Morgunblaðið - 17.03.1966, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.03.1966, Blaðsíða 2
3 MORGU NBLAÐIÐ Fimmtudagur 17. marz 1966 Einar Oigeirs- son til Noregs „Vins3r£sósíalSstðr“ á IVorður- Börsdum halda ráðstefnu vegna de Gaulle Osló, 16. marz — NTB STJÓRNMÁLAVIÐIIORF þau, sem skapazt hafa í Evrópu eftir síðustu aðgerðir de Gaulie Frakk landsforseta, eru aðalástæðan til fundar norrænna vistrisósíalista í Osló um næstu helgi. Það er Sósíaiíski þjóðarflokkurinn (SF) í Noregi, sem boðar til fundar þessa, en hann munu sækja full- trúar frá danska SF-fiokknum, Kommúnistaflokki Svíþjóðar, „Alþýðubandalaginu" á íslandi og „Lýðræðislegu samtaka finnsku þjóðarinnar.“ Meðal þátttakenda er formað- ur danska SF-flokksins, Aksel Larsen, formaður íslenzka flokks ins, Olgeirsson, formaður sænska kommúnistaflokksins, C. H. Her- mannsson og aðalritari lýðræðis samtakanna, dr. Ele Alenius. (Hér er um misskilning að ræða. Einar Olgeirsson er formaður Sósíalistaflokksins en ekki Al- þýðubandalagsins — innskot Mbl.). Fulltrúar stjómarand- stöðu sósíaldemókrata, „Simon- ittene“, voru einnig boðnir til fundarins, en kosningarnar í Finnlandi n.k. sunnudag komu i veg fyrir að þeir gætu mætt. Leggja fundarboðendur áherzlu á, að lýðræðissamtökin geti séð af aðalritara sínum nú. Til viðbótar ðryggismáluna mun ráðítefna þessi fjalla um Fríverzlunarsvæði Evrópu (EFTA), Efnahagsbandalagið (EEC) og Norðurlönd. C. H. Her mannsson á að hafa forsögu um efnið „Samræmd stefna verka- lýðshreyfingarinnar á Norður- löndum", og Alenius og Olgeirs- son eiga að ræða um skoðanir sínar og stöðu Finnlands og ís- iands varðandi norræna sam- vinnu. Mbl. sneri sér til Einars Ol- geirssonar í gær og spurðist fyr- ir um ráðstefnu þessa. Hann kvað litlu við frétt NTB að bæta. Hér væri um að ræða tveggja daga ráðstefnu, þar sem fram myndu fara almennar um- ræður um fyrrgreind mál. Hins vegar myndi ráðstefnan engar ályktanir gera. Einar kvaðst halda utan á föstudag og koma heim eftir helgi. Ratsjárspegillinn kem ur í góðar þarfir RATSJÁRSPEGILLINN, sem festur var á eina lögreglubif- reiðina fyrir nokkru, eins og Mbl. liefur skýrt frá, hefur komið í góðar þarfir við að hafa uppi á bílstjórum, sem aka á óleyfilegum hraða. Síð astliðnar fimm vikur hafa 230 ökumenn verið teknir með að stoð ratsjárspegilsins fyrir að aka of hratt í Reykjavík, og 50 menn hafa verið teknir á Suðurnesjavegi a sama tima. Hér er mynd af bílnum og speglinum, sem sést til hægri á myndinni. 'Skæringur Hauksson, lögregluþjónn, stendur við bílhurðina til vinstri, Pétur Sveinbjarnar- son, fulltrúi umferðarmála- deildar gatnamálastjóra Reykjavíkurborgar, situr í aft ursæti bifreiðarinnar, og við stýrið er Snjólfur Pálmason, lögregluþjónn. (Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.) Baznr hjd Vorboðanum í kvöld SJÁLFSTÆÐISKVENNAFÉ- LAGIÐ Vorboðinn í Hafnarfirði heldur bazar í kvöld kl. 8,30 í Sjálfstæðishúsinu. Verður mjög til hans vandað og á boðstólum allfjölbreytilegur varningur. Þá verður spilakvöld hjá Vor- böðanum næstkomandi mánu- dagskvöld, 21. þ.m., á sama stað. Spiluð verður félagsvist og verð laun veitt. — Eru konur beðnar að fjölmenna og taka með sér gesti. Ráðsfeína ungra Sjálf- stœðismanna í Keflavík Guðundur Daníelsson rithöf- undur. HEIMIR félag ungra Sjálfstæðismanna í Keflavík efnir til ráð- stefnu um atvinnu- og verkalýðsmál um næstu helgi. Ráðstefnan verður haldin í Félagsheimilinu Stapa (litla salnum) og hefst kl. 2 á sunnudag. Á ráðstefnunni verður fjallað I skipulagsmál verkalýðssamtak- um ýmis mál, er sérstaklega anna. Einnig verður rætt um varða hagsmunamál launþega og ' stjórnmálaviðhorfið og þau mál, Ráðstelna Varðbercgs um EFTR í dag RÁÐSTEFNA Varðbergs um EFTA, Fríverzlunarsvæði Ev- rópu, hefst í Sigtúni í dag kl. 18. Viðskiptamálaráðherra, dr. Gylfi Þ. Gíslason, flytur ávarp við setningu ráðstefnunnar, en stjórnandi hennar er Jón Abra- ham Ólafsson, formaður Varð- bergs. Erindi flytja Þórhallur Ásgeirsson, ráðuneytisstjóri, um ísland og EFTA, og Björgvin Guðmundsson, deildarstjóri, um þróun EFTA og framtíðarhorfur. Að því búnu verður snæddur kvöldverður. Síðan munu verða flutt stutt erindi um hagsmuni sjávarútvegs, iðnaðar og verzl- unar af þeim Guðmundi H. Garð arssyni, viðskiptafræðingi, Gunn ari J. Friðrikssyni, form. Fél. ísl. iðnrekenda, og Hilmari Feng- er, form. Fél. ísl. stórkaup- manna. Að lokum verða fyrir- spurnir og frjálsar umræður. Mikill áhugi hefur komið fram á ráðstefnu þessari, og síðdegis í gær voru þátttakend- ur orðnir eins niargir og rúm var fyrir. sem efst eru á baugi á sviði þjóð mála í dag. Meðal þeirra mála, sem sérstaklega verða tekin til umræðu má nefna: Framleiðni og hagræðingu í atvinnurekstrL Starf og stefna verkalýðssam- takanna, skipulagsmál o.fl. Eftirtaldir menn munu flytja erindi á ráðstefnunni: Kristján Guðlaugsson, verzlunarm., Matt- hías A. Mathiesen, alþm., pétur Sigurðsson, alþm. og Gunnar Helgason, form. Verkalýðsráðs Sjálfstæðisflokksins. Jón Sæ- mundsson, form. F.U.S. Heimis setur ráðstefnuna og stýrir um- ræðum. Auk fyrirlestranna verða frjálsar umræður og gefst þá fundarmönnum kostur á að bera fram fyrirspurnir og ræða þau mál, sem fyrirlestrarnir fjalla /6. 3. 1966, K\ //*{'" Skóldsaga Guðmundar Daníels- sonar „Húsið“ í danska útvorpinu Um þessar mundir er verið að lesa skáldsöguna „Húsið“ eft- ir Guðmund Daníelsson rithöf- und, í danska útvarpið. Upples- ari er hinn kunni danski leik- ari Helge Kierulff Schmidt. Skáldsagán var send í bók- menntasamkeppni Norðurlanda- ráðs árið 1965, og lét þá Mennta- málaráðuneytið þýða hana. Þýð- inguna annaðist Erik Sönder- holm, sem var lektor við Há- skóla íslands um nokkurra ára skeið. Effir samkeppnina var bókin send danska útvarpinu til athugunar, og var ákveðið að taka hana til flutnings. Hófst lesturinn 7. marz sl. og verða í allt 14 lestrar. „Húsið kom út á íslandi árið 1963, og fjallar sem kunnugt er um danskan kaup- mann á íslandi sem er kvæntur íslenzkri konu. Efni bókarinnar er um líf þessarar fjölskyldu, sem býr í litlu þorpi, á árunum milli heimsstyrjaldanna . Útgáfufyrirtækið „Fremad for laget“ hefur nú keypt útgáfu- réttinn í Danmörjiu, og mún hún koma á markaðinn snemma næsta haust. liifem VEÐITR var gott um land allt Veðurhorfur í dag: í gær, mjög víða sólskin og SV-land til Vestfjarða og hiti víðast 1 — 4 stig um há- SV-mið til Breiðafjarðarmiða. daginn. Vestanlands voru að SVT eða S-kaldi fyrst, léttir skúrir eða krapaél á svo til og gengur í vaxandi visu stöku stað, en bjart á milli. Útlit er fyrir suðlæga átt og gott veður í dag, en á morgun mun sennilega verða komin landsynnings-rigning af lægðinni, sem er við Ný- fúndrtaland á kortinu hér að ofan. SA-átt í kvöld. Vestfj.mið: NA-kaldi. Snjó- koma. N-land til SA-lands og mið- in: V- eða SV-gola. Víðast léttskýjað, Austurdjúp: NA-kaldi fyrst, en lægir og léttir til i dag. um og önnur þau efni sem þeir vilja koma fram með. Öllum Sjálfstæðismönnum er heimil aðgangur að ráðstefnunni en nán ari upplýsingar um tilhögun hennar gefur stjórn F.U.S. Heim is í Keflavík. Akranes Umræður um stór- iðjumál og iðnþróun SJÁLFSTÆÐISFÉLAG Akra- ness efnir í kvöld til almeims fundar i félagsheimili karlakórs- ins og hefst hann kl. 8.30. Fundarefni er um stóriðjumál og iðnaðarþróunina næstu árin. Jóhann Hafstein, iðnaðarmála- ráðherra, talar. Öllum er heimill aðgangur. FÉLACSHEIMILI Fimmtudagur Skólakvöld. Föstudagur Opið hús. HEIMDALLAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.