Morgunblaðið - 17.03.1966, Blaðsíða 27
Fimmtudagur 17. marz 1966
MORCU NBLAÐIÐ
27
Sukarno að komast til
fullra valda á ný?
Suharto segir forsetann „afburða-
teibtoga byltingarinnar"
Djakarta, 16. marz. AP-NTB
SUHARTO, hershöfðingi, yfir-
maður hersinis í Indónesíu, lýsti
J»ví yfir í dag, öllum til furðu,
að það vseri Sukarno forseti sem
hefði allt stjórnmálavald í land-
inu.
Þessi yfirlýsinig kemur fjórum
dögum eftir, að sagt var frá því,
að Sukarno hefði falið Suharto
öll stjórnmálavöld í Indónesíu.
Jafnframt lýsti Suharto því
yfir, að atburðir þeir, sem áttu
sér stað í landinu um síðustu
helgi, ættu ekkrt skylt við bylt-
ingu. Sagði hann Suharto fram-
vegis mundu verða aeðsta mann
landsins og allsráðandi yfir-
manns herafla landsmanna, enda
væri hann ,,afburðaleiðtogi bylt-
ingarinnar“.
Síðustu fréttir frá Djafeerta
herma, að útvarpið í Djakarta
hafi skýrt frá því í kvöld, að
sérstök tilkynning hafi verið gef-
in út af Sukarno þar sem segi,
að hann beri aðeins ábyrgð á
gerðum sínum fyrir Guði og
þingi landsins.
Jafnframt virðist Dr. Suban-
drio, sem ekki hefur vikið frá
Sukarno undanfarna daga, njóta
þess fylgisauka, sem felst í þess
ari yfirlýsingu Suharto.
Blaðamenn fengu ekki leyfi
til að leggja spumingar fyrir
Dr. Subandrio í dag.
Sovézku hund-
arnir lentir
Talið að mannað geimfar muni fylgja
á eftir
SOVÉZKU gelmhundarnir tveir
lentu heilu og höldnu í dag eftir
J52 daga ferð um geiminn með
geimfarinu Kosmous 110. Frétta-
stofan Tass greindi frá því í
kvöld að hundarnir væru við
beztu heil.su, og að geimfarið
hefði lent á fyrirframákveðnum
stað. Talið er að það muni hafa
verið i þeim hluta Sovétríkj-
anna, sem talinn er til Mið-Asíu.
Nákvæmar rannsóknir munu nú
fara fram á hundunum.
Á meðan geimferð hundanna
stóð voru á þeim ýmsar tilraun-
ir gerðar með aðstoð tækja um
— Gemini
Framhald af bls. 1
160 km. frá jörðu er hún er næst.
NASA segir, að bæði geimskotin
hafi heppnazt mjög vel.
Þessari athyglisverðustu til-
raun mannsandans úti í geimn-
um til þessa má helzt líkja við
veðhlaup. Er Agena-geimfarinu
var skotið á loft, sátu geimfar-
arnir Armstrong og Scott í Gem-
inifari sínu og fylgdust með
geimskotinu í sjónvarpi.
Agena var komið á braut 10
mínútum eftir skotið. Það hafði
mikla þýðingu að Agena hafnaði
á réttri braut og allt um borð
í þvi geimfari væri í bezta lagi.
Ef Agena hefði lent á braut, sem
var lengra frá jörðu, erí til var
ætlazt, hefði ekki verið hægt að
skjóta hinu mannaða Gemini 8
toraut, og stefnumót í geimnum
hefði reynzt óframkvæmanlegt
þar eð eldsneyti hefði ekki ver-
ið nægilegt í Gemini 8 til að
framkvæma það.
Leitarstöðvar þær, sem fylgd-
ust með ferð Agena, gátu fljót-
lega upplýst að það væri komið
á braut, sem nánast gæti full-
komin talizt, 287 km. frá jörðu
er það var næst, er 298 km. er
það var fjærst. Hin alfullkomna
braut hefði verið 296 km. frá
jörðu.
Gemini 8 fór á braut umhverf-
is jörðu yfir Bermudaeyjum, og
þar með hófst hið feiknlega
kapphlaup umhverfis jörðu.
Ýenging Gemini við Agena á
braut umhvérfis jörðu er að-
eins ein af fjölmörgum tilraun-
um, sem framkvæma á í þess-
ari geimferð. Það, sem mesta
athygli á e.t.v. eftir að vekja,
er fyrirhuguð „geltnganga" geim
farans Scott. Ráð er fyrir því
1 borð í geimfarinu, og munu
þannig hafa fengizt mikilsverð-
ar upplýsingar um áhrif lang-
j dvalar úti í geimnum á lifandi
verur.
Geimfarið, sem hundarnir voru
í, var í braut umhverfis jörðu,
um 904 km. frá henni, þ.e. fyrir
utan hið svonefndá Van Allen
belti. Góðar heimildir í Moskvu
telja að mannað geimfar verði
sent í svipaða geimferð innan
skamms, og er líklegast talið að
sú ferð muni verða farin í sam-
bandi við 23. flokksþing sovézkra
kommúnista, sem hefst 29. marz.
gert, að hann yfirgefi Gemini 8
og svífi í geimnum í tvær og
hálfa klukkustund. Hann yrði
þannig fyrsti maðurinn, sem
„gengið“, eða réttara sagt, „synt“
hefur umhverfis jörðu. Þessi til-
raun mun fara fram á morgun,
fimmtudag.
Geimskot Gemini 8 er sagt eitt
hið bezt heppnaða, sem fram-
kvæmt hefur verið á Kennedy-
höfða. Hin risavaxna Titaneld-
•flaug skildi við fyrsta þrepið eft-
ir 2 mín. og 36 sek. Annað þrep
bijann út 5 mín. og 41 sek. eftir
skotið og um leið var Gemini 8
komið á braut umhverfis jörðu,
og var þá í 1920 km. fjarlægð
frá Agena. í fyrstu fjórum um-
ferðunum umhverfis jörðu beittu
þeir Armstrong og Scott síðan
tækjum Gemini til þess að koma
geimfari sínu í sömu hæð og
Agena, og tengdu síðan geim-
förin saman.
Að geta tengt saman tvö geim-
för úti í geimnum hefur gifur-
lega þýðingu fyrir bæði Banda-
ríkin og Sovétríkin í kapphlaup-
inu til tunglsins.
Eins og fyrr getur mun Scott,
geimfari, „ganga“ hálfan annan
hring umhverfis jörðu á morg-
un, fimmtudag. Jafnframt mun
hann skrúfa lausan bolta utan á
Agena-geimfarinu, og opna
þannig fyrir tæki. Þetta tæki á
að kanna hvort nokkurt lífs-
mark sé útan andrúmslofts jarð-
ar. Agfena mun halda áfram á
braut sinni umhverfis jörðu, og
vona vísindamenn að umrædd
tæki muni verða vör við smá-
eindalíf í geimnum, ef eitthvert
er.
Ér Gemini 1Ó verður skotið á
loft í sumar, verða tæki þessi
sótt i Agena, en Gemini JQ á
þá einnig að leggjast að Agería.
Nokkrar Fákskonur á heimili frú Helgu Larsen á Engi. Frú Hclga er lengst til vinstrL
Fákskonur í ferðalagi
SKÖMMU eftir hádegi í gær-
dag brugðu allmargar konur
úr Hestamannafélaginu Fák,
sér í ferðalag á gæðingum
sinum og fjölmenntu til Graf-
arholts til frú Helgu Larsen
í Engi, sem öllum áhugamönn
um um hestamennsku er að
góðu kunn.
Er fréttamenn blaðsins
komu til Engis var þar glatt
á hjalla og mikið sungið, en
alls munu um 40 konur hafa
lagt leið sina þangað þennan
dag. 1 slakkanum fyrir ofan
bæinn var mikill fjöldi hesta
á beit, enda munu margar
kvennanna hafa haft með sér
einn til reiðar. Er konurnar
höfðu notið gestrisni frú
Helgu á Engi um stund, tygj-
uðu þær sig aftur á stað og
sprettu úr spori áleiðis tll
borgarinnar, glaðar í fasi í
góða veðrinu. Okkur virtust
þær vera á öllum aldri, allt
frá niu ára til fimmtugs og
sérstaka athygli okkar vakti
hnáta á að gizka tiu ára
gömul, sem virtist hesta-
mennskan í blóð borin og sat
fák sinn knálega.
Ferðalaginu lauk við hest-
hús Fáks og konurnar ljómuðu
af ánægju eftir viðburðarrik-
an dag, eins og ein þeirra
komst að orði:
— Við skemmtum okkor
alltaf miklu betur en eigin-
mennirnir!
Óe/rð/r enn í
'Wattshverfi
Tveir bíða bana, 26 slasast
Los Angeles, 16. marz —
AP — NTB.
UM 600 negrar tóku þátt í sex
klst. óeirðum í gærkvöldi og
nótt í hverfinu Watts í Los
Angeles, en hverfi þetta er eink-
um byggt negrum. Tveir menn
Fræðsluerindi
Hjúkrunar-
kvennafélagsins
HJÚKRUNARFÉLAG ÍSLANDS
gengst fyrir fræðsluerindum
fyrir félagskonur og verða erind
in flutt í Iðnskólanum (inngang-
ur frá Vitastíg). Verða erinda-
kvöldin alls sex og lýkur 30.
marz.
Fyrstu erindin verða flutt
annað kvöld, föstudag kl. 20. 30.
Þá talar Sigurður Ingimundar-
son, aliþingismaður um verk-
stjórn í nútíma atvinnurekstri og
kl. 21.15 talar Þorkell Jóhannes-
son, læknir um fíknilyf.
Allar félagskonur Hjúkrunar-
kvennafélagsins eru velkomnar
og þátttaka ókeypis. Þátttakend-
um gefst kostur á að bera fram
fyrirspurnir til fyrirlestra að
erindunum loknum.
Næsta erindakvöldið verður
n.k. mánudagskvöld.
- 87 °Jo
Framhald af bls. 28
Þegar gert er að fiski um borð
í veiðiskipi, sem stundar veiðar
með nót eða þorskanetjum, er
bannað að kasta slógi útbyrðis
á veiðisvæðinu.
Brot gegn ákvæðum reglugerð
ar þessarar varða sektum.
Ráðuneytið tekur sérstaklega
fram, að veiðar á þorski og' ýsu
í smáriðnari nót en hér um ræð-
ir, eru bannaðar.
Sjávarútvegsmálaráðuneytið,
16. marz 1966.“
létu lífið og 26 meiddust í óeirð-
um þessum, sem hófust er lög-
reglan hugðist handtaka svartan
ungling, sem kastaði grjóti í
bíla.
Miklar óeirðir urðu í Watts s.l.
sumar, svo sem flesta rekur
minni til, og ber hverfið þess
enn merki.
Mörg hundruð lögreglumenn
þustu þegar á vettvang í gær-
kvöldi. Skaut múgurinn af byss-
um, brauzt inn í verzlanir, velti
um bílum o.fl. Edmund G.
Brown, ríkisstjóri Kalifomíu,
taldi þó ekki rétt að kveðja
Þjóðvörð Kaliforníu á vettvang.
Hann tilkynnti síðar í nótt, að
„allt væri með friði og spekt í
bili“.
Annar manna þeirra, sem beið
bana, var hvítur vörubílstjóri,
sem negramúgur elti, og skaut
til bana. Hinn var negri, sem
féll fyrir kúlu leyniskyttu.
Lögreglan segir að 27 menn
hafi verið handteknir vegna ó-
eirða þessara.
— Erl. sjómaður
Framhald af bls. 28
fyrr en maður þessi stóð þar
inni á gólfi í herberginu. Vafðist
honum í fyrstu túnga um tönn,
en stundi loks upp spurningu um
það hvar sjúkrahúsið væri að
finna. Er honum hafði verið sagt
það, hvarf hann á brott. ,
Þegar nemendur komu í her-
bergi sín um hádegið, gaf held
ur á að líta. Hafði verið farið
inn í a.m.k. átta herbergi, ýmsu
snúið þar við og rótað í skúff-
um og hirzlum. Kom í ljós, að
samtals hafði verið stolið 800
krónuim.
Grunur féll strax á hinn
brezka sæfara, og var hann hand
tekinn um hádegisibilið í Hótel
KEA, þar sem. hann hafði þá
tekið herbergi á leigu. Játaði
hann flj.ótlega þjófnaðinn og
situr niú í gæzluvarðhaldi.
MóHúndur lyrir
reykvískt
æskufólk
NÆSTKOMANDI sunnudag, 20.
marz, mun málfundafélagið
Framtíðin efna til málfundar í
Sigtúni — fyrir reykvískt æsku-
fólk á aldrinum 16 — 21 árs.
Umræðuefni fundarins verður:
Réttindi og skyldur íslenzkrar
æsku.
Málshefjendur verða margir,
— úr Menntaskólanum, Verzl-
unarskóianum, Kennaraskólan-
um og Iðnskólanum. Að fram-
söguræðum loknum verða frjáls-
ar umræður.
Framtiðin hvetur ungmenni
Reykjavíkur, einkum skólafólk,
að fjölmenna á þennan fund, sem
verður auglýstur nánar í blöðum
og útvarpi.
(Frá Framtíðinni).
— de Gaulle
Framhald af bls. 1.
bandalagsins, að Frakklandi frá
töldu, séu nú sammála orðin um
yfirlýsingu, þar sem greint sé
frá stuðningi þeirra við sameig-
inlegar varnir bandalagsrikj-
ana. Birting yfirlýsingarinnar
hefur dregizt, en gert er þó ráð
fyrir, að hún komi fyrir almenn-
ingssjónir á fimmtudag eða föstu
dag.
í Washington var frá því
greint í dag, að Johnson, forseti.
hefði í dag haldið fund með
helztu ráðgjöfum sínum, og hefði
umræðuefnið verið afstaða De
Gaulle, Frakklandsforseta, til
Atlantshafsbandalagsins. Segir
fréttaritari „Reuters" í Washing-
ton, John Heffernan, að Johnson
hafi ákveðið að hætta við fyrir-
hugaða ferð sína til Evrópu. Var
ráðgert, að hann legði upp í för-
ina í apríl eða maí. Segir Heff-
ernan, að ástæðan sé stefnubteyt
ing Frakklandsforseta.