarmanna um nauðsyn þess að koma hér upp orkufrekum iðnaði með erlendu áhættufjár- magni. En þær raddir eru nú þaggaðar niður innan Fram- sóknarflokksins. í grein, sem Helgi Bergs, alþingismaður skrifaði í mál- gagn Framsóknarmanna í Suðurlandskjördæmi, og birt var í Framsóknarblaðinu hinn 3. febrúar sl. sagði hann að alúmínbræðslan væri „ó- tímabær“, „alúmínbræðsla getur beðið síns tíma“. Nú vill Morgunblaðið beina þeirri ákveðnu fyrirspurn til Helga Bergs í tilefni af þess- um ummælum hans, hvenær hann telji, að tímabært sé að reisa hér á landi alúmín- bræðslu. Er þess að vænta, að ekki standi á svari. SKIPT UM SKOÐUN? /~i ísli Guðmundsson, einn ^ þingmanna Framsóknar- flokksins, sagði í grein er hann ritaði í Dag, 20. sept. 1961: „Kaldranalegt sýnist mér þó að leggja það eitt til slíks máls, að taka fyrirfram og án rannsóknar afstöðu gegn sér- hverju því, er nefna mætti beina erlenda fjárfestingu, án tillits til þess, hve mikil sú fjárfesting er, eða hvernig verður um hana samið... Norðmenn hafa notfært sér beina erlenda fjárfestingu innan vissra marka, og ekki beðið tjón af, svo kunnugt sé. Munu þó ekki unna landi sínu og sjálfstæði miður en íslendingar sínu“. Og annar þingmaður Fram sóknarflokksins sagði 6. maí 1961: „Leiðin, sem fara á til þess að nýta þessar orkulindir og leysa fjárhagsspursmálið er sú, að laða hingað erlent áhættufjármagn, leyfa útlend ingum að festa hér fé í at- vinnurekstri að uppfylltum ýmsum skilyrðum, sem ís- lenzk stjórnarvöld mundu á- kveða.... Það er staðreynd, að íslendingar fá aldrei veru- lega ódýra orku úr fallvötn- um, nema með því að virkja stórt. En þegar stórvirkjun hefur verið framkvæmd á grundvelli orkukaupa stór- iðju, má gera sér vonir um, að hvers kyns annar iðnaður geti notið góðs af þeirri fram- kvæmd með kaupum á ódýrri afgangsorku“. Þetta eru orð tveggja þingr manna Framsóknarflokksins, sögð og rituð 1961. Hvað hef- ur gerzt síðan, sem breytt hefur skoðun þessara tveggja þingmanna? Er það kannski ekki annað en það, að þeir eru ekki menn til þess að hafa sjálfstæðar skoðanir gagnvart yfirgangi Eysteins?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.