Morgunblaðið - 17.03.1966, Blaðsíða 14
14
MOHCUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 17. marz 1966
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúl: Þorbjörn Guðmundsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Áskriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
I lausasölu kr. 5.00 eintakið.
STOREFLING
IÐNLÁNASJÓÐS
Díkisstjórnin hefur nú lagt
fram á Alþingi frumvarp,
sem mun bæta stórlega að-
stöðu Iðnlánasjóðs til þess að
styrkja iðnfyrirtæki og iðn-
væðingu í landinu.
í frumvarpi þessu er gert
ráð fyrir, að framlag ríkis-
sjóðs til Iðnlánasjóðs verði
fimmfaldað, verði tíu milljón
ir í stað tveggja milljóna nú.
í>á er Iðnlánasjóði heimilað
að fengnu samþykki ríkis-
stjórnarinnar að taka lán allt
að 150 milljónir króna, eða
jafnvirði þeirrar fjárhæðar í
erlendri mynt, ef árlegt ráð-
stöfunarfé sjóðsins nægir
ekki til þess, að hann geti á
viðunandi hátt gegnt hlut-
verki sínu. Þessi lántöku-
heimild Iðnlánasjóðs hefur
verið bundin við 100 milljón-
ir króna hingað til. Loks er
sú nýjung í frumvarpinu, að
Iðnlánasjóði verður heimilað
að taka lán að upphæð 100
milljónir króna til þess að
veita sérstök hagræðingarlán,
auk almennra lána, sem nauð
synleg teljast til þess að auka
framleiðni og bæta aðstöðu
iðnfyrirtækja og gera þeim
kleift að aðlaga sig nýjum
viðhorfum vegna breyttra við
skiptahátta, svo sem tolla-
breytinga og frjálsari verzlun
ar. Þessi hagræðingarlán
mega vera með betri kjörum
en önnur lán Iðnlánasjóðs,
með lægri vöxtum, lengri
lánstíma, og e.t.v. afborgunar
laus fyrst í stað.
Á fundi í Félagi ísl. iðnrek-
enda þann 5. febrúar sl. gerði
Jóhann Hafstein, iðnaðar-
málaráðherra, ítarlega grein
fyrir stefnu núverandi ríkis-
stjórnar í málefnum iðnaðar-
ins, rakti það, sem gert hefur
verið til eflingar iðnaðinum í
landinu í tíð núverandi ríkis-
stjórnar og hrakti barlómstal
og fullyrðingar stjórnarand-
stöðunnar um erfiðleika iðn-
aðarins. í lok ræðu sinnar
flutti Jóhann Hafstein stefnu
lyfirlýsingu ríkisstjórnarinn-
ar í iðnaðarmálum. Það frum-
=varp, sem nú er komið fram
<um stóreflingu Iðnlánasjóðs
<er liður í því að hrinda þeirri
(stefnu í framkvæmd. — í
stefnuyfirlýsingu þessari
(sagði Jóhann Hafstein m.a.:
' „Séð verður til þess að iðn-
(aðurinn njóti í þessu sam-
bandi eðlilegs aðlögunartíma
'og ráðstafanir gerðar í lána-
"málum og á annan hátt til
'þess að gera honum auðveld-
■ara að tileinka sér ýmsa
tækni og aukna hagræðingu
og framleiðni til eflingar þess
ari atvinnugrein í frjálsari
að iðnaðinum skapist viðun-
andi stofnlánaaðstaða, jafn-
framt því sem gert er ráð fyr-
ir, að aðstaða hans í banka-
kerfinu haldist til jafns við
aðrar atvinnugreinar“.
Af þessu má ljóst vera, að
ríkisstjórnin og iðnaðarmála-
ráðherra hafa brugðið skjótt
við að hrinda yfirlýstri stefnu
sinni í iðnaðarmálum í fram-
kvæmd. Þessi mikla efling
Iðnlánasjóðs mun verða inn-
lendum iðnaði mikil lyfti-
stöng, og sérstaklega ber að
fagna þeim hagræðingarlán-
um, sem nú er ætlunin að
veita til þess að gera iðnaðin-
um mögulegt að mæta nýj-
um markaðsaðstæðum vegna
tollalækkana og frjálsari við-
skiptahátta. Þessar aðgerðir
sýna glögglega, að ríkisstjórn
in lætur ekki sitja við orðin
tóm í málefnum iðnaðarins,
heldur hefur hún þegar haf-
izt handa um framkvæmdyfir
lýstrar stefnu sinnar í mál-
efnum hans.
ÞRÖTTMIKILL
OG ÖFLUGUR
ATVINNUVEGUR
/^reinilegt er, að stjórnar-
^ andstæðingar hafa algjör
lega gefizt upp við að telja
fólki trú um, að innlendur iðn
aður sé að leggjast í rúst. Hin
kröftuga ræða iðnaðarmála-
ráðherra á fundi iðnrekenda
5. febrúar sl. og fjöldi ann-
arra staðreynda, sem fram
hafa komið síðan, hafa gert
mönnum það fullkomlega
ljóst, að þrátt fyrir tíma-
bundna erfiðleika ákveðinna
iðngreina vegna breyttra við-
skiptahátta, er innlendur iðn-
aður þróttmikill og vaxandi
atvinnuvegur.
Sjaldan hefur þetta verið
jafn áberandi og einmitt á
síðustu vikum, þegar hverj-
um bátnum á fætur öðrum
hefur verið hleypt af stokk-
unum hjá íslenzkum skipa-
smíðastöðvum. Er engum
blöðum um það að fletta, að
sú stefna ríkisstjórnarinnar
að stuðla að stækkun og end-
urbyggingu dráttarbrauta og
byggingu skipasmíðastöðva í
landinu hefur þegar borið
ríkulegan ávöxt, og'á eftir að
gera það í vaxandi mæli á
komandi árum. '
Athafnalíf á íslandi er nú
svo gróskumikið og blómlegt,
að með einsdæmum er. Þrátt
fyrir það hafa stjórnarand-
stæðingar með neikvæðu
nöldri reynt að telja fólki trú
Viðskiptum. Haldið verði á-
fram að efla Iðnlánasjóð, svo um, að hér sé allt á niðurleið,
Hefur vikulegar flugferðir til
IMarssarssuðq og Thule 1. júní
DONSKU blöðin greindu frá
þvi fyrir nokkru í sambandi
við hina nýútkomnu sumar-
flugáætlun SAS, að það sem
helzt teldist til nýjunga varð-
andi hana væri að féiagið
öyggðist færa út kvíarnar
varðandi Grænlandsflug sitt.
SAS hefur til þessa aðeins
flogið til Syðri Straumfjarðar
á flugleiðinni Kaupmanna-
höfn—Los Angeles, og hafa
það verið einu föstu flugsam-
göngurnar milli Kaupmanna-
hafnar og Grænlands. En í
sumar ráðgerir SAS að hefja
vikulegt áætlunarflug til
Thule á NV-Grænlandi og
Narssarssuaq (Eiríksfjarðar)
á SV-Grænlandi. Til þessa
hefur aðeins verið haldið uppi
leiguflugum til þessara staða
frá Kaupmannahöfn, annars
vegar með starfsmenn til fyr-
irtækja í Thule ellegar með
ferðamenn til hinna veiðisælu
slóða umhverfis Narssars^uaq.
Flugið til SV-Grænlands
mun hefjast þannig að SAS
mun flytja farþegana til
Straumfjarðar með DC-7C
flugvélum, en þar mun flug-
félagið A/S Grönlandsfly taka
við farþegunum, og flytja þá
til Narssarssuaq með DC- vél-
um. Reiknað er með því, að
hinar föstu áætlunarferðir
milli Kaupmannahafnar og
Narssarssuaq muni hefjast 1:
júní í sumar.
Dönsku blöðin segja, að
flugleiðin muni hafa mikla
þýðingu fyrir íbúana á SV-
Grænlandi, t.d. í Juliane-
haab, Ivigtut og Grönnedal.
Þá telja blöðin þetta til mik-
illa hagsbóta fyrir ferðamenn,
þar sem áður hafi aðeins ver-
ið flogið leigluflug eftir þörf-
um til Narssarssuaq. (Við
þetta má bæta, að Flugfélag
íslands hefur undanfarin sum
ur flogið með svokallaða „4
daga hópa“ til Narssarssuaq,
og hafa þessar ferðir verið
mjög eftirsóttar bæði af er-
lendum og íslenzkum ferða-
mönnum).
Þá hafa dönksu blöðin það
eftir frú Nínu Holm, Aero
ar og Narssarssuaq, því bæði
hafi orðið að taka tillit til
„Norðurpólsleiðarinnar“ og
skyldu þeirrar, sem hvíli á
flugfélögunum um ískönnun-
arflug. Segja blöðin að til
þessa hafi A/S Grönlandsfly
og Flugfélag íslands verið
fengin til þess flugs.
S
ísinn við Grænland er tignarlegur ásýndum, en hefur reynzt
mörgu kaupfarinu skæður. Á næstu árum er talið að hann,
og margt það annað, sem í Grænlandi er að finina, muni laða
til sín mjölda ferðamanna.
flytja um 1000 ferðamenn til
og frá SV-Grænlandi. Aero
Lloyd sér og um fyrirgreiðslu
ferðamanna í Narssarssuaq
(Hotel Artic).
Dönsku blöðin segja, að
vandasamt hafi verið fyrir
SAS að skipuleggja flugáætl-
unina milli Kaupmannahafn-
skipa þremur þotuþyrlum og
DC-4 flugvélum. A/S Grön-
landsfly er sameign SAS, Krý
ólitfélagsins Eyrarsunds, græn
lenzka Landsráðsins og Kon-
unglégu Grænlandsverzlunar-
innar.
SAS FÆRIR IÍT KVÍ-
ARNAR í GRÆNLANDI
endanlega verið hraktar, og
og allir höfuðatvinnuvegir
landsmanna eigi í miklum
erfiðleikum. Slíkar fullyrðing
ar varðandi iðnaðinn hafa
^lmenningur mun einnig sann
færast um, að barlómstal
stjórnarandstæðinga gagn-
vart öðrum atvinnuvegum á
sér ekki frekari stoð í veru-
leikanum. Mesta afrek núver-
andi ríkisstjórnar hefur ver-
ið að veita mönnum frelsi til
athafna á ný, og það hefur
þegar borið ríkulegan ávöxt.
Óeirðir í Kal-
kútta — 15
biða bana
Kalkútta, 10. marz, NTB.
FIMMTÁN manns biðu bana,
er lögreglan greip til skotvopna
gegn mannfjölda sem lagði eld
í járnbrautarlestir og stöðvar í
héraðinu umhverfis Kalkútta í
Vestur-Bengal í dag. Óeirðir
þessar urðu meðan stóð 25
klukkustunda verkfall sem
vimstriflokkar í fylkinu stóðu
að.
Krefjast flokkarnir rannsókna
á aðgérðum lögreglunnar í sam-
bandi við mótmælafundi þá og
uppþot sem urðu vegna matar-
skortsins undanfarið og einnig er
mótmælt stefnu fylkisstjórnar-
innar í V-Bengal í málum þess-
um.
Stórblöð
someinost
New York, 16. marz — NTB.
BANDARÍSKU stórblöðin „Journ
al American" og „World-Tele-
gram“ í New York munu samein
ast í eitt blað hið fyrsta, að því
er haldið var fram í New Yorlc
í dag. Upplag blaðanna er sam-
anlagt um 900,000 eintölc dag-
lega.