Morgunblaðið - 01.03.1966, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ
T=Hðjudagur 1. marz 1966
Wirkola hélt uppi
hei&ri Norðmanna
— Vann stökkið í stóru brautinni
Skíffafólkið meff verðlaunapeninga sína.
Sig. Einarsson og Marta
Reykjavíkurmeist. í svigi
Skemmtileg keppni i Hamragili
um helgina
HEIMSMEISTARAMÓTI skíffa-
manna lauk í Osló á sunnudag-
inn með keppni í skíðastökki í
Holmenkollen-brautinni Sigur-
vegari varff Norðmaðurinn Björn
Wirkola, sem stökk 84.5 m og
78.5 og hlaut 215.3 stig. Var
fyrra stökk hans sérlega glæsi-
legt og kvaðst hann sjálfur
aldrei hafa náð fullkomnara
stökki.
Annar varð Japaninn Futi-
og hlaut 207.6 stig. Er þetta í
sawa sem stökk tvívegis 80 m
fyrsta sinn sem Japani hlýtur
verðlaun á aliþjóðlegu skíðamóti.
Þriðji varð Svíinn Kjell Sjö-
Rúmenar
unnu J
17-12
RÚMENSKU heimsmeistar-
arnir í handknattleik léku
Xandsleik viff Norffmenn í
sunnudaginn. Rúmenarnir
I sigruðu meff 17—12.
i Rúmenar náffu góffri byrj-
u og komust í 6—2. En tví-
vegis tókst norska liðinu aff
jafna — en Rúmenar náffu
aftur undirtökunum og í
hálfleik stóff 9—6.
1 siðari hálfleik sýndu Norð
menn góffan leik og lengst af
var forysta heimsmeistar-
, anna aðeins 2 mörk. Stuttu
fyrir leikslok stóff 14—12 en
Rúmenar skoruðu 3 síðustu
mörkin.
Bezti maffur vallarins var
Ioan Moser í rúmenska liff-
inu og markvörður Uðsins
Redl átti og mjög góðan leik.
Hjá Norffmönnum átti mark-
vörðurinn Rustand beztan
leik.
berg sem stökk 77.5 og 80 m og
hlaut 204.6 stig.
Veður spillti mjög fyrir kepp
endum og varð m.a. að gera hlé
á keppninni meðan byljirnir
gengu yfir.
Norðmenn hafa hlotið 5 heims
meistara af 10 í norrænum grein
um og að auki unnið 2 silfur-
peninga og 1 bronsverðlaun. Þeir
eru líka efstir í óopinberri stiga-
keppni á mótinu með 54 stig, en
Rússar koma næstir með 50 stig.
Armann og
FH sigruðu
Tveir leikir voru leiknir í 1.
deild karla í handknattleik um
helgina. Ármann vann KR með
24-18 og FH vann Hauka með
23-21.
í báðum leikjunum var mikil
barátta. Ármann og KR háðu ör-
lagaríka baráttu enda mikið í
húfi, þar sem nú má líklegast
telja að annað hvort þessara
Uða falli — þó margt geti enn
skeð. Liðin voru jöfn fyrir leik-
inn bæði með 2 stig, en nú er
KR eitt skilið eftir á botninum.
í>að var fyrst og fremst Hörður
Kristinsson sem færði Ármanni
sigurinn með því að skora 14
mörk.
Mikill hörkuleikur varð milli
FH og Hauka og tvisýnt til hins
síðasta. FH var þó sterkari aðil-
inn þó langt sé frá því að liðið
nái að sýna getu sína í litla saln-
um á Hálogalandi.
Á laugardagskvöldið fóru og
fram leikir:
I. deild kvenna, og urðu úr-
slit þessi:
Víkingur — Valur 3:16
Ármann — Fram 8:9
FH — Breiðablik 18:9
Valsliðið náði mjög góðum
leik, og sýndi einn bezta leik
sem ísL kvennalið hefur lengi
sýnt.
SVIGKEPPNI Skiðamóts Reykja
víkur fór fram við skála ÍR í
Hamragili á sunnudag. Veffur
var sérlega gott og var mikill
fjöldi fólks aff horfa á keppn-
ina og njóta útivistar til fjalla.
Keppnin fór mjög vel fram og
gekk vel. Var undirbúningur
allur af hálfu ÍR-inga til mik-
illar fyrirmyndar.
Að keppni lokinni fór fram
verðlaunaafhending með mikl-
um glæsibrag en verðlaun voru
af nýrri gerð og glæsileg mjög.
Sigurður Einarsson ÍR varð
Reykjavíkurmeistari í svigi
karla. Náði hann beztum tíma
í báðum ferðum. R.víkurmeist-
ari í kvennaflokki varð Marta
B. Guðmundsdóttir KR.
Skíðafólk ÍR hefur verið mjög
sigursælt £ mótinu til þessa, en
lokið er keppni í svigi og stór-
svigi. Hafa ÍR-ingar sigrað í 8
flokkum af 12 sem keppt hefur
verið L
Úrslit í svigkeppninni urðu
þessi:
A-flokkur karla.
Reykjavíkurmeistari:
Sigurður Einarsson ÍR
52.3 55.0 107.3
2. Bjarni Einarsson Árm.
53.7 55.6 109.3
3. Þorbergur Eysteinsson ÍR
54.6 56.8 111.4
3. Bogi Nilsson KR
55.7 55.7 111.4
5. Gunnlaugur Sigurðsson KR
54.4 58.4 112.8
6. Sigurður R. Guðjónsson Árm.
57.8 56.5 114.3
Úrslit í kvennaflokki Svig.
Reykj a víkurmeistari:
Marta B. Guðmundsdóttir KR
34.1 34.1 68.7
2. Hrafnhildur Halgadóttir Árm.
35.7 33.6 69.3
3. Jakobína Jakobsdóttir ÍR
43.8 34.6 78.4
4. Sesselja Guðmunddóttir Árm.
43.8 41.3 85.1
5. Ingibjörg Eyfells ÍR
Sveitakeppni A-flokkur.
1. Sveit ÍR Sigurður Einarsson,
Þorbergur Eysteinsson. Har-
aldur Pálsson 335.1
2. Sveit KR Bogi Nilsson, Ásgeir
Úlfarsson, Einar Þorkelsson 355.9
Stúlknaflokkur.
1. Auður Björg Sigurjónsd. ÍR
30.2 31.2 61.4
2. Lilja Jónsdóttir Árm.
Tveir leikir við heimsmeistarana
í Laugardal um helgina
Heimsmeistarar í hand-
knattleik karla, rúmenska
landsliðið, kemur hingað til
lands aðfaranótt fimmtudags,
Leikur liðið hér tvo lands-
lei'ki, hinn fyrri á laugardag
kl. 5 og hinn síðari á sunnu-
dag kl. 5 og hefjast leikirnir
kl. 5 báða dagana. Á undan
báðum landsleikjunum verða
forleikir og leikur unglinga-
landslið HSÍ báða dagana á
laugardaginn við Hauka og á
sunnudag við ÍR. Forleik-
irnir hefjast kl. 15:4)5 báða
dagana.
Það hefur verið mikið um
að vera í hand'knattleiknum
í vetur, og unnend-
um handknattleiks gefizt
tækifæri til að sjá mörg góð
lið í keppni hér. En þessi
heimsókn er þó óumdeilan-
lega hápunktur keppnistima-
bilsins og ekki er hægt að
bjóða betra en sjálfa heims-
meistarana.
ísland og Rúmenía hafa
einu sinn mætzt í landsleik í
handknattleik. Það var á
heimsmeistarakepninni 1058.
Þá unnu ís’lendingar með 13
—11. Komst þó hvorugt
landið í úrslitakeppnina um
heimsmeistaratiltilinn.
Eftir keppnina þá gerðu
Rúmenar stórátak í hand-
knattleiknum með þeim skjóta
árangri að 1961 varð lands-
lið þeirra heimsmeistaratitil-
inn, og varði hann með sóma
1964.
Nú leggja Rúmenar allt í
sölurnar til að vinna titilinn
enn næsta ár. Lið þeirra þarf
ekki (sem heimsmeistari) að
taka þátt í undankepninni
en þeir leggja höfuðáherzlu
á samæfingu liðsins í lands-
leikjum og keppnisförin nú er
aðeins æfingaratriði hjá rúm-
enska landsliðinu og það leik-
ur við A-Þýzkaland, Dan-
mörku, Noreg og ísland í
sömu ferð.
Landslið íslands hefur ver-
ið valið og er þannig skipað:
Hjalti Einarsson, FH
Þorsteinn Björnsson, Fram
Gunnlaugur Hjálmarsson,
Fram fyrirliði.
Geir Hallsteinsson, FH
Guðjón Jónsson, Fram
Hörður Kristinsson, Árm.
Hermann Gunnarss., Val
Karl Jóhannsson, KR
Sigurður Einarsson, Fram
Stefán Sandiholt, Val
Sigurður Dagsson, Val.
Veigamesta breytingin á lið
inu er að Birgir Björnsson
FH er nú ekki valinn en Geir
Hallsteinsson leikur nú í
fyrsta sinn í landsliði. Karl
Jóhannsson leikur nú sinn 25.
landsleik og fær gullúr að
launum. Áður hafa Gunnlaug
ur og Ragnar Jónsson náð
þeim leikjafjölda — og unnið
til úrsins.
Sala aðgöngumiða hefst í
dag hjá Lárusi Blöndal og
kosta miðar 126 kr. fyrir full-
orðna en 50 kr. fyrir börn.
Dómari í leiknum verður
Knut Nilsson frá Noregi.
34.3 33.2 67.5
3. Áslaug Sigurðardóttir Árn
36.6 37.3 73.9
Drengjaflokkur.
1. Eyþór Haraidsson ÍR
24.9 24.7 49.6
2. Haraldur Haraldsson ÍR
25.0 25.9 50.9
3. Guðjón Sverrisson Árm.
33.1 30.2 63.3
4. Jón Ottósson Árm.
32.1 31.4 63.5
C-flokkur.
1. Sigfús Guðmundsson KR
36.9 35.2 72.1
2. Örn Kjærnested Árm.
40.4 34.9 75.3
3. Bergur Eiríksson Árm.
38.9 37.5 76.4
4. Jóhann Jóhannsson Árm.
39.8 39.5 79.3
B-flokkur.
1. Björn Bjarnason ÍR
43.4 45.7 89.1
2. Elías Einarsson ÍR
56.0 45.0 101.0
3. Georg Guðjónsson Árm.
45.9 58.1 104.0