Morgunblaðið - 01.03.1966, Síða 17

Morgunblaðið - 01.03.1966, Síða 17
Þriðjudagur 1. mar? 1986 MORCUNBLAÐIÐ 17 Magnús Magnússon Fyrrv. kaupmaður — Minningarorð HINN 16. febrúar s.l. andaðist í Landsspítalanum í Reykjavík Magnús Magnússon f.v. kaupmað ur á Isafirði, til heimilis að Eini mel 11, þá nýlega orðinn S6 ára gamall. Útför hans fer fram í dag frá Dómkirkjunni kl. 2 e.h. Hann var fæddur 23. janúar 1&80 í Stóru-Hildisey í Austur- Landeyjum. Foreldrar hans voru Magnús Jónsson og Guðrún Þor- steinsdóttir í Stóru-Hildisey. Magnús ólst upp hjá foreldr- um sínum og vandist þar allri al gengri sveitavinnu. Sjómennsku mun hann hafa stundað í nokkr- ar vertíðir í Vestmannaeyjum. Sextán ára gamall naut hann kennslu hjá hinum velmenntaða kennara Helga Skúlasyni frá Breiðabólstað. Árið 1903 fluttist Magnús al- farinn að heiman til Reykja- víkur og stundaði þar sína eigin verzlun, sem hann rak þar með mikium myndarbrag í 25 ár. Eftir það fluttist hann með fjöl- skyldu sína til Reykjavíkur og átti þar heima alla tíð síðan. Þann 12. júlí 1907 giftist Magnús Helgu Jónsdóttur. For- eldrar hennar voru Jón Sigurðs- son og Ólína ólafsdóttir, búandi hjón á Rauðsstöðum í Arnarfirði. Þeim Magnúsi og Helgu varð jþriggja barna auðið, sem öll eru hin mannvænlegustu; Kristín, gift Tryggva Jónssyni forstjóra, Lárus I. vérstjóri á varðskipinu Þór og Ásgeir 1. vélstjóri á m/s Gullfoss. Hjónaband þeirra Magnúsar og Helgu var alla tíð farsælt. Hann elskaði og virti konu sína, enda var hún annáluð gæða- manneskja, virt og elskuð af öll- um, sem hana þekktu. Ég átti því láni að fagna að kynnast henni allnáið. Hún var ein af þeim manneskjum, sem aldrei mátti aumt sjá, án þess að rétta hjálparhönd. Tók alltaf málstað Iþess, sem minnimáttar var. Ég kynntist Magnúsi fyrir rúmum 25 árum síðan. Kynni ur í horn að taka, þegar á þurfti að halda, átti hann góðar og göf- ugar tilfinningar í ríkum mæli. Komu þær, sem oftar, í ljós, þá er kona hans lá sjúk marga mán uði á Elliheimilinu Grund, en þar andaðist hún á síðasta ári. Magnús var þá fluttur úr íbúð sinni Hellusundi 7 að Einimel 11 til dóttur sinnar Kristínar og tengdasonar Tryggva Jónssonar. Á hverjum degi, hvernig sem viðraði, fór hann að sjúkrabeði konu sinnar í Elliheimilinu, og Ég kom að sjúkrabeði Magnús- ar í Landsspítalanum tveim dög- um fyrir andlát hans. Hann var þá með fullri rænu, ræddi við mig um dagleg mál. Einnig um dauðann, sem hann sagðist vita að væri á næsta leiti. Áður en ég gekk út úr sjúkrastofunni, tók hann í hönd mér og bað mér blessunar. Hann kvaðst ekki kvíða broitförinni héðan. Traust bönd ástar og virðingar voru á milli hans og Kristínar dóttur hans. Veir ég að Kristín verðskuldaði fullkomlega ást hans og virðingu. Hún reyndist föður sínum alla tíð góð og um- hyggjusöm dóttir, elskaði hann og virti. Svo var einnig um hann í hennar garð. Hann vildi hvergi búa nema í návist hennar, og naut hann þess flest árin, sem hann átti heima í Reykjavík. Börnum, barnabörnum og öðr- um venzlamönnum hins látna, votta ég fyllstu samúð. Blessuð sé minning þessa mæta manns. Inginvar Jónsson. einnig eftir að veikindi hennar voru komin á það stig, að hún þekkti hvOrki hann né aðra, sem til hennar komu. En þannig var ástand hennar síðustu mánuðina sem hún lifði. Magnús Magnússon var höfð- inglegur á velli, virðulegur í framkomu og heilsteyptur persónuleiki, með ódeigar skoð- anir við hvern sem var. Tó'k þó alltaf fyllsta tillit til skoðana annarra. Hann var drengur góð- ur í fylstu merikngu þess orðs. mín af honum voru þannig, að Hann eignaðist því marga vini, ég mat hann og virti alla tíð síðan. Hann er greindur maður og vandaður. Athugaði alltaf vel allar aðstæður, áður en hann tók ákvarðanir um hlutina. Lofaði aldrei neinu, sem hann var ekki viss um að geta staðið við. Enda virtur af öllum, sem hann þekktu eða höfðu samskipti við hann. Hann var skapstór að eðlisfari, lét ekki undan síga hefði hann rétt mál að verja. Var mildur og réttsýnn í dómum sínum, þegar heiðarlega var á málun- um haldið. Þótt hann væri harð- sem einæglega munu sakna hans nú, þegar hann er allur. Heimili þeirra hjóna var alla tíð til fyrirmyndar fyrir gest- risni og myndarskap. Hans elsku- lega eiginkona, sem öllu vildi fórna öðrum til góðs og bless- unar, var honum ómetanlegur lífsförunautur. Það átti líka eftir að koma í. ljós, hve mikils virði hún hafði verið honum, því strax eftir andlát hennar á síð- asta ári, byrjaði heilsu hans að hraka, unz yfirlauk 16. febr. síðastl. DÁINN er í Reykjavík, á Eini mel 11, Magnús Magnússon fyrrv. kaupmaður. Jarðarför hans verð ur gjörð frá Dómkirkjunni kl. 2 í dag (þriðjudag 1. marz). Magnús fæddist á Stóru-Hildis- ey í Rangárvallasýslu 23. jan. 1880. Hann var því tæplega 86 ára, er hann lézt. Foreldrar Magnúsar voru: Magnús Jónsson bóndi í Stóru- Hildisey og kona hans Guðrún Þorsteinsdóttir. Uppeldi Magnús- ar var lítið frábrugðið venjulegu lífi sveitadrengja á þeim árum: Þrotlaus vinna við landbúnaðar- störf. Þó reri hann nokkrar ver- tíðir í Vestmannaeyjum. Nám í heimahúsum var hið venjulega: Lært undir fermingu undir eftirliti sóknarprestsins. Þegar Magnús var 15 ára, réðu þrjú heimili í Rangárvallasýslu sér kennara. Hann skipti vetrin- um milli þessara þriggja heimila. Magnús fylgdi honum á öll þessi námskeið. Kennari þessi var ungur menntamaður, Helgi Skúla son frá Breiðabólsstað. Magnús taldi hann verið hafa afburða kennara. Sagðist eiga honum mik ið að þakka. Árið 1903 fór Magnús alfarinn að heiman. Lagði þá leið sína til Reykjavíkur. Hann fékk fljót- lega starf við verzlun Erlendar Erlendssonar í Aðalstræti 9. En á næsta ári réðist hann til starfa í Edinborgarverzlun. Fyrst á Akranesi, en síðan í Reykjavík. En brátt réðist hann til verzlun- ar Ó. L. Lárussonar & Co, er sendi hann til ísafjarðar, til þess að stofna þar útibú frá verzlun- inni. Magnús kom til ísafjarðar árið 1906, og stofnaði útibúið. En árið eftir kcypti hann það, eða vörubirgðirnar, og stofnaði sjálf- ur verzlun, er hann rak í Hafnar stæti 11 á Isafiði í 20 ár. Magnús verzlaði aðallega með búsáhöld og skófatnað og farnað- ist vel. En þegar „vinstri" öflin náðu hér völdum, lét fjárhags- óreiðan ekki á sér standa. Gjald- eyrisþrot, höft og bönn ’voru látin bitna á andstæðingum þeirra ,vinstri“. Lokað var algerlega fyrir innflutning Magnúsar Magnússonar. Hann seldi því hús sitt, Hafnarstræti 11 á ísafirði og verzlunina* og flutti búferlum til Reykjavíkur. Hér í Reykjavík stofnaði hann fyrirtækið Glæsi. En hið sama endurtókst. Honum var synjað um allan innflutning hreinsunar- efna, og annað það, er gjaldeyris krafðist. Hann tók því það ráð, að selja fyrirtækið vini sínum, sem taldist vera sósíalisti. — Og nú stóð ekki á innflutningsleyf- um. Magnús hélt þó tryggð við þetta fyrirtæki til dauðadags. Og vann þar mikið. Magnús I • 5i mestu manndr#is ár sín á Isafirði. Hann var fé- lagslyndur, og gleðimaður með allri hófsemd. Ekki var hann hlutdeilinn um opinber mál né annarra verkahring. En sat sinn eigin garð með sæmd. Hann var mjög vel starfhæfur maður, og komst því ekki undan því að vera kosinn í bæjarstjórn. En hann hirti lítt um vegtyllur. Fylgdi í verki þeirri lífsskoðun, sem mótazt hafði hjá honum ung- um í fásinninu: Allt hefðarstand er mótuð mynt, en maðurinn gullið, þrátt fyrir allt. Forellrar Magnúsar fluttust til hans, skömmu eftir það að hann flutti til ísafjarðar. Dvöldu hjá honum við alúð og umhyggju til dauðadags. Verk Magnúsar voru aldrei hálfverk. Magnús var gifur Helgu Jóns- dóttur Sigurðssonar bónda á Rauðsstöðum í Arnarfirði. Hún er nýlega dáin. Ágæt kona. Þau eignuðust þrjú börn, tvo drengi og eina stúlku, öll gift og búsett hér í Reykjavík. Eldri sonurinn, Lárus Lúðvík, er 1. vélstjóri á varðskipinu Þór. Yngri sonurinn Ásgeir, er 1. vélstjóri á Gull- fossi. Dóttirin Kristín er gift Tryggva Jónssyni verksmiðjueig anda. Þau líkjast foreldrum sín- um. Traustir menn í sínu rúmi. Vinföst og vinavönd. Munu því með sæmd halda uppi minningu foreldranna. Bautasteinar standa at brautu nær, nama reisi niður að nið. Sigurður Kristjánsson. Guðmundur Jónsson, fyrrv. símnverkstjóri Kveðja frá barnaböriium Að fótskör þinni föllum við fram í bæn og trú ó veittu áheyrn öllum okkar sálum nú Því barnahjörtun bljúu bærast af trega og þrá með sáran sviða í barmi með sorgar tár á hvarmi því afi er okkur farinn frá. Með ástúð sinni afi okkar vermdi hönd sendi bros og birtu um bernsku fögur lönd strauk um koll og vanga með kærleiksríkri mund hve gott var þar að ganga gleðina að fanga er við komum á hans fund. Þér allt við þökkum afi sem okkur veittir þú ljós og lífsins gjafir þér launar þetta nú. Hann, sem storma stillir og stjórnar vindi og sæ þig leiði í lífsins löndin hans líknar milda höndin þín minning vakir með oss *. Sigurunn Konráðsdóttir. Nýkomið: Kvenskór með góðúm hæl og breiðum lest með innleggi. Inniskór Kven-, karlm.-, drengja og barna. Karlmanna- vinnuskór Verð frá kr. 225,00 og m. fl. — I fáum orðum Framhald af bis. 15. „Nei, hún söng aðeins við heimilisstörfin. Hún dó áður en ég hlaut vinsældir. Ég er alin upp hjá frænku minni, þú getur séð allt um það annars staðar“. „Það var dálítið öðruvísi umhorfs í skemmtanalífinu, þegar þú byrjaðir en nú er“. „Já, þá voru stórar hljóm- sveitir alls ráðandi. Það hef- ur margt breytzt. Þetta var • fyrir stríð og í byrjun stríðs- ins — nei það er ekki lengra síðan, ég er ekki svo gömul. En þú sagðir að ég hefði ekki tekið þér vel — hvernig átti ég að taka ykkur vel? Fólk gengur inn til rnín fólk sem ég hef aldrei séð, tekur í höndina á mér. Hvaðan ertu? Hvemig líkar þér þetta eða hitt? Hvernig á maður að vera hamingjusamur, meðan á öllum þessum ósköpum stendur? Það linnir ekki lát- um — alls staðar sama tugg- an. En eruð þið ekki orðnir sæmilega ánægðir með Ellu?“ Við játtum því. Það gladdi hana. Hún er hlý þegar kemur inn fyrir skelina. „Ég ætlaði að verða dans- mær, en endaði sem söng- kona. Ég starfaði með hljóm- sveitum alla æsku mína. Það er því varla hægt að segja, að ég hafi átt neina æsku. Auðvitað hafði ég mína erfið- leika við að glíma, hver kemst hjá því? Ég er ekki af ríku fólki, en borðaði samt það sama og aðrir. Og eins og aðrir — heldur minna í kreppunni. Sumt fólk heldur að skemmtikraftar lifi á eitur- lyfjum", hélt hún áfram eftir stutta þögn. „Það er rangt. Svo heldur almenningur einn- ig að við vitum ekkert. Það er einnig rangt. Þú hefðir átt að heyra Duke Ellington tala við saxófónleikarann í hljóm- sveitinni. Það var opinberun. Þeir minntust ekkert á músík. En við höfum öll okkar veik- leika. Ég get ekki hjálpað þér að losna við þinn veik- leika, og þú ekki mér. Þetta minnir á konu sem ætlar að fara í megrunarkúr. Það get- ur enginn haldið í við hana — nema hún sjálf“. IV. Þar sem Ella Fitzgerald hafði rætt svo mikið um menntun, þótti mér á þessu stigi samtalsins rétt að skjóta inn nokkrum atriðum úr sögu íslands. Ég sagði henni frá því að íslendingar hefðu eignazt heimsbókmenntir á 12. og 13. öld 'og þeir væru komnir af norrænum víking- um, sem flestir hefðu siglt hingað frá Noregi. „Frá Noregi?"', endurtók hún. Og breitt bros lék um andlit hennar. „Já“, sagði ég, „er nokkuð athugavert við það?“ „Nei“, sagði hún og leit í gaupnir sér. „Það er ágætt“. Svo kom feimnissvipur á andlitið, og hún sagði lágt og dömulega: „Það munaði einu sinni litlu að ég yrði Norðmaður". „Ha, Norðmaður?“ „Já“, svaraði hún og leit fast á mig. Nú varð hún stríðnisleg í augunum; þegar hún reiddist kom móða á þau, nú voru þau með björt- um glampa. Ég fór hjá mér, án þess að vita hvers vegna. „Þannig er mál með vexti, að litlu munaði að ég giftist Norðmanni. Það var fyrir tíu árum“. „Það var leiðinlegt að þú skyldir ekki gera það“, stam- aði ég. Hún svaraði engu. „Hvers vegna giftistu hon- um ekki“, bætti ég varlega við. „Vegna þess að þetta varð að hneykslismáli. Það var endalaust talað um það, þjark að um það. Blöðin birtu myndir og frásagnir, og þá kom allt í einu fram í dags- ljósið einhver kona sem sagði, að hann hefði 'haft af sér pen- inga. Og hann var settur í fangelsi". „Trúðirðu því?“ „Trúði — ja nei, það var ekki ástæðan til þess að við giftumst ekki. En — fólkið mitt heima í Bandaríkjunum og vinir mínir sögðu að ég gæti ekki gifzt honum. „Orð- stír þinn er góður, Ella“, sagði það. „Og skjöldur þinn er hreinn. Á honum má enginn blettur vera“. Þetta sögðu mínir svörtu vinir — og vildu ráða mér heilt. „Gifstu ekki Norðmanninum", bættu þeir við. Ég var auðvitað á báðum áttum. Mig langaði að giftast honum .... ég ætlaði svo sannarlega að giftast honum .... en svo sögðu þeir, að það væri hættulegt fyrir mig að lenda í hneykslismáli. Ég var þá heima í Bandaríkjunum, og þar við sat. Nú eru svert- ingjarnir orðnir víðsýnni en þeir voru“. „Þetta hefur þá verið ást“. „Já, það var ást“. „Og þú elskar Noreg enn“. Hún hló. „Ég elska Noreg — og Dan- mörk. Einu sinni átti ég heima þrjú ár í Kaupmanna- höfn, það var dýrlegur tími — Strandvejen og hvað þær nú heita göturnar þar. En ást — já ég elskaði hann... .“ Og það dró fyrir sól í aug- um hennar. M.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.