Morgunblaðið - 17.03.1966, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 17.03.1966, Blaðsíða 26
26 MORGU N BLAÐIÐ Fimmtudagur 17. marz 1966 Niðurstöður tœkna: Fímm vikna aðlcg unar er þörf fyrir þá er keppa eiga í erfiðum greinum í Afex/co ■ „JAFNVEL með beztu aefingu og lengstu aðlögun munu margir íþróttamenn ekki ná sínu bezta í Mexico“ eru lokaorð í skýrslu sænska læknisins sem stjórnaði læknisíræðilegum tilraunum Norðurlandalækna á prufuleik- um í Mexico í fyrrahaust. f læknaskýrslunni er þeirra niðurstaða rannsókna getið að ef vænta eigi árangurs keppenda og ekki stofna þeim í sjúkdóms- hættu, þá þurfi að haga undir- búningi þeirra á sérstakan hátt og ekki allra eins. Varðandi keppendur í teknisk- um greinum frjálsíþrótta (köst og stökk), spretthlaupara og ýmsar aðrar greinar, þá geti þeir haldið að heiman u. þ. b. viku fyrir keppni, en megi ekki halda beint til Mexico, heldur ættu að fá aðlögun loftslags í vikutíma á „heppilegum" stað í Bandaríkj unum. Varðandi keppendur í 800 m hlaupum og þar yfir svo og í göngu, róðri, sundi o. fl. grein- um, þá þurfi eftirfarandi varúð- arreglur: fimm vikna dvöl á ein- hverjum stað í 2250 m hæð. West Ham vann WEST Ham sigurvegari í Evrópu keppni bikarmeistara á fyrra ári hafa nú tryggt sér rétt til undan- úrslita í sömu keppni í ár. Léku þeir gegn Magdeburg F.C. í Magdeburg í gær og varð jafn- tefli 1—1. West Ham vann heimaleik sinn 1—0 og kemst því áfram með samtals 2—1 markatölu. Þrjár-fjórar fyrstu vikurnar er hægt að dvelja í Evrópu t. d. í Ölpunum og síðan eftir stutta dvöl í heimalandi þá sé flogið til Bandaríkjanna og þar dvalið á „heppilegum" stöðum“ þar til daginn áður en keppa á. Þetta þýðir að sjálfsögðu stór- aukin útgjöld Olympíunefnda til að senda keppendur til leikanna — og sennilega á sama hátt, að alls ekki allir keppendur eiga slíkar aðstæður að geta leyft sér þetta, þó þeir séu valdir til keppni á leikunum. Plaststökkbraut rísi á Siglufirði þar sem stökkva má á sumrin Rætt vib Aage Schiöth form. IBS FYRIR skömmu var staddur hér í höfuðborginni Aage Schiöth fyrrum lyfsali á Siglu firði. Hann var nýlega kjör- inn formaður lþróttabanda- lags Siglufjarðar og gripum við tækifærið og ræddum við hann nokkra stund um íþrótta mál Siglfirðinga og helztu fréttir þaðan að norðan. Við byrjuðum á að ræða skíða- íþróttina, en sem kunnugt er stóð vagga hennar hér á landi á Siglufirði. — Hvað álítur þú um þá 100 unglingar keppa d sundmóti í kvöld Fyrsta aldursflokkakeppnin t)M 104 unglingar á öllum aldri en elztir þó 16 ára, mæta til sund móts í Sundhöllinni í kvöld. Er það fyrsta aldursflokkakeppnin i sundi, samkvæmt reglugerð er síðasta ársþing sundsambandsins samþykkti. Það eru Ármann og Ægir sem standa að þessu móti. Á þinginu var stofnuð sérstök unglinganefnd, sem hefur um- sjón með þessu móti. Keppnisgreinar í kvöld eru þessar: 100 metra skriðsund drengja, 15 ára og 16 ára. 100 metra fjórsumd telpna, 13 og 14 ára. 50 m. skiriðsund sveiona, 12 ára og yngri. 50 m. bringusundi telpna 12 ára og yhgri. 200 metra bringusundi stúlkna 15 og 16 ára. Ársþing’ ÍBH í kvölcf ÁRSÞING fþróttabandalags Hafnarfjarðar verður haldið i kvöld kl. 8.30 í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði. 200 metna fjórsundi drengja, 15 og 16 ára. 100 metra bringusundi sveina 13 og 14 ára. 100 metra skriðsund.i telpna, 13 og 14 ára. 50 metra baksundi sveina, 12 ára og yngri. 50 metra flugsundi stúlkna, 15 ára og 16 ára. 100 metra baksundi drengja, 15 og 16 ára. 50 metra baksundi telpna, 13 og 14 ára. 50 metra flugsundi sveina 13 og 14 ára. 50 metra flugsundi telpna, 12 ára og yngri. Keppendur á móti þessu eru um 100, sem koma frá Selfossi, Hafnarfirði, Keflavík, Akranesi, auk fjölda frá Reykjavík, svo eflaust verður um spennandi keppnj að ræða. Nú er aðeins keppt í helmingi þeirra greina sem á skrá eru, sam kvæmt reglugerð, en annað mót er fyrirhugað í næsta mánuði. Verður óskandi að þessi keppni verði til að sundíþróttinni aukist enn kraftar við þessa tilraun. — Mótið hefst kl. 20,30. (Frá unglinganefnd S.S.Í.) ráðstöfun að gera Akureyri að miðstöð vetraríþrótta hér á landi? — Ég vil nota tækifærið til að óska stjórn íþróttasam- bands íslands, Akureyringum öllum og þá sér í lagi þeim Hermanni Stefánssyni og for- manni íþróttabandalags Akur eyrar til hamingju með þessa ráðstöfun. Ég tel að þetta sé ekki einasta mjög þýðingar- mikið fyrir Akureyri heldur og engu síður fyrir öll íþrótta- félög landsins. Svo sem kunn- ugt er stóð vagga skíðaíþrótt- arinnar á Siglufirði og eigum við Siglfirðingar á að skipa mörgum framúrskarandi íþróftamönnum í þessari grein. Mér er kunnugt um að margir eldri þátttakendur í þessari göfugu iþrótt hafa öðlast mikla þekkingu á að skipuleggja skíðamót svo vel fari. Vil ég í því efni nefna þá Guðlaug Gottskálksson, Braga Magnússon, Helga Sveinsson, Guðmund Árnason, Jónas Ásgeirsson, Jón Þor- steinsson, Baldur Ólafsson og fleiri ,sem of langt yrði upp að telja. Ég efast ekki um að þessir menn muni framvegis, sem hingað til, verða Alrur- eyringum til aðstoðar í þessu starfi og stuðla þannig að vel skipulögðum skíðamótum í menningar- og athafnabœnum Akureyri. Mér finnst engin ástæða til að upp komi kritur út af því hvaða staður sé valinn sem miðstöð vetraríþrótta í land- inu. Aðalatriðið er að á þeim stað sé góð aðstaða til þess að iðka þessar íþróttir. Nú eru samgöngur hér á landi orðnar svo góðar að enginn ætti að vera útilokaður frá því að sækja þessa miðstöð iþróttanna. Svo er hins að geta að Akureyrarbær hefir ýmislegt gert til að byggja staðinn upp sem ferðamanna- bæ og hefir lagt sérstaka rækt við skíðaíþróttina. — En hvað er svo að segja um íþróttamálin á Siglufirði? — Það er lögmál, sem ekki verður umflúið að íþrótta- starfið er jafnan nátengt at- vinnuástandinu eins og það er á hverjum tíma. Ég verð því miður að viðurkenna að íþróttastarfsemi okkar Sigl- firðinga hefir verið í afturför á undanförnum árum, en þess ber þó að geta sem gert hefir verið. Það er fyrst og fremst vegna fyrirgreiðslu og vel- vilja menntamálaráðherra,, Gylfa Þ. Gíslasonar, að tekizt hefir að fullgera sundlaug með heitu vatni til notkunar fyrir æskulýð Siglufjarðar og alla bæjarbúa. Nú er ennfrem ur ákveðið að ganga frá íþróttasal yfir sundlaugina. Verður það tilvalinn salur til að stunda allar inniiþróttir svo og tennis og badmington. Á næsta ári verður byrjað að byggja nýjan knattspyrnuvöll á svonefndri Langeyri, sunn- an við bæinn, en með því að fyrirsjáanlegt er að ekki verð ur hægt að taka hann í notk- un fyrr en að nokkrum árum liðnum, er það mjög aðkall- andi að bæta þann knatt- spyrnuvöll, sem fyrir er, og notast hefir verið við. Þessi völlur hefir ekki fulla stærð samkvæmt lögum Í.S.Í. og mun það verða eitt fyrsta verk Í.B.S. eftir heimkomu mína til Siglufjarðar, að bæta úr þessu, þannig að útilokað sé að þessir gallar geti valdið óþarfa deilum um þá leiki, sem þar fara fram. Við lifum í þeirri von, að hægt verði að koma upp plast stökkbraut, þar sem ungiing- Það er Peter Bonettl, mark- vörður Chelsea. sem hér tek- ur dýfu og bjargar hörku- skoti frá John Conelly (sézt ekki) v. úth. Manch. Utd. Myndin er tekin á Stamford Bridge leikvanginum í Lon- don. Dennis Law fyrirliði Manch. Utd. (hvítar huxur) horfir á eftir knettinum fram hjá stöng. Chelsea vann leik- inn 2—0. um gefst kostur að æfa sig i skíðastökki á sumrum áður en haldið er til stökkæfinga í skíða'brekkunum, er vetur er genginn í garð. Þetta er framtíðardraumur, en eins og kunnugt er, hafa Siglfirðing- ar ávallt haldið hvað mest upp á skíðastökkið. HG Donmerkur- meistari í handknuttleik KAUPMANNAHAFNARLIÐIÐ HG varð Danmerkurmeistari i handknattleik karla. Var loka- leikur meistarakeppninnar á sunnudaginn og mættust þá tvö efstu liðin, HG og Aarhus KFUM. Var leikurinn vel leikinn og góður og lauk með verðskuld uðum sigri HG 15—12. HG hefur hlotið 32 stig í 18 leikjum, skorað 350 mörk gegn 286. Aarhus KFUM hlaut 28 stig, skoraði 380 mörk gegn 286 og í 3. sæti er Ajax með 22 stig (381 mark gegn 321). Síðan koma Helsingör með 18 stig, þá Tarup og Skovbakken með 17 stig,, MK 31 með 14, AGF 12, Vilby 10 og Gullfoss 9. Efnt til annarra prufu- leika í Mexico í haust AÐ ósk fjölmargra Olympíu- nefnda hefur framkvæmdanefnd Olympíuleikanna í Mexico City 1968 ákveðið að efna til annarra „prufuleika" næsta haust, eða nánar til tekið 10.—15. okt. Verða nú níu keppnisgreinar á dagskránni, eða tveimur fleiri en voru á dagskrá prufuleik- anna í fyrrahaust. Verður keppt í frjálsum íþróttum, hnefaleik- um, róðri, hjólreiðum, skylming um, fimleikum, sundi og blaki. Hugsanlegt er og að einnig verði keppt í siglingum, glímu og judo.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.